Þjóðviljinn - 07.05.1972, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÖÐVXUWN — Suminudagur 7. mai 1072.
Kveðja til Junior Chamber á ísafirði
Því verr gefast heimskra manna ráð,
sem fleiri koma saman
í dag, miðvikudaginn 3. maí,
barst tíl blaðsins athugasemd frá
félögum í Junior Chambers á
ísafirði, vegna viðtals, sem und-
irritaður átti við nokkra þeirra
um boðsferð til kynningar á störf-
um „vamarliðsins" í Miðnesheiði
og birtist hér í blaðinu 20. apríl.
í athugasemdum þeirra félaga
segir meðal annars:
Þar eð í viðtali því, sem við
áttum við hann, er gróflega hallað
réttu máli í birtingu Þjóðviljans
þykir okkur rétt að taka fram
eftirfarandi:
1. Það er ekki rétt eftir okkur
haft og bar aldrei á góma i
viðræðum okkar við fulltrúa
varnarliðsins, að ,Jcosmaðar-
samt væri að halda uppi vörn-
um hér og slíkur fjáraustur til
landvarna væri ekki á færi fá-
mennrar þjóðar".
2. Það er algjör uppspuni og
kom hvergi fram, að Jögð
hafi verið áherzla á mikilvægi
björgunar- og hjáiparstarfa,
sem varnarliðið gæti innt af
höndum með veru sinn! hér."
Ofangreind túlkun blaða-
MINNING:
WMM
Ásta María Sigurðardóttir
Fædd 12. febrúar 1967, dáin 29. april 1972
Lítil stúlka hlær móti sólar-
geislanum, ó að vera þriggja ára
að vori, blómin, andvarinn og
stóra sólin á himninum og svo
náttúrlega hin börnin, börnin sem
hlæja og leika sér. Og svo einn
dag verður hún veik, mamma og
pabbi verða hrygg ,sólin sézt bara
gegnum glugga, blómin anga
ekki lengur og þá er Iítil stúlka
ótrúlega létt í skapi þrátt fyrir
allt, svona er erfitt að buga þá
sem fæðast með lífsgleðina í
hjartanu. Hvílíkur kjarkur sem
býr í litlu brjósti og hún heldur
áfram að brosa þar til yfirlýkur.
Stutt varð hennar saga en allir
sem kynntust þessu barni vissu að
í henni bjó dýrmætur kjarni til
að verða að manneskju hefði henni
auðnast líf og því bera þeir nú
sorg í hjarta.
Hún hét Ásta María, dóttir
hjónanna Svöfu Svavarsdóttur og
Sigurðar Vilhjálmssonar og lézt
að heimili þeirra 29. apríl s.l.
Ásta María verður jarðsett 8. maí
næstkomandi, en bros hennar
gleymist seint.
Aðalsteinn ]ochumsson.
Ásta María Sigurðardóttvr
UHUMQQia a srnmm
aajaiffiraa
m
ía
Við bjóðum yður velkomin á Aðalskrifstofu okkar í
Ármúla 3.
Starfsfóikið þar er reiðubúið til að ganga frá nauð-
synlegum tryggingum fyrir yður og gera áætlun um
heildartryggingaþörf yðar persónulega eða fyrirtækis
yðar.
Skoðunarmenn tjóna eru sérmenntaðir á sínu sviði og
leggja kapp á að hraða uppgjöri hvers konar tjóna og
láta sanngirni ráða við ákvörðun tjónbóta.
Eftirlitsmenn á sviði eldvarna og tjónavarna veita yður
leiðbeiningar um varnir gegn slysum á vinnustöðum
og eldsvoða hjá atv'mnufyrirtækjum.
Við erum reiðubúin að leysa hvers konar vandamál
yðar á sviði trygginga, tjóna og tjónavarna.
Þér eruð velkomin í Ármúla 3. SÍMI 38500
SAMMNNUTRYGGINGAR
, mannsins á þeim upplýsing-
um okkar, að við hefðum
fengið að skoða björgunar-
þyrlu varnarliðsins og ræða
við flugmenn hennar, er að
okkar dómi blaðamennska á
mjög lágu stigi.
3. Það er einnig rangtúlkun, að
„þeir hafi rætt nokkuð um
þær hömlur, sem á þá væru
lagðar innan girðingar." Tals-
maður varnarliðsins svaraði
einungis framkominni fyrir-
spurn um klæðnað varnaliðs-
manna utan Vallarins."
Að ég hafi í einhverju hallað
rétm máli, eða sagt á annan veg
frá lunmælum þeirra um her-
stöðvaferðina hér í blaðinu en
þeim sagðist sjálfum frá eru raka-
laus ósannindi.
Bréf þeirra félaga er nokkuð
lengra, en það af því sem hér hef-
ur verið birt, og í fáu eða engu
farið réttar með en í sýnishorn-
inu hér að framan, og því ekki
eltar ólar við.
Aðeins skal hér þó drepið á
orðalag í lok athugasemdar
þeirra. Þar segir svo: „Blaðamað-
urinn gerir heldur lítið úr heil-
brigðri dómgreind landa sinna
Það sem mér befur helzt orðið
a varðandi viðtal þetta er að gera
of mikið úr dómgreind ísfirzkra
athafnamanna með því að hafa
orðrétt eftir þeim, og of mikið
úr skynsemi þeirra með því að
hafa trúað því, að þeir hefðu
manndóm til þess að standa við
töluð orð.
Að lokum þetta.
Þegar ég hafði viðtalið við ís-
firðingana voru yfirleitt fjórir til
fimm þeirra viðstaddir, en mest
átta. Fjórir þeirra voru viðstaddir
allan tímann sem viðtalið fór
fram.
Annað viðtal hafði ég svo síð-
ar þennan sama dag við einn
þeirra félaga og var enginn annar
úr Junior Chamber hreyfingunni
viðstaddur það viðtal.
Þrátt fyrir þetta votta 17 félag-
ar úr hreyfingunni að í viðtalinu
sé gróflega hallað réttu máli, og
sannast því enn hið fornkveðna
að því verr gefast heimskra
manna ráð, \em fleiri koma sam-
an.
Úlfar Þormóðsson.
Vilja veita
mannúðaraðstoð
DAR ES SAALEM 5/5 Cappel-
en utanríkisráðherra Noregs,
sem nú er í heimsókn í Tainza-
níu, ræddi í dag við Julius
Nyerere forseta landsins og
aðra ráðamenn, svo og íull-
trúa Einingarsamt^ka Afríku-
rikja og fulltrúa Frelimo,
þeirra samtaka sem berjast
fyrir þjóðfrelsi í portúgölslku
nýlendunni Mósambík. Var bar-
átta Frelimos eitt aðalumræðu-
efnið, en samtökm ráða nú
þegar mikllu landi í Mósam-
bík þar sem búa um ein miljóin
manina. Cappelen kvað norsku
stjórnina reiðuibúna til aðveita
aðstoð til frelsishreyfitnigarinnar
í samræmi við ákvörðun stór-
þingsimis, en hún yrði að vera
buindin mannúðartilgangi.
Mætti þar nefina hlutdeild í
því að byggja sjúkralhús og
skóla á hinum frelsuðu svæð-
um.
Radíófónn
hinnci
vandlátu
Yfir 20 misiminandi gerðir
á verÖi viö alfra hæfi.
Komiö og skoÖiÖ úrvaliÖ
í stærstu viötækjaverzlun
landsins.
x TiJfi'a ryzrrr
B Ú B f ÍNT
Klapparstíg 26, sími 19800
©
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúíagötu 32
MOTORSTILLINGAR
HJOLflSTILLINGAB IJjlSASTILLINGAfl ... Sirnj.
Látið sfilla i tima. 1 O 1 fl f|
Fljót og örugg þjónusta. 1 O ™ I VCjLr5'
Q L O »
eMavélcsr
Framleiði SÓLÓ-eldavélar af mörgnm stærðum
og gerðum — einkum hackvæmar fvriT sveita
bæi sumarbústaði no báta
%
— Varahlutaþjónusta. —
Viljum sérstaklega benda á nýja eerð einhólfa
eldavéla fyrir smærri báta no iitia snmobhiritaði
ELDAVÉLA.VERKSTÆÐ1
JÓIIANNS FR. KRISTJÁNSSONAR fl.F
KLEPPSVEGI 62 - SÍMI 33069
Auglýsingasími Þjóðviljans er 17500
f