Þjóðviljinn - 05.03.1971, Side 4
4 SIÐA — ÞJÖÐVKjJINN — Fösitudaígur 5. mascz 1971.
— Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Otgefandi: (Jtgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjóri: EiSur Bergmann.
Ritstjórar: Ivar H. iónsson (ðb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður GuSmundsson. ..
B,tst|.fulltrúi! Svavar Gestssoa
Fréttastjóri: SlgurSur V FriSþjófsson.
Auglýslngastjórl: Heimlr Ingimarssoa
Ritstjóm, afgrelðsla, auglýsingar. prentsmiðja: Skólavörðust. 19. Siml 17500
(5 linur). — AskriftarverS kr. 195.00 ó mánuSl. — LausasöluverS kr. 12.00.
/ fíúoreitrí
|Jm síðustu helgi var haldin í höfuðborginni ráð-
stefna um mengun á vegum Landvemdar og
fleiri aðila. Þar voru fluttir meira en tveir tugir
erinda um mengun á flestum sviðum athafnalífs
okkar, og kom þar fram margvíslegur og gagn-
legur fróðleikur. Einnig var rætt um nauðsynleg-
ar ráðstafanir af fslendinga hálfu til þess að tak-
marka mengun og var á það bent að löggjöf á
þessu sviði væri mjög í molum og rannsóknarað-
staða ísl. vísindamanna engan veginn fullnægjandi.
JJáðstafanir gegn mengun hér á landi eru þeim
mun mikilvægari sem íslendingar eru nú að
búa sig undir iðnvæðingu, og hún mun móta þró-
un atvinnumála næstu áratugi. Það land sem við
þekkjum nú, og er þrátt fyrir allt sæmilega
hreint í samanburði við önnur lönd í nágrenni
okkar, kann að taka miklum stakkaskiptum, og
verði ekki að gert' kiann óhroði stóriðjumengunar
að grúfa sig yfir suma landshluta eftir skamma
stund. Dæmin blasa nú þegar við hverjum manni.
Á mengunarráðstefnunni Var á það bent að Áburð-
arverksmiðjan dreifir árlega um 500 tonnum af
eiturgufum yfir umhverfi sitt, ög er sú mengun
talsvert fyrir ofan þau imörk sem heimil eru tal-
in í nágrannalöndum okkar. Nú er verið að stækka
Áburðarverksmiðjuna og er þess að vænta að
þá verði komið upp hreinsitækjum. Þar eiga að
vera hæg heimatökin vegna þess að Áburðarverk-
smiðjan er ríkiseign; íslendingar þurfa aðeins að
semja við sjálfa sig um nauðsynlegan þrifnað.
jjitt dæmið er álbræðslan í Straumi. Þar losna
við framleiðsluna á áli háfct í 200 kg. af flúor-
á hverri klukkust. allan ársins hring, og verulegur
hluti þess anagns dreifist um umhverfið sem flúor-
vetni og hefur nú þegar sannað hin virku eitur-
áhrif sín með spjöllum á trjágróðri. Verksmiðja
af þessu tagi án hreinsitækja er algert einsdæmi
hvort sem litið er til Evrópu eða Ameríku. Meng-
unin frá álbræðslunni er háskalegur sóðaskapur,
og það er íslenzkum stjómarvöldum til mikillar
minnkunar að leyft skyldi í upphafi að reisa þessa
verksmiðju án hreinsitækja. Hitt er þó enn furðu-
legra að ennþá skuli reynt með vífillengjum og
svokölluðum fræðileguim skýrslum, borguðum af
álbræðslunni, að færa rök að því að fólk og dýr
og gróður í umhverfi álbræðslunnajr hafi aðeins
gott af því að lífa í flúoreitri.
jjjengunarráðstefnan var afar gagnleg vegna þess
að orðin eru til alls fyrst. Hins vegar hættir
íslendingum oft við að láta sitja við orðin tóm.
Átökin um lágmarksþrifnað við álbræðsluna
skera hins vegar úr um það hver hugur fylgir
máli hjá valdhöfunum. Verði ekki teknar upp þær
hreinlætisreglur sem tíðkast í öðrum löndum,
þarf ekki mikið hugarflug til að gera sér grein
fyrir því hvemig ástatt verður á íslandi, þegar
rætzt hefur drauimur Eyjólfs Konráðs Jónssonar
um tuttugu álbræðslur. — m.
Fátækrahverfi í skugga nýtízku íbúðarblokka
Til vinstri: Við enda strætis sem ber nafnið „Frelsisstræti“ er
minnismerki um dýrðartíma þess Portúgals, sem eignaðist mikl-
ar nýlendur í þrem heimsálfum. — Til hægri: Konur gera inn-
kaup í verzlunum við höfnina.
í þessu ríkisfangelsi sitja fjöimargir andstæðingar hins fasíska
stjómarfars.
LISSABON
HÖFUÐBORG NÝLENDUSTRÍÐA
□ Höfuðborg „frænda“ okkar í NATO, Lissa-
bon. Héðan er stjómað mannfreku, grimmu og
dýru nýlendustríði Portúgala í Afríku — en
heima fyrir hrannast upp óleyst félagsleg vanda-
mál.
VönáuB vinna
Tökum að okkur
breytingar, viðgerðir og húsbyggingar.
Upplýsingar í síma 18892.
FL UGFELJKGiJVU
Skrifstofustarf
Flugfélag íslands h.f. óskar eftir að
ráða mann nú þegar til starfa við bók-
haldsdeild félagsins í Reykjavík.
Verzlunarskólapróf eða hliðstæð
menntun æskileg.
Umsóknareyðublöðum, sem fást á
skrifstofum félagsins, sé skilað til
starfsmannahalds fyrir 12. marz n.k.
Sölunwður óskust
Viljum ráða sölumann 1 hjólbarðasölu.
Æskileg menntun, Samvinnuskóla eða
Verzlunarskóla próf.
Starfsmannahald S.Í.S.
LAUS STAÐA
Starf deildarstjóra starfsmannadeildar
(launadeildar) fjármálaráðuneytisins er
laust til umsóknar.
^ Til þess að gegna starfinu er að jafríáði
talið, að starfsimaður þurfi menntun er
jafngildi háskólanámi' a.m.k. í 4V2 ár1
og fimm ára þjálfun við stjórnunarstörf.
Umsóknarfrestur til og með 1. apríl n.k.
Fj ármálaráðuney tið,
3. marz 1971.
LAUS STADA
Starf skrifstofu’onanns í launadeild fjármálaráðu-
neytisins er laus til umsóknar. Mánaðarlaun á ár-
iniu 1971 verða á bilinu 20.500,00 kr. — 25.500,00
kr. og ákvarðast nánar í samræmi við starfsþjálf-
un og starfsaldur væntanlegs starfsmanns.
Til þeás að gegna starfinu er að jafnaði talið, að
starfsmaður þurfi menntun, er jafngildi stúdents-
prófi svo og þriggja ára þjálfun við akrifstofu-
störf.
Umsóknir sendist fjármálaráðuneytinu fyrir 1.
apríl 1971.
Fjármálaráðuneytið,
3.,marz 1971.
AÐALFUNDUR
Verkakvennafélagsins FRAMSÓKNAR
verður næstkomandi sunnudag kl. 14.30 í Iðnó.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
elagskonur fjölmennið og sýnið skirteini við
nnganginn.
Stjómin.