Þjóðviljinn - 28.12.1969, Síða 7
Sunniudagur 28. deseimtoeir 1969 — ÞJÓÐVILJINN — Slí)A 'J
Þróunin í Tékkóslóvakíu
Framhald af 5. síðu.
ir en þeir sem fást tii að lýsa
opinberlega saimíþy’kiki sínu við
innrásdna. Það þýkir þó Hus-
ák og félögum hans of langt
genigið og hafa andmœlt þedrri
kröifu-
Emnþá hafa ekiki átt sér stað
nein pólitísk réttarhöld yfir
fulltrúum endumýjunarstefn-
unnar (þó mun málsrannsókn
hafin gegn Prchllík hershöfð-
ingja), en það þýðir ekki að
sú hætta sé úr sögunni. í út-
varpi og blöðum er lögð á það
mikil áherzla, að baráttan gegn
hinuim „andsósíalísku öflum“
sé aðeins að hefjast, og ek'ld
megi sýna þeim neina linkind.
I þessu saimbamdi er það tæp-
ast góðs viti, að við sdðustu
endurskipulagningu tékknesku
stjómarinnar var fotnmiaður
tóklknesk-sovézka vináttufélaigs-
ins gerður að dóimsimélaráð-
herra.
Á eftir hreiinsiuninni í flo'kkn-
um hefur fylgt sams konar
hreinsun í verkál ýðssamtökun-
um. Þtír verkaHýðsforinigiar,
sem s- 1. vor létu af opintoarri
andsitöðu við flokksforustuna í
von uim að betra tækifæri gæf-
ist siðar, hafa nú uppsikiorið
laun sán: þeim hefiur flestum
verið vikdð frá störfum, og veigina
þess að þeir höfðu með und-
anlátsseimi sinni glatað miklu
af trausti veríkaimanna. mætti
brottvikningin eklki verulegri
mótspymu. Erfiðlegar mun
ganga að hrednsa til í stjóm-
um félagsdiedlda í einstökuim
verksimiðjum, en uim það toer-
ast minni fréttir út.
Við önnur féla.gssamtök er
beitt svipuðuim aðlferðuim:
stjómir þeirra eru þvinigaðar
til að segja af sér og síðaneru
settar upp bráðatoirgð astj ómi r,
sem afturkalla allar samiþykkt-
ir frá s.l. ári og lýsa fylgi sánu
við hina nýju forystu- A
þennan hátt tókst að beygja
sióvakíslka rithöfundasamtoandið
til hlýðni, en hið tékknesika
hefur enn ekiki látið neinn bil-
búg á sér £nna.
Yísindaakademían, sem lengi
hélt uppi . harðri mótspyrnu,
var lofcs þvlnguð til uppgjaf'ar
um miðjan nóvember. Á stjórn-
arfundi (þaæ sem þó vantaði
verulegan hluta meðlima að
forseta og varaforseta með-
töldum) var samþykkt ályktun,
sem fordæmir starfsemi stofn-
unarinnar á árinu 1968 og sér
í lagi þá meðlimi hennar, sem
tóku saman „Svörtu bókina"
um innrásána. Verr befur geng-
ið að fást við aðrar vísinda-
stofnaniir, til dæmiá reyndist
sjálf þjóðfélagsvísindiastofnun
flokksdns svo gegnsýrð af villu-
tirú, að mdðstjórn tók þann kost
að leysa hana upp.
Eitt af því, sem flokksforyst-
unni er mest um hugað, en
erfiðast verður í framkvæmd,
er að koma skólakerfinu aftur
í lag. 1 ágúst. var Jaromár
nokkur Hrbek, áður prófessor
í Olomonc og víðfræigur fyrir
fáránlegan heilaspuna á sviði
lífeðlisfræði, skipaður í emto-
ætti kennsJumálaráðherra. Þess
munu mjög fá dæmi, að slíkum
manni hafi verið trúað fyxir
því embætti, en skýringin er
sú, að honum er ekki fyrsit oig
fremst ætlað að vinna þáu
verk, sem venjulega koma í
hlut kennsiumálaráð'herra, held-
ur aUt aðrir hlutir: að brjóta
niður stúdentahreyfinguna og
hreinsa burt „andsovézk og
andsósíaiísk öfl“ í kennara-
stétt. Ef honum hefur hdngað
til orðið lítið ágengt, er það
fyrst og fremst vegna þesis, að
hann hefur mætt einhuga mót-
spymu og enga menn haft
handbæra til að setja í stað
þeirra, sem taldir eru verð-
skulda torottvikningu. Það tal-
ar sínu máli um ástandið, að
í fyrstu ræðu sinni sem ráð-
berra taldi hann það megin-
verkefni að endurlífga sósíal-
ísika uppfræðslu í skólum lands-
ins, en ekki löngu síðar gaf
bann út tiisikipun um að hætta
skyldi kennslu í miarxismia við
hásikólana, því að kennarar í
þeirri girein höfðu nær allir
látið ánetjast andsósíalískum
öflum og hvergi var menn að
fá í stað þeirra.
Mikilvægustu vígstöðvarnaæ
í baráttu stjórnarvaldanna gegn
þjóðinni eru þó hinar efna-
hagslegu, og þar hefur þeim
um leið orðið minnst ágengt.
Fyrir nokkrum mánuðum var
tilkynnt, að hætt yrði fyrst um
sinn við allar efnahagsumbæt-
ur og horfið aftur til strangrar
miðstjómar. Það hefur þó lít-
inn árangur borið. enda er höf-
uðmeinsemd efnahagslífsins nú
ekki þess eðlis, að skipulags-
breytingar komi þar að nokkru
gagni: Allur almenningur fer
sér svo hægt við vinnu, að
stundum sitappar nærri beinum
skemmdarverkum. Sumpasrt er
þetta sprottið af þeirri al-
mennu skoðun, að það séu
fyrst og fremst Rússar sem
hagnist á tékkneskri fram-
leiðsiu. sumpart gera menn sér
grein fyrir að núverandi stjórn
getur því aðeins fesit sdg í sessi.
að hún komi einhverju lagi á
efnahagskerfið, og þar sem
þeir em vantrúaðir á mögu-
leika til . beinnar pólitískrar
mótspymu, tafca þeir þennan
kost. Mest hefur þetta verið á-
berandi meðal verkamanna. en
greinar í Rudé Právo nýlega
benda til að það hafi einnig
þreiðzf út til bænda. Pólitísk-
ur áróðúr hefur hér að litlu
gagni fcomið og befur nú ver-
ið gripið til þess ráðs að herða
vinnulöggjöfina. Frá áramótum
verður heirt allt eftirlit á
vinnustöðvum og um leið tekn-
ar upp harðari refsingar fyrir
fjairvisitir, léleg afköst o.s.frv.
Úm leið hafa stjómarvöldin
haft í hótunum um að lengja
vinnuvikuna (40 stundavinnu-
vifca var innleidd í ýmsum iðn-
greinum á döguim Novotnýs og
gerð að almennri reglu í tíð
Dubcefcs).
Hér er um glæfrale'gt tiltæki
að ræða. Allt Novotnýtímabil-
ið var vinnúlöggjöfin í Tékkó-
slóvakíu miklu mildar; en ann-
ars sibaðar í Austur-Evrópu og
jafnvel enn mildari í friam-
kvæmd en á pappímum. Með
þessu hugðist Novotný kaupa
sér grið af verkamönnum og
tókst það reyndar um alllangt
skeið. Afstaða verkamanna' til
stjórnarvaldanna er nú þannig,
að þeir mundu tæpast tafca
þegjandd og hljóðailaust ráð-
stöfunum í gagnstæða átt.
Þverstæður hins
opinbera áróðurs
Hin nýjia forysta hefur tek-
ið upp sovézkar fuUyrðingar
um sitarfsemi gagnbyltingarafla
á sl. ári, en engu þetur gengið
en sovézkum áróðursmeistur-
um að samrýma þær stiáð-
reyndum og heilbrigðri skyn-
semi. Meiginatrið'ið í málflutn-
ingi hennar er að gera það að
óvefengjanlegu trúairatriði, að
þjóðfélaigið í Tékkóslóvakíu —
svo og innrásarrikjunum — sé
sósíalísikt í óskertri merkingu
orðsdns og. allar tilraunir til í>
meiri háttar breytingar á því
hljóti því að ganga í andsósí-
alísfca átt.
Þair með er uppvakdn fyrsta
og æðsta trúarsetning stalín-
ismians: ' þjóðfélagið 'er sósdal-
ískt og allar efasemdir eðia
röfcræður um það atriði heyra
undir gagnbyltingarstarfsemd.
Þetta gdrðir augljósiega fyrir
um atburði sl. árs. En málstað-
ur innrásiarríkjanna og leppa
þeirra er svo hraklegur, að
þetta nægir hvergi nærri hon-
um til hj'argar. Engar stað-
reyndafalsanir geta forðað op-
inberum' talsmönnum þeirra
frá því að flaekj a sdg í mót-
sögnum. Þannig er því t.d.
haldið fram. að gagnbyltingar-
menn hafi rógborið og nítt nið-
ur hina sósíalísku uppbyggingu
í Tékkóslóvakíu, sem nú er aft-
ur farið að tala uin í sama
and'a og á dögum Novotnýs. en
um leið er kveðinn upp yfir
þessum „sósíalisma" sá þungi
áfellisdómur að í eina Austur-
Evrópulandinu, þar sem komm-
únistaflofckur náði völdunum
af. eigin rammleik bafi hann
eftir 20 ára valdaeinokun ver-
ið búinn að koma málunum í
það horf, að ríkjandi þjóðfé-
lagsform bafi ekki getað hald-
izt við án erlendrar hernaðar-
íhlutunar. Ofan á þes®a þver-
stæðu er svo bætt annarri: Það.
sem ekki er talið hafa tekizt
innlendum kommúnistaflokki á
tveggja áratuga stjórnarferli —
sem sé að festa sig í sessi og
vinna sér traust þjóðairinnar —
á nú að takast erlendu her-
námsliði og stjórn, sem í skjóli
þess er þröngvað upp á þjóð-
ina.
Þó er enn ótalin versta firr-
an: Hvemig er hugsianlegt, að
atburðir eins og þeir, sem á
síðasla ári gerðust í Tékkó-
slóvaikíu — pólitísk vakning
verkalýðsstéttarinn ar, breyting
flokksins úr verkfæri skrif-
stofuvaldsins í lifandi stjórn-
málastofnun, opnun allra leiða
fyrir pólitísku og félagslegu
frumkvæði almennings —
hefðu getað leitt til þess, að yf-
irstétt, sem svipt vtr völdun-
um fyTÍr tveim áratugum, næði
þeim í sínar hendur aftur? Við
því er auðvitað ekkert skyn-
samlegt svar.
Þar sem málflutningi stjóm-
arvaldanna er þannig háttað,
getur hann engin áhrif hiaft
meðal almennings. Það þýðir
þó efcki, að aðstaða andspyrnu-
hreyfingarinnar hafi á engan
hátt breytzt sl. mánuði. Innri
greining hennar, sem gerði vairt
við siig fljótlega eftir innrás-
ina, hefur vaxið og dýpkað.
Sé tím'abilið janúar 1968 —
apríl 1969 athugað í því skyni
að finna pólitískar skyssur þá- ■
verandi forystu og draiga jafn-
framt af þeim lærdóma, sem
komið gætu að gagni nú, virð-
ist aðeins ein niðurstaða koma
' til greina: Dýþstu ræturnar að ^
mistökum Dubceks og félaga
hans — hiki þeirra á örlagarík-
um augnablikum, oftrú á samn-
ingaleiðina, ónógu sambandi
vdð verkialýðsstéttina o.s.frv. —
voru í senn þjóðfélagslegs og
hu’gmyndale'gs eðls. Öll stefnu-
skrá þeirra var um of mótuð
af þess háttair gagnrýni a stal-
ínismanum, sem venjulega er
kölluð hægrisiinnuð eða refórm-
istísik, en hún feiur í séx: of-
mat á möguleikum til umbóta
ofan frá og samsvarandi van-
trú á pólitískum þroska verka-
lýðsístéttarinnar, teknokratísk-
ar efnabagsumbætur í stað
raunhæfs atvinnulýðræðis, á-
herzlu á hina formlvgu hlið
sósíalísks lýðræðis í stað
megininnihaids þess, valds
framleiðendanna yfir efnatoags-
kerfinu. Reyndar var enduxnýj-
urvarhreyfingin hvergi nærri
öll með þessu marki brennd —
þvert á móti, vinstri armur
hennar var í stöðugum upp-
gangi og hefði að lokum hlotið
að verða yfirsterkari. En
flokksforystan hafði dregizt
aftur úr þeirri þróun og af-
leiðingin var sú, a& þegar mest
á reið — í ágúst og september
1968 og janúax 1969 — náðist
ekki full samstaða milli henn-
ar og baráttuhæfasta hluta
fjöldahreyfingarinnar.
Eigi við núverandd skilyrði að
halda uppi pólitísfcri biaráttu
gegn hinni stalínistísku breið-
fylkingu, vorður það þvi að-
eins gert með því að fram-
fylgja línu vinstri armsíns frá
sl. ári og segja sfcilið við allar
þær tálsýnir. sem þó stóðu end-
urnýjunarstefnunni fyrir þrif-
um. Öll ummerki benda þó til
þess, að aðeins lítill hluti and-
spymuhreyfingarinnar í Tékkó-
slóvakiu sé nú þegar reiðubú-
inn til að fara þessa leið. Þar
er sumpart um að ræða hópa
innan stúdentahrejrfingarinnar
(frá þeim hefur eftir ýmsum
leiðum heyrzt til Vestur-Evr-
ópu) sumpart um aðra hópa,
sem starfa með enn meiri
leynd. T.d. skýrði Rudé Právo
frá þvi ekki alls fyrir löngu, að
i Prag hefði verið dreift flug-
ritum ólöglegra samtaka. sem
kalla sdg Flokk byltingarsinn-
aðra sósíalista, og hefði í þeim
verið „ráðizt á Sovétríkin og
friðsamlega sambúð“.
Þótt almenningur hafi nú yf-
irleitt vantrú á beinu pólitísku
andófi og vilji heldur bíða á-
tekta, þýðir það engan veginn,
að hann hafi gefið upp alla
von eða jafnvel sætt sig við
núverandi ástand. Mótstöðu-
vilji hans fær útrás í hvers-
dagslegum og lítt áberandi
hlutum, sem þó koma illa við
stjórnarvöldin — sbr, það sem
áður er sagt um efnahagsmál-
in. Þótt tékfcnesk verkalýðsstétt
kunn;. að virðast aðgerðalítil
nú, ef fyrsitu m'ánuðir þessa
árs eru teknir til samanþurðar,
skyldi eneinn halda að hún
hafi endanlega gefizt upp.
Skotlandsflug
Framlbald af 3. síðu.
á næsta leiti. Skrifstofa Flug-
félaigs ísland'S í Glasigow er
undir yfirstjóm Lundúnasfcrdf-
stofU félagsins, en skrifstofu-
stjóri á staðnum er John
Kirfc og sölustjóri í Skotlandi
er Stuart Gree. Auk þeirra
starfa á skrifstofunni þrj’ár
stúlkur, þar af ein íslenzk,
Fjóla Tryggvadóttiir, og á Glas>-
gowfluigvelli stairfa tveir Is-
lendingar, Þorgils Kristmanns
stöðvarstjóri og Pétur Ingason
fluigvixfci.
Maðurinn minn
ERLINGUR JÓNSSON, húsgagnabólstrari
andaðisit í Landspítalanum 25. desember.
Guðrún Einarsdóttir.
@ntlnental
SNJÓHJÓLBARÐAR
MEÐ NÓGLUM
sem settir eru í, með okkar íull-
komnu sjálívirku neglingarvél,
veita íyllsta öryggi í snjó' 'og
hálku.
Nú er allra veðra von. — Bíðið
ekki eítir óhöppum, en setjið
CONTINENTAL' hjólbarðá, með
eða án nágla, undir bílinn nú
þegar.
Vinnustoía vor er opin alla daga
írá kl. 7,30 til kl. 22.
Kappkostum að veita góða þjón-
ustu með fullkomnustu vélum
sem völ er á.
GÚMMÍVINNUSTOFAN h.f.
Skipholti 35 — Sími 3-10-55.
HeimifístækjaviBgerSir
Gerum við allar tegundir heimilistækja: KITCHEN
AID — HOBART — WESTINGHOUSE — NEFF.
Mótorvindingar og raflagnir. — Sækjum sendum.
Fljót og góð þjónusta.
Rafvélaverkstæði Eyjólfs og Halldórs
Hringbraut 99. — Sími 25070.
SJÓMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR:
Jólatrésskemmtan
fyrir börn félagsmanna verður haldin í
Lindarbæ 2. janúar kl. 3 e.h.
Aðgöiigumiðar á skrifstofu félagsins mánu-
daginn 29. og þriðjudaginn 30. þ.m.
Símar 11915 og 14159.
Skemmtinefndin.
Lokað
vegna vaxtareiknings 30. og 31. desember,
en opið 2. janúar 1970.
SPARISJÓÐUR REYKJAVÍKUR
OG NÁGRENNIS.
Gerið skil í Happdrætti Þjóðviljans,
opið til kl. 7 í kvöld og á morgun
SYNING
Nýjar gerðir af Runtal miðstöðvarofnum ásamt eldri gerðum
Sýning í Byggingaþjónustunni,
Laugavegi 26. Opin alla virka daga kl. 13-18
Gjörið svo vel að líta inn
rantal
«