Þjóðviljinn - 07.07.1972, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. júli 1!>72
bréf til
blaðsins
Á AÐ EYÐA ÖLLU
LÍFI í VÍETNAM?
Nixon fjöldamorðingi reynir nú
að friða hinn vestræna heim með
þvi að segja að friður verði kom-
inn á i Viefnapt innan nokkurra
mánaða. Hvers vegna má þá ekki
semja um vopnahlé strax'í Á að
eyða bæði gróðri og mannlifi i
þessu hrjáða landi fyrst?
Hversvegna kveður Þjóðviljinn
ekki fastar að orði i skrifum sin-
um um þetta strið? Hvers vegna
var það ekki forsiðufrétt, þegar
Nixon glæpaforingi sagði i
Leningrað, er hann skoðaði dag-
bók litillar stúlku sem dó úr
hungri i siðari heimsstyrjöldinni,
að þetta kæmi ekki aftur fyrir?
Við höl'um heyrt um gróðureyð-
ingarherferðir, sem hafa verið
farnar i mörg ár, en nú heyrum
við ekki um þær afleiðingar, sem
eiturefnin hala halt á fólk; þó eru
áhrilin þau m.a. að tala barna
fæddra undvana og vanskapaðra
barna helur aukizt mjög, einnig
l'ósturlát og ófrjósemi.
Ilvernig væri, að Ujóðviljinn
hvessti nú penna sinn, og notaði
þetta eina vopn okkar Islendinga
þannig að mannsbragur væri að?
Sólveig Einarsdóttir.
Fóstra óskast
Staða fóstru við Geðdeild Barnaspitala
Hringsins, Dalbraut 12, er laus til um-
sóknar. Staðan veitist frá 15. ágúst n.k.
Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist skrifstofu
rikisspitalanna Eiriksgötu 5 fyrir 22. júli
n.k.
lteykjavik, (>. júli 1972
Skriístofa rikisspítalanna
EINKARITARI
Rafmagnsveitur rikisins óska að ráða
stúlku til einkaritarastarfa sem fyrst og
eigi siðar en 15. ágúst nk.
Skilyrði er, að hún hafi stúdentspróf eða
hliðstæða menntun, og sé vön vélritun.
Laun samkvæmt launakerfi rikisstarfs-
manna, 15. launaflokkur.
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Starfsmannadeild
Laugavegi Il(>
lteykjavik.
/■11"
z‘
m TILBOÐ
Tilboð óskast i eftirtaldar vélar og tæki,
sem eru i eigu Vegagerðar rikisins viðs-
vegar á landinu:
1 jarðýta, Deutz DK 100
2 ýtuskóflur, I.H.C. TI) (>
1 vélskóíla, North West á þriggja öxla bíl
1 Beco bilkrani
Ýmsar ógangfærar steypublöndunarvél-
ar, rafstöðvar og lofthitarar.
Upplýsingar hjá Véladeild Vegagerðar
rikisins, BorgartúniS, þriðjudaginn 11. og
miðvikudaginn 12. þ.m. simi 21000.
Kauptilboð skulu hafa borizt skrifstofu
vorri, Borgartúni 7, fyrir kl. 17.00 mið-
vikudaginn 19. júli.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
MJF DaQOIpDQQQKÁ]
Lúðrasveit Reykjavíkur 50 ára
Lúðrasveit Kcykjavikur er 50
úra um þcssar niundir, cn hún
var slufnuö 7. júli 1022.
Eyrsti furmaður svcitarinnar
var (íisli (iuðmundsson, en nú-
vcrandi formaður er Björn K.
Einarsson.
Myndin er af núvcrandi stjórn
Lúðrasveitarinnar, en hana
skipa auk Björns R. þeir
Magnús Sigurjónsson vara-
l'orm., Ólafur Oislason gjald-
keri, Eysteinn Jónsson ritari og
Eyjóifur Melsted meðstjórn-
andi.
Kaupfélag Borgfirðinga
Kaupfélag tsfirðinga
Kaupfélag Skagfirðinga
Kaupíélag Þingeyinga
Kaupfélag Vopnfirðinga
Kaupfélag Héraðsbúa
Kaupfélag Austur-Skaftfellinga
Kaupfélag Árnesinga
Kaupfélag Suðurnesja
Kaupfélagiö Ingólfur, Sand-
gerði
Kaupfélag Hafnfirðinga
4.1 skýrslunni var að finna: I
fyrsta lagi upplýsingar um
rekstrarafkomu hinna 50 verzl-
ana á árinu 1970; i öðru lagi
upplýsingar um launakostnað
og veltu verzlananna á árinu
1971; i þriðja lagi mjög itarlega
áætlun um rekstrarafkomu
verzlananna á árinu 1972. Var
hver einstakur útgjaldaliður
kannaður svo gaumgæfilega
sem föng voru á, og fylgir
skýrslunni itarleg greinargerð.
5. Niðurstaða áætlunarinnar varð
sú, að nær 42 milj. króna mundi
á skorta til þess að verzlanir
þessar næðu hallalausri af-
komu árið 1971. Var þa tekin til
greina 15.5% raunveruleg sölu-
aukning milli áranna 1970/1971,
en 13.6%) áætluð söluaukning
1971/1972. Er ljóst, að sú hækk-
un álagningar, sem leyfð hefur
verið á þessu ári, mun hrökkva
skammt i þá átt að eyða þess-
um halla.
Það er ekki ætlunin með þess-
um linum að hefja blaðaskrif um
verðlagsmálin almennt, og þvi
skal þessum skrifum ekki að sinni
beint út i frekari umræður um
niðurstöður skýrslunnar.
bað ber að harma, að þeir opin-
berir aðilar, sem ábyrgð bera á
framkvæmd verðlagseftirlits,
skuli ekki fyrir löngu hafa gengizt
fyrir söfnun og útgáfu aðgengi-
legra upplýsinga um verzlun
landsmanna. Væru þess konar al-
mennar verzlunarskýrslur fyrir
hendi. þá mundi margt liggja
ljósara fyrir, sem löngum veldur
nú tortryggni og deilum.
Þegar samvinnufélögin hafa
forgöngu um söfnun og úrvinnslu
upplýsinga um þróun og afkomu i
smásöluverzlun, þá gegnir það
mikilli furðu, að fulltrúar laun-
þega i verðlagsnefnd skuli ekki
telja þær þess virði, að þeirra sé
að einhverju getið.
Guðsþakkargj afir
Slöðugt verður þess vart, að
lólk ber góðan hug til
llallgrimskirkju i Keykjavik.
Nú þegar farið er að taka niður
vinnupallana við turninn, er
eins og menn séu farnir að átta
sig betur á hinu væntanlega út-
liti. Sá turn á eltir að setja svip
á Keykjavik um langan aldur,
jafnvel þótt einhverntima verði
byggð st;erri hús en nú i ná-
grenni kirkjunnar. Nú er eftir
að vita. hvort vonir manna um
flutning hátiðakantötu i Hall-
grímskirkju árið 1974 rætast. Aö
þvi ættu allir siingelskir menn
að stefna. að unnt verði að nota
þetta mikilfenglega hús á þvi
hcrrans ári.
Nýlega kom austlirzkur sjó-
maður með tvenn áheit til
kirkjunnar, annað 1500 kr., og
hitt 2000 kr. Eitt áheit var frá
N.N. 1000 kr., og loks frá
ónefndri konu 2000 kr.
Að siðustu ber þess að geta, að
kona ein hér i bæ sem ekki vill
heldur láta nalns sins getið, af-
henti mér 100.000- kr. (eitt
hundr. þúsund) i einu lagi, og lét
svo um mælt, að þvi fylgdi til-
hugsun til foreldra sinna og
manns sins. er hún vildi minn-
ast með þessum hætti. Bygging
Hallgrimskirkju væri sér hjart-
ans mál. ..Kornið fyllir mæl-
inn ", segir máltækið. Engin gjöf
er svo litil. að ekki muni um
hana, og engin svo stór, að
hennar sé ekki þörf. Framtiðin
mun verða þakklát þeim. sem i
dag hugsa djarft og stórt.
Ka>rar þakkir fyrir allar gjaf-
ir og góðan hug.
Jakob Jónsson.
prestur
Verðlagsmál
Hinn 16. júni s.l. samþykkti
verðlagsnefnd nokkrar hækkanir
á smásöluálagningu. Við það
tækifæri lögðu fulltrúar launþega
i nefndinni fram bókun sem jafn-
framt mun hafa verið komið á
framfæri við fjölmiðla i formi
lréttatilkynningar.
I fréttatilkynningunni segir
m.a. ,.Þeir (þ.e. fulltrúar laun-
þega) hafa þvi talið að þörf væri
ýtarlegrar athugunar á afkomu
verzlunarinnar með rannsókn á
hæfilegu úrtaki reikninga verzl-
unarfyrirtækja fyrir árið 1971 áð-
ur en þvi væri slegið föstu, and-
stætt öllum likum, að nauðsyn
bæri til verulegrar hækkunar
álagningar.
Þrátt fyrir marg-itrekaðar ósk-
ir okkar um slika athugun og góð
orð um að hún færi l'ram áður en
ákvörðun yrði tekin i verðlags-
nefnd um breytingu á hundraðs-
hlutaálagningu er nú lagt til af
hálfu fulltrúa rikisstjórnarinnar
og að hennar tilstilli að hækka
smásöluálagningu um 6—10%,
sem ef samþykktyrði myndi leiða
af sér 1—3% almenna vöruverðs-
hækkun til neytenda.
Meö hliðsjón af framangreindu
teljum við að slik tillaga sé að svo
komnu byggö á algerlega óviðun-
andi athugun og þvi ekki fram-
bærileg að sinni.
Lýsum viö þvi algerri andstöðu
okkar við framlagða tillögu um
hækkun hundraðshlutaálagning-
ar nú og leggjum til að ákvörðun
um breytingar á henni verði
Irestað þar til fullnægjandi og
umbeðnar upplýsingar um af-
komu smásöluverzlunarinnar
liggja fyrir".
Af orðalagi tilkynningar þess-
arar virðist mega ráða, að um-
'angsmikil gagnasöfnun og
áætlanagerð kaupfélaganna og
Sambandsins um hag og afkomu
smásöluverzlunar i landinu hafi
með öllu farið fram hjá fulltrúum
launþega i verðlagsnefnd. i þvi
tilefni skal eftirfarandi framtek-
ið:
1. Um mánaðamótin febrúar/-
marz 1972 var komið á fram-
færi við verðlagsstj, ýtarlegri
skýrslu, er bar yfirskriftina
..Athugun á stöðu smásölu-
verzlunar með matvöru". Mun
verðlagsstjóri þá þegar hafa
látið nefndarmönnum i verð-
lagsnefnd i té eintak af skýrsl-
unni.
2. Skýrslan var aðefni til athugun
á afkomu 50 kaupfélagsbúða
viðs vegar um land. Á árinu
1970 veltu búðir þessar 941 milj.
króna en 1087 m. kr. árið 1971.
Er talið, að skýrslan taki til
rúmlega helmings af allri mat-
vöruverzlun kaupfélaganna.
;! Að skýrslugerðinni stóðu þessi
kaupfélög:
Kaupfélag Reykjavikur og ná-
grennis