Þjóðviljinn - 15.05.1970, Síða 4

Þjóðviljinn - 15.05.1970, Síða 4
4 SlÐA — ÞJÖEWIUTNN — Föstudagur 1S. mai 1970. — Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Framkv.stjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: / ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson Sigurður Guðmundsson Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson Ritstj.fulltrúi: Svavar Gestsson. Auglýsingastj.: Ólafur Jónsson. Rítstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 línur). — Áskriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00. EFTA-skattur jþegar Sjálfstæðisflokkurinn, Alþýðuflokkurinn og Frjálslyndir samþykktu inngönguna í EFTA — og Framsóknarleiðtogarnir sönnuðu hin lands- frægu. heilindi sín með því að sitja hjá — bentu Alþýðubandalagsmenn á það að fyrsta afleiðing þeirrar ákvöiðunar yrði stóraukin dýrtíð, vegna þess að aðgangseyririnn var m.a. nær 1000 miljón króna hækkun á söluskatti. Nú hefur fólk fengið að kynnast þessum afleiðingum í raun. Á síðasta ársfjórðungi hækkaði vísitala verðlags og þjón- ustu um fimm stig, og matvörur sérstaklega um fjögur stig. Hin stórsker'ta kauptrygging veldur því að þessar verðhækkanir eru aðeins bættar að litlu leyti. Alrnenningur finnur nú í verki afleið- ingarnar af hinu sjálfvirka kauplækkunarkerfi, sem samið hefur verið um undanfarin tvö ár und- ir forustu hins nýja meirihluta í Alþýðusambandi Islands. Og. það er sérstök ástæða til þess að muna að hinn nýi meirihluti í Alþýðusambandi íslands, flannibal, Björn, Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu- flökkúrinn, er einmitt ’ sami hóþurinn sem sam- þykkti aðildina að EFTA og hærri söluskatt. Al-gjald Auk EFTA-skattanna kom einnig til framkvæmda | á síðasta ársfjórðungi stórfelld hækkun á hita og rafmagni; sú hækkun nemur hvorki meira né minna en 8 vísitölustigum. Þar koma til áhrifin af saimningum þeim sem gerðir voru við álbræðslu utlendinganna í Straumsvík. Framleiðslukostn- aður á raforku frá Búrfellsvirkjun verður í ár 47,4 aurar á kílóvattstund en álbæðslan greiðir aðeins 22 aura. Það magn sem álbræðslan kaupir í ár kostar 290 miljónir króna í framleiðslu, en útlend- ingarnir borga aðeins 135 miljónir — mismunur- inn 155 miljónir er hreint tap. Tapið á næsta ári verður á sama hátt 139 miljónir. Á fyrstu fimm ár- um þessara viðskipta verður tapið 425 miljónir, samkvæmt tölum Landsvirkjunarstjórnar sjálfrar. Allt þetta tap á að afskrifa með því einfalda móti að jafna því niður á íslendinga. Menn ættu að minnást þess þegar þeir greiða rafmagnsreikning- ana næst að í greiðslunni er einnig fólgið ál-gjald. Minna en ekkert jgætur þær sem stjómarflokkarnir skömmtuðu öldmðu fólki og öryrkjum námu um 2.000 krón- um á ári, 5-6 krónum á dag. Á sama tíma verður þetta fólk eins og aðrir að greiða nær 1.000 kr. hækkun á sjúkrasamlagsgjöldum — þangað fer næstum því helmingur af hinum svokölluðu bót- um. Og aldrað fólk og öryrkjar verður ekki síð- ur en aðrir að greiða EFTA-skattinn og ál-gjöld- in; þá er minna en ekkert eftir af rausn Al- þýðuflokks og Sjálfstæðisflokks. — m. Áskorun myndlistarmanna: Gamla húsaröðin verði varðveitt Enn hefur Þjóðviljanum bor- Izt afrit áskorunar á mennta- málaráðherra um að hann beiti sér fyrir því að gömlu húsir. við Lækjargötuna verði varðve;.. en ekki rifin. Undir áskorun þessa rita 62 myndlistarmcnn og í þeim hópi eru listmálarar, myndhöggvarar, leirkerasmiðir, auglýsingateiknarar, leikmynda- teiknarar o.fl. Áskorunin og nöfnin sem undir hana hafa verið rituð fara hér á eftir: Vér undirritaðir skorum á menntamálaráðherra að beita sér fyrir því, að húsaröðin frá Stjómarráðinu að Menntaskól- anum við Lækjargötu verði varðveitt vegna menningar- . sögulegs og listræns gildis henn- ar. (Að Gimli undanskildu). Þorvaldur Skúlason Sigurður Sigurðsson Barbara Árnason Hafsteinn Austmann Jóhann Briem Valtýr Pétursson Einar G. Baldvinsson Hjörleifur Sigurðsson Finnur Jónsson Steinþór Sigurðsson Guðmunda Andrésdóttir örlygur Sigurðsison Benedikt Gunnarsson Kristín Jóhsdottir Bragi Ásgeirsson Hörður Ágústsison Einar Hákonarson Jónfna Guðnadóttir Gísli B. Bjömsson Torfi Jónsson Jóhannes Jóhannesson Ágúst F. Petersen Ásmundur Sveinsson Ásgerður Búadóttir Sigrún Guðjónsdóttir Gestur Þorgrímsson Sigurjón Ölafsson Jens Kristleifsson Sverrir Haraldsson Jón Benediktsison Guðmundur Benediktsson Vigdís Kristjánsdóttir Jöhannes Geir Jónsson Ragnar Kjartansison Ólöf Pálsdóttir Hringur Jóhannsson Gunnar Bjamason Kjartan Guðjópsson Snorri Sveinn Friðriksson Þorbjörg Pálsdóttir Guðmundur Elíasson Halldór Pétursson Valgerður Bergsdóttir Gréta Bjömsson Eggert ■ Guðmundsson Veturliði Gunnarsson Magnús Pálssom Leifur Breiðfjörð Magnús Tómasson Kristján Guðmundsson Vilhjálmur Bergsson Þröstur Magnússon Björg Þorsteinsdóttir Anna Sigríður Bjömsdóttir Haukur Dór Sturluson Svavar Guðnason Eiríkur Smith Gísili Sigurðsson Ríkharður Jónsson Amar Herbertsson Hilmar Sigurðsson Jón Gunnar Ámason SUM mótmælir út- hlutun vinnustyrkju SÚM, samtök ungra myndlist- armanna, hefur sent frá sér svo- fellt plagg: SÚM mótmælir harðlega síð- ustu úthilututn vinnustyrkja til listamanna. Enginn ungur listamaður hlaut styrk. SÚM méitimiæilir því, að úthiut- un þessa fjár hefur einnig verið gerð að elli- og raunabótastyrk á sama hátt og árleg úthlutun li.stamannalau na. Ellistyrk handa öidnum; vinmistyrki handa ungum! SÚM mótmælir því, að úiíhlut- unarnefmdiina sitja menn, sem skipa fleiri en eina svipaða nefnd, og að einn þeirra skuli ^ sitja í öllum opinlberum nefnd- um, sem ráðsitaifa fé til styrktar liist með þjóðinni. Emga einokumarverzlun á sviði lista! SÚM mótmælir því, að nefnd- ina sitja einvörðungu memn, sem kommir eru á „nefndaaldurinn". Eins og æskan viðheldur stofninum, eins viðhalda ungir listamenn lífinu í listinni. SÚM mótmælir því, að félag- ar þess séu einangraðir frá opinberri aðstoð og opinberum sýnimgrum. SÚM rekur lifandi listamið- stöð, andstætt hinni kölíkuðu gröf Listasafns ríkisins. SÚM mótmælir sjálfdauðri list fyrir fólk, sem alizt hefur upp við þann smekk, sem árlega er styrktur, kjassaður og lík- smurður af páfunum. Burt með dauðann úr listimni! Burt með þá presta, sem hajfa það eitt að hugsjón sinni að jarða listina! Hvemig fer, ef æskan er kyrkt með sinnuleysi? Verður þá hægt að viðhalda óskabami ykkar, ellinmi, þegar æskan er fyrsta skrefið i átt að henni? Vekið ekki ellina of snemma með þjóðinni! xir og skartgripir K0RNELÍUS JÚNSSON ie 8 i Frímerki — Frimerki : ' : ■ ■ Hjá undirrituðum er úrval íslenzkra frí- S merkja fyrir frímérkjasafnara. — Verðið ! | hvergi lægra. — Reynið viðskiptin. MATTHÍAS GUÐBJÖRNSSON Grettisgötu 45. |Jm mánaðamótin rann út fres'tur só, sem settur var til skila á úrlausnum málsháttagetraun- arinnar, seim Þjóðviljinn efndi til í síðasta mán- uði. Getraun þessari var ákaflega vel tekið. af lesendum og síðustu vikuna í apríl streymdu lausnir til blaðsins víðsvegar að af landinu, svo að við lok skilafres'ts skiptu þær hundruðum. Og enn bárust 1 liðinni viku nokkrir tugir síðbúinna bréfa. i - - i _ ov j <2.1 J>egar farið var yfir lausnir á getrauninni kom í ljós að þær voru að heita má jafn margar frá konum sem körlum, karlamir höfðu þó ívið yfirhöndina: 50,1% á móti 49,9%. Verulegur hluti úrlausnabréfa var úr Reykjavík, eða 64%, úr nágrannabyggðum borgarinnar bárust 14%, en 22% annarstaðar af landinu og skiptust þau prósent nokkuð jafnt milli landsfjórðunganna. JJangflestar lausnirnar voru réttar að öllu veru- legu, þ.e. 15 -17 svör voru hárrétt af 20. Fimni eða séx gátumyndanna vir'tust áberandi erfið- astar viðureignar öllum þorra sendenda, enda gátu sumar imyndirnar reyndar átt við fléiri málshætti en einn, og var að sjálfsögðu tekið til- lit til þessa þegar úrlausnir voru metnar til verð- launa. Þær myndir sem einkum virtust valda heilabrotum voru nr. 4, 5, 7, 9, 10 og 15 (og reynd- ar 17 líka). En svo voru fáeinar myndir sém voru auðráðnar, lágu í augum uppi, eins ög t.d. nr. 1, 6, 12 og 20. jyjálshæ'ttirnir, sem teiknarinn, Haraldur Guð-, bergsson, hafði til hliðsjónar, er hann dró upp myndirnar, voru þessir: 1. Ekki verður bókvitið í askana látið. 2. Betri er einn fugl í héndi en tveir í skógi. 3. Sjaldan tekur hundur við heilli köku. 4. Oft er kám á kokks nefi. 5. Fáir kunna sig í góðu veðri heiman að búa, 6. Sjaldan fellur eplið langt frá éikinni. 7. Þeir gusa mest sem grynnst vaða. 8. Afsleppt (illt) er álshaldið. 9. Víða slettir flórkýrin halanum. 10. Hætt er að ganga á hálli bryggju. 11. Garður er granna sættir. 12. Enginn verður óbarinn biskup. 13. Mörg eru konungs eyru. 14. Hver hefur sinn djöful að drags 15. Margar eru götur til guðs.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.