Þjóðviljinn - 19.07.1972, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 19.07.1972, Blaðsíða 7
fi. SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur. »9. júli 1972 ,,....l>arna kom sólin upp úr hafinu, eins og eldhnöttur, stráði gulli um allan sjó og laust eldi jökui og fjallatoppa, kliður fuglsins hófst að nýju eftir skamma þögn iágnættisins, enn einn morgunn ijómaði yfir landi og sjó....... f skálanum þar sem hausunar- og flatningsvélasamstæðan er, standa einn til tveir við að mata færiband en fimm eru við vélarn- ar að hausa fletja, gella og hand- langa, þeir eru allir i sjóstökkum. barna er Þórður, þeir kalla hann stundum Þórð þögla, hann litur aldrei upp frá verki og skrafar fátt. Það veit vist enginn hvað býr undir stakknum hans annað en dugnaðurinn og trúmennskan sem getur ekki dulizt nokkrum manni. Svo er þarna Dúi frá Árnanesi, sikvikur og kátur, hefur stundað búskap i Arnanesi með bróðúr sinum langan aldur og þeir hafa unnið þjóðinni það til gagns að hreinrækta hið fræga reiðhesta- kyn sem kennt er við Arnanes, en Dui hefur lika róið fjölmargar vertiðirfráHornafirði eða unnið i landi, svo að vigstöðvarnar hafa verið tvær, og hann hefur jafnan haft sigur, sloppið úr greipum dauðans við bátstapa og úr snjó- flóði, og sjálfsagt ennþá oftar þó ekki væri þvi flikað við mig, enda lét Dúa það betur að fitja upp á gamanmálum nokkrum. Þvi er enda trúað af sumum, að hann eigi sér þá eina hlið. En svo bauð Dúi mér heim i Árnanes að kvöld- lagi, þegar veðrið var hið blið- asta, sem orðið getur á þessum árstima, maður skynjaði aðkom- andi vor, ekki aðeins vegna gróðurnálar i túni og stöku far- fugls, sem lét til sin heyra,heldur vegna ilms, sem kemur i loftið næst á undan hinum eiginlega gróðurilmi og bláleitrar birtu, sem rikir yfir eyjum sundum jökli og fjöllum þessarar austur- skaftfellsku byggðar. Eftir kjarnamáltið og brennivinsstaup handa gestinum, fara bræðurnir, þessir gömlu hrossajarlar, með mér út i hag- ann, þar sem stóðið dreifir sér, vel haldið eftir mildan vetur, og forustuhryssan, sem er nær þritugu en tvitugu, reisir tigulegt höfuð sitt og liður framhjá á svif- mjúkum gangi. Undir ávölum lin- um kvikar nýtt lif, eitt dýrmætast lif á tslandi, ef það verður hestur, og mynd hinnar stoltu drottning- ar islenzka reiðhestastofnsins lið- ur inn i bláleita birtu kvöldsins. Næst var stóðhesturinn leiddur úr húsi, landsfrægur góðhestur og svo óður fjörgapi, að með ólikind- Þriðji hluti útvarpserindis eftir Gunnar Valdimarsson frá Teigi Fyrsti hluti birtist 30. júnl, annar hluti 7. júli um er. Þó er hann svo ljúfur og þjáll, að auðsveipnin við knapann drottnar yfir máttugu eðli stóð- hestsins. Hér er um að ræða eina reiðhestakyn hérlendis, sem hreinræktað hefur verið án minnstu iblöndunar marga áratugi, og hafi hrossadrottningin i Árnanesi ekki eignazt hestfolald þetta vor, þá er framtið hins islenzkra hreinræktaða reið- hestakyns falin milli fótanna á þessum eldrauða stóðhesti þeirra Arnanesbræðra. Næst gekk Dúi með mér upp á háan hól hjá Arnanesbæjunum. Hann sagði mér, að af þessum hól væri fegurst útsýn yfir Horna- fjörð, og kenndi mér að þekkja nokkra stafi i stafrófi fegurðar- innar. Hann var nýbúinn að klæða sig úr gula sjóstakknum, þvo af honum slorið og tala blautlega um konur að hætti vermanna. Annað var úniform hans allt frá bernskudögum, hitt var ávani hans. En þarna á hólnum fannst mér Guðjón i Arnanesi taka á sig nokkuð aðra mynd, likast þvi sem hann væri kominn i kirkju i sunnudagafötunum sinum, þai sem hann stóð og virti fyrir sér enn einu sinni þann stað, þar sem fegurðin nær hámarki að hans og margra annarra dómi. Þar sem jökulinn bar við rauð- bláan kvöldhimin byrjaði risa- tunga hans að teygja sig i byggð- ina. Undan rótum hennar sprett- ur fram dökkleit móða, Horna- fjarðarfljót, lifæð og harmafljót, sem mætir með jötunafli hamför- um Atlanzhafsins þar sem fund- um þeirra ber saman i Horna- fjarðarós og eitt mesta brim verður á tslandi. Sund og eyjar sandar og byggð mókti nú i þessari lognkyrru blámóðu, hvassir tindar norður- fjalla stóðu upp i himininn en hillingar á söndum og fjöllin yfir Suðursveit eins og háar brúnir yf- ir djúpum alltsjáandi augum byggðarinnar. — Við Dúi héldum niður af hólnum, kviðþungar ær mættu okkur i leit að þurru náttbóli. Sauðburður var senn að hefjast i Árnanesi og þá var enn einu sinni vertið lokið hjá Dúa. Hann fór svo með mig i heimsókn að Austurhól til Tryggva, sem hausaði stórfiskinn i skemmunni okkar, og þaðan út á Höfn. Hann þakkaði af litillæti ÞEIR SEM SKAPA ÞIÓDARAUDINN E3 Miðvikudagur. 19. júli 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIDA 7. ,,Það var hinn undursmái fiskur loðnan, sem kom mönnum til að reisa verstöð á þessum stað....”. fyrir að ég skyldi vilja skoða þetta. Ég get ekki fullþakkað Dúa og þjóðin stendur i skuld við hann. Þegar vélarnar þrýtur, tekur mannshöndin við, þannig er það i skemmunni við flatningsvélina, stórfiskinn verður að hausa og fletja af handafli. Þetta eru held- ur engin smákóð, ná hér um bil með skoltinn upp að hökunni á hausaranum, Tryggva á Austur- hól, þegar hann er búinn að lyfta þeim svo að sporðurinn nemur við gólf. Við flatningsborðið standa tvær aldnar kempur. Sveinn Mikael Einarsson frá Sléttaleiti i Suðursveit er annar, hann er lág- vaxinn, en þykkur undir hönd og bringubreiður. Hann kann þvi ósköp illa, ef ekki berst mikið að af stórfiski, þvi hann hefur vanizt þvi;áð láta sér aldrei falla verk úr hendi. Þegar allur stórfiskurinn er búinn úr kösinni er ekki annað að gera en vona, að i næstu 6 tonn- um verði sá stóri nægur til þess að halda þeim við efnið, þar til þarnæsti bill kemur og svo koll af kolli, unz allt hefur bjargazt og verið gert að verðmætum. Meðan Sveinn biður, starir hann þögull út i loftið, augun undarlega djúp og blá, og maður skynjar, að þegar hann starir svona, sér hann inn i löngu liðna atburði, sem stundum valda djúpri hryggð, en stundum spegla þessi augu allan góðleika heims- ins. Núna beinast þau e.t.v. að áttæringi á hvolfi i brimgarðinum við Bjarnarhraunssand i Suður- sveit. Sjálfur er hann þarna i brimrótinu, ungur, og stoltur, og þeir komast á kjöl eða bjargast með öðrum hætti, nema tveir sem drukkna þarna fyrir augunum á þeim, en einn þeirra sem kemst af er slasaður. E.t.v. sér hann núna ieit sina að manni, sem lenti i snjóflóði, og fund á liki hans. Augun eru fjarræn og full af hryggð. En nú kemur grjóðnóg stórfiski, svo að Sveinn frá Slétta- leiti starir ekki lengur út i fjarsk- ann, litur ekki einu sinni upp fyrr en stórfiskurinn, sem kom með þessum bil, er allur flattur, en þá Pálssonar á Kviskerjum og þvi föðurbróðir hinna landsþekktu Kviskerjabræðra. Á hádegi var sandurinn að baki, og þessar sex manneskjur með sjö hesta leggja þá ótrauðar á jökulinn, ójafnan og sprunginn, svo mikið þurfti að höggva og jafna. í fyrstu gættu konurnar og Þorsteinn hestanna, en þeim varð biðin köld og vildu hreyfa sig og vinna sér til hita. Tók þá Jón að sér að gæta hest- anna, en litlu siðar heyra þeir, sem höggva, að jökullinn brestur með válegum dyn og vegsum- merki láta ekki á sér standa. Þar sem Jón stóð áður með hestana, hefur myndazt hyldjúp gjá og marga tugi metra á breidd og lengd. Aðeins tveir hestar sjást á lifi á stökum jaka, en sprungur á alla vegu, og þar eru aðrir tveir hestar klemmdir til dauða. — Reynt var að kanna svæðið sem bezt, en siðan gengu þeir félagar i að bjarga hestunum yfir sprung- ur og gátu að siðustu hrundiðþeim i Jökulsá, og syntu þeir til lands, en hinir hrjáðu ferðalangar héldu til byggða. Næsta dag fannst ekki annað en lifandi hestur i jökul- skúta og annar dauður. Þrátt fyrir mikla leit var það fyrsti apríl vorið eftir, sem Björn á Kviskerjum fann lik bróður sins. Hann hafði setið á öðru póst- koffortinu, með húfuna fyrir and- litinu, þegar dauðann bar að, og i þessum sama ishelli var póst- hesturinn. En Sveinn sér lika á landi minninganna, þegar hann hrinti á flot með nágrönnum sin- um báti i óskaleiði á Utmánuð- um, þegar þröngt var orðið i búi, og þeir tvi- eða þrihlóðu bátinn af þorski. Þá var gaman að sjá gleði og feginleik á hverju andliti, og sú gleði getur glampað i þessum augum enn þann dag i dag. Hinn öldungurinn, sem stendur við flatningsborðið, er af nokkuð öðrum toga. Hann heitir Rafnkell Þorleifsson, tröllvaxinn og kempulegur svo af ber, hefur frá ungaaldri haft mannaforráð og stórum stil. Smátt og smátt varð hér svo verstöð fyrir báta af öll- um útgerðarplássum á Austur- landi, siðan fór heimabátum fjölgandi, og nú er svo komið, að öll útgerð héðan byggist á heimabátum”. Sjálfur varð Keli formaður hjá öðrum, tvitugur að aldri, en 1929 keypti hann 12 tonna bát, Ingólf Arnarson, og átti hann þvinær tuttugu ár, og iðulega voru saltaðar upp úr þessum báti 160—180 tunnur af sild, og fóru þá svona 40% i verksmiðju. Rafnkell átti og stjórnaði fiskibátum i fjörtiu ár. Ut og inn Horna- fjarðarós stýrði hann fleyi sinu fjörtiu vetrarvertiðir án þess að honum hlekktist á eða nokkuð yrði að skipshöfn hans. Mikið hef- ur þessi maður dregiö i bú þessi fjörtiu ár, þó hann segist aldrei hafa verið nema i meðallagi afla- sæll. Nú stendur þessi maður hér við flatningsborðiö og fletur stór- fisk, sem aðrir hafa aflað og siglt með gegnum ósinn. Hávaðinn frá f.latningsvélasamstæðunni lætur illa i eyrun. Keli formaður hvarflar frá flatningsborðinu, fær sér i pipu og lætur sig um stund dreyma út á hafið, þar sem hann var frjáls maður i fjörtiu ár. Þar var ekki hávaðinn, utan vinalegt púst vélarinnar i bátnum, og þar var loftið svo ferskt, að maður varð að teyga það dýpra og dýpra. Úti á hafinu fann maður þennan undarlega frið og andlegu velliðan. Það var svo lognkyrrt núna og báturinn lá á nösum, hlaðinn sild eða þorski. Þarna kom sólin upp úr hafinu, eins og eldhnöttur, stráði gulli um allan sjó og laust eldi jökul og fjalla- toppa, kliður fuglsins hófst að nýju eftir skammæja þögn lág- nættisins, enn einn morgun ljómaði yfir landi og sjó, en það var of morgnt til þess að konan og börnin væru farin að róta sér. Gaman yrði að koma heim með hlaöinn bát og hugann fullan af gleði. — Það er dautt i pipunni, en Einn stafur i „stafrófi fegurðarinnar”, borgaris á ióni Jökuisár á Breiðamerkursandi kemur hlé, og Sveinn fer aftur að stara inn i hulu, sem aldrei greið- ist, en kallar án afláts á svar. — Ðó hann Jón strax eða lifði hann lengi i þessum jökulhelli? Það er sept. 1927. Pósturinn hafði komið austan frá Höfn i Hornafirði, með póstkoffortá ein- um hesti og tekið sér gistingu i Suðursveit nóttina fyrir þennan örlagadag og leggur ótrauður á Breiðamerkursand að morgni, liklega hins áttunda, þrátt fyrir foraðsrigningu. t för með honum slást, auk Sveins, tvær konur, Þór- unn frá Sléttaleiti og Steinunn frá Breiðabólsstað, og svo þeir Þor- steinn á Sléttaleiti og Jón Pálsson kennari, sem tveimur árum áður fylgdi R. Stuart á Hvannadals- hnjúk, en Jón var bróðir Björns kann þvi ekkert of vel að vera orðinn daglaunamaður. Það veld- ur honum engum áhyggjum, þó stutt verði i stórfiskinn og hlé gef- ist til þess að taka menn tali. Og það er enginn smávegis fróðleik- ur, sem þessi aldni garpur býr yf- ir. Það er sagan um alla myndun og uppbyggingu Hafnarkauptúns frá upphafi vega og þar til nú, að athafnalif og þróun bendir til blómlegs kaupstaðar i næstu framtið. „Það var hinn undursmái fisk- ur loðnan er kom mönnum til að reisa verstöð á þessum stað”, segir Rafnkell. „Beituskortur hamlaði útgerð á stóru svæði hér eystra áður fyrr, en loðnan var árviss hérna, svo að ausa mátti henni upp, og hana rak á fjörur i Tryggvi, hausarinn, hefur verið iðinn við kolann, borðið orðið fullt, og þó hefur Sveinn beitt sinni iðni og æfðu handtökum all- an timann. — Tja, hann kann þvi lika bezt að hafa eitthvað fyrir stafni. Keli tekur drjúga rispu, og það sópar af honum, svo fær hann mér hnifinn og biður mig að brýna. Hann segir, að aldrei hafi hnifur bitið jafnvel hjá sér fyrr, hinsvegar varð honum aldrei afls vant um dagana. Að loknu dagsverki fer kempan aldna heim með blöndnum til- finningum;hann hefur að visu tek- ið þátt i að vinna afla, sem aðrir höfðu sótt i greipar hafsins, en það var ekki lik tilfinning þeirri að veiða fiskinn og færa björgina i bú, eins og hann gerði i fjörtiu ár. Tekst Yietnömum að standa af sér sprengjuárásir Bandarikj amanna? Viðtal við Phan Hoi, forstöðumann upplýsingaskrifstofu suður-vietnömsku byltingarstj ómarinnar i Osló Hvað er eiginlega að ger- ast í Víetnam um þessar mundir? Mun þjóðfrelsis- herinn halda sókninni- á- fram, eða hafa sprengjuá- rásir Bandaríkjamanna vaidið þjóðfrelsishernum og Norður-Víetnömum of miklum búsifjum til þess aö af þvi geti orðið? Norska blaðið Orienter- ing beinir m.a. þessum spurningum til Phans Hois 1 forstöðumanns upplýsinga- skrifstofu byltingarstjórnar Suður-Vietnam, sem stað- sett er i Noregi. — Ilvað hefur þú að segja um hin nýju vopn sem Bandarikja- mcnn scgjast hafa tckiö i notkun i Vietnam og eiga að vera ná- kvæmari cn hin gönilu? Sprcngj- um er stjórnað af laser-gcislum, þannig að nú scgjast þeir hafa fulla stjórn á þvi hvar sprengjan Icndir. — Bandarikjamenn hafa notað þessi vopn lengi. Astæðan fyrir þvi að þessu er flaggað núna er sú, að Bandarikjamenn eru að reyna að breiða yfir glæpaverk sin i Vietnam. Það er ekki um að ræða neinar nákvæmnissprengj- ur. Einkum nú i stjórnartið Nix- Bons hafa Bandarikjamenn varpað sprengjum á hvað sem er. Sænski sendiherrann i Hanoi hefur m.a. bent á, að með að blása upp frétt- ir um laser-sprengjur er verið að reyna að telja fólki trú um að vissri nákvæmni sé beitt, eins- konar kerfi i allri vitleysunni. Tökum dæmi: Fyrir tveim vik- um var sagt, að Bandarikjamenn hefðu sprengt i loft upp raforku- ver, og að Nixon hefði gefið skip- -5 anir um að ekki skyldi varpað sprengjum á stifluna við raforku- verið. Þetta er ekkert annað en svivirðilegur áróður. t mörg ár hafa Bandarikjamenn haldið uppi kerfisbundnum árásum á stiflur og áveitukerfi. i stjórnartið John- sons voru t.d. 644 stiflur og á- veitukerfi eyðilögð. Og eftir að Bandarikjamenn hófu á ný sprengjuárásirnar á Vietnam og þar til i júni i ár hafa 50 stiflur og áveitukerfi verið eyöilögð af sprengjuflugvélum Nixons. Frá. 10.4—24.5. i ár voru 142 sprengjuárásir gerðar á á- veitukerfi við Rauðafljót og á- Iveitukerfi við árnar Thai Binh, Ma og Lam. Sérstaklega hefur héraðið i kringum Thai Binh orðið illa úti. Ef flóð verða á þessu svæði munu miljónir manna láta lifið. Og auðvitað hafa Banda- rikjamenn sérstaklega beint á- rásum sinum að þessu svæði. Og á viðgerðarmenn við stifl- urnar er varpað nálasprengjum. — Hvaða afleiðingar munu þcssar kerfisbundnu sprengju- ;i árásir á stiflur og áveitukerfi 'hafa fyrir vietnömsku þjóðina? — t grein sem prófessor La- coste skrifaöi i Le Monde er fjall- að um einmitt þetta atriði. Hann Isegir, aö áframhaldandi sprengjuárásir á stiflur og á- veitukerfi landsins muni valda geysilegum flóðum. Miljónir manna munu látast, og afleiðing- arnar gætu orðið verri en þó kjarnorkusprengju yrði varpað á landið. En að nota kjarnorku- sprengju er alltof augljóst. Með þvi að koma af stað flóðum á sléttlendinu getur Nixon sagt að þetta sé allt byggt á misskilningi. — Kn gctur vietnamska þjóðin staðið af scr ofsóknirnar? Gctur þjóðfrcisishreyfingin unnið hern- aöarlegan sigur? — Það verður gert út um þetta strið á vigvellinum eins og öll önnur strið. Og ef menn hafa íylgzt með gangi mála upp á sið- kastið sjá þeir að við munum vinna hernaðarlegan sigur. Við skulum taka nokkur dæmi um gang mála: Abrams hershöfðingi sagði áð- ur en við tókum Quang Tri, að héraðinu skyldi og yrði haldið hvað sem það kostaði. Allar hern- aðaráætlanir Nixons væru byggð- ar upp i kringum þetta hérað. En þrátt fyrir það að Bandarikja- menn vörpuðu geypilegu sprengjumagni á héraðið tókst þeim ekki að hindra frelsun þess 1. mai. Saigon-herinn er nú i miklum vanda staddur. Þá skortir bæði liðssveitir og hugsjónir. I leyni- legri skýrslu, sem Henry Kissing- er hefur látið gera, segir að ár- lega gerist34% fótgönguliða i Sai- gonhernum liðhlaupar. Og i þriðja hluta alls hersins er hlut- fallstala liðhlaupa hærri en 50, Þessi skýrsla er frá 1969; í dag eru tölurnar enn hærri. Með þetta i huga má skilja sið- ustu árásir Bandarikjamanna. — iicfurðu nýlcgar tölur um sprcngjuárásir Bandarikja- manna? — Ég get nefnt að siðustu tvo daga 22. og 23. júni vörpuðu 100 B—52 sprengjuflugvélar 3000 tonnum af sprengjum á héruðin i kringum Hué. Það sýnir kannski styrk þjóðarinnar hve litlu þessar árásir hafa fengi áorkaö. Við munum berjast þar til við náum takmarki okkar. Ekkert i heimin- um er meira virði en frelsi og sjálfstæði. Og ég veit að við vinn- um. — llversu margar bandariskar flugvclar hafa verið skotnar niður upp á siðkaslið? — Fram að 25.6. hafa verið skotnar niður 3688 bandariskar flugvélar. Nákvæmar tölur frá Suður-Vietnam höfum við ekki, en margar Phantom F—4 vélar hafa verið skotnar niður þar. — Hve margir hafa látið lifið i striðinu fram að þessu? — Frá byrjun striðsins er fjöldi þeirra, sem orðið hafa fyrir eitr- unum, særzt eða látizt, rösklega tvær miljónir. — Hvað hefurðu að segja um svokailaða „vietnamiseringu” striðsins? —- Hún hefur gjörsamlega mis- tekizt. Það sýna gjörlega siðustu aðgerðir Bandarikjamanna. Sprengjuárásir voru aftur hafnar og tundurduflum komið fyrir i höfnunum. Þetta, og það að með töku Quang Tri hefur okkur tekizt að frelsa rösklega tvær miljónir manna, er allt sem ég hef að segja um „vietnamiseringuna”.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.