Þjóðviljinn - 08.04.1970, Page 3

Þjóðviljinn - 08.04.1970, Page 3
Miðvikudagur 8. april 1970 — ÞJÓÐVmJTNN — SlB^ 3 « 1 A ð gefnu tilefni viljum við vekja athygli 6 viðskiptavina okkar á eftirfarandi staðreyndum: Síðan fyrirtækið var síofnað fyrir 57 árum — 1913 — hefir það verið okkar fyrsta boðorð, að sjá neytendum fyrir eins vandaðri vöru og nokkur tök eru á; framleiddri úr beztu fáanlegum hráefnum, sem á heimsmarkaði hafa boðizt á hverj- um tíma. Ölgerð hefir þróazt um aldir og við hana skapazt hefðir, annarri drykkjarframleiðslu framar. Hér er um Viðkvæma fram- Ieiðslu að ræða — og því höfuðnauðsyn, að þekking og reynsla sé fyrir hendi, til að ná því bezta út úr þeim hráefnum sem notuð eru. Þetta höfum við frá upphafi gert okkur Ijóst. Því hefir fyrirtækið um áratugi haft í sinni þjónustu háskólamenntaða sér- fræðinga í ölgerð, flesta menntaða í Þýzkalandi, höfuðstöðvum evrópskrar ölmenningar. — Frá árinu 1953, eða síðastliðin 17 ár, höfum við haft í okkar þjónustu og neytenda: HERMANN RUDOLF RASPE Diplom Braumeister VLB og hefir hann haft yfirumsjón með allri framleiðslu okkar þann tíma. Braumeister Raspe er mennlaður við ölgerðarhá- skólann í Berlín, Versuchs- und Lehranstalt fúr Brauerei, sem er annar tveggja þekktustu háskóla heims í þessari grein. (Hinn háskólinn er í Weihnstephan í Þýzkalandi). Áður en hann kom til íslands hafði Raspe hlotið áratuga reynslu við ýmsar þekktar ölgerðir í Þýzkalandi, meðal annarra KINDL BRAUEREI AG í Berlín, þar sem hann um tíma var tæknileg- ur framkvæmdastjóri. Auk ofangreinds, hefir ölgerðarháskólinn í Berlín, Versuchs- und Lehranstalt íúr Brauerei, verið fyrirtækinu ráðgjafi um áratugi og reglulega fylgzt með framleiðslu þess. Neytendur hafa í 57 ár sýnt, að þeir meta framleiðslu okkar að verðleikum, enda sanna ofangreindar staðreyndir, að við byggjum framleiðslu okkar á því vandaðasta sem völ er á. • 1' • - ••'■ "'V Við þurfum ekkj að afsaka ökkur. HP. ÖLGERÐIN EGILL SKALLA GRÍMSSON r \

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.