Þjóðviljinn - 09.10.1970, Page 2

Þjóðviljinn - 09.10.1970, Page 2
 2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN — Föstudagiur 9. otet)6beir 1970. Theódór Guðmundsson þjálfari Þróttar í Neskaupstað: „Ætlum okkur uð vinnu Vul' Þróttur er fyrsta Austfjarðaliðið sem kemst í aðalkeppni um bikarinn O Frammistaða knattspyrrmliðs Þróttar í Neskaup- stað í sumar hefur að vonum vakið mikla athygli. Það er ekki nóg með að liðið hafi orðið Austfjarða’meistari og unnið 3ju deildarkeppnina og þannig orðið fyrsta Aust- fjarðaliðið sem kemst í 2. deild, heldur er liðið öllum á óvart komið í aðalhluta bikarkeppninnar og mætir 1. deildarliði Vals í Neskaupstað á morgun. □ Vegna þessa frábæra árangurs liðsins höfðum við samband við þjálfara þess, Theódór Guðmundsson, og spurðum hann hvemig leikurinn á morgun legðist í þá Þróttara. „Hann leggst vel 1 okfcur og við erum staðráðnir í að vinna, þótt við gerum okkur grein fyrir, að þetta verður ofckar mesta raun á sumrinu og að flestir álíti að við eigum enga möguleika. En ég hef óbilandi trú á þessu liði Þróttar. Það er að vísu skipað ungum leik- mönnum, sem sést bezt á þvi að ég er elzti maður liðsins, 26 ára, en það er efnilegt og á að eiga mikla framtíð fyrir sér“. Þetta sagði Theódór og það var engan bilbug á honvm að finna. Hann ætti að vita hvað hann er að segja, þar sem hann er mjög reyndur knattspymu- liðs KR í nokkur ár. Við spurð- um hann, hvort áhugi fyrir knattspyrnu vaeri mikill í Nes- kaupstað? — Já, hann er mjög mikill og efniviður nægur. Yngri flokk- arnir, 5., 4. og 3. flokkur eru hver öðrum efnilegri, en það eina sem háir okkur hér i Nes- kaupstað er, að efcki er keppt hér í 2. aldursifH'okfci, svo að leikmenn fara beint úr 3. fl. upp í meistaraflokfc. Eins og gefur að sfcilja er það alltof að þá verður róðurinn þyngri og ljóminn af velgengninni í sumar farinn að dofna. Ég held samt að ég slái til, vegna þess að ég hef trú á þessu liði. En það er ef til vill of snemmt að fara að spá fram í tímann, aðalatriðið nú er leikurinn gegn Val og ég vil eindregið hvetja alla Norðfirðinga, sem og aðra Austfirðinga, til að koma og hvetja sitt liö, þvi að hvatning áhorfenda er 12. maður í liði. — S.dór. Lelðrétting Þau leiðu mistök urðu í frá- sögn af úrslitum í leik t>róttar frá Neskaupstað og KS frá Siglufirði í bikanreppninni að sagt var að Þróttur hefði unnið 4:1 en hið rétta var að Þróttur vann 3:2. Leik Þróttar og KS i úrslitum 3ju deildar lauk hins vegar með sigri Þróttar 4:1 og rugluðust þessi úrslit saman. Eru viðkomandi aðilar beðnir afsokunar á þessum mistökum. — S.dór. Mál til komib Þetta er lið Þróttar frá Neskaupstað sem mætir 1. deildarliði Vals í bikarkeppninni á sunnu- dag. Theodór Guðmundsson þjálfar! er yzt til hægri í aftari röð. Finnski spjótfcastarinn og Olympíumeistarinn frá 1964, PauJi Nevala, sagði í viðtali við sænska dagblaðið „Afton- bladet“ aö hann hefði milli 40 og 50 þús. sænskar krónur á ári fyrir að keppa í frjóls- íþróttamótum. Þetta eru milli 680 og 850 þúsund islenzkar krónur. Nevala, sem er 30 ára gamall, sagði að hann tæki 800 sænskar krónur fyrir að taka þátt í frjálsíþróttamóti og að hann tæki þátt í 60 til 70 mótum árlega. „Ég geri mér grein fyrir að þessi játning mán getur komið í veg fyrir að ég fái að taka oftar þátt í Olympíuleikum, en mér finnst tími til kominn að segja sann- leikann. Allir beztu frjáls- íþróttamenn, bæði í austri og vestri, fá svipaða upphæð fyr- ir keppni, en þetta er ýmist kallað „ferðakostn aður ‘ ‘ eða „vinnutap“, en slíkri vitleysu á að hætta og kalla það bara réttu nafni, borgun fyrir að keppa“. Þannig fóiust. Nevala orð og vissulega er þetta mik- il hreinskilni hjá honum og eins og hann segir tímabært að sannleikurinn í þessu máli komi fram. Nevala heldur áfram og segir: „Ég veit að formaður alþjóðaolympiu- nefndarinnar, Avery Brund- age, getur látið dasma mig óhæfan til að keppa á Olym- píuleikunum, en ég held að hann reyni það ekki. Ef hann hins vegar gerir það, þá mun ég birta tölur um þær upp- hæðir, sem topp íþróttamenn, bæði í austri og vestri, hsfa fengið fyrir þátttöku í frjáls- íþróttamótum. Þá yrði varla um alvöru Olympíuleika að ræða“. Pauli Nevala segir sannlcik- ann um „áhugamennskuna“ í 1 íþróttum maður og veit gerla um styrk- leika 1. deildarliðanna frá því hann var leikmaður 1. dedldar- Mis- jafnar kröfur Hér f blaðimu birtist fyrir nokkrum dögum ádrepa frá Véstedni Lúðvíkssyni rithöf- undi, þar sem harðlega voru gagnrýndir ýrnsir efnisþættir í Þjóðviljanum. Astæða er til að fagna þeirri gagnrýni; Þjóðviljinn þarf sannarlega á því að halda að lesendumir fylgist með blaðiruu af lifandi áhuga, og engum er ljósara en starfsmönnum blaðsdns hversu mörgu er áfátt, þó að skoðanir verði ævinlega skápt- ar um ýmsa efnúaþætti. Einörð gagnrýni og aðhaid er til marks um lifandi tengsl Þjóð- viljans við lesendur sína, og þau sambönd þurfa að vera sem nánust Morgunblaðið og Tíminn hafa hent gagnrýni Vésteins á lofti og virðast ritstjórar þeirra blaða undrast að sjá svo opinská skrif á prenti. Það eru eðlileg viðbrögð hjá ritskoðunarmönnujm sem yfir- leitt stinga undir stól allri gagnrýni sem að þeim sjálfum snýr. Samt komast ritstjórar Morgunblaðsins og Tímans ekki heldur hjá því að gei-a grein fyrir gagnrýni, éf hún snertir þau atriði sem veiga- mest eru og viðkvæm í efnis- vali blaðanna að mati rit- stjóranna. Þannig birti Morg- unblaðið fyrir skömmu grimmilega ádrepu sem snerist um sjálft mál málanna í Sjálfstæðisflókknum um þess- ar mundir: Er Gunnar Thor- oddsen nefndur nægilega oft og með tilhlýðilegri virðingu í Morgunblaðinu? Og í Tím- anuim hafa um skeið geisað harðar deilur um það örlaga- ríka vandamál hvort blaðið birti of margar eða of fáar myndir atf berum bossum. 1 nýjustu gagnrýninni af því tagi, sem blaðið birti 1 fyrra- dag, er borin fram svofelld tillaga: „Ef ritstjóri Tímans finnur hjá sér hvöt og skyld- ur til að seðja þetta hungur eftir nekt og fýsnum, að breyta til og gefa bara út fylgirit i þessu skyni, sem þeir einir fái, sem eftir því óstea, og taka þá til greina þær óskir, sem þegar cru fram komnar um að gbeyma ekfci, að til eru konur, sem þrá að sjá nakta karlmenn og því ekki það, ef ánægja er í kvenbrjóstum, nöflum og nár- um, því ekki nötetum karl- mönnum?“ Svona eru áhugaefnin marg- breytileg og krölfur þær ólíkar sem til blaðanna eru gerðar. Þjóðviljinn má una hluitskipti sínu vel í þeim samanburði. — Austri. mikið stökk. Leikmenn 3. flokks eru 14—16 ára en 2. flokks 16—19 ária, það er allt of snemmt fyrir 16 ára leitemenn að fara beint upp í meistara- flokk. 2. flokkurinn er nauð- synlegt þrep þarna í milli. Ann- ars er áhuigi fyrir knattspyrnu gríðarlega mikill í Nesicaupstað og hann efldist að miklum mun við hinn ágæta árangur liðsins í sumar. Mönnum fannst til þess koma að Þróttur skyldi verða fyrstur Austfjarðaliða til að komast í 2. deild, og ekiki varð áhuginn minni við að liðið skyldd komast í aðalhluta bik- arkeppninnar. Maður varð einkum var við aukinn álhuga alls almennings við þetta. Mér er óhætt að segja að kioma Vals til Neskaupstaðar sé hér álíka viðburður og þegar góð erlend lið koma til Reykjavík- ur, enda er þetta í tfyrsta sikipti sem 1. deildarlið kernur til Austfjarða til keppni í lands- móti. — En er ekki dálítið bil á milli til að mynda ykkar liðs og 1. deildarfiðanna, Theódór? — Jú, það er það. Við vitum að það er nokkuð bil á milli 1. og 2. deildarfiðanna og ég held að mér sé óhætt að fullyrða að lið Þróttar sé álíka steríkt og flest 2. deildarliðin. Ég hef þá trú, að hér sé hægt að koma upp liði sem verði jafn gott og 1. deildariiðin. Við höfum haft sæmilegan völl hér, en nú verður hafizt handa strax í haust um að endurtoæta hann að öllu leyti. Hann verður stækkaður og bættur, eins og frekast er unnt, svo að aðstæð- ur ættu ekki að vanta í fram- tíðinni. Þá er búið að mæla út stórt og glæsilegt íþrótta- svaxði utan bæjarmarfcanna og á þar að koma með öðm gras- völlur, svo að á þessu sézt að áhuginn hér er mikill Og fyrsta flokks aðstaða á næsta leiti. — Verður þú affcur mieð Þrótt- arliðið næsta ár Theódór? — Ég hef verið beðinn þess. Nú, ég geri mér grein fyrir því —ITTT Welska unglingalandsliðið er skipað témum atvinnumönnum Eins og vlð sögðum frá f Þjóðviljanum s. 1. ntiðvikudag fer fram landsleikur í knatt- spyrnu milli unglingaliðs Wales og íslands n. k. þriðjudag hér á Laugardalsvellinum. Upplýs- ingar hafa nú borizt um lelk- menn Wales og Itemur í ljós að þeir eru allir atvinnumcnn í knattspyrnu hjá hinum ýmsu atvinnumannaliðum á Bretlands- eyjum. Þótt íslenztea unglingalands- liöið sé efflaust sterkt, er lítil sem engin von til þess að það nái að sigra welsku atvinnu- mennina, en þó er það ekki vonlaust. Leiikurinn á þriðjudag er, sem kunnugt er, liður í Evrópufceppni unglingalandsliða og heifst hann kl. 16. Á þeim tíma eru fflestir í vinnu og því líklegt að færri áhorfendur komist en vilja. Þess vegna er skorað á allt skólafólk, sem kemur því við, að mæta og hvetja landann. Flestir leik- mannanna eru skólapiltar og því ættu félagar þeirra úr skól- unum að mæta og hvetja þé til dáða. Welska-Iiðið sem mætir því íslenzka verður skipað eftir- töldum lefkmönnum og með er talið atvinnumannaliðið sem þeir eru hjá: J. J. Parton Burnley, T. A. Jones Bournemoutlh & Boscome Athletic, S. Aizlewood Newport County, M. K. Edwards Leeds United, I. R. Hines Nottingham Forest, A. C. Impey Bristol Rovers. K. L. Watkins Briglhton and Hove Albion, A. Couch Cardiff City, C. Randell (fyrir- liði) Coventry City, P. Harris Newport County, P. T. Huighes Shrewsbury Tow, L. James Bumley, M. L. McBumeyWrex- ham, D. Slhowers Cardifif City. Aðalfundur Aðalfundur frjálsíþróttadedlld- ar Breiðabliks verður haldinn í Fólagsiheimili Kópavogs n. k. mánudag kl. 20,30. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf. Félagar eru hvattir til að fjölmenna. — Nýir félagar eru • • 6 fundinn Dregið hefur verið í 2. um- ferð Evrópubikurkeppninnur Dregið var í 2. umferð Bvrópufoikankeppni deildar- og bikairneistara í Amsterdam s. 1. þriðjudag og drógust eftirtalin lið saman. Evróputoikarkeppni deildar- meistara: Waterford, Irlandi — Celtic, Skotlandi. Panathinaikos, Gritek- landi — Slovan Bratislava, Tékkóslóvakíu. Red Star Bel- grad Júgóslavíu — UT Arad, Rúmeníu (liðið sem sló Fejen- oord út). Carf Zeizz Jena, A- Þýzkalandi — Sporting Lissa- bon, Portúgal. Standard Liege, Belgíu — Falegia Varsjá Pól- landi. Cagliari, ítalíu — Atle- ticto, Spánd. Borussia Munchen- gladbach, V-Þýzkalandi — Everton, Englandi. Ajax, Hol- landi — Basel, Sviss. Evrópukeppni bikarmeistara: Eindhoven, Hollandi — Ste- aua Búkarest, Rúmeníu. Goatz- tepa, Tyrtelandi — Gomik Zabrze, Póllandi. CSKA Sofia, Búlgaríu — Chelsea, Englandi. Real Madrid, Spáni — Wacker Innsbnxck, Austurríki. Benfica, Portúgal — Vorwaerts Berfín, A-Þýzkalandi Honved, Ung- verjalandi — Manchester City. FC Bruges, Belgíu — Zurich, Sviss. Cardiff, Wales — Nantes, Frakklandi. Leikirnir eiga að fara fram 21. október og 4. nóvemtoer. Að sjálfsögðu eiga liðin sem talin eru á undan í upptalningunni hér að frarnan heimaleikinn' fyrst. Riðlakeppni firmaliða lokið Keppnin í hinum fjórum riðl- urn finnakeppninnar í knátt- spyrnu er nú lokið og aðeins úrslitakeppnin eftir í A-riðli sigraði Vífilfell, hlaut 12 stig, í B-riðli Loftleiðir með 10 stig, í C-riðli Sláturfélag Suðurlands með 11 stig og í D-riðli BP með 10 stig. Sex lið voru í hverjum riðli og nú munu sig- urvegaramir í riðlunum keppa um efsta sætið í mótinui.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.