Þjóðviljinn - 18.11.1971, Side 3
íT.ngTíifnriinrrriCTTTa
FimmMda-gnr 1S. tnóvemlber 1971 — ÞvtöÐVIIJINN — SÍÐA J
AF ERLENDUM VETTVANGI
AÐ BREIÐA
ÚT L YGAR
T>rsten Bhirenmark frétta-
ritari sænska stórblaðsins
Dagens Nyheter í Belfast,
segir frá því í grein sem
birtist í blaðinu á sunnudag-
inn var, að það gerist æ
erfiðara að afla sér hiutlægra
upplýsinga um atburði borg-
arastyrjaldarinnar á Norður-
Iriandi. Brezki herinn skiptir
sér æ meir af ferðum blaða-
manna. Og bæði brezkir og
írskir sósíalistar hafa að und-
anfömu borið fram rökstudd-
ar kvartanir um að herinn
komi fölskum upplýsingum að
í brezkum blöðum. Þessar
„upplýsingar“ eiga allar að
kioma heim og saman vid
myndina Etf hinum engilihreina
brezka her og þeim djöfullegu
hermdárverkamönnum írska
lýðveldishersins, IRA, sem
lögð er svo mikil áherzla á að
breiða út.
Brezka blaðið Private Eye
skýrir t.d. frá máli Mo
Allisters nokkurs sem eftir
nokkurra daga fangabúðavist
og yfirheyrslur hjá brezka
hernum var fluttur yíir til
'Irska lýðveldisins í Ardee-
sjúkahúsið. Þar er fyrir
brezkmenntaður geðiæknir,
dr. Wilson, sem dregur taum
Englands í yfirstandandi á-
tökum. Hann tók því mjög
iila þegar lýðveldissinnar
(þ.e.a.s. IRA-menn) lögðu Mc-
'Allister inn hjá honum. Fyrst
vildi hann ekki taka við sjúk-
iingnum en lét svo undan,
þegar hann sé að maðurinn
váf 'i alvarlegu ásigkomulagi.
Fréttamaður frá Sunday
Times fékk upplýsingar um
málið hjá' dr. Wilson. Sam-
kvæmt þeim hafði McAllister
sturiazt svo óbætanlegt er
talið eftir nokkurra daga yfir-
heyrslur hjá brezka hernum,
en aðferðir hans beinast nú
að því að rugla á skömmum
tíma fórnariambið gjörsam-
lega að því er varðar tíma,
rúm, jafnVægi, ljós, há-
vaða, hita og kulda. Hér er
um útsmognar sálrænar pynt-
ingar að ræða.
Sunday Times spurði her-
inn um mál þetta, en féíök
dræm svör. Upplýsingaþjón-
usta hersins hafði þannig hvorki
játað né neitað, þegar Daily
Express kom út laugardaginn
23. okt. — daginn áður en
Sunday Times kom út með
sína grein. I Daily Express
var stór grein á forsíðu und-
ir fyrirsögninni: „Ákæru um
misþyrmingar bak við gadda-
vír neitað“. Þetta blað hólt
því fram, að IRA hefði mis-
þyrmt McAIlister eftir að
honum var sl'eppt frá Holy-
wood-fangabúðunum fyrir ut-
an Belfast, og síðan hefði hann
verið fluttur á sjúkrahús í
írska lýðveldinu af vinum
sínum, sem lygju því upp, að
honum hefði verið misþyrmt
í fangelsi.
Ekki var gefið upp hvaðan
Daily Express hefði þessar
upplýsingar. En það er ljóst,
að blaðadeild hersins hafði
komið þeim fyrir þar til að
varpa rýrð á þá grein sem
átti að birtast í Sunday Times
daglnn eftir. Gallinn var 'bara
sá, að blaðadeiid hersins vissi
ekki hvað hafði komið fyrb
McAllister meðan hann vat
í fangabúðum. Hún hefur,
líklega af reynslu. gert ráð
fyrir því, að hér væri um
venjuilega misþyrmingasögu að
ræða og hagað sinni upplýs-
ingaþjónustu eftitr því. En í
reynd bar McAllister engin
roerki um líkamleg meiðsli.
heldur var hann niðurbrotinn
maður andlega.
Daily Mirror birti þann samá
23. okt. forsíðufrétt,
„Tékkneskur morðingi skot-
inn í Ulster“, þar sem haft
var eftir liðsforingja á Norð-
ur-lriandi, að menn hans
hefðu skotið svartMædda
leyniskyttu með tékkneska
byssu. En lík „Tékkans“
fannst ekki. Engin rann-
sókn var gerð á málinu. Tals-
menn hersins neituðu að ræða
málið. „Bezta ráðið til að
breiða út lygi er að koma
henni í blað og neita síðan
að gera athugasemd við hana“
segir Privaíte Eye.
Áður hefði verið skrifað um
innrás . „rauðliða“ í Belfast. 1
júlí 1970 skrifaði Mirror, að
öo'ggislögregla hefði skotið
tvítugan Pólverja frá Lond-
on, brezkan ríkisborgara, Ug-
lik að nafni. Hefði hann laum-
azt yfir húsaþök með byssu,
svartmálaður í framan. I raun
og veru var Uglik fréttaljós-
myndari í frístundum, sem
skotinn var á Falls Road,
þegar hann reyndi að kom-
ast heim á hótel sitt að ná
í myndavél. þrátt fyrir út-
göngubann.
Herinn hélt því aldrei flram,
að Ugllik hefði verið vopnað-
ur, og kollegar hans sáu hann
helsærðen allsendis ómálaö-
an í framan. Engu að síðrr
var hann látinn vera sönn-
unargagn um það á forsíðu
Daily Mirror aöausturevrópsk-
ir komimúnistar hefðu komið
sér fýrir í rööu-m IRA."
★
Irski sósíalistiinn Eamonn
McCamn hefur sfcrifað
bækling, þar sem mörg dæmi
eru urn einhliða ftrétta-
memnsku frá N-írlandi, með
eða ám íþlutunar brezkð hers-
ins. Menn hljóta að fallast
á margar röfcsemdir hans
fyrir því, að margt sem IRA
er kennt um er í reynd sök
hersins eða öfgasinnaðra mót-
mælenda.
Nefnum t.d. McKavanagh,
sem skctinn var til ba-na í á-
tökum um bakarí eitt í Bel-
flast 11. ágúst s.l. öll Lund-
únablöð sögðu frá bví, að
hermdarverkamaðurinn Mc-
Kavanagh hefði verið skotinn
í bakaríinu af hermönnum.
Það var bkyiadeild hersins
sem gaf blöðum þessar upp-
lýsingar. En blaðamaður frá
Irish Times rannsakaði miálið
upp á eigiin spýtur og komst
að svoifelldri niðurstöðu: Mc-
Kvanagh var á heimileið með
bióður sínum og frænku, beg-
ar skothríðin hófst við bak-
aríið. Hann var með sjóstíg-
vél og sokka, sem hann hafði
stolið í búð, sem óreiðuifólk
hafði rænt. 150 m. frá bakarí-
inu skipað'i hermaður honum
að nema staðar. Hann var
hræddur urn að þýfið yrði tek-
ið af honum oa hlýddi ekki.
Hermaðurinn skaut hann til
bana og hermenn lömdu
frænda hans og frænku bar
til þau hnigu í ómegin. Irski
blaðamaðurinn skýrði blaða-
deild hersins frá þessu — og
hún sagði að hann færi alveg
rétt með.
En ekkert einasta brezkt bl að
birti þessa leiðréttingu, segir
McCann.
Hann tilfærir mörg dæmi
ö-nnur um það, að fólk, sem
verður fýrir kúlum hersins er
eftir á saigt vera úr JRA, eða
hafa haft á sér benzínsp-rengj-
ur eða sfcotvopn . . .
(Endursagf eftir DN)
DoktorsritgerS Jóhanns Póls
Amasonar komia út í Þýzkal.
Nýlega kom út hjá bóka-
útgáfunni Luchterhand í Vest-
ur-Þýzkalandi heimspekirit eft-
ir ungan íslenzkan fræðimann,
Jóhann Pál Árnason. Bókin
nefnist á þýzku „Von Marcuse
zu Marx‘‘ eða „Frá Marcuse
til Marx“, og er hér um að
ræða doktorsritgerð sem Jó-
hann varði við háskólann í
Frankfurt am Main fyrirrúmn
ári. Upphaflegt heiti ritgerðar-
innar var „Anthropólógískar
hliðar krítísku kenningarinn-
ar“.
Dr. Jóhann Páll Árnason
hefur tekið virkan þátt í kapp-
ræðu um vandamál sósíalisma
hér heima. Hann er lesendum
Þjóðviijans vei kunnur fýrir
Jóhann Páll Árnason.
skeleggar greinar gegn innrás-
inná í Téklkóslóvakíu og afleið-
ingum hennar, og hann hefur
einnig skrifað margt um vanda-
mák sósíalískra breyfinga á
Vesturiöndum. 1 fyrra ga£ Mál
og menning út bók hans „Þætt-
ir úr sögu sósíalismains“.
Doktor Jóhann Páll Árnason
fæddist á Dalvík við Eyjafjörð
1. júnd 1940 og ólst hann þai
upp. Poreldrar hans eru Árni
Lárusson verkamaður og kona'
hans Jóna Jóhannsdóttir. Jó-
hann laiuk stúdentsprófi með
ágætiseinkun frá Menntaskól-
anum á Atoureyri 1958. Ári síð-
ar fór hann til Tékkóslóvakíu
til að leggja þar stund á heim-
speki og sagnfræði. Hann lauk
prófi frá Karishéskólanum i
Prag árið 1966. 1 viðkenningar-
skyni fyxir frábæra lokaprófs-
ritgerð, „Ontológískur grund-
vöHur marxísks húmanisma“
var honum gefinn kostur á að
verja hana til doktarsgráðu, og
stóðst Jóhann þá raun. Vetur-
inn 1966/67 var Jóhann við
framhaldsnám við Gramsci-
stofnunina í Rómaborg, en
næsta vetur kenndi hann þýzku
við Menntaskólann á Akureyri,
Haustið 1968 fór hann enn til
framhaldsnáms og þá til Prank-
furt í Vestur-Þýzkalandi, þar
sem hann hefur að mestu
divalizt síðan. Meðal kennara
hans þar hefur verið hinn
kunni heimspekingur próf. Júr.
gen Habermas og undir hand-
leiðslu hans reit Jóhann dokt-
orsritgerð sína um „krítísku
kenninguna“ sem nú er komin
út í bókarformi. Á síðast liðnu
háskólaári stundaði Jóhann
frekari rannsóknir í fræðigrein
sinni við háskólana í Frank-
•furt og París, og naut hann
til þess styrks frá þýzku Hum
boldt-stofnuninni. Jóhann held-
ur í vetur áfram fræðistörfum
sínum í Franfcfurt á þýztoum
vísindastyrk.
Bókin „Von Marcuse zu
Merx“ er númer 54 í pappír-
kiljuflokknum „Samlunig Lu-
ehterhan,d“ og merkt mánuðin-
um nóvember 1971. 1 þessum
bókaflokki ber mest á gagn-
rýnum nútíma ritum um þjóð* 1-
félagsfræði. Er það mikil við-
urkenning fyrir áður ó/þekiktaii
höfund að £á gefina út bók í
slíkum sölubókaflokki hjá einu
af virðuleguistu fariögum Vest-
ur.Þýzkalands. Bók Jóhanns er
250 lesmálssíður, og er þar
fjallað all ítariega um heim-
spekinga ,,frankfúrtarskólans‘‘,
svo sem Adorno og Horfcheim-
er, en þó fyrst og fremst um
Herbert Harcuse. Einn kaflirm
í bófcinni fjailar til að mynda
um það hvernig Marcuse hefúr
endaskipti á Freuid og tengir
hann við Marx annar um
gagnrýni Marcuses á stalín-
ismann, en annar um hið
fræga rit Marcuses „Einvíddar-
•manninn“. — Þetta er fyrsta
verk Jóhanns Páls Ámasonar
sem út er gefið eriendis, en
hér heima kom árið 1970 út
bókin „Þættir úr sögu sósíai-
ismans“, sem fyrr segir.
Athugasemd frá Efnahagsstofnun
Eftirfarandi athugasemd
barst blaðinu í gær frá Efna-
hagsstofnuninni.
1 tillefni frétta í blaði yðar
dagana 14. oig 17. nóv., óskar
Efnahagsstofnunin að koima
eftirfarandi athugasemdum á
framfæri.
I fréttum frá þingi Alþýðu-
sambands Norðuriands og
Verkamannafélagsins Dags-
brúnar segir, að því er virðist
mieð orðum blaðsins sjálfis, að
Bfnalhagsstofnunin hafi nú í
fyrsta sinni látið fara frá sér
það áilit, að atvinnuvegirnir
þoli verulega kauphækfcun.
Þess er skemmst að minn-
ast, að fyrir ári kom það á-
lit fram af opinberri hálfu, að
eðlilegt væri, að bættur hag-
ur þjóðarbúsins kæmi fram i
verulagum kjarabótum laun-
þegum til handa.' Því til
grundvallar lá tilsvarandi út-
tekt stQfinunarinnar á stöðu
atvinnuvega og þjóðarbús og
nú hefur verið lögð fram.
Jafnframt átti stofnunin trún-
aðarviðræður við samnings-
aðila og veitti þá ýmsar upp-
iýsingar, en á síðara stigi
s aimn i ngavi ðræðn anna komu
fram nánari uplýsingar i
formi reilcnin,gsuppgjöra til
nota við fisfcverðsákvörðun.
Þar sem hinar tölulegu heim-
ildir hafa ekki verið birtar,
ber i þessu sambandi að -iá
þann vamaigla, að eikki muni
allir leggja sömu tölulega
merkingu í orðið „verulegar“
kjarabætur.
Að sjálfsö'gðu helfiur þaðver-
ið aðalhlutverk Efinahagsstofin-
umarmnar að veita rfkisst.i'órn
upplýsingar og álitsgerðir, og
það svo verið á hennar valdi,
hvort stofnunin veitir samn-
ingsaðilum beina þjónustu.
Þeirrar þjónustu hefur verið
óskað um alllangt tímabil, eða
a.m.k. frá júnísan^f.omulaiginu
1964. Á þeim vettvangi hefur
stofinunin að sjálfsögðu komið
flram sem fræðastofnun, sem
veitir hlufilægar upplýsingar
og reikniþjónustu. Varðar
miklu, að sá trúnaður, sem
komizt hefur á í því starfi
spillist ekki.
Virðinigariyllstj
Efnahagsstofnunin
Bjarmi B. Jónsson.
FIMM VIKNA SÖFNUNIN
□ Annar hver nýr áskrifandi í fimm vikna söfn.
uninni fær jólabók að söfnuninni lokinni og sama
gildir um alla þá sem afla blaðinu þriggja nýrra
áskrifenda.
☆ ☆ ☆ v
é
H Meðal bóka sem dregið verður um eru Bókmenntagrein-
ar eftir Bjarna Benediktsson frá Hofteigi, Við sagna-
brunninn í þýðingu Helga Hálfdanarsonar. Gunnar og
Kjartan eftir Véstein Lúðvíksson, en allar eru bessar
bækur frá Máli og menningu.
H Utan frá sjó I og II bindi eftir Guðrúnu frá Lundi,
Vestur-Skaftfellingar III eftir Bjama Magnússon próf-
essor og Áratog eftjr Bergsvein Skúlason. Þessar bækur
eru m.a. frá Leiftri.
H Barnabækur frá Prentverki Odds Bjömssonar svo sem
Falinn fjársjóður og' Týnda flugvélin eftir Ármann Kr.
Einarsson Tvær Öddubækur eftir Jennu og Heiðar og
bðkin Hættuleg aðferð eftir Slaugther.
H Ævislóð og mannaminni eftir Halldór Stefánsson fyrr-
verandi albingismann, Sigurinn eftir Morris West og Morð
í Mesópótamíu eftir Asröthu Christie. Þessar bækur eru
frá Prentsmiðju Jóns Helgasonar.
H Ýmsar fle’íri bækur eru að s-iálfsögðu á boðstólum og
verður nánar skýrt frá þei’m síðar.
☆ ☆ ☆
□ Öflum blaðinu fleiri fasfra áskrifenda — eflum
blaðið sem berst fyrir rétti vinnandi fólks.
í