Þjóðviljinn - 11.01.1970, Síða 3
I
'W
SMnnaÖflSttS Íé. Jarkúar 1970 — IWÓÐVTÍÉJINN — SÍÐA 3
Húmar hægt að kveldi (1962) Hafnarbíó.
AÐ VESLAST UPP
t september sl. fjölluðu tveir
kvikmyndaþaettir Þjóðviljans
um þróunina í kvikmynda-
heiminum á tímabilinu 1956 til
1968. Þá var og á það minnzt,
að höfundur þessara pistla
hefði kannað hvað íslenzku
kvikmyndahúsin hefðu sýnt á
þessu txmabili, en niðurstöð-
ur þeirrar athugunar voru ekki
birtar. Þar sem nú er nýrunn-
ið eitt mesta hörmungarár í
sögu bíóanna hér, ár sem var
jafn hörmulegt bíóeigendum
sem áhorfendum, væri ekki ur
vegi að líta á fyrrgreint tíma-
bil og bæta svo árinu 1969 við.
því þá settu bióeigendur enn
'éitt metið. sem þeir éiga varla
nokkurn tímann eftir að slá, og
þó, hver veit . . .?
Á þrettán ára tifnabili 1956
til 1968 hafa kvikmyndaihúsin
á Reykjavíkursvæðinu frum-
sýnt um 4200 kvikmyndir. eða
323 að meðaltali hvert ár. Ýms-
ar breytingar hafa átt sér stað
í rekstri þeirra en kvikmynda-
húsum hefur aðeins fjöígað
um eitt á þessu timabili. J>að
sem fyrst vekur athygli við
niðurstöður þessarar a-thugun-
ar er, hve miklu færri myndir
eru nú sýndar en fyrir þrett-
án árum og hefur sú þróun
verið óslitin allt timabilið.
1956 eru t.d. frumsýndar 430
myndir. 1962 eru þær 325 og
1968 eru þær 'komnar niður í
220. eða nær helmingi færri en
í upphafi tímabilsins. Orsakir
þessa eru augljósar. Ahorf-
endafjöldinn hefur vaxið
myndirnar ganga að meðaltali
lengur eða eru látnar gera það.
þvi nú er mikill munur á verði
mynda erlendis frá og ekki
keyptar eins margar og áður.
Þv'i hafa híóstjórarnir orðið að
hafa svolitlar hömlur á inn-
flutningi og láta nú ekki að
eigin dómí senda hingað hvaða
rusl sem er, eins og áður vair^
gert og pólitikin er auðvitað
að sýna sem fæstar myndir, en
halda samt aðsókninni og er
þetta jú ósköp skiljanlegt þar
sem gróðasjónarmiðin hljóta að
ráða og er ekkert við þvi að
segja. En það er hins vegar lítt
skiljanlegt hvers vegna bió-
stjórarnir hafa allir nema einn
valið sömu leiðina. Þeir hafa
smám saman týnt niður sam-
böndum sinum við Evrópu sem
voru nær öll í gegnum Dan-
mörku. Þoir- hafa nú einsikorð-
að sig við brezka og banda-
ríska framleiðslu. Franskar sev-
intýramyndir. þýzkar njósn-a-
myndir og danskar gaman-
myndir bafa verið notaðar til
uppfyllingar. En hin háa hlut-
fallstala bandariskra mynda er
ekki ný bóla hér því árið 1956
er hvorki meira né minna en
66% myndanna frá Bandaríkj-
unum. en meðaltal alls tíma-
bilsins er rétt tæp 60%. Á ár-
unum 61-63 og árið ’66 er hlut-
fallstalan lægst eða rúmlega
50% og kemur það aðallega
fram í mikilli fjölgun þýzkra
söng- og músikmynda sern
komust upp í 52 á ári þeear
mest gekk á. svo lítið lagaðist
ást.apdið við bað. Hinar sára-
litlu sveiflur í kvikmyndaval-
inu sem orðið hafa á tímabil-
inu eru því alls ekki í samræmi
við þróunina í kvikmynda-
heiminum. nema hvað ítalska
blómaskeiðsins gætti hér nokk-
uð 64-66.
Síðustu árin hefur stefnan
verið þveröfug.' Hin háa hlut-
fallstala bandarískra mynda
árin 1956 var að því leyti eðli-
leg að Hollvwood hafði verið
svo til einráð á hinum almenna
kvikmyndamarkaði. En þrátt
fyrir allt sem gengið hefur á
í kvikmyndaheiminum siðan
var ástandið þá mun betra en
nú, t.d. var tala franskra
sænskra og ítalskra mynda um
helmingi hærri en nú og fjöi-
breytnin ólikt meiri, það ár
voru t.d. sýndar myndir frá
löndum eins og Brasilíu. Finn-
lándi, Indlandi. ísrael, Kina,
Mexikó, Sviss og Noregi. Eft-
ir því sem kvikmyndavafið á
hinum almenna markaði varð
fjölbreytilegra og að sama
skapi meiri framleiðsla var Is-
lendingum sífellt boðið upp á
fábreytilegri myndir eins og
eftirfai-andi dæmi sýna:
Á umræddu timabili hafa
verið sýndar 10 spánskar
myndir. engin síðan 1964. Sex
tékkneskar; 4 frá Brasilíu,
engin síðan 1962; 2 finnskar,
engin síðan 1963. Tvær ind-
verskiar, engin síðan 1957; 1
frá ísrael 1956; 5 frá Kína
engin síðan 1962. Fjórar frá
Mexikó, engin síðan 1958; 2
frá Sviss, engin síðan 1957; 19
frá Japan, 2 1968, Ein júgó-
slavnesk 1960; 1 áströlsk 1960i;
21 norsk. engin síðan 1965; 1
irsk 1962; 1 ungversk 1966.
Fjórar grískar síðan 1962 ; 6
pólskar síðan 1959. Þetta eru
ekki margbr myndir, en þær
sáust þó hérna. Síðan hafa
þesisar þjóðir margfaldað og
stórbætt framleiðslu sína en þá
eru myndir þeirra steinhættar
að koma hingað.
Ég sagði áðan að það væri
lítt skiljanlegt hvers vegna
bíóstjórarnir hefðu allir valið
sömu leiðina til þess að halda
bióunum gangandi. vegna þess
að staðreyndirnar sýna að úr-
valsmyndir hvaðan sem var úr
heiminum fengu jafngóða og
oft mun betri aðsókn en banda-
risku mýndimar. En það, er
auðvitað fyrirhafnarminnst að
skipta við einn eða fáa vold-
uga aðila og auðvelt' væri að
reka bíóin á Islandi eingöngu
á brezkum og band.arískum
myndum og nóg yrði afgangs
samt. Ef óenskar myndir ganga
hér ekki lengur eins og bíó-
stjórarnir hafa haldið fram á
prenti (ítalska myndin Herrar
mínir og frúr afsannaði reynd-
ar þá kenningu sl. sumar). þá
er það bein afleiðing af stefnu
bíóstjóranna, þeir hafa siálfir
skapað núverandi ástand. Þeg-
ar allt logaði í kvikmynda-
heiminum erlendis yfir nýjum
afrekum, þá var tækifærið að
stökkva til og notfæra sér alla
þá umræðu _ sem þá átti sér
stað um hina nýju kvikmynda-
list og skapa þannig nýja á-
horfendur og grundvöll að fjöl-
breytilegu mvndavali. En hvað
gerðist? Þeir völdu þá leið að
treysta enn samböndin við hin
bandarisku og brezku félög.
Helgi Jónsson fyrrv. forstjóri
Bæjarbiós svo og eigandi Hafn-
arfjarðarbíós héldu þó fast í
evrópsku samböndin og hefði
þeirra ekki notið við væri held-
ur óglæsileg niðurstaða úr
þessari könnun yfir það sem
hefur komið hingað af helztu
kvikmyndum er gerðar hafa
verið á tímabilinu. En nú er
Hafnarfjarðarbíó hætt að
kaupa nýjar myndir og hefur
í tvö ár aðeins endursýnt
myndir úr Reykjavík. Nýr
maður hefur tekið við Bæjar-
bíói, og. þær fáu myndir sem
bióið frumsýndi á sl. ári voru
með merkustu myndum ársins
eins og síðar verður komið að.
í þessari könnun komst ég
að því, sem kann í fljótu
bragði. að virðast algjör gagn-
röksemd gégn ásökunum mín-
um á hendur' bíóstjórunum.'
Hér hefur sem sé verið sýnd
næstum hver einasta mynd
sem varð kunn af fyrstu mynd-
um frönsku nýju-bylgju mann-
anna, og segið svo að ekki bafi
verið fylgzt með á Islandi. En
það var ekki andskotalaust að
komast að þessu og svo mun
einnig hafa verið þegar mynd-
irnar voru sýndar hér. Til þess
að athuga þetta tímabil hef
ég flett dagblöðunum, en þar
er að finna einu kynningar-
starfsemi bíóanna i formi gagn-
orðra auglýsinga, svo snilldar-
lega saminna, að oft er ógern-
ingur að átta sig á hvaða mynd
er verið að auglýsa. Það heyrir
til undantekninga ef nafn leik-
stjórans sést þar, sjaldnast er
annað en íslenzk þýðing á
dönsku heiti myndarinnar og
leikarar ekki nefndir, nema
stjörnur. En með því að fara
hinar ólíkleguistu krókaleiðir
hef ég sem sa.gt komizt að þess-
ari niðurstöðu mér. til mikillar
furðu, því fæstar af þessum
myndum hef ég séð. En ekki er
ástæða .til þess að taka eitt ein-
asta orð aftur af þvi sem áð-
ur var sagt um bióstjórana.
þvert á móti sannar þetta að
þeir hafa ekki fylgzt með (aft-
úr á mótí fýlgdust Danir vel
með) og þeir vissu því ekki
hvað þeir voru með í höndun-
um. Enn er mönnum í fersku
' íninni auglýátrrgln um Hiros-
ima — mon amour, er hljóð-
aði upp á „franska mynd í BB
stílnum". Ekki er heldur um
neina aukningu franskra
mynda að ræða á þessu tíma-
bili, þar hefur talan verið stöð-
u.g, um 30 myndir árlega frá
1956 — 1966, en fer nú lækk-
andi.
Heyrzt hefur að bíóstjórarn-
ir ætli að auka kynningarstarf-
semi sína á næstunni með því
að hætta að auglýsa í ötlum
dagblöðunum nema ' Morgun-
blaðinu.
kvlkmyndir
Une femme mai-iee (1964) Stjörnubíó.
Blow-up (1966) Gamla bíó
Árið 1969 sýndu 11 kvik-
myndiahús í Reykjavík og ná-
g.renni um 200 ,.nýjar“ myndir.
auk mikils fjölda annarra
eldri sem voru endursýndar. F.r
þetta enn lægri tala en árið áð-
ur. Af þessum 200 voru 160
bandarískar og brezkar eða
rétt 80% og er það nýtt met.
Þesisi hlutfallstala verður þó
mun hærri ef endursýndu
myndirnar eru taídar með, því
Framhald á 9- síðu, Orustan um Alsir (1965) Bæjarbíó.
SÝNING
SYNING
SYNING
Nýjar gerðir af Runtal miðstöðvarofnum ásamt eldri gerðum
Sýning í Byggingaþjónustunni, Laugavegi 26
Opin í dag kl. 13-19 >
Opin alla virka daga kl. 13—22
Gjörið svo vel að líta inn
p\mtal
► i