Þjóðviljinn - 07.02.1970, Side 4
SlÐA — ÞJÓÐVELJlííN — Laiigardagur 7. febrúar 1970.
— málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandi: Útgáfufélag ÞjóSviljans.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
RltstjóraR Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson.
Auglýsingastj.: Ólafur Jónsson.
Rilstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Simi 17500
(5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuðl. — Lausasöluverð kr. 10.00.
Þing Norðurlandaráðs
j dag hefst í Eeykjavík 18da þing Norðurlanda-
ráðs. Horfur eru á að það geti orðið söguleg-
asta þing. ráðsins, því hér koma til umræðu og á-
kvörðunar fillögumar um Efnahagsbandalag Norð-
urlanda, og hver svo sem málalok verða munu
þau marka þróun norrænnar samvinnu um lang’t
skeið. Lýsi ráðið stuðningi við tillögur embættis-
mannanefndarinnar um Efnahagsbandalag Norð-
urlanda þarf naumast að efa að þser nái fram að
ganga á þjóðþingum Danmerkur, Noregs, Svíþjóð-
ar ög Finnlands. En með stofnun slíks efnahags-
bandalags myndi staða Norðurlanda breytast mjög
á alþjóðavet't’vangi, sameiginlegur styrkur þeirra
aukast ’tíl muna á sviði efnahagsmála, félagsmála
og menningarmála, og ein afleiðingin yrði vafa-
laust nánari samvinna í utanríkismálum, en á því
sviði hefur sundrung Norðurlanda verið einna
al^árlegust — þrjú ríkin í Nato en tvö hlutlaus.
þátttaka íslendinga í umræðum um Efnahags-
bandalag Norðurlanda hlýtur að verða mjög
vandraeðaleg. Okkur var gefinn kostur á að taka
þátt í öllum undirþúningi málsins, leggja til sér-
fræðinga og embættismenn af okkar hálfu, en því
bóði var hafnað af ríkisstjóm íslands. Því höfum
við aðeins vitneskju um niðurstöðu annarra,
mötáða í samræmi við hagsmuni þeirra. Ekkert
hefur verið kannað hverjir kostir okkur kynnu
að geta boðiz't, til dæmis í sambandi við aug-
ljós og stórfelld vandamál, svo sem sameiginleg-
an vinnumarkað og fjármagnsmarkað og gagn-
kvæm réttindi til atvinnurekstrar. Þetta tómlæti
er þeim mun furðulegra sem ríkisstjórnin hefur
á undanfömum ámm lagt mikla vinnu og fjár-
muni í að undirbúa aðild íslands að Efta. Verði
stofnað Efnahagsbandalag Norðurlanda jafngild-
ir það klofningi Efta, og það væri einkennilegt
hlutskipti ef íslendingar ættu að heyra til þeim
hluta Efta sem önnur Norðurlönd hefðu orðið
viðskila við að verulegu leyti. Á þetta var bent
sérstaklega í umræðúnum um Efta-málið á þingi
og lögð áherzla á að íslendingar þyrftu að vita
hvað yrði úr áformunum um Efnahagsbandalag
Norðurlanda áður en þeir tækju ákvarðanir sín-
ar, en íslenzk stjórnarvöld neituðu algerlega að
gefa gaum að þeirri hlið málsins. Verði Nordek
stofnað taka íslenzk stjórnarvöld vafalaust upp
viðræður um tengsl íslands, en þær geta orðið
torsóttari vegna þess að ríkisstjórn íslands hafn-
aði því boði að taka þátt í undirbúningi og á-
kvörðunum um eðli og gerð hins fyrirhugaða
bandalags. En hvernig sem þau mál þróast er
hitt ljóst að ákvarðanimar á 18da þingi Norð-
urlandaráðs í Reykjavík munu einnig hafa áhrif
á stöðu og framtíðarhorfur íslendinga í sa,mskipt-
um við umheiminn. — m.
mmiMt
SUMARDVÖL BARNA
Er borgarstjóm fjallaði í desember um fjárhagsá-
ætlun Reykjavíkurborgar fyrir 1970 fluttu borgarfull-
trúar Alþýðubandalagsins tillögu um sumardvöl bama.
Sigurjón Björnsscvn mælti fyrir tillögunni, sem síðan
var vísað til félagsmálaráðs að umræðum loknum:
„Borgarstjórnin telur það miklu varða, að sem flest
Reykjávíkurböm eigi kost á sumardvöl utan borgar-
innar á viðurkenndum bamaheiVnilum. í þessu skyni
hefur borgin veitt nokkum fjárhagsstuðning þeim
sumardvalarheimilum, sem rekin hafa verið af aðilum
í Reykjavík. Borgarstjórn er hins vegár ljóst, að brýna
nauðsyn bei; til að þessi starfsemi verði aukin á næstu
árum, t.d. með stofnun sumarbúða, þar sem böm geti
dvalizt við góð skilyrði og holl verkefni.
Beinir borgarstjómin þvf til félagsmálaráðs og barna-
vemdamefndar að taka þetta til gaumgæfilegrar at-
hugunar, svo og aðrar ráðstafanir, er vera kynnu væn-
legar til árangurs í þessu skyni.
Þá telur borgarstjómin réttmætt að hliðstæð fjáir-
hagsaðstoð sé veitt þeim foreldmm, seTn koma bömum
sínum á einkasumardvalarheimili úti á landi, o-g látin
er í té þeim félagsaðilum í Reykjavík er sumardvalar-
heimili reka, enda séu þessi einkaheimili viðurkennd
af bamavemdarráði og hlíti eftirliti þess. í þessu skyni
telur borgarstjómin nauðsynlegt að hækka nú vem-
lega framlög borgarsjóðs til sumardvalar mæðra og
bama.“
í beinu sambandi við ályktunartillögu þessa fluttu
borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins tillögu um hækk-
un á framlagi til sumardvalar fyrir mæður og böm.
Mælti Guðmundur Vigfússon fyrir hækkunartillögunni,
en hún var feíld við afgreiðslu fjárhagsáætlunar. En
sem fyrr segir: Tillagan sjálf er hjá félagsmálaráði; og
enda þótt nefndir séu að jafnaði svæfingarstofnanir er
hugsanlegt að knýja fram framkvæmd þarfra mála í
slíkum stofnunum.
Rúnar
Vilhjélmsson
Kveðja
Rúnar Vilhjálmsstm er. lát-
inn. Olcknr veitist erfitt að trúa
því, en staðreyndin er óbreytan-
leg og köld. Sá, sem fyrir
nokkrum dögum gekk heill og
óskiertur með okkur tdl starfa og
leiks, er nú horfinn af sjónar-
sviðinu.
Rúnar var lundgóður og kom
okkur setíð til þess að líta
bjartari augum á tilveruna. Við
smituðumst' ósjálfrátt af 'kímni
hans og starfsgleði En skólinn
átti ekki hug hans allan, þótt
hann hefði tgkið þann kostinn
að ganga menntaveginn. Knatt-
spyrnan var hans fremsta á-
hugamál. í hana lagði hann þá
einbeitni og ástundutn sem
hverjum þeim er nauðsynleg,
sem setur markið hátt. Upplag
og æfing lögðust á eitt og
honum tókst að kömasí í
fremstu röð.
Við vorum hreyknir aff því að
hafa landsliðsmann í bekknum
og þegar Rúnar var valinn til
utanferðar í annað sinn glödd-
umst við yfir frama hans.
Hann er nú ekki lengur í
okkar hópi. Vi'ð þökkum honum
fyrir samveruna og vottum fjöl-
skyldu hans og vinum innileg-
ustu samúð.
Bekkjarbræður.
Glæstur svcinn með giaðar vonir
gistir dulin svið.
Hljóður strengur, harpan grætur,
hugur þráir frið.
Sorgin víða rúnir ristir
röðull hvarf á braut.
Cskabam í æskuljóma
Urðardóminn hlaut.
B. H. J.
-9>
Könnun á þörf
fyrir leikskéla
og dagheimiii
Áfiundi félaigsimiálaráðs Heykja-
víkurborgar þann 22. fyrramán-
aðar var lögð fram tillaga fra
borgarstjómarfundi um könnun
á þörf fyrir leikstóla og dag-
heimili x borginni. Félagsmóla-
stjóri gerðá grein fyrir athugwn-
uim, sem gerðar hafa ver:ó á
veguim hagfræðideildar borgar-
innar um dreifingu aJdurshó.va
barna sex ára og yngri í hinum
ýmsu hverfun. borga'innar. Þ.4
var á fundimjm s'aimiþykkt að
fela Sigurjó7 1 Bjömssyni og
Bimi Bjornísyni að giera tillögur
um fyrirkomulag könnunarinn-
ar.
Það var glaðvser hópur ur-
valsdrengja, sem hittist morg-
uninn 30. janúar sl., og flaug til
Englands til átaka við barlenda
íþróttafélaga.
Nýlega hafði þessi hópur
eignazt sameiginlegar minning-
ar úr velheppnaðri heimsókn í
aðra heimsálfu.
Allur undirbúninguri hafði
vérið ' ánægjulegur, eftirvænt-
ingin rikti hjá þátttakendum, og
vonin um góðan árangur meiri
en áður í kíeppnisferðum.
Einn þessara fulltrúa ís-
lenzkrar æsku var hár og mynd-
(arlegur, Ijóshærður piltur, Rún-
ar Vilhjálmsson, sem vakið
hafði vaxandi athygli forustu-
manna með dugnaði sínum, og
fraimkomu allri. Við hann voru
bundnar framtíðarvonir á ýms-
um s/v’iðum íþrótta- og félags-
mála.
Rúnar Vilhjálmssón fæddist
19. janúar 1950. Gerðist ungur
félagi í knattspyrnufélaginu
FRAM, og stóð i fýlkingar-
brjósti allra aldunsflokka fé-
lagsins og ávallt fyrirmynd
leikbræðranna.
Mörgum er minnistæð
fraimimistaða ísl. drenigjannai á
Norðurlandamóti unglinga, er
haldið var í Reykjavíik 1968,
þegar aesikumenn frá öllum
Norðurlöndum mættu til leika.
Þar var Rúnar Vilhjálmsson,
sem áður, í fylkingarbrjósti úr-
valsmanna okkar fámennu þjóð-
ar, og vakti umtal og aithygli
hinna erlendu gesta.
Verður ekki mieð nrðum lýst,
hve djúpt skarð, og þungt högg
féll á okkur samferðamenn
þessa glaesilega pilts, er okkur
bárust fregnir af því hörmulega
slysi, sem hent hafði við kom-
una til Lundúna, og skapað hef-
ur þjóðarsorg.
Hinn glaðværi hópur afreks-
manna, breyttist í hljóðlátan
hóp sorgbitinna vina.
Tilhlökkun og sigurvon urðu
að vonbrigðum og örvæntingu,
síðan heimkoman að píslar-
göngu.
Ferðafélagar og stjóim Knaitt-
spymusambands Islands þakka
hinum Hæsta Höfuðsmiði fyrir
þann tímia, sem Rúnar Vifl-
hjálmsson var samferðamaður
okkar á Iífsbrautinni, við minn-
umst hins glaðværa félaga, fyr-
irmyndar með allri framikomu
sinni og reglusemi, og kveðjum
hann að sinni með þeirri vissu,
að hans stutta dvöl-meðal okkar
hafi vísað öðrum veginn.
Samtímis sendum við foreldr-
um, bræði-um og öðm sikyldfólki
hans innilegustu samúðarkveðj-
ur, í von um að hin styrka hönd
hins almátfuga styðji þau og
styrki, og gefi þeim þann kjark,
og það baráttuþrek, sem ávallt
prýddi Rúnar Vilhjálmsson.
Albert Guðmundsson.
Öskað endurskoð-
unar á samningi
nm flug Loftleiða
Af íslands hálfiu hefir verið
óskiað eftir því við ríkisstjómir
Danmerkur, Noregs og Svfþjóð-
ar, að teknar verði fljótlega upp
viðræður um endurskoðun á sam-
komiulaginu frá apríl 1968 um
flug Loftledða hf. Ekki er enn á-
kveðið, hvenær viðræður hefj-
ast.
Samkvæimt ósik rikisstjómar
Bandaríkjanna munu hefjast í
Washington í næsta mánuði við-
ræður nnMIi fuRtrúa ríkissitjóm-
ar Islands og ríkissifcjómar
Bandarfkjajnna um flljuig Loft-
ledða hf. vegmia fyirrhugaðrar
breytingar á farkosti félagsins.
RT
pí
>>-.
Q
O
E-
QC
Q
O
E-
PC
'>-.
Q
O
I1
ÓDÍRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT —ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT
Rýmingarsalan Laugavegi 48
Ódýrar peysur, kjólar> kápur, ungbarnaföt.
Leikföng í miklu úrvali.
Vefnaðarvara í metratali, metrinn á 60—100
Karlmannaskór, 490 kr. parið.
Inniskór kvenna og barna x íjölbreyttu úrvali.
Sparið peninga í dýrtíðinni og verzlið ódýrt.
Rýmingassalan, Laugavegi 48.
kr
ODÝR
lo
íö
|k}.
txl
•—3
O
ö
►<
txJ
•-3
O
ö
W
RT — ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT —ÓDÝRT — ÓDÝRT — ÓDÝRT - ÓDÝR
4