Þjóðviljinn - 30.09.1969, Side 5

Þjóðviljinn - 30.09.1969, Side 5
Þriðjudagur 30. september 1969 — ÞJÓÐVILJINN — SlDA g Handkn attl eikur: □ Sjaldan eða aldrei hafa handknattleiks- liðin komið betur undirbúin til keppni en nú, enda leyndi það sér ekki í fyrstu þremur leikjum Reykjavíkunmótsins sl. sunnudagskvöld. Þessi góða byrjun handkna’ttlpiksliðanna nú er árang- ur sumaræfinga félaganna, sem hafa vérið meiri en oftast áður og þá ekki sízt æfingastöðvar- innar, sem HSÍ hefur starfrækt í Réttarholts- skólanurp í sumar. Byrjun Re ykja víkurmó tsins lofar góðu um framhaldið Fram - KR 13:12 Fyrsti leikur kvöldsins var á milli Fram og KR. Fyrirfram var ekki búizt við KR-liðinu sterku, einkum vegna þess, að það hefur misst nokkra menn yfir í nógrannafélagið sitt Gróttu á Seltjamarnesi. Þess vegna kom hin ágæta frammistaða þeirra gegn Fram á óvart. Það voru Framarar sem skoruðu fyrsta mark leiksins og gerði það ung- ur nýliði Ómar Arason. Hilmar Björnsson jafnaði fyrir KR, og um miðjan fyrri hálfleik höfðu KR-ingarnir néð 3ja marka for- skoti 7-4 en á þeim mínútum setm eftir voru til leiksihlés skor- uðu Framarar 5 mörk, en KR- ingar aðeins 1, og var staðan í leikhléi því 9:8 Fram í haig. ★ I síðari hállffleik hélzt leikur- inn mjög jafn og það var ekki fyrr en nokkrum sekúndum fýr- ir leikslok að Fram tókst að tryggja sér sigurinn 13:12 með marki frá Gylfa Jóhannssyni- Beztu menn Fram vt>ru þeir Ingóifur Óskarsson, Axel Axels- son, Sigurður Einarsson og Sig- urbergur Sigsteinsson. Hjá KR voru það Geir Friðgeirsson, Hilmar Björnsson, Gunnar Hjaltalín og Karl Jóhannsson að Emil Karlssyni markverði ó- gleymdum, sem áttu beztan leik- Dómarar voru Björn Kristjáns- son og Eysteinn Guðmundsson og dæmdu skínandi vel- Valur - Þróttur 13:6 Allir sem með handknattleik fylgjast vissu að Vals-liðið he£- ur æft bezt allra liða í sumar, en að það væri orðið svona gott, sem raun þar vitni, hefur ef- laust eniginn búist við. Þjálfari liðsins er hinn gamalkunni hand- knattleiksmaður úr KR Reynir Ólafsson, og hefur hann þjálfað liðið í rúmt ár- Undir hanshand- leiðsilu hefhr liðið tekið þvi- líkum framförum, að það er æv- intýri líkast og mér segir svo hu'gur, að það ásamt FH muni Hellas vann síiarí' leikinn gegn Levski Sænsku meistararnir Hellas, sem koma hingað í þessari viku í boði Þróttar, léku síð- ari leik sinn gegn búlgörsku meisturunum Levski-Spartak í Evrópumeistarakeppninni um síðustu helgi og sigruðu 18:12. Fyrri ielkinn unnuBúlg- ararnir 18:9 og komast þeir því áfram í keppninni á hag- stæðara markahlutfalli. Eins og áður segir, koma sænsku meistararir Hellas hingað til lands í þessari viku Bikarkeppni KSÍ: og leika hér 3 Ieiki. Sá fyrsti verður gegn Val n.k. fimmtu- dagskvöld, en auk þess leik- ur Hellas við FH og Iandslið- ið. Eftir að hafa séð byrjun- in’a hjá Val í Reykjavíkur- mótinu, er ekki nokkur vafi á að leikur þeirra gegn Hellas verður jafn og skemmtilegur slíkar framfarir hafa orðið hjá liðinu. Um hina leikina tvo þarf vart að taka fram að þeir verða jafnir og skemmti- legir. — S.dór. -\ Valur a-H8f Valur-b og Akureyrí unnu Sext'án liða úrsditin í Bikar- kieppni KSÍ hófust um síðustu héLgi og eiru 1. deildiar liðin komin í keppnina. Á lau'gardiag lék ÍA B-lið við Akiureyringa og fóir leikurinn fram á Akur- eyri. Heiraamenn sigruðu með 3:2 eftir íramlengd'an leik. Að venjuleigum leikitíma loknum var jafnt 2:2 en í framlengingunni tókst Akureyringum að skoira sigurmarkið. Sama diag lék A-lið Vals á fsiafirðd gegn Vestra oig sigr- aði Valur 2:1 og verður að segja það eins og er, að f'rammistaða þessaira tveggjia 1. deildarliða, Vals og ÍBA er íurðulega lé- leg og fer m’aður að efast um að munuxinn á 1. og 2. deildar- liðunum sé eins mikill og oft er um talað. Á sunnudag léku svo Völs- ungar frá Húsavík gegn B-liði Vals á Mélarvellinúm í Reykja- vík. Siigruðu Valsmenn með 3:2. og er B-lið Vals þar með kom- ið í 8 liða keppnina. Um næstu helgi fara svo væntanlega fram nokikirir leikir í Bikarkeppninni en í þeim leikjum sem eftir exu leika nýbiakaðir íslandsmeist- arar ÍBK við ÍBV, KR gegn B- liði FH Skiagamenn við Fram, og eins og vant er mun engin leið að spá um úrslit. Bjarni Jónsson. reynast í sérflokki íslenzkra handknattlei'ksliða í vetur. Það er skemmst frá því að segja, að á fyrstu 5 mínútum leiksins gerði Valur útum þenn- an leik með því að skora 6 mörk gegn. 1 en eftir það var spuminigin aðeins hvað muhur- inn yrði mi'kill, en ekki hvort liðið mynidi sigra. í lei'khléi var staðan 8-2. 1 síðari hálfleik slök- uðu Valsmenn heldur á og Þrótt- ur náði betri tökum á leiknum, og lokatölumar urðu 13:6 Vals- mönnum í hag. Vals-liðið er mjög jafnt að stynkleika, og er það hötfuðkosit- ur iþess- Elkki einn einasti veikur hílekkur er í liðinu og meira að segja hefur liðið tveim frábær- um markvörðum á að skipasem er meira en önnur lið hafa- Þrátt fyrir að liðið er mjög jafnt, eru tveir menn sem skera sig úr liðinu, en það em landsliðsmemn- irnir Bjami Jónsson og Ólafur Jónsson og hafa þeir aldrei ver- ið eins góðir og nú. í Þróttar- liðinu bar mest á Halldóri Bragasyni, Erling Sigurðssyni og Helga Þorvaldssyni, en annars virðist Þróttar-liðið betra en oft áður- Dómarar vom Krist- ófer Magnússon og Sveinn Krist- jánsson og dæmdu vel. Víkingur - IR 13:14 Þetta var jafnasti leikur kvöldisins, en þama áttust við liðið sem kom uppúr 2. deild í fyrra (Víkin'gur) og liðið sem féll niður (ÍR) og mátti ekki á milli sjá hvort liðið var betra, þótt svo að Víkingur næði að sigra með eins marks mun. 1 leikhléi var staðan 8-7 IR í vil, en nokkrar ótímabærar skottil- raunir komu í veg fyrir að ÍR- ingarnir héldu þessu forskoti út leikinn. I Víkings-liðinu er það Einar Magnússon sem hefur höfuð og herðar yfir aðra leikmenn og það í tvennum skilningi- Ðf Ein- ar hefði aðeins meira keppnis- skap væri hann okkar bezti hand'knattleiksmaður, því hann hefur- alla líkamlega eiginleika til- þess- Þá er Páll Björgvins- son vaxandi leikmaður. IR-Iið- ið er noíkkuð jafnt, með þá Ágúst Svavarsson, Áisgeir Elíasson, Vil- hjálm Sigurgestsson og Þórarin Tyrfingssion sem beztu memn. Liðið virðist vanta fleiri leik- menn til að slkipta inn á, því það lék svo til óbreytt allan leik- . inn, sem er varia hægt að.bjóða nokkrum manni. Dómarar voru Þoirvarður Bjömsson og Jón- mundur Friðsteinsson og dæmdu vel. S.dór. ÞÚ % A LÆRIR MÁLIÐ í MÍMI 10004 THkynning frá Berklavöm Reykjavík. Kaffisala verður á berklavarnadaginn, 5. okt. að Hallvei'garstöðum við Túnigötu. Þeir sem eim svo vinsamlegir að gefa kökur eða styrkja á annan hátt, eru beðnir að hringja í síma: 32044 — 23966 — 20343 eða koma því að Hallvei'garstöðum fyrir hádegi á sunnudag. Stjómin Rannsóknarstarf Karl eða kona, með menntun til þess að setja á stofn og vinna á rannsóknastofu við sjúkrahús. óskast ráðin að sjúkrahús- inu á Selfossi. Upplýsingar um starfið veitir yfirlæknir sjúkrahússins, Óli Kr. Guðimundsson, á mánudögum og fimmtudögum kl. 13-14 í síma: 99-1505. Umsóknir um starfið skulu stílaðar til stjómar Sjúkrahússins á Selfossi, formað- ur Sigurveig Sigurðardóttir, Kirkjuvegi 3, Selfossi. — Umsóknarfrestur er til 31. okt. 1969. Stjórn Sjúkrahússins á Selfossi. Islenzk frímerki ný og notuð kaupir hæsta verði RICHARD RYEL Háaleitisbraut 37 (áður Kópavogi). Sími' 84424 — (Bezt á kvöldin) Launahækkun Athygli verzlunar- og skrifstofufólks er vakin á launahækkun, sem varð 1. sept. s.l. vegna hækkunar á vísitölu um 3,5 stig. VERZLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR. HUSNÆÐISMALASTQFNUN RÍKISINS Húsnæðismjálastjó'm hefur ákveðið að veita, á tímabilinu 1. október til 31. desember n.k. lánslof- orð (fyrri hliuta lán) til þeirra einstaklinga, sem áttu hinn 17. þ.m. full'gildiar umsófcnir hjá Húsnæð- ismálastofnun ríkisins. innkomnar fyrir 16. marz s.l., til íbúða, sem verða fofcheldar á tímabilinu 1. ágúst til 31. desember 1969. Lánsloforð þessi koma til greiðslu frá og með 1. febrúar 1970. Húsnæðismálastjóm hefur einnig ákveðið að veita framkvæmdaaðilum í byggingariðnaðinum, sbr. 1. nr. 21, 27. apríl Í968, lánsloforð (fyrri hluta lán) til þeirra íbúða, sem þessir aðilar gera fokheldar á tímabilinu 1. ágúst til 31. desember 1969, enda skili þeir vottorðum þar um til sitofnunarinnar fyr- ir árslok og tjái sig samþykka skilyrðum þeim fyr- ir lánum þessum, er greinir í téðum lögum. Láns- loforð þessi verða veitt á tímabilinu 1. október til 31. desember n.k., eftir því sem hlutaðeigandi byggingar verða fokheldar, og koma til greiðslu eftir 1. febrúar 1970. Að gefnu tilefni skal tekið fram, að einstaklingar, sem eiiga óafgreiddar umsóknir um íbúðalán, fá nú efcki skrifleg svör við umsóknum sínum fyrr en lánsloforð eru veitt, Hins vegar geta umsækjendur ■jafnan gengið út frá því, að umsókn fullnægi skil- yrðum ef umsækjanda er ekki tilkynnt um synj- un eða skríflegtar athugasemdir eru gerðar af Hús- næðismálastofnuninni. Auk þess skal umsækjend- um bent á, að þeir.geta að sjálfsögðu ætíð íeitað til stofnunarinnar með fyrirspumir vegna um- sókna sdnna. Reykjavfk, 26. september 1969. HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RÍKISINS LAUGAVEGI77. SIMI22453 *

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.