Þjóðviljinn - 08.04.1970, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 8. april 1970 — ÞJÓÐVmJTNN — SlB^ 3
«
1
A ð gefnu tilefni viljum við vekja athygli
6
viðskiptavina okkar á eftirfarandi
staðreyndum:
Síðan fyrirtækið var síofnað fyrir 57 árum — 1913 — hefir það verið okkar fyrsta boðorð, að sjá neytendum fyrir eins
vandaðri vöru og nokkur tök eru á; framleiddri úr beztu fáanlegum hráefnum, sem á heimsmarkaði hafa boðizt á hverj-
um tíma.
Ölgerð hefir þróazt um aldir og við hana skapazt hefðir, annarri drykkjarframleiðslu framar. Hér er um Viðkvæma fram-
Ieiðslu að ræða — og því höfuðnauðsyn, að þekking og reynsla sé fyrir hendi, til að ná því bezta út úr þeim hráefnum sem
notuð eru.
Þetta höfum við frá upphafi gert okkur Ijóst. Því hefir fyrirtækið um áratugi haft í sinni þjónustu háskólamenntaða sér-
fræðinga í ölgerð, flesta menntaða í Þýzkalandi, höfuðstöðvum evrópskrar ölmenningar. — Frá árinu 1953, eða síðastliðin
17 ár, höfum við haft í okkar þjónustu og neytenda:
HERMANN RUDOLF RASPE Diplom Braumeister VLB
og hefir hann haft yfirumsjón með allri framleiðslu okkar þann tíma. Braumeister Raspe er mennlaður við ölgerðarhá-
skólann í Berlín, Versuchs- und Lehranstalt fúr Brauerei, sem er annar tveggja þekktustu háskóla heims í þessari grein.
(Hinn háskólinn er í Weihnstephan í Þýzkalandi). Áður en hann kom til íslands hafði Raspe hlotið áratuga reynslu við
ýmsar þekktar ölgerðir í Þýzkalandi, meðal annarra KINDL BRAUEREI AG í Berlín, þar sem hann um tíma var tæknileg-
ur framkvæmdastjóri.
Auk ofangreinds, hefir ölgerðarháskólinn í Berlín, Versuchs- und Lehranstalt íúr Brauerei, verið fyrirtækinu ráðgjafi um
áratugi og reglulega fylgzt með framleiðslu þess.
Neytendur hafa í 57 ár sýnt, að þeir meta framleiðslu okkar að verðleikum, enda sanna ofangreindar staðreyndir, að við
byggjum framleiðslu okkar á því vandaðasta sem völ er á.
• 1' • - ••'■ "'V
Við þurfum ekkj að afsaka ökkur.
HP. ÖLGERÐIN
EGILL SKALLA GRÍMSSON
r
\