Þjóðviljinn - 08.12.1970, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 08.12.1970, Blaðsíða 4
4 SflBA — ÞJÖÐVILJINN — Þriðjudagur 8. dleseimlber 1970. — Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis - Otgefandi: Otgáfufélag ÞjóSviljans. Framkv.stjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson, Slgurður GuSmundsson. Bitstj.fulltrúi: Svavar Gestsson. Fréttastjóri: Sigurður V. FriSþjófsson. Auglýsingastjóri: Helmir Ingimarsson. Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingai, prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 línur). — Askriftarverð kr. 195.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 12.00. Nú reynir á J umræðum þeim sem Alþýðuflokkurinn boð- aði til um stöðu vinstri hreyfingar hefur Al- þýðubandalagið lagt fram afar s'kýrar og ein- faldar tillögur. í bréfi sam sent hefur verið flokks- stjóm Alþýðuflokksins er lagt til að þingflokkar beggja taki upp samvinnu til þess að tryggja framgang ýmissa hagsmunamála alþýðu þegar á þinginu í vetur. í því sambandi hefur verið rætt um breytingar á almannatryggingalögum sem feli í sér verulega hækkun á ellilaunum, örorkubót- um og öðrum hliðstæðum greiðslum; breytingar á orlofslögum sem feli í sér aukið orlof og betri framkvæmd laganna; endurbætur á lögunum um eftirlaun aldraðs fól’ks í stéttarfélögum; breýt- ingar á skattalögum launafólki í hag og lækkun eða afnám ýmissa nefskatta. Á flokksþingi Alþýðu- flokksins í haust voru gerðar samþykktir um öll þessi imól og lögð áherzla á að þau bæri að fram- kvæma í vetur. Með tillögum sínum fer Alþýðu- bandalagið fram á það eitt að þihgflokkur Al- þýðuflokksins standi í ye:rki yið. s^^þyjdriir flokksþingsins. Standi Alþýðubandalagið ag Al- þýðuflokkurinn saman um baráttu fyrir þegsum málum er full ástæða að ætla að þau hljóti sam- þykki meirihluta þings, ef Framsóknarflokkur- inn stendur við þau orð sem hann lætur einatt falla í ræðu og riti. Jgnn hefur ekkert svar borizt Alþýðuflokknum um þessar tillögur, og Alþýðublaðið hefur ekki gert þær að uimtalsefni. Vafalaust óttast þingmenn Alþýðuflokksins að slíkur sameiginlegur málatil- búnaður með Alþýðubandalaginu mundi jafngilda stjómarslitum. Og nú reynir á. Hvort meta þing- menn Alþýðuflokksins meira, ráðherrastólana og vistina hjá Sjálfstæðisflokknum eða þau málefni sem flokksþing Alþýðuflokksins fól þeim að berj- ast fyrir? Viðbrögðum þeirra verður veitt mikil athygli, ekki sízt hjá þeim sem hingað til hafa veitt Alþýðuflokknuim brautargengi í kosningum. Vanefndir JJm þessar mundir er verið að ljúka nýjum bygg- ingaáfanga í Breiðholti. Margt hefur verið gagn- rýnt í sambandi við þær framkvæmdir, en hrika- legastar eru vanefndir stjórnarvaldanna. Því var heitið í öndverðu að 1250 íbúðir skyldu byggðar í þágu verkalýðshreyfingarinnar fyrir árslok 1970; efndimar verða aðeins 515 íbúðir. Samt vom þessi ákvæði keypt dýru verði; verkalýðsfélögin í Reykjavík slökuðu á eðlilegum kaupkröfum til þess að ná þessu marki og í trausti þess að ríkis- stjómin mundi standa við fyrirheit sín. Vanefnd- imar í Breiðholti jafngilda stórfelldum samnings- rofum, og ef einkaaðilar ættu hlut að máli væru vafalaust gerðar bótakröfur til þeirra fyrir dóim- stólum. Verkalýðsfélögin hafa hins vegar sýnt ein- staklega kristilegt langlundargeð í þessu máli, án þess að séð verði að ríkisstjómin meti þá mildi að' nokkru. — m. Sólun SÖLUM HJÓLBARÐA Á FÖLKSBÍLA, JEPPA- OG VÖRUBÍLA MEÐ DJÚPUM SLITMIKLUM MUNSTRUM. Ábyrgð tekin á sólningunni. Kaupum nofaða sólningarhæfa nylon-hjólbarða. önnumst allar .viðgerðir hjólbarða með fullkomnum fækjum. GÓÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN. BARÐINN HF. Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík. J Bók um !mikil örl»g mikil öllum tímiun, hafa og xmmu ske .... Skáldsaga Guðmundar er viðburðarík og segir frá örlögum tvegg’ja kynslóða, þar sem hin & eldri er spillt af hörð- 1 um kjörum, og gengur g með sigur af hólmi. Höfundur Örlagaglímu sér samband kynslóð- anna sem óbifanleg ör- lög og velur sögu sinni . stað og stund í hörku- I legu u’mhverfi harðinda " , og Ameríkuferða. . k Náttúrulýsingar í skáld- I ™ sögunni eru hugmynda- k ríkar, persónumar svip- miklar og frásögnin gagnorð. Tilvalin jólagjöf handa fólki á öllum aldri. IIELGAFELL Nýtt sagnfræðirit um pláguna miklu 5„Svarta dauða” H I er hér geysaði og vfða um idnd á fjórtandu old. Höfundur bókarinnar er S iglaugur Brynleifsson, sagnfræðingur. „Svarti dauði“ barst til íslands árið 1402 og hafði þá geysað um Norðurálfu víðsvegar í rúma hálfa öld þar á , B meðal um nágrannalönd te fc- íslands og viðskiptalönd. ™ í þessari bók rekur Sig- laugur feril plágunnar um Vesturlönd á glögg- an og eftirminnilegan hátt eftir hinum beztu heimildarverkum og skýrir, meðal annars út frá atvinnu- og við- skintasögu fslands. HELGAFELL i íslandsmótið í körfuknattleik: Hófu feríl sinn í f. deild mei því ni sigrn biknrmeistnrunu Lið KR og pólsku meistar- anna Legia í EB á morgun Báðir leikirnir hér á landi Á morgun, miðvikudag, leika KR bg pólska liðið Legia fyrri leik sinn í Evrópukeppninni í könfukattleik og fer hann eins ' og síðari leikurinn fram hér á landi. Leikimir fara báðir fram í íþróttahúsinu í Laugardal. Liðin sem leika eru skipuð eftirtöldum leikmönnum: Lið KR: Nöfn: Hæð cm, Kolbeinn Pálsson 180 John Fenger 190 Birgir Guðbjömsson 190 David Janis 175 Hilmar Viktorsson 186 Bjaml Jóhannesson 192 Sófus Guðjónsson 186 Kristinn Stefánsson 198 Einar Bollason 196 Lið KB. Hilmar Björnss. hættur hjá (R Hiimar Bjömsison landsiiðs- þjál'fari í handknattleik, sem jafnframt hetflur verið þjánfari hjá ÍR hefur nú látið af starfi og mun ásteeðan vera óánægja hans með ÍR-liðið. Teluir Hilm- ar leikmennina eklká hafa faxið eftir því sem hann hetflur saigt, og laglt fyrir sem þjálfari, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og hættir því sitörfum. Bru ÍR- ingar því þjóMlaralausir nú á miðju keppnistímalbdli og gat fátt verra komið fýrir liðið. — S.dór. Guðjón Steingrímsson 187 Magnús Þ. Þórðarson 200 Stjórnandi utan vallar: Helgi Ágústsson. Þjálfari: Kolbeinn Pálsson. Fyrirliði: Einar Bolla- son. Lið Legia: Nöfn: Hæð cm Tybinkowsky Tomasz 197 Trams Wlodzimierz 185 Dolczewski Jan 194 Piltz Boguslaw 195 Wejniczak Stanislaw 192 Andrzejewski Antoni 184 Lewandowski Pawel 181 Wilegosz Adam 196 Zurek Ryszard 194 Filipiak Henryk 190 Kuczynski Miroslaw 201 Stankiewicz Wojciech 190 HSK setti strik í reikninginn með því að sigra KR 63-59 fslanðsmótið í körfuknattleik var sett að Laugarvatni sl. laugardag og þar fór fram fyrsti leikur mótsins. Mættu heima- menn, nýliðamir í 1. deild HSK, stórveldinu í körfuknattleik, KR. Ef þessi leikur hefði verið á getraunaseðli, má nær öruggt telja að 99% hefði „tippað“ á KR, enda ekki að undra, þar eð KR hefur um árabil verið okkar bezta Iið í körfuknatt- leik, ásamt fR, og hafa þessi lið nær einokað Islandsmótið og síðan ætíð verið í 1. eða 2. sæti til skiptis. En í þessum fyrsta leik Islandsmótsins gerð- it það, að nýliðarnir unnu KR öllum á óvart 63:59. Það leit samt ekki út fyrir sigur heimamanna lengst af í leiknum, því að segja má að KR-ingar hafi leitt ’eikinn allt þar til 3 mínútur voru til leiks- loka að HSK tókst að jafna og á þeim tíma sem eftir var tókst þeim að kornast fram úr og sigra eins og áður segir, 63:59. 1 leiklhléi var sitaðan 35:24 KR í vil. Svo skemmtilega villl til, að fyrirliði KR-liðsins, Einar Bolla- son, er þjálfari HSK og sögðu þeir sem sáu, að þegar heima- menn óstouðu honum til ham- Einar Boliason fyrirliði KR, en þjálfari HSK. ingju með sigur HSK, eins og gjaman er gert við þjálfara, þá hafi komið skrýtinn svipur á Einar, enda að vonum. Það hlýtur að vera einkennileg til- finning að vera fyrirliði tap- liðsins en þjálfari sigurliðsins og eiiga að taka við hamingjuósk- um. 1 liði HSK, sem er skipað mönnum úr Reyíkjavík, Selfossi og frá Laugarvatni, eru tveir kunnir körfufcnattleiksmenn, sem bera það uppi, þeir Pétur Böðvarsson er áður var leik- maður IR og Anton Bjamason, sem reyndar er öllu kunnari sem knattspyrnumaður úr Fram og landsliðinu. — S.dór.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.