Þjóðviljinn - 29.12.1970, Page 1
Þriðjudagur 29. desember 1970 — 35. árgangur — 295. tölublað.
6 líflátsdómar kveðnir upp í Burgos
,Færa fasistastjórninni
afdrifaríkar afleiðingar
BURGOS 28/12 — Síðdegis í dag var kveðinn upp dómur
í máli Baskanna 16, sem herréttur fjallaði um fyrir
skömmu. 6 þeirra voru dæmdir til dauða, þar af fengu
þrír líflátsdóma. Hafa þessi málalok vakið mikla reiði
og gremju á Spáni og erlendis og efnt hefur verið
til verkfalla og mótmælaaðgerða. •
Svo sem kunnugt er hefur
uppkvadningu dómanna vðrlð
frestað hvad eftir annað, og bú-
izt var við, að mótmælaorðsend-
ingar, aðgerðir og almennings-
álit mund; haf.a áhrilf á dóm-
a.rana í þá veru að þeir milduðu
úrskurð sdnn. Ennfreimiur var
talið, að ákvörðun ETA samtak-
anna að sleppa vestur-þýzka
konsúlnum Eugen Beihl, áður en
dómamdr voru kveðnir upp, yrð:
til þess að milda þá, en Beihl
var sleppt á jóladag. Alllt kom
hins vegar fyrir etkki, og dóm-
arnir, sem kveðnir voi'u upp í
daig reyndust yfirleitt þyngri en
búizt hafði veirið við. Dómunum
verður ekiki fullnægt fyrr en
Franco einræðisherra hefur
staðfest þá, og er ekki talið loiku
fyrir það skotið, að hann kunni
að milda þá. Östaðfestar fréttir
herma., að spænska stjómin ætli
að koma saman till fundar bróð-
lega vegna dómanna.
Mennirnir þrír, sem fengu tvo
líÆIátsdóma hver vom sakfetUdir
fyrir morð og hryðjuverk, en al-
mennt hafði aðeins verið búizt
við 30 ára fangólsdsdómuim fyrir
hryðjuverk. Hinir 6 dauða-
Framihald á 9. síðu.
HÞ 1970
Ljúkið skilum
sem allra fyrst
Eins og við sögðum frá í
aðfangadagsbiaðinu var
dregið í Happdrætt: Þ’jóð-
viljans 1970 á Þorláks-
messukvöld en vinnings-
númerin verða geymd inn-
sigluð hjá borgarfógetaem-
bættinu þar til fullnaðar-
uppgjör lfggur fyrir. Verður
það vonandi áður en langt
um líður, en það er að
sjálfsögðu undir því kom-
ið hve fQjótt menn Xjúka
skilum, þeir sem enn eiga
það eftir. Er að vonum all-
mikið ólkoimið enn af skilym.
utan af landi.
★ Hér í Reykjavík er
tekið við skilum í happ-
drættinu á afgreiðslu Þjóð-
villjans að Skólavörðustíg
19, sími 17500, opið ki. 9-12
og 1-6 daglega. og á slcrif-
stofu Alþýðubandalagsins
að Laugavegi 11, sími
18081, ppið kJ. 9-12 og 1-6.
Dr Sigurður veitir heiðursverðlaununum viðtöku.
Sigurður Þórurinsson hluut
verðiuun úr sjóði Ásu Wright
□ í gær voru í annað sinn veitt heiðursverðlaun úr
Verðlaunasjóði Ásu Guðm'undsdóttur Wright. Að þessu
sinni hlaut verðlaunin — hundrað þúsund krónur — próf-
essor Sigurður Þórarinsson fyrir lan.dfræðirannsóknir og
fyrir vísindastörf á sviði jarðfræði.
Dr. Sturla Friðriksson gerði
grein fyrir verðlaunuinum af hálflu
sjóðstjórnar, en ásaimt hon.um
sitja í henni að tilmælum stofn-
anda þair dr. Krsitján Eldjám og
dr. Jóhannes Nordal.
Ása Guðmundsdóttir Wrigiht,
íslenzk kona, búsett í Trinidad
í Vestur-Indíum, gaf Vísindafé-
Jagi ísilendinga peningagjöf 1.
desember 1968. Féð ve'tti Ása tíl
stafnunar sjóðs, er væri sjálfs-
eignastofnun í vörzlu Vísinda-
félagsins. og var það veitt til
minningar um nokikra ættingja
hennar og venzlamenn. Voru
verðlaunm veitt í fyrsta sinn í
fyrra dr Sigu.rði Nordal. Upp-
hæð þeirra er nú, sem og í fyrra,
hundrað þúsund krónur, sem er
verulegur hluti vaxta af hötfiuð-
stó1, sem ekki má snerta. Ofan-
gi-eihdir rnenn eru í sjóðsstjóm
meðan þeir óska og þelrra nýtur
við, en siíðar verður kosið í hana
á aðalfundi Vísindafélagsins.
Dr. Sturla Friðriksson gerði
ávarpi sínu grein fyrir marg-
þættum vísindastörfum verö-
laiunahafa. Hann minnti m.a.
að með doktorsritgerð Sigurðar
hefði verið lagður hornsteinn að
„öslkulagafrasði“ sem orðið haF
halddrjúg aðférð við aldurs-
ákvarðanir jarðlaga og veigamik-
ið framiag Islands í sjóð al-
þjóðlegra vísinda. Hann kvað dr.
Sigurð löngu þjóðkunnan bæð:
fyrir vísindastörf sín og alþýð
lega fraimsetningu á viðfangsefn-
uim sínum, lofaði starf hans að
kynningu á íslenzkum náttúru-
rannsóknum, náttúruvernd og að
samtökum náttúrufræðinga og
annarra áhugamanna um eflingu
. Framhald á 9. síðu.
Þýðingarmikil nýmæli
felast í kjara-
\samningunum í Straumsvík
^ Nýr samningur fyrir starfs-
k fólk í Straumsvík var undir-
™ ritaður á aðfangadag og gild-
!
!
I
!
\
\
\
1
a auk þess bætist ofan a grunn-
| kauipið alldurshækfcun og vísi-
ir samningurinn til 1. des-
ember 1972, en launaákvæði ,
samningsins gilda frá 1. des.
sl. Samninguriiin felur í sér
margskonar nýmæli, en við
samningsgerðina var byggt á
starfismati' því sem lagt va,r
tíl giruridvallar í fyrstu samn-
ingunum fyrir starfsfólk í ál-
verinu í Straumsvík.
Þess ber aO geta að starfsT
fólk í Straumsvík fékk í sum-
ar sömu hækkanir og aðrir
starfshópar í þjóðfélaginu,
sömuleiðis fékk starfsíólk ál-
versins nokkrar hækkanir í ág-
úst í sumar eæ lokið var end-
urmati starfa. Sú almenna
launahækkun, sem samið var
um núna í Straumsvík vair
8%. Er starfsmönnum skipt
í 14 launaflokka, verkmenn
munu almennt vera í 7. til 9.
launatflokki en iðnaðarmenn
flestir í 12. til 13. launaflokki.
Byrjandalaun á mánuði í
þessum flokkum. grunnlaun,
eru sem hér segir:
7. launafl. um kr. 19.600,00
8.
9.
16.
11.
12.
13.
14.
20.542,00
21.514,00
22.57(3,00
23,725,00
24.984 00
26.356,00
27.856,00
Það ber að ítreka að hér
er aðeins um grunnlaun að
ræða, um helmingur starfs-
fólks í Straumsvík hefur
vaktaálag of»an á kaup, en
!
r.
tölubætur. Þannig er starfis-
aldurshækkunin eftir sex ára
starf 17,6% ofan á 'girunn-
kaup, en það ákvæði var í
fyirri samningum. Sú bpæyting
varð nú á vaktaálagj að það
hækkar um 10% þannig að
vaktaálag sem áðu,r var 30%
verður nú 33%. Vaitotaálag í
samningnum er frá 13% upp
í 33,2%.
Orlof var 21 virkur dagur,
en verður nú 4 vikur eða 8%.
Auk þess fá menn 3 daga
autoaorlof eftir 5 á.ra starf,
sem skal tekið utan almenns
orlofstíma. Þeir, sem ganga
á vaktir á aukahelgidögum
þjóðkirkjunnar fá 12 daga
aukaorlof.
Veikindiafrí verður þannig
að á 1. starfsári fá starfs-
menn 1 virkan dag fyrir
hvern einn unninn mánuð, en
að öðru leyti verða vejkinda-
dagar þannig:
• almenn launahækk-
un 8 %
• hækkun vaktaálags
um 10%
• orlof 4 vikur, 8%
• veikindafrí lengjast
• 80% laun við at-
vinnuslys
• bættar slysa-
tryggingar
• regluleg læknis-
skoðun
• yfirvinna ekki yfir
7 tíma á viku
® „Straumsvíkuryfir-
lýsingin“ úr sög-
unni
• 5% stærri hlutur
iðnnema
Bftir 1. starfsár 60 diagasr
fyrir hverja 12 mánuði.
Eftir 5 starfsár 12o, dagar
fyrir hverja 12 mánuðd.
Eftir 10 starfsár 180 dagar
fyrir hverja 12 mánuði.
Þá eru þau ákvæðj í samn-
ingnum, að til viðbótar við
2ja mánaða laun sem menn
eiga rétt á vegna atvinnu-
slyss, skal ísal greiða mönn-
um dagpeninga í fjóra mán-
uði þannjg að dagpeningar
frá Tryggingastofnun rikisins
og ísal nemi ekki minna en
80% af grunnlaunum, verð-
lagsuppbót, vaktaálagi og
fastri yfirvinnu.
Ákvæðin um slysatrygging-
ar eru þannig að skylt er að
greiða 750 þúsund krónur
vegna dauðsfalls, í stað 500
þús. tor. áður, en 1 miljón
kr. vegna 100% örorku. Þetta
eru slysatryggingar á borð
við þaer sem hæstar genast í
samningum sjómanna.
Skylda er að efna til reglu-
legrar læknisskoðunar á 2ja
ára fresti og árlega fyrir þá
sem vinna í keraskálanum.
Ferðapeningar verða nú
r m
I
*
19 óru piltur slusust mik-
ið við 10 metru hótt M1
0,5% af föstum launum í stað
0,37% áður.
Yfirvinna getur aldrei orð-
ið mejri en 7 tímar á viku,
í stað 10 áður, en samnings-
bundinn virkux vinnutámi hjá
dagvinnumönnum er 40
stundir og 20 mín. á viku.
Eins og kunnugt er fylgdi
síðustu kjarasamningum í
Straumsvík sérstök yfirlýs-
ing þar sem verkfallsréttur
var takmarkaður. Nú er þessi
yfirlýsing úr gildj felld, og í
staðinn eru jnni í samningn-
um ákvæði um framkvæmd
vinnustöðvana og eru þessi
ákvæði í samræmi við al-
menn lög um stéttarfélöig og
vinnudeilur. Þó er tekið fram
í samningnum, að vinnu-
etöðvun skuli hagað þannig,
að ekki verði eyðiléggjng á
framleiðslutækjum og skal
ÍSAL séð fyrir starfsfólki er
tryggi það. Fer það eftir mati
verkalýðsfélaganna hversu
margt starfsfólk fær að vjnna
komi til vinnustöðvunar að
öðru leyti við framleiðsluna
sjálfa.
>á var sérsibaklega samið
um kjör fðnnema þannig að
þeir fá í Straumsvík 5%
hærra á starfsári en almennt
geirist, þannig að á 1. ári
fá þeiir 35%, á 2. ári 45%,
á 3. ári 55%, á 4. árj 65%,
í stað 30(% á 1. áiri o.s.frv.
Mörg önnur ný- atriði era
í samningunum í Straums-
vík, sem hér verða ekki tal-
in upp.
Verkalýðsfélög þau sem eru
aðdlar að samningj þessum við
ísal eru Félag jámiðnaðar-
manna, Hlíf í Hafnarfirði,
Framtíðin í Ha>fnarfirði Raf-
iðna’ðarsamband fslands, Fé-
lag bifvélavirkja, Félag blikk-
smiða, Félag matreiðsilumanna
og Félag byggingariðnaðar-
manna í Hafnarfirði. Þesisi fé-
lög öli áttu fiuililtrúa í „bak-
nefnd“ en í samninganefnd-
inni sjálfri voru fyrir hönd
vertoalýðsfélaganna: Her-
mann Guðmundsson form.
Hlífiar og aðaltrúnaðarmaður
Hlífar 1 Straumsvik Finnur
Sigurðsson, Guðjón Jónsson,
form. Fél. járniðnaðarmanna
og trúnaðarmaður félagsins í
fartækjadeild Örn Friðriks-
son, Óskar Hallgrímsson,
form. Rafiðnaðarsambandsins
og Ólafur Þorsteinsson trún-
aðarmaður rafvirkja.
Samningarnir voru bomir
upp á fundi í Hlíf í gærkvöld.
en verða væntanlega bornir
upp á fundum í félögum
málmiðnaðarmanna næstu
daga.
Mukkan um 5 að morgni þegáb
Öttari var ékið í sjúkrabíl frá
Tálknafirði. í gær .var líðan hans
sögð sæmileg eftir atvikum.
!
d
d
d
\
\
\
\
\
!
19 ára gamall piltur, Öttar
Ingimarsson frá Bíldudal, slasað-
ist mikið er hann féll fram af
klettabrún í Tálknafirði. Var
fallið að minnsta kosti 10 metra
hátt.
Óttar ætlaði ásamt tveimur fé-
lögum sínum, sem báðir eru
innan við tvítugt, á dansledk í
Tálknafirði, eftir að þeir höfðu
verið á kvikmyndasýningu í
Bíldudal í fyrrakvöld. Fjórði
maðurinn ók þeim eins langt og
fært var upp fjallið Ilálfdan.
Þegar þremenninga.mir fóm
frá bílnum.ætluðu þeir að ganga
stytztu leið yfir heiðina að
Tunguiþorpi i Tálknafirði. Gekk
ferð þeirra vel framan af; veður
var gott en hálka.
Er þeir komu á fjallsbrúnina
fyrir ofan Tunguþorp gekk Ótt-
ar fram á brúnina til að kanna
niöurleið. Skrikaði honum þar
fótur, rann fram al£ brúninni,
féll niður um 10 metra og slóst
utan í kletta á leiðinni niður.
Hann var klæddur úlpu sem
mun hafa hlíft honum aðeins, en
hann hlaut slæmt höfðuihögg og
var höfuðkúpubrotinn. Hann var
einnig meiddur á andliti og
líkama. ■
Félagar hans fóm niður í
þorpið eftir hjálp, en þeim datt
ekki í hug að Óttar væri á lífi
eftir þetta fall. Hann var borinn
niður í þorpið og skoðaður af
lækni sem. lét flytja hann á
sjúkrahúsið á Patreksfirði. Var
Handtekinn fyr-
irsölu áLSD
Tvítugur maður var handtek-
inn á veitingastað í Reykjavik
í fyrrákvöikl, en grunur lék á að
hainn væri þama við sölu á LSD,
sem er ofskynjunarlyf. Hafði lög-
roglunni verið bent á piltinn og
var hanin hamdtekinn um ld.
hálfníu. Fannst tafla af LSD í
fómrn hams. Piltur þessi er ný-
kominn firá útlöndum. Hann við-
urkenndi við yfii’heyrslu hjá lög-
reglunni að haifla seit LSD hér á
lamdi og mun verðið hafa verð
frá 200 uppí 2.200 krónur hver
tafla. Máli.ð er í rannsókn.