Þjóðviljinn - 21.06.1972, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓDVILJINN Miðvikudagur 21. júni 1972.
Jlann cr farinn að hrcyfa sig cf rctt cr talað við hann”. A þcssa leið
íonist SIGUKDUR GRKIÞSSON skólastjóri, Geysi,að oröi, cr við
ipuröum hann hvort við mættum ciga von á GEYSISGÖSI á sunnudag-
nn kcmur.
A myndinni sjáum við STROKK, og hann svikur engan sem kcmur að
llaukadal. gýs mcð nokkurra minúta millibili.
Frá hvcrasvæðinu við Geysi blasir við jörðin IIAUKADALUR, citt
• l/ta mcnntasctur á islandi. Þar hclt TKITUR ÍSLEIFSSON skóla.
Krægastur lærisvcina hans var ARI FROÐI. Hann kom að Haukadal 7
ira að aldri og var þar til 21 árs aldurs.
Ilaukadalur cr nú i eigu SKÓGRÆKTAR RÍKISINS, en landið kcypti
Skógræktin fyrir fc, scm Daninu Kristian Kirk gaf til cflingar skógrækt
i islandi. Skógurinn var girtur árið 19:18, og nú er þarna orðið eitt fall-
sgasta skóglendi á landinu.
Sumarferð Alþýðubandalagsins
25. júní um uppsveitir Árnesssýslu
Tryggið ykkur
f armiða í tíma
t>að er um næstu helgi sem Al-
þýðubandlagið leggur upp i sina
árlegu sumarferð, sem að þessu
sinni verður farin um uppsveitir
Árnessýslu.
Þessar ferðir hafa verið það
eftirsóttar, að Umferðamiðstöðin
hefur átt fullt i fangi með að út-
■vega bila fyrir alla þá, sem sótzt
hafa eftir að komast i þessar ferð-
ir. Svo mun áreiðanlega einnig
verða nú, að bifreiðakosturinn
takmarki þátttökumöguleikana.
Af þessum sökum viljum við
hvetja það fólk, sem langar til að
komast i ferðina, til að draga ekki
fram á siðustu stundu að tryggja
sér og sinum farmiða, þvi það
getur þá verið orðið um seinan.
Þetta þurfa þátttakendur
nauðsynlega að vita
Þátttakendur í sumarferðinni þurfa að sækja far-
miða sína fyrir kl. 22.00 — fyrir kl. tíu — á fimmtu-
dagskvöld.
Afgreiðsla á farmiðum og skráning þátttakenda fer
fram á skrifstofu Alþýðubandlagsins, Grettisgötu 3,
símar 18081 og 19835. Skrifstofan er opin samfellt frá
kl. 10—22. — frá kl. tíu að morgni til kl. tíu að kvöldi.
Verð hvers farmiða fyrir fullorðna er kr. 375, — en
kr. 200, — fyrir börn yngri en 12 ára, enda er þá gert
ráð fyrir að þau taki hálft sæti.
Ferðin er farin i mjög hóflegum áföngum og því
kjörin fyrir alla fjölskylduna, unga sem aldna.
Þátttakendur þurfa að nesta sig upp fyrir daginn.
Það verður lagt af stað kl. 8 á sunnudagsmorguninn,
en allir þurfa að mæta hálftíma áður eða kl. 7.30 á
bifreiðastæðinu norðan við Arnarhól (móti Sænska
frystihúsinu).
Karíus og
Baktus i
lifsháska
Dagana 28.-30. júni halda
samtök norrænna tannlækna
þing i húsakynnum Háskóla Is-
lands og Norræna húsinu. Sam-
tök þessi, Skandinaviska tann-
læknafélagið, voru stofnuð 1866,
en islenzkir tannlæknar hafa
verið aðilar frá 1938.
Sama dag og þingið hefst
verður opnuð tannverndarsýn-
ing i Árnagarði, og verður hún
haldin fyrir almenning.
Verður þar reynt að sýna or-
sakir og útbreiðslu tannsjúk-
dóma ásamt ýmsum varnarráð-
Víkingur
Sjómannablaðið Vikingur
S.tbl. cr komið út.
Kfni m.a.
Sjómaðurinn er fagmaður,
Loftur Júliusson skipstjóri, Að
vcrða veraldar vanur, Pétur
Björnsson frá Rifi. Ágrip af
sögu útgerðarfélags Akureyrar,
Kristján Vilhelm' Vilhelmsson.
I.júkum útgáfu Grænlandsrita
dr.jur. Jóns Dúasonar, Ragnar
V. Sturlus. Kvæði eftir Hafstein
Stefánsson. Ilugleiðingar á
stjórnpallinum, Magni Sigur-
hansson. Netfræði er sérstök
islenzk fræðigrein, Sigfús
Magnússon. Uppsögn Stýri-
mannaskólans i Reykjavik.
Opna Stýrimannaskólans.
stöfunum gegn þeim. Þarna
verða sýndar kvikmyndir um
tannvernd, og ýmsir þekktir
tannlæknar og fleiri aðilar er-
lendir og innlendir munu halda
fyrirlestra i sambandi við sýn-
inguna.
Stjórn Skandinaviska tann-
læknafélagsins er skipuð tann-
læknum frá þvi landi, sem held-
ur þing hverju sinni. Aðalmenn i
núverandi stjórn eru: Geir R.
Tómasson, formaður, Gunnar
Skaptason og Rósar Eggerts-
son.
Þátttakendur á þessu þingi
munu yerða 650-700
manns.
Frá Alliance
Aðalfundur Alliance var hald-
inn fyrir skömmu, en starfsemi
félagsins liðið ár hefur verið all-
mikil.
Haldið hefur verið uppi
kennslu i frönsku og frönskum
bókmenntum á vegum félags-
ins, haldnar hafa verið kvik-
myndasýningar og fyrirlestrar.
Stjórn félagsins var öll endur-
kjörin, en hana skipa: Magnús
G. Jónsson menntaskólakennari
formaður, Halldór Hansen
yngri,yfirlæknir/ varaformaður,
Geir G. Jónsson stórkaupmaður
gjaldkeri, Jón Gunnarsson
skrifstofustjóri ritari, Thor
Vilhjálmsson rithöfundur bóka-
vörður. 1 varastjórn eru:
Jóhann Ágústsson starfs-
mannastjóri Landsbankans og
Rafn Júliusson póstmála-
fulltrúi.
Leikstarfsemi
með
minnsta móti
Aðalfundur Bandalags
islenzkra leikfélaga fyrir leik-
árin 1970-71 og 1971-72 var
haldinn i Félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi 10. þessa mán-
aðar. Fráfarandi formaður,
Guðni Ásmundsson, Hnifsdal,
setti fundinn. Fundarstjóri var
kosinn Jón Kristinsson frá Leik-
félagi Akureyrar, en fundar-
ritarar Þórólfur Friðgeirsson
frá Fáskrúðsfirði og Trausti
Hermannsson frá Isafirði
Formaður og framkvæmda-
stjórinn, Sveinbjörn Jónsson,
gáfu yfirlit yfir störf bandalags-
ins og skýrðu reikninga þess.
Tvö ný félög bættust við á árinu:
Leikfélag Þorlákshafnar og
Leikfélagið Vaka i Borgarfirði
eystra. 1 ljós kom, að leikstarf-
semin i byggðum landsins var
með minnsta móti á siðasta
leikári. Þó voru sýnd um 30 stór
verkefni, en á undanförnum
árum hafa þau verið milli 40 og
50. I bandalaginu eru 37 leikfé-
lög og 10 ungmennafélög.
1 stjórn bandalagsins til næstu
tveggja ára voru kosin þau
Helgi Seljan, skólastjóri og
alþm., Reyðarfirði, formaður,
Jónas Árnason, rithöfundur og
alþm., Reykholti, og Jónina
Kristjánsdóttir, húsfrú, Kefla-
vik. Sveinbjörn Jónsson hefur
verið eini starfsmaður banda-
lagsins undanfarin 20 ár, en það
er aðeins hálft starf.
Tólf „hnísur”
Þessar glaðværu stúlkur á meðfylgjandi mynd, sem allar eru i skátaflokknum HNISUR, komu ný-
lega á skrifstofu Hjálparstofnunar kirkjunnar og afhentu kr. 6.865,00til hjálparstarfs. Stúlkurnar höfðu
haldið hlutaveltu i Hagaskólanum 27. maí, allir miðar höfðu númer og færðu kaupanda vinning, en
flestra vinninganna höfðu stúlkurnar aflað sem gjafa úr verzlunum.
Nöfn stúlknanna talið frá vinstri til hægri, efri röð: Gyða Karlsdóttir, Hafdis Jóhannsdóttir, Sigriður
Sóley Kristjánsdóttir, Sigriður ólafsdóttir, Guðrún Þórhallsdóttir, Salóme Asta Aranardóttir og Maria
Haraldsdóttir, flokksforingi.
Fremri röð: Elin Margrét Westlund, Solveig Eiriksdóttir, Karitas Gunnarsdóttir, Kristjana Sigurðar-
dóttir og Margrét ólafsdóttir.
RÓKOKKOSTÓLAR
Nokkrir RÓKOKKOSTÓLAR fyrirliggjandi.
RUGGUSTÓLAR i gömlum stil.
RENAISSANSE-STÓLAR
KRISTJÁN SIGGEIRSSON H/F.,
Laugavegi 13 •— Sími 25870.