Þjóðviljinn - 22.10.1971, Síða 6
£ SlÐA — ÞJÓÐVTLJTNN — Fostudagur 22. októ'ber 1971.
Eitt mesta hneyksli í sögu KSÍ í uppsiglingu
Samþykkir stjórn KSÍ gerðir formannsins?
Eitt mesta hneyksli í allri
sögu KSÍ virðist vera í upp-
siglingu og er þar átt við
samninga þá er formaðurKSÍ,
Albert Guðmundsson, hefur
gert fyrir hönd KSÍ, um leik-
ina við Bclga og Hollcndinga
um að Islendingar leiki báða
leikina við þessar þjóðir í
undankeppni næstu HM ytra.
Og ekki nóg með það, heldur
eru allar líkur á að sögn Al-
berts, að reynt verði að ná
samskonar samningum við
Norðmenn, en þessar 3 þjóðir
eru með okkur í riðli í und-
ankcppni næstu heimsmcist-
arakeppni í knattspymu.
Mönntun hefur þótt nóg
um framkomu félagsliðanna
okkar þegar þau hafa verið
að leika báða leiki sína ytra
í Evrópukeppninni í knatt-
spymu og hafa þau veriðfyr-
ir það harðlcga gagnrýnd. En
þegar sjálft Knattspymusam-
band Islands tekur til við að
gera þetta er mælirinn fuUur.
Spyrja má, og knattspymu-
unnendur ætlast til þess að
fá svar við þessari spurningu,
TIE HVERS VAR VERIÐ AO
TAKA ÞATT í HM FYRST
SVONA ER FRIÐ AÐ? Hvaða
tilgangi þjónar það að til-
kynna þátttöku í heimsmeist-
arakeppni og gera sig svo að
viðundri út um víða veröld
með þvi að bjóðast til að
leika báða leikina við hverja
þjóð á útivclli? Ekki eitt ein-
asta land í veröldinni nema
ísland gerir þetta og sá sem
léti sér þetta til hugar koma
meðal alvöru knattspyrnuþjóða
yrði sér til athlægis. gn £or-
maður KSl getur gert svotít-
ið úr sjálfum sér, KSl og
landi sínu að fara á fund
forráðamanna þeirra þjóða er
við eigum að leika við í HM
og bjóðast til að Ieika báða
lcikina ytra-, bara e£ við fáum
PENINGA fyrir það, nógu
mikla peninga. Það er du-
lítið annað, Albert Guðmunds-
son, að reka cýgið fyrirtæki
með gróðasjónarmið í huga —
eða að reka og stjórna Knatt-
spyrnusambandi Islands, sem
byggir tilveru sína á að hinir
fjölmörgu knattspyrnuáhuga-
menn komi á leiki, hvort
heldur er leiki félagsliða eða
landsleiki. En þcgar svikizter
aftan að því fólki, sem gerir
það mögulegt að leilca knatt-
spymu á Islandi og þar af
Iciðandi að taka þátt í IIM,
er farið út á svo alvarlega
braut að hætta er á ferðum.
Nú er eina von manna að
stjórn KSÍ, en hún er skipuð
mörgum ungum og dugandi
mönnum, taki fram fyrir
hendur formannsins og sam-
þykki ekki þetta hneyksli. Ég
veit að ég tala fyrir hönd
þúsunda íslenzkra knatt-
spymuaðdáenda á íslandi þeg-
ar ég skora á þá Hörð Felix-
son, Helga Daníclsson, Frið-
jón Friðjónsson, Jón Magn-
ússon, Ingvar N. Pálsson og
Hafstein Guðmundsson, en
þetta em stjórnarmenn KSI,
að samþykkja aldrei þessa
firm, sem Albert Guðmundss.
hefur verið að koma í kring
síðustu daga. — S.diór.
Handknattleikur
Walur Reykjavíkurmeistari
Eftir sigurinn yfir Fram 11:6 en á þó einum leik ólokið
□ Þrátt fyrir það að Valur á eftir að mæta
KR í Reykjavíkurmótinu í handknattleik, er fé-
lagið orðið Reykjavíkurmeistari eftir signrinn
yfir Fram 11:6 sl. miðvikudagskvöld. Hefur Vals-
liðið unnið alla sína leiki til þessa eða 5 og er
því komið með 10 stig. Fram kemur næst með 7
stig og á einn leik eftir. Yfirburðir Vals í leikn-
um við Fram voru algerir, sama hvort heldur
var í vöm eða sókn og má sem dæmi nefna að
Fram skoraði aðeins tvö mörk í síðari hálfleik,
sem mun vera einsdæmi þegar hið fræga Fram-
lið á í hlut.
Valur hefur leikið 6 leiki
írá því keppnistíma-bilið hófst,
þar af einn gegn FH og unnið
alla þessa leikii mieð mjögmikl-
um yfirburðum nema leiikinn
gegn IR í Reykj avíkurmótinu,
þar var aðeins um edns marlcs
sigur að ræða. Sóknarleikur
Vals-liðsins er mjög góður,
semnilega sá bezti hjá íslenzku
liði í dag, en það sem færir
Valsmönnum þá ylirburði er
þeir hafa yiDir önnur lið <sr
hin margfræga vörn liðsins. Ég
hygg að það sé ekiki o£ stórt
tíi orða tekið þóitit sagt sé að
ekkert ísienzkt lið hali noikkru
sinni leiikið annan eins vamar-
leik og Vals-liðið gerir nú. Það
var tailað um góðan vamarleik
liðsins í fyrra, en hann var
ekki hálÆt eins góður þá og
nú. Það verður mjög garnan að
fá að sjá liðið leika gegn góðu
erlendu liði og það fá menn
raunar þegar liðið mætir Ar-
hus KFUM í næsta mánuði er
það kemur hingað til lands í
boði Vals.
En nóg urn það og snúum
okkur þá að gangi Ieiksdns.
Framarar reyndu, eins og öll
önnur lið er mætt hafa Val
í hausí, að halda boltanum eins
lengi og mö'gulegt var og má
í því samibandi neflna semdæmi
að eftir 12 mínútur af leiik
var staðan orðin 2:1 Vai í vil
og af þessum 12 mínútumhafði
Fram verið með þoltann í 10
míinútur og skorað eitt mark,
en valur haifði haft boltann í
2 og skorað 2 mörk. Þessi
svæfingaraðferð, sem Fram
notaði, er gamalkunn og kann-
ast sjálfsiagt engdr betur við
hana en Framarar, því að þetta
var notað og einmdtt af Vals-
mönnum gegn Fram þegar lið-
ið var uppá sitt bezta, en Val-
ur lakari aðilinn. Einu sinni
var leyfilegt að tefja leikinn
en síðan voru sett lög er böoin-
uðu tafir, en því miður vdrðast
dómarar okkar lítið skipta sér
af því hvort leifcmenn tefja
eða ekki, í það minnsta létu
þeir er dæmdu þessar ledk-
tafir Pramara afskiptal ausar. I
leikUléi var staöan 5:4 Vals-
mönnum í vil og stafaði þessi
rnunur einigöngu af því hve
Pramömum leyfðisj að tefja.
I síðari hálfleik byrjaði Gísli
Blöndal, bezti maður Valsliðs-
ins í leiknum, á því að skora
6. mark Vals. Þá reyndu
Pramarar að auka hraðann og
það var einmitt það sem þeir
sízt þoidu. Þetta var það sem
Valur beið eftir og þegar hrað-
inn var komirm upp var eífitir-
leitourinn þeim léttur og stór-
sigur 11:6 varð veruleiki. Þann-
ig að Pram náði aðeins að skora
2 mörk í síðari hálfileik.
Þótt ég segí að Gísli Blöndal
hafi verið beztur Valsmanna í
leiiknum er það eiginlegia 6-
sanngjannít, hví að hðið er svo
jafnt að allir sem einn eiga
þessa einkunn skilið. En Gísli.^
var attovæðamestur og léite að
Framhald á 7. síðu.
:
Reykjavíkurmeistarar Vals fremri röð frá vinstri: Jón Karlsson, Stefán Gunnarsson, Jón Breiðfjörð, Ólafur Benediktsson, Bergur
Guðnasou og Gunnsteinn Skúlason fyrirliði. Aftari röð frá vinstri: Reynir Ólafsson þjálfari, Gísli Blöndal, Ólafur H. Jóns-
son, Jón Ágústsson; Ágúst Ögmundsson, Torfi Ásgeirsson, Gunnar Ólafsson og Guðmundur Þ. Harðarson er aðstoðað hefur við
þrekþjáJfun liðsins.
Gísli Blöndal bezti maður Vals-Iiðsins í leiknum við Fram brýzt
í gegn og skorar. Það er ekki óalgengt að sjá einn eða tvo and-
stæðinga hans hanga svona í honum en oftast gagnar það lítið
gegn þessum stóra og sterka leikmanni.
ísienzkir borðtenaisleikarar
á Norðurlandameistaramót
Ákveðið hefur verið af
borðtennisnefnd ISI, að senda
6 íslenzka borðtennisleikara til
þátttöku í Norðurlandameist-
aramótinu í borðtennis, sem
fram fer í Osló dagana 6. og
7. nóvember n.k. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslenzkir
borðtennisleikarar mynda
landslið og keppa erlendis
sem slíkir. Því að bæði verð-
ur þarna um einleik og tvi-
liðaleik að ræða og svo mynd-
air hópurinn landslið. Og þetta
fyrsta íslcnzka borðtennislið
Islcndinga verður þannigskip-
að:
Jóhann Sigurjónsson
Bjöm Finnbjörnsson fyrirliði
Jósep Gunnarsson
Ólafur H. Ólafsson.
Þá vcrða tveir keppendur í
unglingaflokki og keppa þar:
Hjálmar Aðalsteinsson og
Elvar Elísson. AHir keppend
urnir em frá Reykjavík nema
Elvar hann er frá Akranesi.
Þess má geta til gamr.ns að
ísland varö að fá undanþágu
hjá Alþjóða borðtennissam-
bandinu til að iaka þátt í-
N oröurla ndamótinu vegna
Framhald á 7. síðu.
Björn Finnbjörnsson íslands-
meistarinn í einliðaieik i
borðtennis verður fyrirliði fj-
lenzku borðtennisleikmannanna
sem fara á NM
i
1