Þjóðviljinn - 17.11.1971, Síða 4

Þjóðviljinn - 17.11.1971, Síða 4
4 SlÐA — feJÓÐVILJIíNN — Máiðvitouidaigur 17. rtóvemibeor 1671. — Málgagn sósialisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis — Útgefandi: Utgáfufélag ÞjóSviljans. Framkv.stjóri: Eiður Bergmann. Ritstjórar: SigurSur GuSmundsson, Svavar Gestsson (áb.). Augiýsingastjóri: Heimir Ingimarsson. Ritstjórn, afgreiSsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustig 19. Simi 17500 (5 línur). — AskriftarverS kr. 195,00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 12,00. Ekki eftir neinu að híða fundi sem Verkamannafélagið Dagsbrún efndi til í fyrrakvöld vair samþykkt tillaga um nauð- syn þesis að lögfesta þegar fyrirheitin í stjórnar- sáttmálanum um 40 stunda vinnuviku. í samþykkt Dagsbrúnar segir: „Félagsfundur haldinn í Verka- mannafélaginu Dagsbrún lítur svo á að búið sé að reyna til þrautar að ná samkomulagi við vinnu. veitendur um styttingu vinnuvikunnar. Telur fundurinn því rétt að leysa beri þessi mál eftir löggjafarleiðum og flutt verði á Alþingi frumvarp í samræmi við fyrirheit rikisstjómarinnar um styttingn vinnuvikunnar 1 40 stundir, sem komi til framkvæmda í einu lagi, svo og um lengingu or- Iofs“. Fyrirheit ríkisstjórnarinnar um lengingu or- lofs og 40 stunda vinnuviku voru gefin í sumar og með fylgdi að ríkisstjórnin imundi því aðeins beita sér fyrir slíkri lagasetningu að haft yrði áður sam- ráð við verkalýðshreyfinguna. Nú er ljóst, af sam- þýkkt Dagsbrúnar og öðrum atriðum, að nú er ekki eftir neinu lengur að bíða með setningu laga um 40 stunda vinnuviku og lengingu orlofs. Fé- lagsmálaráðherra, Hannibal Valdimarsson, hefur lýst því yfir á alþingi að frumvörp um þessi kröfuatriði verkalýðssamtakanna séu nær tilbúin, og því á að vera unnt að leggja þau fram strax. Ekki er nokkur vafi á því að slík frumvöip yrðu siamþykkt á alþingi og því geta samningsaðilar í kjaradeilunni gert ráð fyrir þeim kjarabreyting- uim sem orlofslengingin og vinnutímastyttingiri hafa í för með sér. j^aunar má atvinnurekendum allan tímann hafa verið ljóst að sett yrðu lög um þessi atriði — þeir hafa hins vegar reynt að tefja tímann og hafa þvælzt fyrir til þessa; hafa meira að segja beðið um að fá reiknað út verðlag í útlöndum til þess að tefja fyrir. En nú dugir ekki lengur að bíða, enda hafa kjarasamningar þegar tekið óhæfilega langan tíma. Einn minnisvarðinn JjYá því að Reykjanesbraut var tekin í notkun hefur kostnaður við þessa framkvæmd ríflega tvöfaldazt, sem stafar nær eingöngu af gengisfell- ingum, en mikill hluti lána til framkvæmdarinnar var ’tekinn erlendis. í upphafi kostaði Reykjanes- brautin 282 milj. kr. — 1 dag kostar hún um 567 milj. kr. Þrátt fyrir 140 milj. kr. afborganir eru enn eftir óborgaðar 482 milj. kr. Þetta er einn minnisvarðinn um fjármálastjóm viðreisnarflokk- anna’. — sv. Meistaraniósnarí látinn MOSKVA 16/11 — Rudolí Ab- el, maöurinn sem stjórnaði njósnum Sovétmanna í Banda- ríkjunum lézt að heimili sínu í Moskvu í dag, að ’ því er á- reiðanlegar hcimildir herma. Abel var torkólfur alþjóðlegs njósnanets í Bandaríkjunum, sem teygði mösikva sína til^ Bretlands, Kanada og annarra vesturlanda og sérgrein hans var að grafast fyrir um kjam- orkuleyndarmál. Helztu hjálp- arhellur hans við það voru þau hjónin Ethcl og Julius Rosen- berg, en þau voru afhjúpuð ár- ið 1953 og tekin af lífi. Abel, sem var fœddiur og uppalinn í Rússlandi, var send- ur á laun til Bandaríkjanna 1948, gagngert til njósna. Hann vann fyrir sér sem ljósmynd- ari í Brootolyn í New Yorlc, undir dulnefninu Eusil Gold- flus, allt þar til hann var hand- tetoinn árið 1957 og dæmdur í þrjátíu ára fangelsi fyrir njósnir. Fimm árum síðar skiptu Bandarítojamenn á hon- um og flugmanninum Francis Gary Powers, sem Rússar höfðu í haldi, en þeir stoutu njósna- i þotu Ihans niður yfir Síberíu [ vorið 1960. Eins og menn rekur j minni til, varð U-2 málið til þess að tooma í veg fyrir fund þeirra Krúsjoffs og Eisenhow- ers, sem halda átti það sum- ar. RudOlf Ahel sýndi sig sjald- an opinherlega eftir komuna til fóteturlandsins 1962, én hann skýrði þó frá þvf í blaðavið- tali fyrir þremur árum, að hann væri enn við störf í sovéztou leyniþjónustunni, KGB. f viðtalinu var Abel hampað sem himni sönnu fyrirmynd vinstrisinnaðrar aestou, en hann dró þó engan dul á fyrirlitn- ingu sina á njósnareyfurum í Sovétrítojunum, sem drægju upp mynd af njósnurum sem einhvers konar hetjum og of- urmennum. Abel voru veitt Leninverð- launin við hei'mkoniuna, og hann hefur unað sínum hag vel, nema hvað hann hefur þjáðst af lungnakrabba síðasta árið, og það var sá sjúkdómur sem dró hann til dauða. Hann verður jarðsettur á fimmtudag- inn, en ekki er vitað hvar það verður. Rudolf Abel offursti lætur eftir sig eiginkonu og eina dóttur. Niðursuða Framhald af 12. síðu. — En hvað er framunðan þegar þessu verkefni Iýkur? — Ja, maður yomar að það náisit sölusamningar á næsta ári. þá verða emgin vandræði, en ef ekki þá . . . — Er hagstaett verð á dósun- um sem þið eruð að leggja nið- ur í núna? — Við vorum ektoi óánægðir með það, en hvenær finnst manni vorðið nógu hátt? ALDREI MEIRA AÐ GERA Björgvin Jónsson, verkstjóri hjá Siglósíld á Siglufirði sagði, að iþeiir væru að leggia nið.ir gaffalhita vegna viðbótarsölunn- ar til Sovétríkjanna. — Hvað er ykkar hlutur stór í þessari niðurlagningu? — Um 3000 toassar, eða 300 búsund dósir, og við eigum að vera búnir með þetfta í desem- berþyrjun. — Veiztu hvað tekur svo við h,iá ykkur? — Nei, ektoi hvað við tekur eftir áramótin, en við eigum eftir að leggja niður í milli 20 og 30 þúsund dósir fyrir Svía, en það verður sjalflsagt búið fyrir jól. — Hefur verið mikið að gera hjá ykkur í ár. fyrir utan þetta? — Það hefur verið með al- bezta móti í ár hjá oktour, og má segja, að þetta hafi verið samfellt sáðan við byrjuðum 2. marz si. fyrir utan mánaðarhlé í sumiar, m.a. vegna sumiarleyfa. Og mér lízt á að þetta endist okkur til jóla. — Hvað vinna margir hjá ykkur? — Það hefur verið dálitið mis- jafnt, en sennilega hefur um 100 manns baflt atvinnu við fyrir- tækið að jafnaði. Þar inni í eru auðvitað toonur sem vinna hér hálfan daginn, skipta deginum þannig á milli sán vegna þess að þær eiga eki heimangengt til vinnu nema hálfan daginn. Og það er ekkert atvinnuleysi hjá kvenfólki hér á Siglufirði en eitthvað hjá karlmönnum, eftir að trilluvertið laiuto. — S.dór. Ævi Tsjnikovskys Laugarásbíó sýnir um þessar mundir tónlistarmyndina „Ævi Tsjaíkovskys". Með myndinni cru flutt brot úr ýmsum vinsæl- ustu og þekktustu verkuin tónskáldsins. — Myndin er af Innokenti Smoktunovsky í aðalhlutverkinu. Astin er viðsjárgripur Ytkref Ibrahim, ungur Eg- ypti, átti afar erfítt með að gera upp við sig, hvora hann elskaði heitar — eiginkonu sína eða tengdamóður. Afleiðingin varð sú, að þau tengdamæðgin- in voru dæmd í eins árs fang- elsi, af dómstóli í smábænum Tanta á óshólmnm Nílar. Forsaga málsins var sú, oð hiirun ungi Jbralhim varð ást- fangmn af hinmi uudurfögru Fatímai,, giftist henni og Ðutti á heimili tengdamóðurinnar. Áður em lamgt um leið fór hamn að remma hýru autga tdl tengda- móður sinnar. Hún endurgiait tilfimmimgar hams, hanm skildi við eigintoonu sína og giftist móður hemmar. Enn liðu nokkr- ir mánuðir og Ibrahiim toomst að raum um að lenigi lifflir í gömlum glæðum, hanm skildi enn og giftist Fatítmu á nýjan leik. Yfirvöldumum litoaðd hins vegar elklki þetta háttalaig, þau giripu í taumama og mú situr Fatíma eftir með sárt ennið, svipt bæði eágámmanmi og móð- ur. Mufíii fimm vikna áskrifendasöfnunina áskriftarsíminn er 17500 Fratiska leyni- þjónustan í heróínsmygli PARÍS 16/11 — Framskur emb- ættismaður. Paul Fournier, situr nú í varðhaildi í Banda- ríkjunum, grunaður um eitur- lyfjasmygl. Heimildarmenn í París segja Foumier vera of- ursta í frönsfcu leyniþjómust- unni, og að hann sé sakaður um að hafa talið samlanda sinn og undirmann á að smygla heroimsendimgu inn í Banda- ríkin sem metin er á rösklega einn miljarð íslenzkra króna. Foumier hefur vísað öill- urni áfcærum á bug og neitað að ræða við blaðamenn, en þeir bafa ekki gietað fylgzt með gangi réttarhaldanna, þar sem þau eru baldin fyrir luitot- um dyrum. Stuðnin-gsmenn Foumiers segja átoærumar á hendur homum uppspuna fró rótum, þær séu aðeins liður í umfamgsmikilli vald'abaráttu sem nú stendur yfir í frönsku leyniþjónustunni Undirmaður Foumiers, sá er smyglaði heroininu, hefur ját- að allar sakir, og talið er að hann muni hljóta allt að 20 ára fangelsisdóm. Fundur Fnamhald aif 12. síðu. sem er framibæril e gur hvar í heiminum sem vera skal. Við ummum toomsertimm saman, hamn kom með tillögur. Það er mák- ils virði að hafa miána samwinnu við hljóðfæraleikaim, þegar mað- ur semur toonsert sem þemnan, ekki sízt þegar maður leikur ekki á stremigi sjálfur. - Konsertinm er í 11 þáttum, stuttum myndum, notokurskonar myndasafn. Verkið heitir Könn- un, emda miá segja að það sé mokkurskonar kömnum; um ó- þeklkt landsvæði til dæmds. Víófl- an er þar í flararbroddi og leið- amdi allan tímamm. Komið er á framamdi staði og staði.sem. npaðr ur toannski þekkir. Meginkafli vertosins er rómamtístour. Nei — þetta verfc er efcki einkemmamdi fyrir nútímatónlist, né heldur er það gamaldags. Ég er á móti þeirri stoiptimgu. sem kemur fram í huigtaikinu nútímalist og gam- aldags list, eða er það ekfci hlægilegt, þegiar virðulegt félag eflnSr til fumidar í heilt kvöld, t.il að sfcilgreina mumimn á rímuð- um ljóðum og órimuðum. Jú, ég viðurkenni fúslega, að ég breyti oft verkum mínum eft- ir að ég hetf heyrt þau flutt í fyrsta sinn. Mörg tónskáld gera þetta, en eiga erfitt með að við- uitoemna það, kammsfci af ótta við að vera álitim illa menntuð í sínu faigi. — — önnur verk á efnásskrá Sin- fótniíumnar á fimmtudag eru Com- serto girosso op. 6 nr. 2 eftir Cor- elli, Sinflónia nr. 101 eftir Haydn, Dauðinm og ummyndumin eftir Richard Strauss, (flutt í fynsta simm hérlemdis). Atli Hedmir stjómar sjálfur sinu verki em að- alstjómandi hljómledkamna er George Cleve. Einleikari í Könn- um Atla Heimis er sem fyrr seg- ir Ingvar Jónasson víóluleikari. Slys á Akureyri Nokkuð alvarlegt slys varð á Afcureyri sl. laugardagskvöld er stúlka varð fyrir bifreið og slas- aðist noktouð mdkið að sögn lögireglumnar. Ektoi var fulHjóst með hvaða hætti slysáð varð, en bifreiðin lenti útaf götunni og var óBtoufær á eftir Myrti 150 þásund gyiinga BERLÍN 16/11 — Háttsettur vestur-þýzkur embættismað- ur frá valdatímum nazista var í dag íeiddur fyrir rétt í V-Berlín, sakaður um að hafia staðið fyrir morði 150 þúsund gyðinga frá Suður- Evrópu. Að því er segir í á- kæruskjalinu, á maður þessi, Bosshammer, að hafia verið einn af helztu undirtyllium • Adolfs Eichmanns í hinu svo- nefnda „öryggismálaráðu- neyti* sem sá um útrýmingu á gyðingum. Starf Bosshammers var í því fólgfið að skipuleggja handtÖkur og dráp á 75 þús- und rúmenskum, 51 þús. búl'gönstoumí og 17 þús. slóv- enskum gyðingum. 1944 var hann sendur til Ítalíu, þar sem hann varð yfirmaður ör- yggislögreglunnar. Þegar heimsstyrjöldinni lauk gerð- ist Bosshammer lögfræðingur í Vestur-Þýzkalandi og rækti það starf fram til ársins 1968. en þá var hann hand- tekinn.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.