Þjóðviljinn - 15.10.1970, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 15. ofctóber 1970 — ÞJÓÐVILJINN — SÍDA 0
Sigríður SœJand
F. 12/8 1889 —D. 8/10 1970
Kveðja frá dóttur og dótturbörnum
Þú dáin ert í Drottni nú,
hans dýrð og návist skynjar þú.
Sá, sem af alúð verk sín vann,
hér var að starfa fyrir hann.
Þú vermdir okkar æsku og líf,
og okkur varst þú skjól og hlíf,
ef aðstoðar frá þér var þörf,
þú alltaf bættir við þín störf.
Allt, sem lífsins anda dró,
þér alltaf gleði í hjarta bjó.
Að virða allt líf og verkin sín
var héí^ ávallt kenning þín.
Með trúarstyrk og kjark í kvöl
þú hvers manns vildir létta böl.
Hafa átt slíka ömmu og móður mund
mun ei gleymast nokkra stund.
Og því skal lofa liðinn dag,
því líf er ofar dauðans dal.
Hann sem lífið lánar hér
launi kærleiksverkin þér.
Sigurunn Konráðsdóttir.
Sigríður Sæland
Framhalð af 7. síðu.
hlutverk hins göíuga manns.
Þú ért í senn Ijósmóðtr og
læfcnir. — Ég læt þetta dæmi
nægja en af mörgu má taka.
Mer er minnisstæð síðasta
kvöldstundin er þú dvaldir á
heimili mínu mdðal ættingja
og vina. Það var 29. marz síð-
astliðinn, en þann dag hefði
móðir mín sáluga orðið 70 ára.
Með ykfcar vair traust vinátta,
sem aldrei féll sfcuggi á. Hinn
14. ágúst síðastliðinn drakk ég
hjá þér mitt síðasta kaffi, en
þann dag var ég 46 ára og
fæddutr í húsakynnum ykkair
hjóna og umvafinn höndum
þínum.
Þegar minntoa tekur í
penna minum frænka, verð ég
að fara stutt yfir sögu þína
á sviði félagsmála, enda munu
aðrir gera því betur skil, sem
betur þefckja þar til. En eitt
er víst, að enginn félagsskapiur
hér í bæ átti hug þinn' allan
fremur en stúkan Daniíelsher,
enda þar sem störfin voru
réttilega og á skynsamlegan
hátt í fyllstu orðsins merkingu
metin. Þar skipaðir þú nú
það sæmdarheiti: heiðursfélagi.
Annar var sá félagsskapur,
sem þér var hugljúfur. Það
voru slysavamasamtökin. í
Kvennadeildinni Hraunprýði
varst þú formaður um skeið
og áttir sæti í stjórn þess fé-
lags í mörg ár og endaðir þar
sem heiðursfélagi meðal þeirra
kvenna. Þær kunnu að meta
verk þin, konumar hér i bæ
fyrr og siðar. Það sýndi svo
í ríkum mælj afmælisfagnaður
er þér var haldinn í tilefni
80 ára afmæliisins. Þar vax
hugua- og hjaita að verkj og
sannar heiðurskonur er að þvi
hófi stóðu. sómi þeirr-a í orðs-
ins æðsta skilningi.
Þú varst á félagsmálasviði
tveggja manna maki. Grednd
þín frábær, úrræði þín á einn
og saima veg: ætið að veita
góðum málstað lið, hver sem í
hlut átti. Þú varst ein af af-
rekskonum þjó'ðar vorrar fyrr
og síðair.
í bugum sumra Hafnfirð-
inga, sem dáðu störf þín í
æðsta skilningi, skipaðir þú
sérstakt beiðuirssæti, sem ekki
var veitt með sérstakri at-
höfn.
Kæra frænfca. Leiðir okkar
hieflur skiilið að sánni. Frá
fjölsikyldu minni em þér færð-
ar þakki,r fyrir þá birtu, er,
þú veittir okkur ávallt með
návist þinni á heimili okkar,
og fyrir trausta og fölskva-
lausa vináttu. Ég færi vini
minum og eftirlifandi eigin-
manni þínum okkar dýpstu
samúð. Guð lei'ði og sityrki
ókomin æviár vin minn Stíg
Sv. Sæland lögregluþjón. Ég
færi börnurn ykkar, ættingjum
og vin.um hinar dýpstu samúð-
arkveðjur.
f hennar framkomu
vinsemd var
vonglöð áfram gekk.
Ásýnd góðleg. en
gáfulegt svar
gestina laðað fékk.
Vikna, ef gæti sorgir sýnt,
sannle^a mundi fold.
Nær ’ins hugprúða,
hærum krýnt,
höfuð er lagt í mold.
G.F.
Með þessum orðum kveð ég
þig kæra frænka. Þau voru
sögð til móðurbróður þíns á
sínum tíma og aía mins. Þetta
er einnig lýsing á þér, eins og
ég þekkti þig mesita.
Guð blessi minningu þína.
Þú varst sannur málsvari kær-
leikans i orðsins fyllstu merk-
ingu.
Markús B. Þorgeirsson.
Einn þessara daga, þegar lauf
trjánna falla til jarðar og fjúka
um götur og torg í svölum
haustvindinuim, og stofnamár
búa sig undir vetrardvalann,
berast okkur þær fréttir um
mdðnættið, að Sigríður E. Sæ-
land hafi látizt þá um daginn
að Borgarspítalanum. Hún lézt
eftir stutta en stranga legu.
Frú Sigríður var 81 árs að
aldri er hún lézt. Hún var
fædd að Norðurkoti á Vatns-
leysuströnd. Foreldrar hennar
voru þau hjónin Eiríkur Jóns-
son, sjómaður og bóndi að
Halldórsstöðum á Vatnsleysu-
strönd, seinna að Sjónarhóli í
Hafnarfirði, og kona hans. Sol-
veig Benjamínsdóttir. Hún hefir
greint frá æskuheimili sínu og
áhugamálum í kafla, sem hún
skrifaði i hókina lslenzkar ljós-
mæður. Hún var elzt af stórum
bamahópi og fluttist með for-
eldrum sínum til Hafnarfjarðar
1907.
Hún fékk snemma áhuga á
því að starfa að líknar- og
mannúðarmálum og útskrifaðist
úr Ljósmæðraskóla Islands 1912.
Hún hóf strax ljósmóðurstörf
í Garða- og Bessaistaðahr., og
dvaldi 1914—’15 við fram-
haldsnám á Rigshospitalet í
Kaupmannahöifn. Hún giftist
Stígi Sæland lögregluþjóni 14.
nóv. 1916, og hafa þau hjónin
dvalið í Hafnarfirði síðan. Þau
eignuðust 3 börn, og ólu upp
stúlku frá 7 ára aldri Við and-
lát sitt lét Sigríður eftir sig
stóran hóp af barnabömum og
bamabarnabömum, sem sum
dvelja erlendis.
Sigríður lét um ævina flest
lfknar- og mannúðamnál til sín
taka, en þó má sérstaklega
minnast hins langa starfs henn-
ar að bindindismálum. Hún
gekk í stúfcuna Daníelsher no.
4 árið 1910, og var nú með-
limur í Stórstúku íslands. Hún
var ein af frumkvöðlum Slysa-
varnardeildarinnar Hraunprý'ði í
Hafnarfirði og fyrsti formaður,
og meðlimur Slysavarnafélags
Islands I þessum félögum var
hún ævifélagi.
Ég flutti til Hafnarfjarðar
1950 og kynntist Sigríði og
manni hennar upp úr því. Hún
reyndist mér skjól og hjélpar-
hella oftar en einu sinni þegar
mér lá á, fyrst með húsnæði,
ekki einhvers staðar, heldur hjá
sjálfri sér, síðan við sviplegt
fráfall dóttur minnar og svo
við veikindi mín. Hún hjálpaði
ekki aðeins sængurkonum,
heldur og oft mönnum, sem
maður hennar hitti fyrir í starfi
sínu sem lögregluiþjónn, og
þurftu hjálpar með. Sigríður
var vissulega ein af þessum
þróttmiklu eikum, sem breiða
lauifkrónu i allar áttir til skjóls
og, verndar smærri gróðri, sem
vex í nærveru þeirra
Að leiðarlokum minnist ég
Sigríðar með hrærðum hug Og
djúpu þakklæti. Þessi fátæk-
legu orð fá vissulega ekki túlk-
að þær tilfinningar og þakklæti
sem mér býr í brjósti. Eigin-
manni hennar og fjölskyldu
sendum við hjónin og böm
okkar hjartanlegar samúðar-
kveðjur og biðjum guð að
hugga þau og styrkja. L. B.
$-----------------------------
Listasafnshús
á dagskrá
Meðal fyrirspuma sem fram
hafa komið á Alþingi er ein til
menntamálaráðherra, Gylfa Þ.
Gíslasonar, um Listasafn íslands,
svohljóðandi:
Hvað líður framkvæmdum á
þingsályktun frá 2. maí 1969 þess
efnis að sem fyrst verði teknar
ákvarðanir um lóð handa Lista-
safni Islands og hafinn undir-
búningur að byggingum, jafn-
framt því að ríkisstjómin geri
áætlun um o.g tiliögur um nauð-
synlega fjáröflun, til þess að
framkvæmdir geti gcngið sem
greiðlegast. — Fyrirspyrjandi er
Magnús Kjartansson.
Fraimsóknamienn flytja fyrir-
spurn um haf- og fiskirannsókn-
jr, um vöruflutninga innanlands,
um endurskoðun fraaðslulaiganna,
og um ráðstafanir vegna skorts
á hjúkrunarfólki.
íþróttir
Framhald af 5. síöu.
körfuknattleikur, svo dæmi séu
nefnd og með fullri virðingu
fyrir þessum íþróttagreinum
okkar. Þeir eru sjálfsagt fáir.
Að minnsta kosti eru menn
fljótir að rétta úr sér og brosa,
þegar minnzt er á handknatt-
leikinn þegar stórtap gegn er-
lendum íþróttamönnum blasir
við í öðrum íþróttagreinum. Því
skal skorað á alla íslendinga
að taka höndum saman og
leysa vandamál handknattledks-
ins þannig að hann verði áfram
stolt íslenzkra íþróttaunnenda
og að við getum í framtíðinni
horft á þessa beztu ambassa-
dora er við eigum vinna fræga
sigra á erlendri grund — S.dór.
SÍBS SÍBS
Út hafa verið dregnir hjá borgarfógeta vinningar
í merkjahappdrætti Berklavamadagsins 1970.
Vinningar eru 10 Sanyo-ferðaviðtæki. Þessi númer
hlutu vinninga:
1477 2880 11524 13710 15422 16177 17073
21042 24843 29559
Eigendur merkja með framangreindum númerum
framvísi þeim í skrifstofu vorri, Bræðraborgar-
stíg 9.
S.Í.B.S.
Nýjar peysur
FJÖLBREYTT TJRYAL.
GLUGGINN
Gítarkenns/a
Upplýsingar þessa viku kl. 2-4 1 síma 15392.
KATRÍN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Öldugötu 42.
MALVERKA-
SÝNING
MATTHEU JÓNSDÓTTUR
í Bogasal Þ'jóðminjasafns-
ins er opin daglega frá
klukkan 14 til 22 til og
með sunnudeginum 18.
október n.k.
Prestskosning:
í Ólafsvíkurprestakalli á Snæfellsnesi fer fram
sunnudaginn 18. október n.k. Kosið verður á eftir-
töldum stöðum:
í Ingjaldshólssókn í skólanum á Hellissandi, í
Ólafsvíkursókn í safnaðarheimili kirkjunnar, í
Brimilsvallasókn á kirkjustaðnum.
Kjörfundur hefst á Hellissandi og í Ólafsvík kl.
10 árdegis, en í Fróðárhreppi kl. 2 e.h.
Staðarstað, 13. október 1970.
Þorgrímur Sigurðsson,
prófastur Snæfellinga.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og viniarhug við
andlát og jiarðarför
ÞÓRODDS GUÐMtJNDSSONAR, Siglufirði.
Sérstaklega þökkum vá’ð stjóm Síldarverksmiðja ríkisins,
stjórn Verkalýðsfélagsins Vöku, starfsfólki Siglóverk-
smiðjunnar og bæjarstjóm Siglufjarðar.
Halldóra Eiríksdóttir,
börn, tengdasonur og barnabörn.
EUROPRIJS 1969