Þjóðviljinn - 11.08.1970, Blaðsíða 7
Þiríðjudagur 11. ágiúst 1970 — ÞJÓÐVILJINTJ — SÍÐA J
Bjarni M. Jónsson
námsstjóri
F. 23.7 1901 — d. 1.8. 1970.
Vcrðld kveðja vinir kærir,
virðist lítt um aldur spurt.
Mannlíf tíminn með sér færir,
markvisst þar er rutt á burt.
Seggur nærri sjötíu ára
síðast hvarf úr lestinni.
Hýsa margir harminn sára:
Horfinn Bjarni námsstjóri.
Frömuður í fræðslumálum,
festi ýmsar nýjungar. ^
Og til handa ungum sálum
ekkert skyldi spara þar.
Bæði menntun huga og handa
hefja þjóð og cfla kann,
hana þarf því vel að vanda.
— Víst það Bjarni skildi
og fann.
Vitur maður var hann sjálfur,
víðlesinn í margri grein,
og við störfin aldrei hálfur,
ónákvæmni fannst ei nein.
Vildi skila verki hreinu,
víst fannst sumum nóg um það.
Fannst ei ráð að fresta neinu;
fékk því miklu afkastað.
Undir hljóðu yfirbragði
cfur viðkvæmt hjarta sló.
Flestir vissu, þegar þagði,
þungi og festa í svipnujn bjó.
Fimur málafylgjumaður;
flestum drýgri þótti í raun,
þegar íhaldsandinn staður
aöeins reri og blés í kaun.
Anda skálds hann átti í barmi,
enda glöggt þess merki sjást.
Alltaf leikur yndisbjarmi
um þá, sem við þetta fást.
Höllu bæði og hreysi lágu
hugljúft bar sitt andans full.
Krakka lengi kæta smáu
KÓNGSDÓTTIR og
AUFAGULL.
Síðast skal það saman draga,
sem fékk Bjarna auðkennt
mest:
að hann sína ævidaga
engu verki sló á frest.
Þeir, sem Bjama þekktu
og muna,
þeir, sem kynntust honumbezt,
þakka tryggð og trúmcnnskuna.
— Tvennt það mun í hugann
fest.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Minningarorð
Fratmíiald af 4. síðu.
ágæta vel skrifaðar og þær
beztu listaverk, sem ekki verði
gengið fram hjá í úrvali ís-
lenzkra smásagna.
Hér er hvorki staður né stund
til að skrifa rækilega um hók-
menntaverk EYiðjóns Stefáns-
sonar, enda vísast ekki á mínu
færi, en ég vil vekja athygli á
því, hvað samkenndin með
þeim veiku og smáu — bræðr-
unum og systrunum á hjarn-
inu — er gildur þáttur í verki
hans.
Nú er þessi rödd samúðar
og bróðurþels þögnuð, vallinn
strengur í hörpu Islands er
brostinn.
Djúp saknaðar- og þakklætis-
kennd fer um hug allra, sem
eiga á bak að sjá fágætlega
góðum, vitrum og traustum
vini. Ég vil nota þetta tækiífæri
til að færa Maríu, konu Frið-
jóns, hjartans þakkir fyrir vin-
áttu hennar í minn garð og
minna. Þeim hjónum tjái ég
þakkir fyrir tmargar ógleyman-
legar samverustundir. Við hjón-
in sendum Maríu, dætrum
hennar og öðrum ástvinum
Friðjóns innilegar samúðar-
kveðjur.
Björn Jónsson.
Tvísýnn og skemmtilegur leikur
Frá Raznoexport, U.S.S.R.
_ ,,, MarsTrading Companylif
AogBgæðaflokkar LaUaave3103 3 r ■
sími .1 73 73
Útför móður okkar og fóstUTmóður
UNNAR SKÚLADÓTTUR TIIORODDSEN
verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 12. ágúst
kl. 3 e.h.. Vnsamlegast sendið ekki blóm, en þeim, sem
vildu minnast hinnair látau^ er bent á lítonarsjóð Mæðra-
styrksnefndar.
Anna Margrét Halldórsdóttir
Skúli Halldórsson
Véný Viðarsdóttir.
Útfor föður okkiar, tengdaföður og afa
GUÐMUNDAR ÞORSTEINSSONAR
sem lézt í Sjúkrahúsi SeLfoss 6. ágúst, fer fram frá Frí-
kirikýuinni miðvikudaginn 12. ágúst kl. 3. eh.
Ragna Collignon
Óskar Emil Guðmundsson
tengdabörn og barnabörn.
Framhald af 2. síðu.
að skora. Hermann stooraði svo
4ða markið á 30. mínútu með
því að leika á vamatrmann KR
og skjóta óverjandi fyxir KR-
markvörðinn.
Þar sem staðan var nú orð-
in 4:0 í leitóhléi bjuggust menn
við auðveldum sigri, næstum
því formsatriði að ljúka ledkn-
um. En strax í byrjun síðari
hálfleiks kom annað í ljós. KR-
ingamir voru mjög ákveðnir
og eftir fáar mínútur halfði
Gunnar Felixson skorað fyrsta
mark þeima. Boltinn kom fyrir
markið og Samúel markvörð-
ur IBA hugðist handsama
hann en honum var hrint og
boltinn ihrökk til Gunnars, sem
skoraði. Að mínu áliti vár
þama brotið á Samúel, en
dómarinn var á öðru máli og
dæmdi markið gilt.
Stuttu ef'tir þetta var dæmd
vítaspyrna á ÍBA, sem að álitd
áhorfenda var mjög vafasöm,
því að Gunnar Austfjörð
krækti í boltanp og um leið í
fætur eins KR-ings, sem féll
við. Úr þessari vítaspyrnu skor-
aði . Ellert Schrám ög staðan
orðin 4:2. Á 25. mínútu skor-
aði svo Bjami Bjamason 3ja
mark KR mjög laglega og við
þetta mark tvíefldust KR-ing-
ar, sem nú eygðu möguleika á
öðm stiginu eða jafnvel sigri.
Má segja að allt hafi nú komizt
á suðupunkt bæði hjá áhorf-
endum og leikmönnum.
En hægt og rólega náðu Ak-
ureyringar tökum á leiknum
aftúr og á 35. mínútu skoraði
Hermann Gunnarsson fimmta
markið og hið sjötta á 42. mín-
útu. Efltir að Hermann hafði
skorað fimmta martoið má segja
að gert hafi verið út um leik-
inn, enda duttu þá KRingarnir
aftur niður og á síðustu mínút-
unum sóttu Akureyringarnir
mun meira.
Beztu menn ÍBA voru Her-
mann, Þonmóður og Kári, í
framlínunni en í vöminni bak-
verðirnir Viðar Þorsteinsson
og Hafsteinn Sigurgeirsson. Þá
átti Skúli Ágústsson ágætan
leik. Hjá KR bar Ellert af,
en auk hans áttu Gunnar Fel-
ixson oig Hörður Markan góð-
an leik. KRingarnir reyndu að
leika rangstöðuleikaðferð, sem
gafst þeim mjög illa.
Dómari var Hannes Þ. Sig-
urðsson og dæmdi af rögigsemi.
H.Ó./S.dór.
Víkingur í fallhættu...
Framhald af 2. sáöu.
liðsins væri veik, væri þetta ef
til vill skiljanlegt, en nú er
hún það alls etoki, heldur er
hún orðin ein sú bezta í 1.
deild, þannig að svona vamar-
leikur er alls óþarfur hjá lið-
inu. Beztu menn lA í þessum
leik voru Jón Gunnlauigsson,
sem bar höfuð og herðar yfir
aðra leikmenn og það í tvenn-
um skilningi, því hann mun
vera hávaxnasti leikmaðurinn i
1. deild og um leið einn bezti
varnarmaðurinn í deildinni, og
Eyleifur Hafsteinsson, sem átti
mjög góðan leik að þessu sinni.
Þá áttu Þröstur Stefánsson, Jón
Alfreðsson og Haraldur Stur-
laugsson allir ágætan leik, sem
og framlínan öll í fyrri hálf-
leik.
Það er næsta ótrúlegt hve
Víkings-liðinu hefur farið aftur
á skömmum tíma og það svo,
að það er nú komið í verulega
fallhættu. Liðið lék þó betur að
þessu sinni en það hefur gert í
síðustu tveim til þrem leikjum,
en svo undarlega bar við að
framlínan, er til þessa hefur
verið betri helmingur liðsins,
var algerlega bitlaus og hinir
fljótu framherjar hennar nutu
sín aldrei í leiknum. Bezt frá
þessum leik komust þeir Guð-
geir Leifsson og Gunnar Gunn-
arsson að ógleymdum mark-
verðinum Sigfúsi Guðmunds-
syni, sem varði mjög vel etf
undan er skilið síðara mairkið.
Dómari var Einar Hjartarson
og dæmdi hann allvel en þó
er eitt aitriði, sem ég er etoki
samþykkur Einari með. 1 hvert
sikipti sem leikmaður leggst nið-
ur og er, eða læst vera meidd-
ur, þá stöðvar hann leikinn
hvernig sem á stendur. Þetta á
dómarl ekki að gera. Hann á
ekki að stöðva leikinn fyrr en
boltinn er kominn úr leik. Til
að mynda stöðvaði Einar leik-
inn tvívegis vegna þessa, þegiar
liðin voru í mjög opinni sókn.
Mér er nær að halda að Vík-
ingamir hafi vegna þessa rnisst
af marki, svo opið var þeirra
marktækifæri þegar dómarinn
stöðvaði leikinn. — S.dór.
Lélegur leikur ÍBK og Fram
Fnamhald af 2. síðu.
útu. Á 32. mínútu voru Kefl-
víkingar aftur mjög nærri því
að skora þegar Magnús Torfa-
son skaut í stöng aí nokkuð
löngu færi.
Á 42. mínútu átti Sd'gurbergur
Sigsteinssan skot að marki ÍBK,
en það hafnaði í stöng en upp-
úr þessu varð mikil pressa á.
ÍBK markið og á síðustu sek-
úndunum bætti Sigurbergur
fyrir stangarskotið með faHlegu
skoti, sem hafnaði í markinu,
þrátt fyrir góða tilraun Þor-
steins martovarðar til vamar.
Staðan var því 1:1 í leikhléi ög
voru það sanngjörn úrslit eftir
fyrri hálfleik.
I síðari bálfleiknum var um
enn minni knattspymu að ræða
en í þeim fyrri, en mikið um
langspyrnur og hlaup framherj-
anna eftir boltanum. Á 6. mán-
útu síðari hálfleiksins gierði
Þorbergur sig aftur sekan um
hrapalleg mistök í úthlaupi og
boltinn fór til Harðar Ragnars-
sonar, sem skoraði auðveldlega
sigurmarkið í leiknum. Næst
þvf að jafna voru Framarar á
35. minútu þegar Einar Áma-
son skaut í stöng atf stuttu færi.
Eins og áður segir vom þessi
úrslit sanngjöm og réð þar
mestu um kraftur og hraði
Keifljvíkinganna. Fyrir uitan þá
Einar Gunnarsson og Guðna
Kjartansson, sem eru í sór-
flokki í liðinu, áttu þeir Steinar
Jóhannsson, Friðrik Ragnarsson
og Magnús Torfason beztan leik
af hálfu IBK, en hjá Fram
Marteinn Geirsson er lék mjög
vel, og Sigurbergur Sigsteins-
son. Ednar Ámason toom ekki
inná fyrr en langt var liðið á
ledkinn og er það furðuleg ráð-
stöfun hjá þjálifara liðsins að
geyma Einar á varamannabekk
nema síðustu 15 mínútumar
leik eftir leik. Einar er skotviss
og marildheppinn og það er edn-
mitt þannig leikmenn, seim
Fram vantar.
Dómari var Guðmundur Har-
aldsson og dæmdi stoínandi vel.
— S.ddr.
LokaB í dag
þriðjudaginn 11. ágúst vegna j arðarfarar
VALDIMARS G. ÞORSTEINSSONAR,
húsastníðameistara.
HOFFELL SF.
Laugavegi 31.
matsveina- og
veitingaþiónaskólanum
Innritun í skólann fer fram 1 skrifstofu skólans í
Sjómanmaskólanum 13. og 14. þm. kl. 15-17. Inn-
ritað verður 1 fyrra kennslutímabilið sem hefst
1. september næstk., og á seinna kennslutímabilið,
sem hefst 4. janúar 1971. Inntökuskilyrði eru að
nemandi sé 15 ára og hafi lokið miðskó'laprófi.
Nemendur eiga að mæta til innritunar með próf-
skírteini og nafnsirírteini. Nemendur se’m innrit-
ast í 3. bekík skólans eiga að mæta með námssamn-
ing og skriflega beiðni frá meistara um skólavist.
Skólinn verður settur 7. september kl. 15»
Símar 19675 og 17489.
Skólastjóri.
Laus staða
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði óskar eftjr að ráða
meinatækni frá 1. október næstk. Umsóknarfrest-
ur er til 15. september.
Starfið er fólgið í veríjulegum sjúkrahúsrannsókn-
um, röntgenmyndatökum og framköllun. Upplýs-
ingar gefur yfirlæknirinn, Úlfur Gunnarsson,
sími 3345, ísafirði.
Fjórðungssjúkrahúsið á ísafirði.
Laus staða
Staða skrifstofustjóra ísafjarðarkaupstaðar, sem
jafnframt er fulltrúi bæjarstjóra er hér með aug-
lýst laus til umsókmar.
Laun og önnur starfskjör skv. samningi bæjar-
stjórnar við félag opinberra starfsmanna á ísafirði.
Umsóknarfrestur er til og með 5. septermber næstk.
Nánari upplýsimgar gefur undinritaður.
ísafirði 6. ágúst 1970. '
Bæjarstjórinn á ísafirði.
BRIDGESTONE
HINIR
VIÐURKENNDU
JAPÖNSKU
HJÓLBARÐAR
FÁST HJÁ
OKKUR
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
Opið alla daga frá
kl. 8—22,einnig um helgar
GOmÍVINNUSTOFAN HF.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVÍK
SÍMI 31055
ÚTBOÐ
Tilboð óskast í að byggja fimm timburskúra undir
bráðabirgðadreifistöðvar.
Útboðsigögn eru afihent í skrifstofu vorri gegn
1000,00 kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sa'ma stað 19. ágúst kl.
11,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
* Fríkirkjuvegi 3 -- Sími 25800