Þjóðviljinn - 16.08.1970, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 16.08.1970, Blaðsíða 4
'4 — ÞUÖÐVIUINN — Sunmudlaigur 16. ágiust 1970 — Málgagn sósialisma, verkalýSshreyfingar og þjoðfrelsis — Utgefandi: Utgáfufélag Þjóðviljans. Framkv.stjórl: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Ivar H. lónsson (ób.), Magnús Kjartansson Sigurður Guðmundsson Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson Ritstj.fulitrúi: Svavar Gestsson. Augiýsingastj.: Olafur iónsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Siml 17500 (5 linur). — Askriftarverð kr. 165.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 10.00. Stjórnin í fjörbrotum ^tökin innan stjómarflakkanna um hvort rjúfa skuli þing og efna til haustkosninga verða með hverjum degi hatrammari, og inn í þau átök bland- ast æsilegur baktjaldaslaguæ innan Sjálfstæðis- flokksins um forystuna í þeim flokki, og þar er Gunnar Thoroddsen kominn í spilið. Fátt sannar betur þá fullyrðingu stjórnarandstæðinga að aft- urhaldsstjóm íhaldsins og Alþýðuflokksins hafi gersamlega gengið sér til húðar en þetta basl stjómarflokkanna með haustkosningar, samtímis því að þeir telja aUt þjóðfélagið í stakasta lagi og í hinum mesta uppgangi undir stjórn sinni, og ráðherrarnir lýsa því yfir að ágreiningsefni um stjómarstefnuna fyrirfinnist ekki. Samt á að rjúka til og kjóáa til alþingis, áður en kjörtímabilið rennur úf á nassta sumri. 'J'ilefnið til kosninga er hins vegar augljóst og raunar viðurkennt þó það sé óljóst orðað. Aft- urhald landsins, sem stjómar jafnt Sjálfstæðis- flokknum og Vinnuveitendasambandi hans, hygg-. ur á nýja stórárás gegn alþýðu manna og verka- lýðshreyfingimni. Ekki er talið ráðlegt að leggja til slíkrar árásar imeð þingkosningar yfirvofandi, heldur að reyna beri kosningar í þeirri von að fá út úr þeim afturhaldsmeirihluta á Alþingi sem gerbreyti vinnulöggjöfinni verkalýðshreyfingunni í óhag, og hafi forystu um árásina á hfskjörin. Hægrisveiflur Framsóknarflokksins í jájáneinei- dansinum undanfarið og ummæli Harðar Einars- sonar þykja benda til þess, að íhaldið telji sér vísa samvinnu við Framsókn til myndunar slíkrar aft- urhaldsstjórnar ef það þarf á að halda. Fullnotuð íhuldshækju ^Jtor fyrirsögn Alþýðublaðsins með stærsta letri blaðsins sagði lesendum í fyrradag að engin ákvörðun hefði enn verið tekin um að rjúfa þing. Sama dag sagði blað hins stjómarflokksins, líka í áberandi forsíðufyrirsögn: „Flest bendir til kosn- inga í haust“. Forystugreinar Alþýðublaðsins fjalla ekki um það hvort Gylfi, Emil eða Eggert séu í þann veginn að falla, heldur hvort Chichest- er-Clark í Norður-írlandi haldi völdum eða Banda- ríkjunum, „verndurum“ íslands að dómi þeirra Natómanna, takist að eitra allan sjó á íslandsmið- um. Augljóst er af viðbrögðum að logandi hræðsla hefur gripið um sig í Alþýðuflokknum við tilhugs- unina um haustkosningar. Hann óttast nú, að hon- um verði fleygt sem fullbrúkaðri dulu, eftir tíu ára samfellda íhaldsþjónustu, en Framsókn tek- in í staðinn. Enda munu þeir býsna fáir sem veðja á Alþýðuflokkinn í næstu kosningum. Hitt geta kjósendur einir, afstýrt þingmeirihluta sem mynd- ar nýja afturhaldsstjóm að kosningum loknum. — s. iriiVi'riiiiMririirir mk Jwi sm fí&MrÍ Atriði úr hinu nýstárlega leikriti. Þurrkaðir sveppir og kvennærföt. O Hópur bandarískra vísinda- manna, sem starfa á veg- , um heilbrigðismáíaráðuneytis- ins, hefiur ákveðið að láta smíða sérsitaikar sorplestir, sem flytji sorp tíl ýmissa aiuðra svæða. Vísindamennim- ir segja, að hver einasta borg í Bandaríkjunum eigi í örðug- ; leikum með að losna við sorp. \ I Los Angeles hefur sú bráða- í birgöaráðstöfun verið gerð að l varpa sorpi og rusli í djúp / gil umhverfis borgina, en það 1 er vitasikuld engin framtíðar- l lausn. Á hverju ári bætast l við 48 miljarðar af niðursuðu- / dósum, 26 miljarðar af flösk- 1 um, 30 miljón tonn af pappír, I og geysilegu magni af plasti ( er ennifremur kastað á sorp- / hauga. Það mun feosta óheyri- T legt fjármagn að eyða þessu \ sorpi og sumum efnum er t ekki unnt að eyða með 1 nokkru móti. J Brezkur matrósj rennir niður síðasta skammtinum af „blóði Nelsons“. O Þessi bráðsnotra kona á myndinni er Ratna Sari Dewi, eftirlætiseiginkona Súkamós Indónesíuforseita, sem nú er látinn. Haft er eftir ríkis- stjórninni í Paris að henni hafi verið bannað að fara frá Djakarta, og i undirbúningi séu málaferli gegn henni, vegna þess að hún hafd sölsað undir sig 70 miljónir doliara af því fé, sem Japanir greiddu Indónesum í stríðsskaðabætur. I Tokíó hefur þessum sögu- sögnum hins vegar verið vís- að á bug vegna þess að um- ræddar skaðabætur hafi verið greiddar í vörum og þjónustu, sem námu 223 miljónum doll- ara. O Fyrir skömmu var frum- sýnt í Stuttgart í Vestur- Þýzkalandi nýtt leikrit eftir Rolf Hodhhuth, „Skæruliðam- ir“, sem fjallar um misiheppn- aöa tilraun vinsæls og auðugs bandarísks öldungardeildar- þingmanns til að steypa vald- höÆum i Bandarikjunum í nafni mannréttinda og lýð- ræðis. Þýzk blöð hafa birt neitovæða gagnrýni um verk- ið, en. höfúndur tveggja frægra heimildaríeikhúsverka kveðst ekki góðu vanur og býst við því að verkið hafi tilætluð áhrif. Það hefur þeg- ar verið pantað til sýninga af 13 leikhúsum í Þýzkalandi. O Síðhærður og hirðuleysis- lega klæddur farþegi í flugvél á leið frá Puerfco Rico til Bandarfkjanna sagði við sessunaut sinn í vélinni, að hann óttaðist að vera tekinn fyrír flugvélaræningja. Flug- freyja heyrði á tal hans og misskildi hann. Hélt hún að hann ætlaði að láta beina flugivélinni til Kúbu og til- kynnti flugstjóranum það. Hann brá skjótt við og lenti í Washington undir þvi yfir- skini, að.hreýfill hefði bilað. Þegar tif átti að taka var maðurinn vopnlaus, en slapp þó ékki alveg þvi að lögregl- an fann eitthvert rnagn af marihuana í fórum hans. O Á klámöld eru það helzt Rússar sem halda uppi sið- ferði, eins og það gerðist á dögum mæðra vorra. Samt freistast þeir öðm hvoru til að sýna, að þeir vilji „fylgjast með í heiminum" — Og þóttu það til dæmis nofckur tíð- indi, að brjóstahaldari og undirpils urðu miðdepill þess- arar myndar, sem annars sýn- ir þurrkaða sveppi í rússnesku þorpi, á Ijósmyndasýningu so- vézkri, sem nýlega var opnuð í Washington. O Enda þótt enn eimi eftir af gagnkvæmri úlfúð Þjóðverja hver meiðsl í starfi. Einkum á þetta við um lögreglumenn í Kaupmannahöfn og öðrum stórum borgum, en úti á landi gengur löggæzlan yifirleitt stórslysalaust. Á síðasta ári voru 4000 daga forföLl vegna meiðsla hjá hinum 7849 lög- raglumönnum, sem starfa í landinu, og benda þessar tölur til þess, að það færist í vöxt að í odda skerist með lög- reglumönnum og hinum al- menna borgara. O Þýzfea vikublaðið „Neue Illustrierte“ birtj nýlega myndskreytta frásögn atf lest- O I meira en 300 ár halfa brezkir sjóliðar fengið fylli sína af rommi ókeypis, þegar þeir hafa verið að störfum, en nú hefur flotamálaráðu- neytið afnumið þessa kær- komnu hefð á þeirri forsendu, að menn, sem þurfj að sýsla við flófcinn. raftækjabúnað, þurfi að vera klárir í kollin-. um. Það lætur að líkum, að sjóliðunum er afar mikil eftir- sjá í þessum guðaveigum, sem kallaðar hafa verið blóð Nel- sons. Þá herma fréttir, að ætlun- In sé að leggja brezfcu kon- ungssnékkjunni Britannicu fyrir fullt cg allt. Ástæðan er sú, að skipið er óhemju dýrt í rekstri, en það er 5769 tonn, hefur 271 manna áhöfn, og útgjöld ríkisins við rekstur þess nema tugmiljónum króna á ári. Bakhlutar frú Brandt og frú Pompidou undir einum feldi. og Frakka virðist allt slétt og fellt á yfirborðinu, og þjóð- höfðingjamir ganga á undan með góðu fordæmi með að bæta sambúðina. Meðfylgjandi mynd er tekin af forsetafrú Frakiklands, Claude Pompidou, og Rut Brandt, eiginkonu kanslara Vestur-Þýzkalands, með sömu minkaslá á öxlum. Hún er raunar í edgu frú Pompidou, en til að innsigla vináttu sína við frú Brandt bauð hún henni til afnota helming af þessum forláta grip í veizlu fyrir skömmu. O Talið cr að 1 af hverjum 2 lögreglumönnum í Dan- mörku særist eða hljóti ein- arferðum þýzikira kvenna til Italfu og mun mörgum hafa blöskrað. Myndimar sýna nefnilega konur af öllum þjóðfélagsstéttum og á öllum aldrí í tryiltum gleðskap með einkennisbúnum jámbrautar- starfsmönnum og tollvörðum ítölstoum, kampavín freyðir og siðferðið er víst ekki upp á marga fiska eftir því sem segir dansika blaðinu Poli- tiken. Stjóm jámbrautatfyrir- tækja ríkisins var gripin mik- illi skelfingu, þegar greinin birtist og nú á að rannsaka ástandið gaumgæfilega, m. a. með þvi að senda roskna og lítt tælanlega umsjónarmenn með lestum firá Hamborg til Verona. HVERJU SIN ÖGNIN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.