Þjóðviljinn - 17.04.1971, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVUUKMN — Ijaugandaigia® 17. apnffl, 1971.
/
Landsleikir í knattspyrnu við Frakka og Norðmenn:
Landsliiskjarninn valinn
□ Eins og áður hefur verið sagt frá í I»jóð-
viljanum leika íslendingar tvo landsleiki í
knattspymu á næstunni, þann fyrri við Frakka
12. mai n.k. á Laugardalsvellinum, en hinn gegn
Norðmönnum 26. maí í Noregi. Nú hefur Haf-
steinn Guðmundsson, „einvaldur“ landsliðsins,
valíð 20 leikmenn til lokaundirbúnings þessum
leikjum og KSÍ hefur endurráðið Ríkharð Jóns-
son sem landsliðsþjálfara.
Leikir í MK
og LB í dag
1 dag ki. 1S leika Fram og
ÍA í Meistarakeppni KSl uppá
Akranesi, og er þetta sáðari leik-
ur liftanna. Fyrri leiknum lauk
með jafntefli. í»á munu Breiða-
blik og ÍBK leika í dag í litlu
bikarkeppninni og fer leikurinn
fram í Keflavík og hefst kl.
15.
Þessir tuttugu leikmenn sem
valdir hafa verið til lokaundir-
búningsins eru:
Úr Fram:
Þorbergur Atlason
Jóihannes Atlason
Ásgeir Elíasson
Úr KR:
Magnús Guðmundsson
Baldvin Baldvinsson
tJr Val:
Jóhannes Eðvaldsson
Ingibjöm Albertsson
Róbert Eyjóltsson
Hermann Gunnarsson
t)r Víkingi:
Guðgeir Leifsson
Úr Völsungi:
Halldór Björnsson
Úr IBK:
Guðni Kjartansson
Einar Gunnarsson
Úr ÍA:
Eyleifur Hafsteinsson
Haraldur Sturlaugsson
Þröstur Stefánsson
Matthías Hallgrímsson
Úr lBV:
ólafur SiguEvinsson
Sævar Tryggvason
Úr ÍBA:
Skuli Ágíústsson.
Þess má einnig geta að Elm-
ar Geirsson úr Fram, sem
stumdar nám i Þýzkalandi og
asfir þar og leikur knattspymu,
mun að öllum likindum korna
í þann hóp er leifcur 12 mai
við Frakka, en sá leikur er
sem kunngut liður í Olymp-
íukeppninni, og má Hermann
Gunnarsson ekki taka þátt í
þeim leik sökum þess að hann
gerðist atvinnu/maður í Austur-
ríki. Og þótt menn deili um
það hvort svo hafi raunvem-
lega verið, segist stjóm KSl
hafa kynnt sér það mál til
Framhald á 7. sáðu.
,,Hand-
ritin hljóð“
Þau tvö handrit sem hingað
fcoma í næstu viku bárust á
sínum táma eina og sömiu
boðleið til Danmerkur sem
gjafir frá Brynjólfi bistoupi
Sveinssym til Friðriks 3ja
Danakonungs. Flateyjarbók
sendi Brynjóifur 1656, en hún
er mest allra íslenzkra hand-
rita og í hópi hinna merikustu.
Konungsbók edduikvæða, sem
er frægust og ómetanlegust
allra íslenzkra handrita og
éin höfuðgersemi germanskra
þjóða, sendi hann árið 1662.
Brynjólfur gaf þó ekki þessi
bandrit og önnur að eigin
frumkvæði og naumast
með hýrri há. Sjálfur
lagði hann kapp á að
safna handritum af eljusemi
og glöggskyggni í þeirri trú
að hann gæti komið upp i
Skálholti íslenzku menningar-
setri í þágu heimsbyggðarinn-
ar. Hann sótti 1647 urn kon-
ungsleyfi til þess að koma
upp prentsmiðju og láta
prenta íslenzk fbrnrit með
latneskunn þýðingum handa
lærðum mönnum erlendis. En
i atað leyfisins fékk biskup
bréf frá Friðriki konungi 3ja,
þar sem beðið var um fom-
rít og sögur í konungsbók-
l'Jöðu til glaðnings hátigninni.
Slxkri beiðni var ekki unnt
að neita. Hins vegar féll
BrynjóMur ekki frá þeirri
hugmjynd sinni að korna
handritunum á prent. Hann
skrifaði bókaverði konungs,
Villum Lange, merkilegt bréf
1656, og þar hvetur hann til
þess að konungur láti prenta
forrmt á þann hátt að fmm-
textinn standi í öðrum dálki
en dönsk þýðing eða latnesk
í hinum, og tjái ekki að fela
þetta verk öðrum mönnum en
íslenzkum. „Að loka handrit-
in hljóð inni í erlendum bófca-
söfnum þar sem enginn mun
notokurnt'íma skilja þau“,
segir hann, „það er ekki að
varðveita forn fræði heldur
að týna þeim“, þvá að á ís-
landi muni þekking fomaldar
líða undir lok er bækumar
hverfi úr landi, nema þær
verði prentaðar og haföar þar
á boðstólúm. En Brynjólfi
varíi ekki að þessari von um
sinn; bandritin voru lotouð
„hljóð“ inni í sofnum um langt
skeið; til að mynda var ekki
farið að birta eddukvæðin
fyrr en 1787, rúmri öld eftir
að handritið barst til Dan-
merkur.
Það sem ráð-
herrarnir gleymdu
Samt fór það svo að einmitt
þessar röksemdir BrynjólEs
biskups Sveinssonar réðu að
lokum úrslitum um það að
verulegur hfluti þeirra hand-
rita sem bárust til Danmerk-
ur flyzt nú til ísflands á nýj-
an leik. Átökin í Danmörku
snerust fyrst og fremst uim
það hvort líta œtti á hand-
ritin sem safngripi. einskonar
uppstoppaða geirfugla, eða
hvort þau væru liíandi veru-
leiflri, rannsóknarefni, ómet-
anlegar heimildir um bók-
menntir og menningu Islend-
inga. Siðari kenningin sigraði
vegna þess að íslenzkir lær-
dómsmenn færðu sönnur á
hana í veiki. 1 Amasafni í
Kauipmannalhöfn hafa hand-
Titin ékki verið „hljóðir"
sýningargripir, heldur diagleg
t viðfangsefni vísindaímanna,
nútímaleg verkefni. Islending-
ar standa í þakkarskuld við
marga landa sína sem þar
hafa starfað, aukið þekkingu
á þeim fornu fræðum sem
Brynjólfur Sveinsson vildi
varðveita og gert hana til-
tæka alþýðu manna á Islandi.
Einn þeira manna sem hæst
ber í þeim hópi starfar enn
í Ámasafni í Kaupananna-
höfn, Jón Helgason. Hann hef-
ur á undanfömum áratugum
hafið Stofnun Áma Magnús-
sonar til mikillar alþjóðlegr-
ar virðingar meðal þeirra seim
áhuga hafa á norrænum
fræðum; hann hefur gert til
stofnunarinnar undansláttar-
lausar vísindakröfur og totsnn-
að öðrum betur að fullnægja
þeim; hánn hefur einnig haft
á því fullkomnara lag en
aðrir að gera þá vásindalégu
þeklkingu tilkvaema sæanilega
læsum leikmönnum. Það voru
vísindastorfin í Ámasafni sem
tryggðu íslendinigum full-
gildar röksemdir og sigúar í
handritamálinu, og skal þó
engan vegitm gert lítið úr
framlagi annarra.
A þessar alkunnu stað-
reyndir er minnt vegna þess
að ráðherrar gleymdiu henni.
Þegar samnmgurinn um aí-
bendingu handritanna var
undinftaður í Kaupmanna-
höfn lsta aþúfl var Jión
Helgason ekki í hópi þeinra
sem boðið var til athafnar-
innar. Nafn hans var ekki
heldur að finna meðal þeirra
sem upphaflega vair stefnt til
gieðskapar í Reykjavík á
miðvifcudaginn kemur. Nú er
sagt að ráðlherrair hafi tefciö
sig á; hitt sfciptir þó meira
máli að þeir átti sig á því
hvers vegrna sjálfsagt var að
cirvmitt Jón Helgason fylgdi
handritunum til Islands.
Handritin eru ékki nú frekar
en fyrr sýningargripir til þess
að varpa Ijóma á stórkross-
aða tignarmenn, hvorki kon-
unga né ráðherra. Þeim fylgja
enn þær kvaðir sem Brvni-
ólfur biskup Sveinssoii orðaði
fyrir rúmum þremur öldum.
i / — Austri.
Aðsókn að knattspyrnu
fer stöðugt minnkandi
Þriðju deildar
leikmaður
í landsliði
Halldór Bjömsson, fyrr-
um Icikmaður KR, nú-
verandi ieikmaður Völs-
unga á Húsavík, sem er
3, dcildarlið, hefur verið
valinn í landsliðshópinn
og ef Halldór ieikur
landsleikinn við Frakka
verður það í fyrsta sinn
í íslenzkri knattspymu-
sögu sem 3. deildarleik-
maður leikur með Iands-
liftinu og það hefur held-
ur aldrei gerzt að 3.
deildarlcikmaður hafi
verið valinn til lokaund-
irbúnings fyrir landsleik.
Ólafur
Erlendsson
formaður KRR
Aðalfundur Knattspyrnuiráðs
Reykjavítour var haldinn sl.
miðvikudag. Einar Bjömsson,
sem verið heftir formaðuir róð6-
ins sl. 10 ár baðst undan end-
urkosningu og í sfað hans var
Olafur Erlendsson úr Víkingi
kjörinn formaður KRR. A
fundinum var lögð fram
skýrsla stjómarinnar, vel unn-
in og hin fróðdegasta. I henni
kemur fram mjög hörð gagn-
rýní á ýmislegt í störíúm KSl
og sumstaðar er hún með þvi
hvassasta, sem fram hefiur kom-
ið og er þá nokkuð sagt. Nánar
mun skýrslunnar getið hér i
blaðániu efitir helgina. — S.dór.
Reykjavíkur-
mótið hefst n. k.
fimmtudag
Reykjavákurmótið í knaitt-
spymu hefst á sumardaginn
fyrsta, fimmtudaginn 22. apríl.
Fyrsti leikurinn verður á millli
Fram og Vákinigs, en 25. apríl
leika Ármann og Þróttur og 26.
apríl leika svo Valur og KR.
Á sama tíma og handknatt-
leikurinn hér á landi spreng-
ir utan af sér allt húsnæði
vegna aukinnar aðsóknar, fer
aðsókn að knattspyrnukapp-
Icikjum stöðugt minnkandi
hér á landi. Kemur þetta
fram í ársskýrslu KRR, er
lögð var fram á aðalfundi
ráðsins sl. miðvikudag. Þar
segir, að þrátt fyrir mjög
aukinn leikjafjölda hér i
Reykjavík á síðasta ári, hafi
aðsóknln að leikjum aldrei
verið eins Iéleg og árið 1970.
Arið 1968 fóru fram 75 leik-
ir, sem selt var inná, og
áhorfendur voru 81.500. Árið
1969 voru leikimir 80 og á-
horfendur 75.500, en árið 1970
voru leiltirnir 92 en áhorf-
endur ekki nema 76.100. F.f
Rvíkurmótið eitt er tekið,
þá kemur í ljós að árið 1962
var aðsóknin samtals 11.394
manns, árið 19G3 11.989, árið
1964 11.195 og er þetta um
eitt þúsund manns á leik að
meðaltali. Síðan hefur að-
sóknin ferið jafnt og þétt
minnkandi unz árið 1970
komu aðcins 2940 manns á
allt Reykjaivíkurmótið, sem
þýðir 196 manns á Ieik að
meðaltali.
Ef leikimir í 1. deildar-
keppninni, sem fram fóru hér
í Reykjavik, eru athugaðir
kemur i Ijós, að árið 1962
vom leiknir i Reykjavik 16
leikir í 1. deild. og meðal-
talsaðsókn á leik var 1208, ár-
ið 1963 voru leikirnir 15 og
meðaltalsaðsókn 1327 manns
á leik. 1964 var hún 1140 en
leikirnir 21, árið 1965 voru
leikimir 16 og mcðaltalsað-
sókn 1958 manns, á 17 Ieiki
ári siðar komu að meðaltali
1966 manns á leik, en síðan
tekur að syrta í álinn unz
1970 að aðsóknin er ekki
nema 895 manns á leik, en
leikimir orðnir 29.
Þetta er óhugnanleg stað-
reynd, sem knattspymumenn
standa frammi fyrir, en ís-
lcnzkir knattspymumenn
standa ekki einir uppi með
minnkandi aðsókn, sama sag-
an er að gerast um allan
hcim. Hvaðanæfa berast
kvartanir og kvein forustu-
manna knattspyrnumála um
minnkandi aðsókn og svo
rammt kveður að þessu, að
v-þýzu 1. deildarliðin, að
einu félagi undanskyldu
(Herta Berlin) eru gjaldþrota
að sögn v-þýzka ritsins Der
Spiegel og blaðið segir að
vel geti svo farið að engin
knattspyroa verði leikin í 1.
deild í V-Þýzkalandi næsta
ár.
Fyrir okkur Islendinga er
ástæða til að spyrja hvað
veldur hinni miklu aukningu
i aðsókn að handknattleik á
sama tíma og aðsóknin hrað-
minnkar að knattspymunni?
Það skyldi þó aldrei vera (
sama skýringin á því og sú
er Der Spiegel heldur fram
að sé orsök minnkandi að-
sóknar í Þýzkalandi, að menn
velferðarþjóðfélagsins leggi
það ckki á sig að standa eða
sitja og horfa á knattspvrnu-
kappleik í köldum veðrum; (
þess í stað vilji þeir heldur
sitja heima f stofu og horfa
á leikina í sjónvarpinu þrátt
að þeir viti ef til vffll úrslitin
fyrirfram, þar eð leikjum er
sjaldnast siónvamað ífyrr en
þeim er iokið, þótt i því efni
séu undantekningar. Blaðið
segir að sennilega verði eina
lausnin sú að byggja hús
yfir knattspyrniivellina svo
menn geti setið í hlýiimni og
horft á knattspyrnu svona
rétt eins og þeir væru í stof-
unni heima hjá sér. — S.dór.
Félag'Smálastofnun Reykjavíkurborgar
LEIGUÍBÚÐIR
Borgairráð Reykj avíkur hefur ákveðið að auglýsa
til leigu 80 2 og 3 herbergja íbúðir að Yrsufelli
1 til 15.
Áætlaður afhendiugartími er 1. júní tál 1. sept-
ember n.k., 20 íbúðir á raánuði/
Við úthlutun íbúðia þessaj-a skal taka sérstaikt til-
lit til eftirfarandi atriða:
1. Að öðru jöfnu ganga þeir fyrir utm úthlutun,
sem búa í heilsúspillandi húsnæði, er verður út-
rýmt.
2. Búseta og lögheimili í Reykjavik s.l. 5 ár er
skilyrði fyrir leigu í íbúðum þessum.
3. Lágmark fjölskyldustærðar er sem hér segir:
2. herbergja íbúð 3 manna fjölskylda.
3. herbergja íbúð 5 manna fjölskylda.
4. Eigendur íbúða koma eigi til greina. nema um
sé að ræða heilsuspillandi íbúðir, sem verður
útrýmt.
5. Tekið skal tillit til heilsufars umsækjanda og
fjölskyldu hans. Vottorð læknis skal fylgja um-
sófcninni, ef ástæða er talin til þess.
6. Tekið skal tillit til tekna og eigna og fvlgi um-
sókn vottorð skattstofu um tekjur V eignir
s.l. árs.
Leigumáli skal aðeins gerður til 1 árs í senn og
endurskoðast árlega en að öðru leyti gilda reglur
um leigurétt í leiguhúsnæði Reykjavíkurborgar.
Umsóknir skulu hafa borizt húsnæðisfulltrúa Fé-
lagsmálastofn\inar Reykjavíkurborgar, Vonar-
stræti 4 eigi síðar en mánudag 10. maí n.k.