Þjóðviljinn - 19.07.1972, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 19.07.1972, Blaðsíða 3
F r amreiðslumeim: tilboð um kauplækkun Framreiðslumenn í veitingahúsum hafa boðað verkfall frá og með aðfara- nótt sunnudag. Þeir hafa haft lausa samninga síðan í maí en ekkert gengið í samkomulagsátt í við- ræðum þeirra við veitinga- menn, en hinir síðarnefndu hafa krafizt að dómi fram- reiðslumanna, að kaup þeirra lækki um 9,62%. i gær var haldinn sátta- fundur í deilunni með deiluaðilum, en þar talið ólíklegt að nokkuð sam- komulag næðist. Hér fer á eftir yfirlýsing frá framreiðslumönnum: „1 tilefni fréttar um kjaradeilu framreiðslumanna og veitinga- manna, sem birtist i Morgun- blaðinu hinn 16. þ.m.,telur Félag framreiðslumanna rétt að eftir- farandi komi fram: 1. Hafsteinn Baldvinsson, hrl., sem borinn er fyrir fréttinni er lögfræðingur veitingamanna en ekki framreiðslumanna eins og segir i fréttinni. 2. Fyrirsögn fréttarinnar virðist sýna það sjónarmið blaða- Framreiðslumenn vinna mikið á kvöldin og um helgar. mannsins að krafa framreiðslu- manna um 50 þúsund króna kaup- tryggingu á mánuði sé mjög óbil- gjörn. Það teljum við hins vegar ekki og bendum i þvi sambandi á að meginhluti vinnu framreiðslu- manna er kvöld-, nætur- og helgi- dagavinna. Kauptrygging sú sem krafizt er samsvarar kr. 288,46 á klukkustund og efumst við um að margar stéttir iðnaðarmanna mundu vilja vinna gegn þvi jafn- aðarkaupi þann vinnutima sem við höfum. 3. Varðandi deilu þá sem vikið er að i niðurlagi fréttarinnar er það að segja að framreiðslumenn telja að samið hafi verið um nú- verandi tilhögun á árinu 1968. Veitingamenn krefjast nú breytinga á henni á þá lund að þjónustugjald sem nú er 15% miðað við verð veitinga til al- mennings verði 11,75% af heildar- verði veitinga, sem felur i sér lækkun á launum framreiðslu- manna um 9,62% frá þvi sem nú er.” F.h. Félags framreiðslumanna, Öskar Magnússon formaður. Læknar, lyfsalar, verktakar og kaupsýslumenn efstir Skattskrá Reykjanesum- dæmis var lögð fram í gær. Hæsti gjaldandi í umdæm- inu er Jóhann Ellerup lyf- sali í Keflavík, sem greiðir kr. 2.331 þús. kr. í tekju- skatt og 592 þús. kr. í út- svar. Næsthæsti gjaldandi er Hafsteinn Júliusson, byggingaverktaki í Kópa- vogi, með 1.398 þús. kr. í tekjuskatt og 379 þús. kr. í útsvar. i Hafnarfirði var heildarupp- hæð tekjuskatts 183 miljónir kr. og gjaldendur 2718. Heildarútsvar var 133 miljónir kr. og gjaldendur 3340. Hæstu gjaldendur þar eru: (tekjuskattur er talinn fyrr siðan útsvar). Jónas Bjarnason, lseknir 989 þús. 303 þús. Sigurður Kristinss. málarameist. 905 þús. 257 þús. Jón A. Gestsson bifr.stjóri 696 þús. 257 þús. í Kópavogi var heildarupphæð álagðra útsvara 142 miljónir kr., og gjaldendur 3609 talsins: Hæstu gjaldendur eru: Hafsteinn Júliusson, verktaki 1.389 þús. 379 þús. Ketill Axelsson, kaupmaður, 800 þús. 236 þús. Kjartan Jóhannss., læknir, 215. þús. 651 þús. i Keflavík voru þessir hæstu gjaldendur: Jóhann Ellerup, lyfasli, 2.331 þús. 259 þús. Kjartan Ólafsson læknir, 731 þús. 220 þús. Arnbjörn Ólafsson læknir, 671 þús. 212 þús. i Garðahreppieru hæstu gjald- endur: Sveinn Magnússon lyfsali, 941 þús. 251. þús. Stefán Skaptason læknir, 912 þús. 271. þús. Steinar Waage, kaupm. 862 þús. 229 þús. bau sveitarfélög sem notfærðu sér heimildina til 10% álagningar á útsvörin voru 6 talsins i Reykja- nesumdæmi: Kópavogur, Hafn- arfjörður, Keflavik, Seltjarnar- neshreppur, Njarðvikurhreppur og Grindavikurhreppur. Frádráttur var almennt veittur elli-og örorkulifeyrisþegum, og þeir, sem stundað höfðu nám i skóla i 6 mánuði eða meir á árinu, fengu 10 þús. kr. lækkun útsvars. Einnig var veittur frádráttur vegna veikinda, útgjalda gjald- enda vegna menntunar barna innan 16ára, og annarra ástæðna, sem lögin heimila. gg HLUTAFJÁRSÖFNU]\IN Hlutafjársöfnun Þjóðviljans I hlutafélagið Prent h.f. vegna þátttöku blaðsins i Blaðaprenti h.f. er enn ekki lokið og eru þeir sem ætla að vera með i þvi átaki hvattir til þess að tilkynna þátt- töku hið fyrsta. Ennfremur eru þeir, sem þegar hafa skrifað sig fyrir hlutafé en ekki greitt það að fullu, vinsamlega beðnir um að gera það við fyrstu möguleika. Staðan i samkeppni kjör- dæmanna verður birt i næsta sunnudagsblaði og eru þvi um- boðsmenn úti á iandi minntir á að gera skil fyrir þann tima. Notfæra sér ekki álagsheimildir í skattumdæmi Norðurlands eystra munu engin sveitar- félög í Þingeyjar- sýslum, að Húsavik meðtalinni,notfæra sér heimildir skattalag- anna til að innheimta fasteignagjöld og út- svör með álagi. Þetta kom fram í viðtali, sem blaðið átti við Jóhann Hermannsson, starfs- mann umdæmisskrif- stofunnar á Húsavík. Skattskrá Rey kj avíkur árið 1972 Skattskrá Reykjavikur árið 1972 liggur frammi i Skattstofu Reykjavikur Tollhús- inu við Tryggjavötu og Gamla Iðnskóla- húsinu við Vonarstræti frá 19/7 til 1/8, n.k., að báðum dögum meðtöldum, alla virka daga, nema laugardaga frá kl. 9.00 til 16.00. 1 skránni eru eftirtalin gjöld: 1. Tekjuskattur. 2. Eignarskattur. :í. Kirkjugjald. 4. Kirkjugarðgjald. 5. Slysatryggingargjald atvinnurek- enda. 6. Lifeyristryggingargjald atvinnu- rekenda. 7. Iðgjald til atvinnuleysistrygginga- sjóðs. 8. Slysatryggingagjald vegna heimil- isstarfa. 9. Tekjuútsvar. 10. Aðstöðugjald. 11. Iðnlánasjóðsgjald. 12. Iðnaðargjald. 13. Launaskattur. Innifalið i tekjuskatti og eignarskatti er 1% álag til Byggingarsjóðs rikisins. Sér- stök nefnd á vegum Borgarstjórnar Reykjavikur hefur annazt vissa þætti út- svarsálagningar. Jafnhliða liggja frammi i Skattstofunni yfir sama tima þessar skrár: Skrá um skatta útlendinga, sem heimilis- fastir eru i Reykjavik, og greiða forskatt. Aðalskrá um söluskatt i Reykjavik, fyrir árið 1971. Skrá um landsútsvör árið 1972. Þeir sem vilja kæra yfir gjöldum sam- kvæmt ofangreindri skattskrá og skatt- skrá útlendinga, verða að hafa komið skriflegum kærum i vörzlu Skattstofunnar eða i bréfakassa hennar i siðasta lagi kl. 24.00 hinn 1/8 1972. Reykjavik, 19. júli 1972. Skattstjórinn i Reykjavik. ALÞYÐUBANDALAGIÐ REYKJANESKJÖRDÆMI Sumarferð Alþýðubandalagsins i Reykjaneskjördæmi verður farin um næstu helgi. Að þessu sinni verðurfarið um Fjallabaks- leið og tjaldað i Eldgjá. Lagt verður af stað frá Félagsheimili Kópavogs kl. 8 á laugardags- morgun og áætlað að koma heim aftur um kl. 23 á sunnudag. Góður timi gefst þvi til gönguferða um Eldgjá og að Ófærufossi. Óbyggðaferðir Alþýðubanda- lagsins eru fastur liður i starf- semi Kjördæmaráðsins, hefur þátttaka jafnan verið góð og ferðirnar verið mjög ánægjuleg- ar. Til þess að unnt sé að tryggja góða hópferðabila þurfa pantanir að berast i dag eða á morgun og i siðasta lagi fyrir hádegi á föstu- dag i sima 40853 eða 41279. Þátt- taka er öllum heimil, en flokks- menn eindregið hvattir til að fjöl- menna. LEIKLISTARAHUGAFÓLK Stofnfundur samtaka áhugafólks um leiklistarnám verður haldinn i NORRÆNA HÚSINU sunnudaginn 23. júli kl. 15,00. Á fundinum mæta fulltrúar íslands er sóttu þing norrænna leiklistar- nema sem haldið var i Danmörku 3. til 8. júli s.l.. Skorað er á allt áhugafólk um leiklistarnám á íslandi að mæta.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.