Þjóðviljinn - 17.04.1971, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 17.04.1971, Blaðsíða 4
4 SteA — ÞJÖÐVELJTNW — Lausardtagor 17» acxtfi lan. Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis <— Otgefandl: Otgáfufélag ÞjóSviljans. Framkv.stjórl: Eiður Bergmana Ritstjórar: Ivar H. lónsson (áb.), Magnús Kjartansson, Slgurður Guðmundsson. Ritstj.fulltrúl: Svavar Gestssoa Fréttastjórl: Slgurður V. Friðþjófsson. Auglýslngastjórt: Helmlr Ingimarsson. Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar. prentsmiðja: SkólavðrðusL 19. Siml 17500 (5 línur). — Askrlftarverð kr 195.00 á mánuðl. — Lausasöluverð kr. 12.00. Staðreyndir viðurkenndar? yíst væri það ánægj-ulegt að sjá ríkisstjómarblöð- in Alþýðublaðið og Morgunblaðið vera að byrja að vitkast í jafnmikilvægu máli á alþjóðavett- vangi og viðurkenningu á aðild Alþýðuveldisins Kína að Sameinuðu þjóðunum — ef (og það er nokkuð stórt ef) það væri ekki vegna þess að svo hefur nú verið þjarmað að Bandaríkjastjóm, m. a. á allsherjarþinginu í haust að hún þorir varla lengur að fylgja þeirri stefnu að neita að viður- kenna tilvist Alþýðuveldisins Kína, reyna af alefli að einangra það, útiloka það frá samskiptujm við aðrar þjóðir. Þá fyrst þegar þessi einangrunar- og kúgunarstefna Bandaríkjanna er að bíða skipbrot svo algjört, að annað eins hefur Bandaríkjastjóm vart áður beðið í alþjóðamálum, ranka blöð ís- lenzku stjórnarflokkanna loks við sér, og taka að sjá skímu í málinu. í tvo áratugi hafa stjórnmála- menn Natóflokkanna tuggið upp bandarískan delluáróður um stjóm Sjang Kajséks á Taivan, og varið það fáránlega ástánd að sú bandaríska lepp- stjóm færi með umboð Kína hrjá Sameinuðu þjóðunum, ætti fast stórveldissæti í öryggisráði með tilheyrandi neitunarvaldi. Þingmenn og blöð Sósíalistaflokksins áður og síðar Alþýðubandalags- ins hafa frá öndverðu talið sjálfsagt að viður- kenna staðreyndina um tilveru Alþýðuveldisins Kína, og lagt 'til utan þings og innan að ísland tæki upp eðlilegt stjómmálasamband og viðskipta- samband við Kína, líkt og hinar Norðurlandáþjóð- imar gerðu þegar á fyrstu árunum eftir sigur kommúnista 1949. Nú síðast í vetur lá fyrir Al- þingi tillaga, sem Magnús Kjartansson og Sigur- vin Einarsson flu'ttu, um breytta stefnu íslands í utanríkismálum, og var þar eitt atríði að breyft skyldi um stefnuna gagnvart Kína, en ísland hef- ur dindlazt með Bandaríkjunum á allsherjarþing- inu í þessu máli þjóðinni til skaða og skammar. Tillaga Magnúsar og Sigurvins fékkst ekki einu sinni rædd á Alþingi, og beittu stjómarflokkamir til J)ess forsetavaldi sírru. Nú virðast hins vegar Alþýðublaðið og Morgun- blaðið orðin smeyk uim að þau kunni að sitja uppi með gömlu bandarísku afstöðuna eftir að Bandaríkin sjálf hefðu skilið, að sú stefna — ein- angrun Alþýðuveldisins Kína — hefur beðið al- gert skipbrot. Fleiri og fleiri ríki hafa komið á stjómmálasamböndum við Kína, þeirra á meðal Ameríkuríkin Kanada, Kúba og Chile, og Atlanz- hafsbandalagsríkin Frakkland og Ítalía. Hug- myndir íslenzkra valdamanna um skylduþjónustu íslands við Bandaríkin hafa hins vegar hindrað að ríkisstjóm íslands beitti heilbrigðri skynseimi og jdðurkenndi staðreyndir. — s. „Máfurinn " eftir Tjekof á sviiinu / ISnó Á myndinni sjást þau Pétur Einarsson og Valgerður Dan í hlutverkum sínum í leiksýningu Leikfélags Reykjavikur á „Máfinum“ eftir rússneska leikskáldið Anton Tjekof. Eins og getið hefur verið í fréttum blaðsins verður leikritið frumsýnt í Iðnó á þriðju- dagskvöldið. Leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson, þýðinguna gerði Pétur Thorsteinsson ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu og leik- myndir og búninga teiknaði Ivan Törok. Alþingiskosningarnar 13. juní 1971 Yfirlit yfir kjósendur á kjörskrá f sýslum, kaupstöðum og kjördæmum □ Þjóðviljinn hefur áður greint frá fjölda kjósenda á kjörskrá í einstökum kjördæimum á- samt samanburði við fjölda kjósenda í kosning- unum 1967. Hér fara á eftir í heild tölur um fjölda á kjörskrá í öllum lögsagnamimdæmum landsins, kaupstöðum og sýslum, ásamt skýring- um Hagstofu íslands á tölunum. Sey@isfjörður 402 484 Neskaupstaður 021 816 Vestmannaieyjar 2.907 2.690 Tala kjósendia í Reykjavák 1071 er samtovaamt kjörskrá Manntalssikrifstofu Reyikjavík- ur eins og hiún er nú, en kjós- endatalan þar á eftir að hækkia eitthwað. Meðtaldir eru einstak- lingar, sem ná kosningaaldri eftir kjördiag 1971. — Fyrir öll önwur umdaani er hins vegar tilgreind tala einstaklinga 20 ára og eMri á þessu ári. í>ar eru með öðrum orðum meðtald- ir útlendingiar og aðrir sem hafia ekki kosningarétt, þótt þeir bafi náð 20 ára aldri. Þótt -------------------------------------<S> Geðvemdarfélag íslands Aðaifiundiir Geðvemdar- félagsins f. árin 1069 og ’70 verður baldinn í Hagaskóla v/Hagatorg laugardaginn 17. apríl 1071 kL 6 síðdegis. Venjuleg aðalfundarstörf. STJÓRN GEÐVERNDAR. FÉLAGSINS. svo sé, ætti hér ekfci að imma mikl-u frá því, sem verður í raun. Tala kjósenda á kjörskrá við aiþingiskosningarnar 11. júní 1967 er tilgreind til samanburð- ar, en þar eru ekki meðtaldir þeir, sem urðu 21 árs eftir kjördiag, Tekið skal fram, að með stjómskipunarlögum, nr. 9/1068, um breyting á stjóm- arskránni, var lágmarksaldiurf- kosningaréttar lækkaður úr 21 ári í 20 ár. Skammstafianir: Nú = tala einstaklinga á kosningaaldri 1971 samkvæmt ofangreindiu. 1967 = tala kjósenda á kjör- skrá við alþingiskosningar 1967. KAUPSTAÐIR Nú 1967 Reykjavík 51.069 45.419 Kópavogur 5.885 4.656 Hafnarfjörður 5.583 4.413 KefLavík 3.097 2.648 Akranes 2.383 2.1(19 ísafjörður 1.606 1.429 Sauðárkrókur 960 792 Siglufjörður 1.349 1.349 Ólafsfjörður 618 579 Akureyri 6.369 5.393 Húsavík 1.121 939 Kaupstaóir alls 84.450 73.726 Gullbringusýsla Kjóearsýsila Borgarfjarðars. Mýrasýslia Snæfelitenessýsla Dalasýsla A-Barðastr.s. V-Barðastr.s. V-fsaíjarðarsýsla N-ísafjarðarsýsia 1.045 Strandasýsilia 758 V-Húnavatnssýsla 835 A-Húnavatnss. 1.417 Skagafjarðars. 1.436 Eyjafj'arðars. 2.191 SÝSLUR Nú 4.271 1.970 846 1.331 2.303 692 286 1.003 971 1967 3.404 1.605 787 1.195 2.131 669 292 1.037 894 988 747 772 1.293 1.432 2.115 S-Þingeyjars. 1.652 1.506 N-Þingeyjars. 1.037 1.024 N-Múlasýsla 1.323 1.342 S-Múlasýsla 2.003 2.559 A-Skaftafellss. 961 832 V -Skaf tafeUssýSila 879 821 Rangárv!alil£isýsla 1.873 1.745 Ámessýsila 4.782 4,095 Sýslur alls 36.855 33.375 KJÖRDÆMI Nú 1967 Reykjavík 51.069 45.419 Reykjeneskjörd. 20.806 16.726 Vésturl.kjörd. 7.555 6.901 Vestfjarðákjörd. 5.759 5.387 Norðurl.kjörd.-v. 5.997 5.638 Norðurl.kjördl.-e. 12.988 11.646 Aiusturl.kjörd. 6.600 6.033 Suðurl.kjörd. 10,531 9.351 Allt landið 121.305 107.101 ENDVERSK UNDRAVERÍYLD INDVERSK UNDRAVERÖLD Mikið úrval af sérkennilegum handunn-jm munum til fermingar- og tækifærisgjafa. M.a. Iramfóruviðarkistur og borð, gólfvasar, altaris- stjakar. vegg- og gólfmottur silkislæður leð- ur-tðskur og margskonar skrautmunir einnig Tbai-silki. Nýkomið mikið úrval af reykelsi og reykelsiskerum. Gjötína sem veitir varanlega ánægju fáið þér i JASMIN Snorrabraut 22.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.