Þjóðviljinn - 26.06.1971, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVTIaJINTJ — Laugardagur 26. júní 1971.
Jetta Carleton
26
*
I
MÁNA-
SILFRI
— Já, þakk fyrir.
Jessica fór að klæða si'g, hún
gat varla hneppt að sér. Hún
burstaði á sér hárið, batt það
saman með nýju bandi, þvoðd
andlítið úr köldu vatni og kleip
í kinnarnar á sér til að fá í
þær dálítinn roða. Enn hafði
Mathy ekki gefið henni merki.
lÆonie hélt áfram að spila. Jess-
ica sat titrandi á rúmstokknum.
öðru hverju varð henni litið á
myndina af stúlkunni og kross-
inum og það fór um hana hroll-
ur og hún sneri sér undan.
Niðri í eldhúsinu sló klukkan
ellefu.
Leonie lauk við lagið seim
hún hafði verið að spila. Jessica
heyrði hana fara út um bak-
dyrnar og út í garðinn. Eftir
andartak heyrðist hár dynkur,
urghljóð og hnafaihögg og reiði-
leg óp í Leonie. Hurð var skellt
niðri og Mathy kom þjótandi upp
stigann. — Komdu. ég er búin
að loka hana inni á kamri!
— Hún deyr af því, hrópaði
Jessica. — Hún brýtur upphurð-
ina!
— Nei, það gerir hún ekki —
ég setti planka upp að henni.
Hún kemst ekki út. fyrr en ég
opna fyrir hertni.
— Ertu viss?
— Auðvitað er ég viss. komdu
nú, Jessica!
Húm tók í höndina á Jessicu
og dró hana með sér niður stig-
ann. Þær æddu gegnum ávaxta-
garðinn og Mathy á u.ndan. —
fom? kallaði hún þegar þær
voru komnar gegnum garðinn. —
Nú eruim við komnar — það er
allt í lagi!
Tom gægðist framundan tré. —
Hæ. sagði hann brosandi.
— Þú ert kominn aftur, hróp-
aði Jessica.
— Já, sagði hann. — Hvernig
líður þér, Jessica?
— Mér líður vei.
— Er allt — í lagi?
— Mér líður ágætlega, Tom.
Svei mér þá!
— Það gleður mig að heyra!
Hann hikaði enn með vandræða-
brosið á andlitinu. — Mathy
sagði að þú vildir tala við mig.
— Ég fór og sótti hann sagði
Mathy.
Jessica sneri sér burt með
hægð og bros hennar varð dauf-
legra. — Gerðirðu það?
— Mér datt í hug að hann
væri enn hjá Latlham og svo
fór ég að athuga það.
Jessica sneri sér aftur að Tom.
— Þú ert hér enn? Ég hélt
þú æflaðir til Kansas.
— Ég ætlaði það líka — ég
var bara ekki farinn af stað.
— Jæja.
— Já, ég er — ég er sannar-
lega glaður yfir því að þú skyld-
ir senda boð eftir mér. Ég var
að hugsa —
— Ég sendi ekki boð eftir þér,
sagði Jessica hljóðlega. — Ég
vissi ekki að Mathy fór.
— Hún vissi það ekiki. Tom,
sagði Matihy. — Hún sendi mig
ekki — ég var búin að segja
þér það.
Tom hló vandræðalega. —
Jæja — það stendur svo sem
á sama. Mér þykir afskaplega
gaman að sjá þig.
— Er það? sagði Jessica.
— Já. víst þykir mér það.
— Af hverju komstu þá ekki
til baka í vikunni sem leið, Tom?
— Jú, ég —
— Án þess að það þyrfti að
sækja þig?
— Vá, Jessica. ég var ekiki viss
— ég vissi ekki hvort þú heifðir
kjark til að stelast út aftur.
— Ég helfði komið.
— Ég vissi það ekki. Þú mátt
ekki vera reið, Jessica.
— Ég er ekkert reið, sagði hún
og deplaði auigunum til að bæigja
burt tárunum.
— Æ. hættið þið nú að þrasa
um þetta, sagði Mathy. — Það
er enginn tími til þess. Flýtið
ykkur nú að ákveða það!
— Að ákveða hvað? sagði Tom.
— Að giftaist.
— Giftast?
— Já, ætlið þið ekki að giftast?
— Hm, jú, ég — hamingjan
sanna, svo langt komumst við
víst aldrei, var það, Jessica?
— Það heid ég ekki.
Mathy sagði: — Ykkur þykir
vænt hvoru um annað og þess
vegna hélt óg —
— Ég veit ekki hvemig maður
ber sig að með það, sagði Tom.
— Þið farið bara til prédikar-
ans. sagði Mathy.
— Svo auðvelt er það nú víst
ekki.
— Aí hverju ekki?
— Maður verður að hafa eitt-
hvað að giftast upp á!
— Áttu við peninga?
— Já, sagði Tom. — Og vinnu
og hús til að búa í.
— Uss. til hvers þarf maður
hús.
— Það tiliheyrir — gift fólk
býr í húsum. Maður verður að
halfa eitthvert húsnæði.
— Getið þið ekki búið hjá fólk-
inu þínu?
— Mathy, vertu ekki að þessari
vitleysu, sagði Jessica. — Við
getum ekiki gift cktour — pabbi
myndi aldirei leyfa það.
— Vertu þá ekkert að spyrja
hann, sagði Mathy. — Gerið þið
það bara. Stingið af!
— Uss, Mathy, hættu þessu!
flissaði Jessica.
— Þorið þið það ekki? sagði
Mathy. — Þorir þú það Tom?
— Ég hugsa að ég þori vel,
en —
— Langar þig þá ekki til aö
giftast?
— Ég hef eriginlega ekikert
hugsað um það.
— En það hef ég gert, sagði
hún. — Mér myndi þykja ægi-
lega gaman að giftast. Ég held
að það sé spennandi!
— Það mætti segja mér, sagði
hann og hló háðslega.
— Ég held það líka, sagði
Jessica blíðlega. — Tom? Ég
gæti farið með þér til Kansas.
Ég gæti farið með þér hvert á
land sem er og gert það sem
þú segir mér — ég myndi ekki
verða þér byrði.
Tom horfði skelkaður á hana.
— Ég á eiginlega enga__ peninga,
Jessica.
— Það gerir ekkert til.
— Og ég hef ekki vinnu eða
neitt.
— Ég hefði ekkert á móti því
að búa hjá fólkinu þínu um tíma
— það er víst ágætis fólk.
— Já, en herra minn trúr! Ég
á ekki einu sinni peninga fyrir
farinu.
— Þið getið tekið eggjapening-
ana, sagði Mathy. — Ég skal
ná ‘í þá handa yklcur.
— Það er þjófnaður.
— Ekki ef þið borgið þá aftur.
— Við gætum borgað þá aftur,
sagði Jessica.
Tom hörfaði og stóð upp við
trjábcílinn, sikyrtan hans var vot
af svita. — Ég kann alls ekki
að ræna stúlku.
— Maður 'fer með lest, sagði
Mathy.
— Jæja? Og hvemig getum við
komizt á stöðina?
— Á sunnudaginm. kemur —
þegar við förum x kirkju — Jess-
ica getur laumast burt og hitt
þig á stöðinni.
— Það get ég vel, sagði Jess-
ica. — Við getum farið til fjöl-
skyldu þinnar —
— Og ef pabbi þinn nær í
olckur? sagði Tom.
— Það gerir hiamm ekki, sagði
Mathy. — Hann er að syngja í
kirk j ukómum.
— Hann verður fokreiður þegar
hann kemst að því.
— Hann æpir bara. Ykkur má
standa á sama — þið verðið
öll á bak og burt.
Tom horfði Skiellfdur á Jess-
icu.
— Getum við gert þetta, Tom?
sagði hún.
— Vá, ég veit svei mér
ekki —
— Reynið nú að komast að
samkomulagi, sagðd Mathy. —
Ég verð að fara að hleypa Leomie
út af kamrinum.
Tom þurrkaði svitann af enn-
inu. — Sveá mér þá, sagði hann.
— Æ, gerðu það nú, Tom, sagði
Mathy. — Við elskum þig svo
mikið!
Hann stóð með bakið við trjá-
bolinn og horlfði á þessa hrífandi
andstæðinga — báðar tvær voru
mjúkar og indælar, önnur al-
varleg og einbeitt. hin feimin
og full tilbeiðslu. báðar tvær
voru lífsihættulegar í einbeitni
sinni, rétt ei-ns og hlaðnar byss-
ur. Smárn saman færðist upp-
gjafarbros yfir andlit hans. — Já,
sagði hann og leit á Jessicu. —
Ég er til í það, ef þú samþykkir.
— Ég samþykki það! Ö, Tom
— hrópaði hún og þagnaði. —
Er þetta alveg, alveg satt, Tom?
— Já.
— Þú ætlar að hitta mig á
brautarstöðinni á sunnudaginn?
— Já.
— Lofarðu því?
Hann kinkaði kolli alvarlegiur
í bragði. — Ég lofa því.
— Það er fínt. sagði Mathy. —
Komdu nú, Jessica, áður en það
kemst upp um okkur.
11.
Ef Jessica hefði efeki verið
svona heilluð af þessari fyrstu
ást sinni, ef hún hefði ekki verið
þrúguð af sektarkenmd, hefði hún
ef til vill aldrei trúað á full-
yrðingar MaitJhyar; hún hefði etf
til vi-11 aldrei ytfirgefið heimili
sitt þennan sunnudagsmorgun
með hjartað uppi í hálsi og
eggjapeningana í buddunni.
Ef skaplyndi Toms hefði ekki
verið svona létt og ástúðlegt og
umfram allt, ef hann hefði
haft aðrair áætlanir, hefði hann
ef til vill aldrei hitt hana á
brautarstöðinni.
En svona va-rhún. og svona var
hann. og það var úr, að þau
fóru með hádegislestinni.
í sömu svifum kom 'fjölskyldan
út úr kirkjunni. Mathy gætti þess
vandlega að hverfa í fjöldann,
þar til hún heyrði leistarblístruna
fjarlægjast og þá birtist hún með
bréfið sem Jessica hafði skilið
HÁRGREIÐSLAN
Hárgreiðsln- og snyrtistofa
Steinu og Dódó
Laugav 18 m hæð (lyfta)
Slmi 24-6-16
Perma
Hárgreiðslu- og snyrtistofa
Garðsenda 21 Simi 33-9-68
Sólun
HJÓLBARÐAVIÐGERÐIR
|l snjómunstur veitir góða spyrnu
W í snjó og hólku.
önnumst allar viðgerðir hjólbarða
með fullkomnum tækjum.
Snjóneglum hjólbarða.
GÖÐ ÞJÓNUSTA. — VANIR MENN.
BARÐINN HF.
Ármúla 7. — Sími 30501. — Reykjavík.
gefur þægílegan ilns í stefima
NYLON
HJÓLBARÐAR
Sólaðir nylon hjólbarðar til sölu á mjög hag-
stæðu verði.
Ýmsar stærðir á fólksbíla.
Stærðin 1100x20 á vörubíla.
Full ábyrgð tekin á sólningunni.
BARÐINN hf.
Ármúla 7. Sími 30501.
Reykjavík.
FÉLAG ÍSLEMZKRA HLJÍLISIARMAiA
#útvegar ybur hljóðfœraleikara
og hijomsvdtir við hverskonar tœkifari
Vinsamlegast hringið í é!02SS milli kl. 14-17
ló&simp ht
Indversk undraveröld
Mikið úrval af sérke rmilegum austurlenzk-
um handunnum munum til tækilæris-
gjaía. — Nýkomið Xhai-silki og Batik-
kjólaefni á mjög hagstæðu verði. — Ný
sending af mjög faliegum Bali-styttum.
Einnig reykelsi og reykelsisker i miklu,
úrvali. — Gjöfina sem veitir varanlega
ónægju fáið þér i JASMIN Snorrabr. 22.
BILASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
MOTORSTILLINGAR
ri.ifil ASTILLINGAR LJÚSASTILLINGAR
Látiö stilla i tíma.
Fljót og örugg þiónusfa.
13-10 0
Byggingaplast
Þrjár breiddir.
Þrjár þykktir.
PLASTPRENT h.f. Grensásvegi 7.
Sími 85600.
Terylenebuxur
a börn. unglinga og fullorðna.
Gæði • Úrval • Athugið verðið.
Laugavegi 71. Sími 20141