Þjóðviljinn - 07.07.1972, Qupperneq 12

Þjóðviljinn - 07.07.1972, Qupperneq 12
DIÚDVIUINN Föstudagur 7. júli 1972 Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinnar eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavikur, simi 18888. Kvöldvarzla lyfjabúða vikuna 1.-7. júli er i Vesturbæjarapóteki og Háaleitisapóteki. Nætur- varzla er i Stórholti 1. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Simi 81212. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. Fj öldahandtökur í Saigon Stjórnin i Saigon beitir nú öllum brögðum til að brjóta á bak aftur mótstöðuna gegn stjórnar- farinu i Suður-Vietnam. Frá þvi í mai hafa 1500- 2000 Suður-Vietnamar verið handteknir, einkum stúdentar, sem grunaðir eru um að vera i and- stöðu við stjórnina, og einnig rithöfundar sem dirfast að láta álit sitt á stjórnarfarinu opinber- lega i ljósi. Ungur suðurvietnamskur rit- höfundur, Trung að nafni, var handtekinn á heimili sinu i Saigon fyrir skömmu. Lögregluþjónarnir höfðu enga handtökuheimild, en sögðu að Trung væri tekinn höndum ?vegna skrifa sinna, og hand- tökuheimild væri óþörf þar eð neyðarástand rikti i landinu. Ritstörf Trungs hafa mestan part verið þýðingar úr ensku og frönsku á greinum og bókum um Vietnamstriðið, og er hann var handtekinn vann hann að þýðingu bókarinnar The Indochina Story. Þýðingin hafði birzt að hluta i Saigon-blaði, vandlega ritskoðuð. En Trung er engan veginn sá einisem handtekinn hefur verið i Suður-Vietnam siðustu mánuði. Talið er, að a.m.k. 1500- 2000 manns hafi verið hand- teknir i Saigon frá maibyrjun og fluttir i fangelsi á eyjunni Con Son. Astæðan fyrir þessum fjöldahandtökum er sú, að Suður-Vietnamar hafa mjög óttazt árás á borgina, og þvi fékk lögregian frjálsar hendur til að handtaka hvern þann sem grunaður var um að vera and- vigur rikisstjórninni. Talsmaður rikisstjórnarinnar i Saigon sagði nýlega, að enn hefðu ekki margir verið hand- teknir i Saigon, en þó nokkur fjöldi i héruðunum i kring. Hann áleit að um 30 væru handteknir i Saigon á viku og tilgangurinn væri að uppræta andstöðuna gegn stjórninni. Nú sem fyrr eru það aðallega stúdentar, sem teknir eru til fanga. Fulltrúi stúdentasam- takanna segir að siðan i október i fyrra hafi verið handtekinn 51 stúdent, og flestir þeirra hafi gegnt ábyrgðarstörfum i sam- tökunum. Fyrir stuttu var formaður stúdentasamtakanna við Van Hanh búddaháskólann i Saigon tekinn fastur, og nokkrum dögum siðar handtók lögreglan fimm aðra stúdenta við háskólann. Stúdentarnir eru sjálfir ekki vissir um hversu margir þeirra sitja nú bak við lás og slá, þar eð margir stúdentar hafa neyðzt til að fara huldu höfði, og ekki er vitað hvort lögreglan hefur haft uppi á þeim. En það eru ekki aðeins stúdentar sem teknir eru hönd- um. Mikill fjöldi félaga i kaþólsku ungmenna- hreyfingunni og i samtökum sem berjast fyrir umbótum i fangelsismálum hafa og verið fangelsaðir. t siðasta mánuði réðst lögreglan inn i miðstöð fangelsishreyfingarinnar og tók alla, sem þar voru, fasta, þar á meðal voru tveir af forsvars- mönnum hreyfingarinnar. Næstu daga á eftir voru allir handteknir sem komu til hússins, einnig þrjár nunnur sem áttu þar leið um. Þeim var reyndar sleppt skömmu siðar, og sögðu þær að lögreglan hefði hótað þeim pyndingum ef þær „segðu ekki allt”. Ef handtökur þessar fá ekki beygt mótstöðuhreyfingarnar Saigon-stjórnin stefnir nú að þvi að setja i fangabúðir alla þá sem andvigir eru stjórnar farinu i S-VIetnam. svokölluðu, hefur stjórnin i Saigon ákveðið að loka háskólunum og kveðja alla karl- menn til herþjónustu. En með þvi að hafa sem allra flesta i herþjónustu á stjórnin auðvelt með að hafa hemil á andspyrnu- hreyfingunum , segja stúdentarnir. Erlendur maður, er reyndi að hafa uppi á rithöfundinum Trung, sem fyrr er getið, sneri sér til öryggislögreglunnar i Saigon og spurðist fyrir um afdrif Trungs. Hann fékk eftir- farandi svar: „Við getum full- vissað yður um að hér eru hvorki rithöfundar né blaða- menn. Fólk er ekki tekið til fanga i Vietnam fyrir það sem það skrifar. Þetta er frjálst land.” Helmut Schmidt lík legasti eftirmaður Schillers BONN 6/7. Það var til- kynnt opinberlega í Bonn i dag, að f jármála- ráðherrann Karl Schiller myndi láta af starfi sínu þann 7. júli n.k. Lausnarbeiðni Schillers var rædd á rikisstjórnar- fundi og Willy Brandt kanslari ákvað að fara þess á leit við Heine- mann forseta, að Schiller verði veitt lausn frá embætti. Schiller fór fram á að sér yrði veitt lausn frá embætti i siðustu viku, þar eð hann sætti sig ekki við þá ákvörðun stjórnarinnar að reyna að hindra að erlent fjár- magn bærist inn i landið i miklum mæli. 1 Bonn er talið að fráhvarf Schillers frá stjórninni sé mikið áfall fyrir Brandt kanslara, sem býr sig undir kosningarnar i haust. Liklegasti eftirmaður Schillers er hinn 53 ára gamli varnarmála- ráðherra Helmut Schmidt. Schmidt var i opinberri heimsókn i Tyrklandi.þegar fréttin um lausnarbeiðni Schillers barst út, og sneri hann þegar til Bonn og átti viðræður við Brandt skömmu eftir heimkomuna. Helmut Schmidt. Brown fullur LONDON. Fyrrverandi utan- rikisráðherra Breta, George Brown, hefur fengiö tilkynningu um að mæta fyrir rétti I scptember vegna ölvunar við akstur. Fyrir nokkrum vikum ók hinn drykkfelldi lávarður á vegg i London og létu lögreglumenn hann blása í poka af þvi tilefni. Brown mótmælti þessari niður- lægjandi meðferð á sér og kvaðst vera bláedrú. Visindalegar rann- sóknir á likama lávarðarins leiddu þó i ljós að talsvert áfengismagn var i blóðinu. Fylgi dönsku flokkanna KAUPMANNAHÖFN Gallup- skoðanakönnun i júnimánuði sýnir að borgaraflokkarnir njóta stuðnings 49% kjósenda, en Sósialdemókratar og Sósialiski alþýðuflokkurinn um 45%. Aðrir flokkar hafa um 6% atkvæða samtals, en þeir eiga ekki fulltrúa á þingi. Sósialdemókratar fengu 37,3% atkvæða i kosningunum i fyrra, en hafa nú, samkvæmt Gallup, um 35%. Sósialiski alþýðu- fiokkurinn, sem styður minni- hlutastjórn sósialdemókrata að nokkru leyti, hefur nú 10% atkvæða, en fékk rúm 9 i kosningunum i fyrra. Hagur McGovems vænkast WASHINGTON 5/7. Mögu- leikar McGoverns á aö verða útnefndur forseta- efni demókrata í kosning- unum i haust hafa nú auk- irt verulega. Alrikisdómstóll komst að þeirri niðurstöðu á miðvikudag, að ákvörðun kjörbréfanefndarinnar um að svifta McGovern 151 full- trúa bryti i bága við stjórnar- skrána. Samtimis var úrskurður undirréttar ógiltur. Þá vantar McGovern aðeins 16 1/2 atkvæði til að hafa þau 1509, sem nauðsynleg eru til að verða útnefndur frambjóðandi demó- krata, og taliðer i Washington, að -honum verði ekki skotaskuld úr að afla sér þeirra. Að upplesnum dómsúrskurði tilkynntu lögfræðingar demó- krataflokksins, að þeir sættu sig ekki við þessa málalyktun og yrði málinu skotið til hæstaréttar. Harðar árásir á Hué SAIGON 6/7. Hersveitir þjóðfrelsishersins gerðu miklar sprengjuárásir á gömlu keisaraborgina Hué í dag. Árásirnar eru þær hörðustu síðan i Tet-sókn- inni 1968. Herstjórnin i Saigon segir þó að lítið tjón hafi orðið og AÐEINS einn maður látið lifið. Arásirnar voru gerðar skömmu eftir að fallhlifarhermenn og skriðdrekasveitir Suður-Viet- nama réðust inn i bæinn Quang Tri, sem er um 50 km fyrir norðan Hué. Hersveitir S-Vietnama mættu litilli mótspyrnu i Quang Tri og hafa þær nú meiri hluta borgarinnar á sinu valdi. Nú hafa Suður-Vietnamar endurheimt um fjórða hluta Quang Tri héraðs, en þjóðfrelsisherinn hefur haldið héraðinu i tvo mánuði. Flugv élarr æningj ana langaði til Síberíu SAN FRANCISCO 6/7. Flugvél af gerðinni Boeing 737 var rænt á miðviku- dagskvöld skömmu eftir að hún lagði af stað frá flug- vellinum i Sacramento i Kaliforniu. Ræningjarnir, Dimitrov Aleksev og Michael Asmanoff af búlgörskum ættum, skipuðu flug- stjóranum að fljúga til Siberiu með millilendingu i San Fran- cisco. Á flugvellinum i San Francisco beið flugvélin i 6 tima meðan ver- ið var að týna saman 800 þúsund dollara, sem ræningjarnir kröfð- ust i lausnarfé fyrir farþegana. Þegar afhenda átti lausnarféð réðust FBI-menn inn i vélina og tókst að ná henni á sitt vald. t átökunum biðu báðir flugvélar- ræningjarnir bana, þar að auki einn farþeganna og þrir aðrir særðust.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.