Þjóðviljinn - 16.08.1970, Side 5

Þjóðviljinn - 16.08.1970, Side 5
Sunwudiaigur 16. áigúst 1970 — I>JÖÐVIUIN N — ^ :::¥:;x-:v: MYNDIR FRÁ PÓLLANDI s 1 I fyrra mánuði var þess minnzt í borginni Zgorzelec við ána Nysa í Póllandi að tveir ára- tugir voru iiðnir síðan undir- ritaður var hinn sögulegi samn- ingur milli Pólverja og Austur- Þjóðverja. Sáttmáli þessi var undirritaður í fyrmefndri borg hinn 6. júlí 1950 og með honum var kveðið á um hin svonefndu Oder-Nysa-Iandamæri (á þýzku er áin oft nefnd Neisse og þá taiað um Oder-Neisse mörkin). Með samningnum urðu þátta- skil í samskiptum þcssara ná- grannaþjóða. Meðal viðstaddra á Nysa-bökkum í fyrra mánuði voru forsætisráðherrar Póllands og Þýzka alþýðulýðveldisins, þeir Józef Cyrankiewicz (til vinstri á myndinni) og WiIIi Stoph. 2 Á hverjum sunnudegl — að sumarlagi að minnsta kosti — eru haldnir Chopin-tónleikar við minnismerki um tónskáldið fræga í Lazienki-skemmtigarð- inum í Varsjá, höfuðborg Pól- lands. Á tónleikum þessum kcma fram jöfnum höndum hinár beztu í hópi pólskra tón- listarmanna og víðfrægir er- lendir listamenn. Á myndinni sést Aldo Dwarinate, píanóleik- ari frá Litháen, leika á hljóð- færið framan við Chopin- styttuna. 3 Síðan heimsstyrjöldinni siðari lauk hafa Pólverjar lagt æ meiri áherzlu á skipasmíðar og einkum hafa þeir sérhæft sig í sniíði hverskyns fiskiskipa, ekki hvað sízt skuttogara. Myndin er tekin í einni af stærstu skipasmóðastöð í Gdynia, stöð sem kennd er við Parísarkommúnuna. Það er S. Engler yfirverkfræðingur sem þaxua lítur yfir verkið. 4 ' Pólverjar flytja út fatnað í allstórum stíl, ekki aðeins til annarra sósialistískra ríkja í Austur-Evrópu heldur og vest- ur um haf til Kanada t.d. — og um skeið var flutt talsvert inn til Islands af pólskum fatnaði. Munu margir kannast við firmamerkið „Modena“, sem bundið er fataverksmiðj- unum í Poznan, en þessi mynd er af haustkápu frá fyrirtæk- inu. 5 Pólverjar framleiða sement í stórum stil; árleg framleiðsla þeirra mun nema um 1,2 milj- ónum lesta og í sementsverk- smiðjunum starfa nær þúsund manns. Myndin er frá nýjustu og fullkomnustu verksmiðjunni í Póllandi, Chem II verksmiðj- unni í Lublín. 3 5 . - .. „mn Éilwftl J i|>' I

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.