Þjóðviljinn - 19.07.1972, Blaðsíða 12
VOBWUINN
Kvöldvarzla lyfjabúða vik-
una 15. júli til 21. júli er i
Reykjavikur Apóteki og
Borgar Apóteki. Næturvarzl-
an er i Stórholti 1.
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara
Læknafélags Reykjavikur,
simi 18888.
Miðvikudagur. 19. júii 1972
Slysavarðstofa
Borgarspitalans er opin all-
an sólarhringinn. Simi 81212.
Kvöld-, nætur- og helgidaga-
vakt á heilsuvernarstöðinni.
Simi 21230.
ÆSISPENNAJNDI
■ VAR LÖGREGLURÁÐHERRANN
JAFNTEFLISSKÁK \ SVINDLBRASKARI?
Missti Spasski af vinningsleið?
Það var aldeilis lif í
tuskunum í f jórðu einvígis-
skákinni sem tefld var í
Laugardalshöllinni í gær.
Fischer hafði hvítt og
byrjaði, eins og menn
höfðu reiknað með, — að
leika kóngspeði fram um
tvo reiti. Spasskí svaraði
með Sikileyjarvörn og er
það i fyrsta skipti sem hann
beitir henni gegn Fischer.
Fischer tefldi sitt upp-
áhaldsafbrigði með 5. Bc4.
Spasskí virtist hinsvegar
vera öllum hnútum
kunnugur og lék hratt og
örugglega. Lék hann fyrstu
13. leikina á um það bil 5
mínútum. 13. leikur hans
bauð upp á peðsfórn sem
Fischer þáði. Eftir peðs-
fórnina urðu biskupar
Spasskis mjög virkir.
Spasskí eyddi allmiklum
tíma á 19. leik sinn og afréð
svo að skipta upp á hrókum
á d-línunni. Ýmsir stungu
upp á að leika Be3 í þeirri
stöðu, en ekki er gott að
segja hvort sú staða hefði
gefið meira á svart. I 23.
leik voru menn farnir að
tala um að Spasskí ætlaði
að fá lítið fyrir snúð sinn,
en eftir að Fischer lék í 24.
h3 virtist allt í einu sem
sókn Spasskís ætlaði að
verða óstöðvandi. Virðist
því vera dálítið álitamál
hvort ekki hefði verið betra
fyrir Fischer að láta peðið
á c5 og losna þannig við hið
ógnandi biskupapar svarts.
Eins og skákin tefldist er
nær öruggt að Spasskí
hefur einhverstaðar átt
öruggan vinning.
En í hamagangnum
undir lokin missti Spasskí
skákina niður í jafntefli,
skiptist upp á öllum
mönnum og stóðu
kapparnir eftir með sín
fjögur peðin hvor og mis-
lita biskupa tefldu þeir alls
45. leiki áður en þeir
sömdu, en jafnteflið hafði
þá blasað við alllengi.
Þessi skák er örugglega
ein sú fjörugasta sem þeir
félagar hafa teflt saman.
Þessi taflmennska virtist
einnig hafa mjög örvandi
áhrif á áhorfendur og það
einum of,því að hvað eftir
annað birtist á skerminum
alvarleg aðvörun frá skák-
stjóra um að hafa þögn. Er
leitt til þess að vita að
áhorfendur skuli ekki geta
haft hljóð. Á hitt ber svo
aftur að lita að trébekkir
þeir sem eru aftast í
salnum eru alveg afleitir
og brakarog brestur í þeim
við minnstu hreyfingu.
Maður verður þó áð vona
að allt verði i lagi og
fimmta skákin fari fram á
fimmtudag eins og til
stendur því að sannarlega
er gaman fyrir skák-
unnendur að eiga von á
öðrum eins sviptingum og í
dag.
Hvítt Robert Fischer
Svart Boris Spasski
Maudling lögreglumálaráðherra Breta segir
af sér vegna uppljóstrana fjárglæframanns
|lemmm: ■
LONIION — Reginald Maudling
lögreglumálaráöherra i rikis-
stjórn brezka ihaldsflokksins
hefur sagt af sér embætti og
hafnaö boöi Heaths um aö taka aö
sér annaö ráöuneyti til bráöa-
birgöa. Robert Carr forseti Neðri
málstofu brezka þingsins hefur
verið bcöinn um aö gegna em-
bætti lögreglumálaráðherra jafn-
framt embætti sinu i þinginu.
Lausnarbeiðn Maudlings
kemur i kjölfar vitnaleiðslu
vegna gjaldþrots kaupsýslu-
manns og arkitekts að nafni John
Paulson sem á sinum tima lét af
hendi háa fjárhæð við tvo brezka
þingmenn og háttsettan em-
bættismann. Paulson lét að þvi
liggja að hann hefði komið þvi t
leiðar að beiðni Maúdlings er þ
var þingmaður stjórnarandstöð
unnar að leikhúsi nokkru væn
gefið mikið fé. Maudling var þa
jafnframt yfirmaður fyrirtæk
sem Paulson átti.
Vildi hann ekki þiggja laun en
átti að hafa mælzt til þess að íé
yrði látið renna til leikhússins, en
kona hans Maudlings var
verndari leikhússins. Þessar að-
dróttanir Paulsons að fyrrver-
andi starfsmanni hans, sjálfum
innanrikisráðherranum, hafa
leitt til þess að rikissaksóknari
hefur krafizt lögreglurannsóknar
i málinu. Telur Maudling sig ekki
geta gegnt embætti yfirmanns
Keginald Maudling, fyrrverandi
lögreglumálaráöherra.
allra lögreglumála meðan rann-
sókn fer fram, enda þótt hann
telji framkomu sina ekki hafa
verið gagnrýnisverða.
jAndstaða gegn EBE
!í Noregi vaxandi
1. e4
2. Rf3
3. d4
4. RXd 4
5. Rc3
6. Bc4
7. Bb3
8. Be3
9.0-0
10. f4
11. Bxd4
12. a3
13. Dd3
14. e5
15. fxe5
16. Rxb5
17. BxRc5
18. Khl
19. De2
20. Hadl
21. HxHdl
22. Rd6
23. Bc4
24. h3
25. Dg4
26. Dxh4
27. Dg4
28. Rb5
29. Rd4
30. Rdf3
31. DxBf3
32. Dc3
33. bxc3
34. Hd7
35. Kgl
36. Be2
37. Kfl
38. Bh5
39. HxHc7
40. a4
41. Kd2
42. Kd3
43. c4
44. Bf7
45. c5+
Og hér
jafntefli.
c5
d6
cxd4
Rf6
Rc6
e6
Be7
0-0
a6
Rxd4
b5
Bb7
a5
dxe5
Rd7
Rc5
BxBc5
Dg5
Had8
HxHdl
h5
Ba8
h4
Be3
Dxe5
g5
Bc5
Kg7
Hh8
BxRf3
Bd6
DxDc3
Be5
Kf6
Bxc3
Be5
Hc8
Hc7
BxHc7
Ke7
f5
Be5
Kd6
Bg3
I Þrátt fyrir mikinn fjáraustur EBE-manna
I tapa þeir fylgi. Nœr helmingur kjósenda
■ er nú orðinn andstæður aðild að EBE.
I
I
I
I
I
I Furðuleg „vinstrimennska” frjálslyndra og
n alþýðuflokksmanna á ísafirði:
[Fara
i
KAUPAAANNAHÖFN —
Áhrifamaður í norsku
þjóðarhreyfingunni gegn
aðild Noregs að Efnahags-
bandalaginu var í heim-
sókn hjá dönskum sysfur-
samtökum í siðustu viku.
Var skipzt á upplýsingum
um baráttuna í báðum
löndum.
Umræðurnar um EBE haía,
einkum i Noregi, ekki orðið svo
lognmollulegar sem áhangendur
aðildar gerðu ráð fyrir. Það hafa
orðið skarpir árekstrar og þeir
hafa hjálpað fólki til að átta sig á
stöðu sinni. t Noregi var veitt fé á
fjárlögum til upplýsingastarf-
semi um EBE, en stuðningsmenn
aðildar hafa fengið 5 sjöttu hluta
fjárins og þjóðarhreyfingin orðið
að láta sér nægja einn sjötta. En
fólkið skiptist allt öðru visi.
Tvær skoðanakönnunar-
stofnanir hafa gert athuganir á
afstöðu fólks til inngöngu i EBE
undanfarna mánuði i Noregi.
Beita þar mismunandi aðferðum
og fá nokkuð ólikar niðurstöður,
en þó verður að draga svipaða
ályktun af báðum.
Gallup sýndi i mai-mánuði að
35% Norðmanna væru fylgjandi
EBE en 41% á móti. t júni voru
stuðningsmenn orðnir 37% og
andstæðingar 44%.
Samkvæmt athugunum Fakta
voru i mai 26% með EBE og 38%
á móti. t júni voru tölurnar
orðnar 34% með og 49% á móti.
Þeir sem hingað til hafa verið
óvissir eru nú að sKipta sér á milli
,,með” og ,,móti” og virðast mun
fleiri velja siðari kostinn.
isæng
þeir
með
✓
í
i
■íhaldinu?
sömdu keppendur um
Ólafur Björnsson.
6 ÁRA SUNDAFREKS MAÓS
FORMANNS MIVNZT
PEKING — Fyrir helgina var
þess minnzt meðhátiðasundi i
Kumming-vatni i Peking að 6 ár
voru liðin frá þvi Maó formaður
þreytti 15 kilómetra langt sund
sitt niður ána Jangtse við Wuhan.
Hefur það stundum verið talið
eins konar rásmerki fyrir menn-
ingarbyltinguna sem hófst
skömmu siðar. Þúsundir kin-
verskra ungmenna tóku þátt i
hátiðasundinu, og var synt kná-
lega i reglulegri 15-faldri röð.
Þrátt fyrir mikla hitasvækju
höfðu hundruð þúsunda af áhorf-
endum safnazt'ágrundirnar niður
við vatnið i norðvestur-hluta Pek-
ing þar sem áður voru keisaraleg
leiksvæði á Ming- og Manchutim-
unum. Ekki er getið um nein slys.
ísland—USA
24:15
íslendingar unnu Banda-
rikjamenn i landsleik í
handknattleik í gærkveldi
meö 24:15.
Nánar i blaöinu á
morgun.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
Sjálfstæðismenn,Alþýðuflokks-
menn og Samtök frjálslyndra eru
nú i óða önn við að reyna að
mynda meirihluta i bæjarstjórn
tsafjarðar, 0g benda allar
likur til þess að af þeim samruna
verði. A sunnudagskvöld héldu
frjálslyndir fund, þar sem sam-
þykkt var að taka þátt i myndun
meirihluta með ihaldinu og
alþýðuflokksmönnum, og í gær-
kvöldi voru fundir hjá báðum
hinum siðarnefndu. Helzt virðist
vera fyrirstaða gegn samstarfinu
hjá ihaldinu.
Eins og skýrt hefur verið frá
hér i blaðinu hefur þessi
bræðingur verið að svipast um
eftir nýjum bæjarstjóra, *>g sá
sem hafður er i sigtinu er Bolli
Kjartansson, núverandi bæjar-
ritari i Kópavogi. Hefur hann
komið vestur til að lita á að-
stöðuna, ef svo mætti segja. Nú-
verandi bæjarstjóra, Jóni Guðl.
Magnússyni,hefur þó ekki verið
sagt upp, en það er hald manna að
þessir flokkar ætlist til þess, að
hann hafi þar sjálfur frumkvæði,
m.ö.o. að reynt verði að hrekja
hann úr starfi.
Það furðulega er, að þetta allt
gerist á sama tima og viðræður
eru byrjaðar milli vinstri
flokkanna. t þeim viðræðum hafa
alþýðuflokksmenn verið tilleiðan-
legir til samvinnu um nefndakjör,
en alls ekki um meirihluta. — Þá
er ekki siður furðuleg afstaða
frjálslyndra, ef það er haft I huga,
að i stefnuskrá þeirra er birtist
fyrir siðust bæjarstjórnarkosn-
ingar sagði: „Það óskynsamleg-
asta, sem Isfirðingar gætu nú
gert, væri að fela sjálfstæðis-
mönnum umboð sinna mála.” Ári
seinna leggja þessir menn ofur-
kapp á að komast i sæng með
ihaldinu!!
Samkvæmt venju á fundur að
vera i bæjarstjórninni á fimmtu-
dag, en dagskrá hans hafði ekki
verið boðuð fyrir tilsettan tima i
dag, svo einhverra tiðinda er að
vænta.
gg
Sovézkir
á brott?
KAIRO — Talið er að Sadat
Egyptalandsforsetihafi beðið
Sovétstjórnina um að kveðja
heim sovézka hernaðarráð-
gjafa úr Egyptalaiídi.
Egypzki forsætisráðherrann
var i eins dags heimsókn i
Moskvu um slðustu helgi. Er
talið að Sadat hafi skýrt mið-
nefnd Arabiska sósialista-
bandalagsins frá þessu i dag,
en bandalagið er eini leyfði
stjórnmálaflokkurinn i land-
inu. Svo mikið er vist að mið-
nefndin var á mikilvægum
fundi i dag. Nasser fyrrum
forseti Egypta samdi við
Sovétstjórnina um hernaðar-
samvinnu i janúar 1970 og
fóru hernaðarráðgjafar að
koma til Egyptalands eftir
það. Gizkað er á að tala
þeirra nú sé milli 10 og 20
þúsund.
aftökur
SEÚL — I siðustu viku voru tekn-
ir af lifi með hengingu tveir menn
sem dómstólar i Suður-Kóreu
höfðu fundið seka um njósnir i
þágu Norður-Kóreu. Hafði annar
maðurinn beðið dauðadags sins i
þrjú ár. Var hann fyrrverandi
blaðamaður, en hinn hafði setið á
þingi Suður-Kóreu á sinum tima.
I vikunni voru 3 aðrir norður-kór-
verskir njósnarar dæmdir til
dauða i Seúl.