Þjóðviljinn - 07.05.1972, Blaðsíða 4
4 SlÐA — ÞJOÐVTtjJINTf — Summudagur 7. maá 1972.
— Málgagn sósíalisma, verkalýðshreyfingar og þjóðfrelsis —
Útgefandl: LJtgáfufélag Þjóðviljans.
Framkv.stjórf: Eiður Bergmann.
Ritstjórar: Sigurður Guðmundsson. Svavar Gestsson (áb.).
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðustíg 19. Sími 17500
(5 línur). — Áskriftarverð kr. 225.00 á mánuði. — Lausasöluverð kr. 15.00.
„Öhuggulegt"
jyjorgunblaðinu í fyrradag finnst „óhuggulega"
langt í skattskrána. Skattborgarar vita hvers
vegna blaðinu finnst „óhuggulega” langt í ska'tt-
skrána. Það er vegna þess að blaðið hefur að und-
anfömu keppzt við að sanna að álögur yrðu gífur-
lega háar vegna skattalagabreytinga ríkisstjómar-
innar. Ekkert myndi þess vegna vera Morgunblað-
inu meira að skapi en að skattaálögur yrðu sem
hroðalegas'tar og að almenningur yrði sem allra
óánægðasitur með skatta sína. Vissulega hafa að-
standendur Morgunblaðsins líka lagt nokkuð af
mörkum til þess að svo mætti vera. Þannig hafa
þeir hvarvetna þar sem því var við komið hækkað
fasteignaskatta um helming oe æ'tlun þeirra er að
leggja sérstaka tíund ofan á útsvörin.
jþegar íhaldið hefur lagt þessar hækkanir ofan á * 1
skattana verða þeir vafalaust „óhuggulega“ há-
ir svo notað sé viðeigandi orðalag Morgunblaðsins.
En almenningur í landinu veit nú betur en áður |
hverjir það eru sem lengst vilja ganga í skattaálög-
um í þessu landi; það er Sjálfstæðisflokkurinn að
tilhlutan Geirs Hallgrímssonar.
) ...
Ekki tuku þá hátíðlega
gtjómarandstaða Sjálfstæðisflokksins hefur verið
ráðvillt og veik. Þegar ríkistjórnin hefur flutt
mál á alþingi hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins
að vísu flutt einhvers konar gagnrýni en engin
heildarmynd hefur verið á tillöguflutningi flokks-
ins. Þannig var með gagnrýni fiokksins á raforku-
tillögu ríkisstjómarinnar, eða á tillögu um brey't-
ingu á löggjöf um vátryggingastarfseimi. Þar stag-
ast talsmenn flokksins á slagorðum sem þeir hafa
lært í barnæsku í kaldastríðsskóla Heimdallar um
miðstjómarvald og aftur miðstjómarvald. En
flokkurinn á engar tillögur sjálfur. Þó ætti jafn-
stómm flokki að vera einkar auðvelt að móta heil-
legar tillögur um þýðingarmikil mál, ekki sízt þar
sem flokkurinn hefiu haft stjómaraðstöðu hér á
landi um 12 ára skeið.
jyjeginástæðan fyrir þessu getuleysi Sjálfstæðis- i
flokksins í stjórnarandstöðu er sú staðreynd
að fomsta hans er ákaflega veik og í öðru lagi sú
staðreynd að þeir sem þar keppa um valdastöður
eiga í innbyrðis erjum sem ómögulegt er að segja
hvernig lýkur. Þessar innbvrðis eriur hafa komið
fram í vaxandi mæli og þó að meirihluti valda-
stofnana reyni að halda minnihlutanum niðri hef-,
ur það ekki tekizt að fullu að undanförnu. Og svo j
sundurþykkur flokkur sem Sjálfstæðisflokkurinn I
í dag, getur ekki komið sér niður á neina stefnu
í stórmálum frá degi til dags. Það er allt sundur-
laust og gjörsamlega í brotum. Þaðan er ekkj að
búast við öðm en nöldri og það marklau.su
nöldri í garð stjómarstefnunnar. Þess vegna er
engin ástæða til þess að taka Sjálfstæðisflokkinn
hátíðlega. 1
SAMÚÐ MEÐ MORÐI
Bandaríkjamenn hafa valið sér
það hlutskipti að vera mestu
glæpamenn okkar aldar. Aðeins
tuttugu og fimm árum eftir að
morðfélagi Hiders hefur verið
eytt, stendur veröldin andspænis
því, að þetta vesturheimska stór-
veldi, sem telur sig forystuþjóð
frelsis og lýðræðis, lætur sér sæma
að strá eiturefnum yfir akra fjar-
lægrar þjóðar og fara með því
langt fram úr sjálfum nazistum,
sem sannarlega kölluðu þó ekki
allt ömmu sína, þegar um það
var að ræða að drýgja glæpi. Að
ekki sé nú minnzt á þann stríðs-
glæp að fara árum saman með
lofthernaði gegn þjóð, sem þeir
hafa aldrei sagt formlega stríð á
hendur. Á allt þetta horfir heim-
urinn í dag — og blöskrar að
vonum. Þó þarf þetta ekki að
koma neinum á óvart, sem fylgzt
hefur með þróun þessa mam-
monsríkis og vitfirringslegri af-
stöðu þess til alþjóðamála sein-
ustu áratugina (sbr. fávizku þeirra
gagnvart Kína í tuttugu ár). Hitt
er allrar athygli vert, að hér norð-
ur á hjara heims, hjá fámennustu
og vopnlausustu þjóð veraldar,
skuli vera til blaðsnepill, sem
hefur svo ríka samúð með morð-
sveitum Nixons, að skriffinnar
þess láta sig ekki muna um að
hrakyrða og hafa I hótunum við
þá landa sína, sem dirfast að tala
opinskátt um þessa plágu heims-
ins og það meira að segja á miklu
mýkra máli en stríðsbrölt Ame-
ríkana verðskuldar. En þetta gerði
Morgunblaðið bæði í forystugrein
og svokölluðu „lesendabréfi", sem
birtist í Staksteinum síðasta vetr-
ardag og má segja að þar hafi
aðstandendur þessa ómerkilegíista
blaðs á íslandi kvatt veturinn
eins og við mátti búast. Hér
—O
Áform Sovétmanna í sjávarútvegi:
47% frmleiðsluaukning ug
900 ný skip fyrír áríð 75
Á gildistíma níundu fimm
ára áæílunarinnar í Sovétríkj-
unum 1971-1975 á framieiðslan
í sovézka fisikiðnaðinutm að
aukast um 47 af h-umclraðd.
Vladimir Kamæntséf, aðstoðar-
fiskimálaráðiherra Sovétríkj-
anna, segir bannig frá pesso:
— Áætluninni um fram-
leiðsluaukninguna á árunum
1971-1975 á fyrst og fremst að
ná með aukinni framieiiðni A
öllum sviðum fiskiðnaðarins og
meiri hagkvæmni í rekstri. Þ-á
verður nýjustu tæikni beitt við
framleiðsluina og hverskonsr
nýjungum á sviði vélvæðingar
og sjálfvirkini. T.d. á að búa
öU stór og miðlungsstór veiði-
sJtip nafbúnaði til stjómar á
veiðarfærum. Fiskveiðair með
rafskautum verða stundaðar
með vörpu til veiða á mikiu
Malf. Félags
ísl. rithöfunda
Aðalfundúr Félags íslenzkra
rithöfunda var haldinn í Rvík
27. apríl sl. Formaður, Guð-
rnundur Daníelsson, minntist
nýlátiinna rithöfunda, en flutli
síðan skýrslu stjðrnar fyrir lið-
ið starfsár. Þá lagði hann til,
að d;r. Richard Beck yrði út-
nefndiur heiðu-rsfélagi, og var
það einróma sambykkt.
Við stjórnarkjör til næsta
kjörtímabiis baðst Guðmundur
Daníelsson unda,n endurkosn-
ingu, og var Þóroddur Guð-
mundsson kosinn formaður fé-
lagsins. Erlendur Jónsson var j
kosinn ritari, Jenna Jensdóttir!
gjaldkex-i og Raignar. Þorsteins- !
son meðstjómandi, en auk
þeirra á Indriðd G. Þorsteins-
son sæti í stjómimini. Varamenn
voru kjömir Guðmundur G.
Hagalín og Indriði Indriðason.
1 stjórn Rithöfundasambands Is-
lands hlutu kos-ningu Ármann
Kr. Binarsson og Gréta Sigfús-
dóttir en til vara Jóm Björns- i
son. Jón Helgason var kosinn .
fulltrúi félagsins í stjórtn Rit- I
höfundasjóös Ríkisútvarpsáns.
sjávardýpi, yfir 1000 meira
dýpi, og mun hin nýja veiði-
tækni reynast mjög þýðingar-
mikil í sambandi við veiðar á
heilagfiski og öðrum verðmæt-
um fisktegiundium sem hailda
sig á mikflu hafdýpi.
Veiðamar sjálfar, bæði á
heimastóðum og höfum úti
langt í burt, eru bara ein hlið-
in á fiskiðmaðinum. Hin er sú
að verka mikinn afla fljótt og
vel. I fiskvinnsiustöðvum í
lamdi verða rúmiega þúsund af-
kastamikiar vélar teknar i
notkun og í veiðiskipum lið-
lega 300 flökumiarvélasamstaeður.
Að auki verða yfdr 400 frysti-
og niðursuðuvélasamstæður
settar niður.
— Hvað um endumýjun
fiskiskipaflotans?
Á timiaibili núgildanidi fimm ^
ára áætlunar bœtast í flotann
liðlaga 900 ný fiskiskip með
vélarafl 300 hestöfl eða meira.
1 landi verða réist fisikiðjuver
í tuigatali og ferskífisíkeidis-
stöðvar, einikum í austustil hér-
uðum Sovétríkjanna oe mið-og
suðurhéruðum landsins. Bryggj-
ur í fiskihöfnum verða lengdar
um meira en 6 km. samanlagt.
Frystihús munu geta tekið við
allt að 100 þús. lesta afla í
lok áætlunartímaibiisdns.
— Hvar verða fiskveiðarnar
aðallega -stundaðar?
— Á úthafssvæðum, bar sem
fiskveiðar eru ekki háðar lög-
sögu strandríkja. Liðlega 86
af hundraði aílans munu fást
á þeim veiðislóðum.
svo og í stöðuvötnum inni í
landi og eldistjörnum. 1 áætl-
uninni er gert ráð fyrir að
auka veiðar í fliskeldisvöitnum
um 170 prósent.
— Hvað um hliut neytemda?
— Dreifingaraðilar fá veru-
lega aukið magn af fisiki til
söilu: nýjan fisk, reykitan og
þurrkaðan, og ýmisilegt 'annað
góðgæti úr sjó'num. í lok fimm
ára áætlunartímabilsdns á til
dæmis sala nýs fisks að hafa
aukizt um 130 af hundraði, sala
á fflö-kum um 200%, styrju um
210% oig kavíars úr styrju-
hrognum um 480 prósent.
Þetta eru einungis fáeinar
tölulegar staðreyndir. Þeigar á
heildina er litið á neyzla fisks
og fiskmetis á tímabdli fimm
ára ásetlunarinnar að aukast
um 31,4%, mdðað við árið 1970.
stendur ekki til að rökræða við
Morgunblaðið, enda er málflutn-
ingur þess ákaflega sjaldan slíkur,
að hann sé nokkurra svara verður.
En það verður að koma almehn-
ingi vel og rækilega í skilning um
hvers konar fyrirbæri það er, sem
potað er inn á svo að segja ann-
aðhvert heimili á íslandi.
Gustur.
ÍJ iJ IxKJí*
Ahnannutryggingannu
/ Reykjuvík
Útborgun ellilífeyris í Reykjavík hefst að
þessu sinni þriðjudaginn 9. maí.
Sovétríkin hafa undirritað 34
alþjóðlega samninga um ut-
hafsveiðar og fisikirannsóknir
og eiga aðild að 15 albjóðleg-
um nefndum eða ráðum sem
fjaMa ™ þessi mál. Sovézk
stjómarvöld leggja sig fram um
að efla alþjóðlegt samstarf um
'ærndun og skyns-amlega hag-
nýtingu þessara miklu auð-
linda, sem í höfunum emi fólg-
in; fullur vilji og áhuigi er á
viðhal.di fiskistofna í heims-
höBunum.
Við stundum lika veiðar á
grunnmiðum við strendur Sov-
étríkjanna og í öllum innhöf-
um sem að löndum okicar liggja,
TRYGGINGASTOFNHN RÍKISINS.
TIL SÖLU
Vauxhall Victor station árgerð 1969 ekinn
57 þús. km. Skipti á ódýrari bíl koma til
greina, einnig skuldabréf. uvw
Upplýsingar í síma 17500 kl. 9—6, og Íis'
síma 51860 á kvöldin.
RÍS-
PAPPÍRSLAMPINN
FRÁ JAPAN
Japansk) rispappírslampinn
fæst nú einni'' á fslandi 1
4 sóærðum.
Hentar hvar sem er, skapar
góða birtu og er til skrauts.
bæði einn og einn og i sam-
setningum, eins og á mynd-
inni. Athyglisverð og eiguleg
nýjung
HtSGAGNAVERZLUN
AXELS EYJÓLFSSONAR
Skipholti 7 — Reykjavík.
Símar 10117 oe 18742
RAUÐI KROSSINN
Reykjavíkurdeild.
Sumardvalir
Þeir s-em að ætla að sækj-a uvn sumardvalir fyrir
böm hjá Reykjavíkurdeild Rauða kross Islands,
komi í skrifstofuna. Öldugötu 4. dagana ofí 9.
maí kl. 9—12 og 13—18.
Tekin verða börn fæd-d á tímabilinu 1. iúní 1965
til 1. sept. 1963 ,
Ætlunin er að gefa kost á 6 vikna eða 12 vikna
sumardvöl.
Stjórn Reykjavíkurdeildar
Rauða kross íslands.