Þjóðviljinn - 11.08.1972, Síða 3
Föstudagur 11. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3.
ARKITEKTAR:
r
BJOÐAST TIL AÐ LAGFÆRA
BERNHÖFTSTORFUNA ÓKEYPIS
Stjórn Arkitektafélags ts-
lands hefur sent forsætisráð-
herra, Ólafi Jóhannessyni, bréf
þar sem farið er þess á leit að
rikisstjórnin veiti félaginu leyfi
til viögeröa á húsum Bernhöfts-
torfunnar. Vill stjórnin fá leyfi
handa þeim, er hafa áhuga á
varðveizlu húsanna, til þess að
hreinsa til umhverfis þau, lag-
færa þau og mála að utan, rikis-
sjóði að kostnaðarlausu.
Væri þar með tryggt, að flutn-
ingi húsanna eða niöurrifi yrði
frestað um sinn.
Bréfinu fylgir greinargerð um
Bernhöftstorfuna, þar sem fram
kemur rökstuðningur félagsins
fyrir afstöðu þess, en greinar-
gerð þessi hefur þegar verið
send til menntamálaráðherra
og fulltrúa borgarstjórnar. Þar
kemur m.a. fram, að A.t. er
mótfallið flutningi húsanna til
Arbæjarsafnsins. Minnir stjórn
félagsins á' samkeppnina sem
haldin var á s.l. ári og nauðsyn
þess að stuðla að auknu lifi i
hjarta borgarinnar — en þetta
lif er smám saman að „deyja
út".
Ennfremur er bent á menn-
ingarsögulegt gildi húsanna
eins og þau eru nú i sveitt sett,
og þá staðreynd, að alls staðar
erlendis telja yfirvöld sér oft
skylt að varðveita gömul hús og
hverfi.
Stjórn A.t. fer fram á skjóta
afgreiðslu, enda ekki seinna
vænna, þar eð sum húsanna eru
komin að falli. Fróðlegt verður
að sjá hvort stjórnvöld taka
þessu kostaboði eða humma
fram af sér og gera borgina enn
snauðari af hlýlegum stöðum
þar sem unnt er að fá tilbreyt-
ingu frá malbiki og steypuklef-
um þjónustuaðila. Væri ekki úr
vegi að fólk styddi kröfur A. t.
og notaði tækifærið til þess að
mótmæla fyrirhugaðri tengi-
braut um Túngötu, Amtmanns-
stfg og Grettisgötu.
atg.
6500 fyrirtœki sýna í Leipzig í haust
Kjölbreytt vefnaðarsýning verður á Leipzigarmessunni i haust og i
sambandi við hana fjölmargar tizkusýningar.
Haustkaupstef nan í
Leipzig veröur haldin dag-
ana 3.—10. september
næstkomandi. — Um 6500
framleiðendur frá 50 lönd-
um munu hafa sýningar-
deildirog ná þæryfir meira
en 270 þúsund fermetra
svæði. Sýningin fer fram í
hinum mörgu stóru sýn
ingarskálum á tæknisvæð-
inu og auk þess í 16 stórum
sýningarhúsum i miðborg
inni. —
I vöruflokknum kemisk grunn-
efni og efnaverksmiðjur sýna 800
framleiðendur fra 26 löndum á 31
þúsund fermetrum.
Vefnaðar- og skógerðarvélar
sýna framleiðendur frá 18 löndum
á 13 þúsund fermetrum. —
Sýningaraðilar frá 12 löndum
bjóða prentvélar á haustkaup-
stefnunni i Leipzig.
Frá 17 löndum verða súningar-
deildir i lækningatækjum og bún-
aði fyrir rannsóknarstofur. — 25
þúsund fermetra sýningarsvæði
er notaö fyrir margskonar
flutningatæki frá 19 löndum. 14
lönd bjóða trésmíðavélar.
Neyzluvörur á 100 þúsund
fermetrum frá 40 löndum.
Neyzluvörurnar eru sýndar i 22
vöruflokkum i 16 störum
Alögur á aldraða haf a
tvöf aldazt í krónutölu
Blaðinu bárust í gær eft-
irfarandi upplýsingar frá
Styrktarfélagi aldraðra í
Hafnarf irði.
Styrktarfélag aldraðra i
Hafnarfirði hefur látið fram-
kvæma könnun á álagningu opin-
berra gjalda á þann hóp gjald-
enda i Hafnarfirði, sem eru 67 ára
og eldri. Hefur verið litið annars
vegar á gjöldin á s.l. ári og hins-
vegar á yfirstandandi ári.
Þessi samanburður leiðir i Ijós,
að opinber gjöld hinna öldruðu
hafa rúmlega tvöfaldazt eða vax-
ið úr 8,8 miljónum króna 1971 i
18,3 miljónir 1972. Nemur þvi
aukningin 9,5 miljónum króna.
Meðaltalsálagningin á hvern
gjaldanda, sem athugunin nær til,
hefur vaxið um 87,2% eða úr
30.988 kr. i 58.010 kr. Hefur meöal-
tekjuskattur á aldraða næstum
þrefaldazt (2,75) eignarskattur og
útsvar samtals hækkað litillega
og fasteignargjöld 3,6-faldazt.
Styrktarfélag aldraðra i
Hafnarfirði mun vera eina félagið
sinnar tegundar i landinu, en til-
gangur þess er að vinna aö vel-
ferðarmálum aldraðra. Könnunin
nær yfir hafnfirzka gjaldendur, af
þvi að þar er starfsvettvangur fé-
lagsins. en mjög liklegt verður að
teljast, að hið sama sé uppi á ten-
ingnum i öðrum byggðarlögum,
þar eð nálega sömu álagningar-
reglur gilda um allt land, en auk
þess er langstærstur hluti aukn-
ingarinnar i tekjuskatti, sem alls-
staðar gilda sömu reglur um.
Styrktarfélagið telur, að hér sé
um mjög alvarlegt mál að ræða,
er snerti m jög illa hagsmuni aldr-
aðs fólks. Nú er yfirlýst, að mál
þessi verði tekin til endurskoðun-
ar. Stjórn félagsins hefur talið
rétt að birta niðurstöður könnun-
ar sinnar, svo að ekki fari milli
mála, hve mjög álögur á aldraða
hafa aukizt milli áranna sam-
kvæmt-gildandi reglum og i þeirri
von að efla skilning á þvi, hve
brýnt er að skattlagningarregl-
urnar verði lagfærðar.
(stytt —Þjv.)
Nokkuð langt í land með
sjálfeyðandi plastumbúðir
Það var verið að gera þvi
skóna, i umhverfisverndar-
þætti sjónvarpsins fyrir
nokkru, að von væri á plast -
ilátum sem eyddust eltir að
þeim heföi verið hent.og sagt
að ölverksmiðja ein hér væri
að fá þannig umbúðir.
Þvi miður virðist hér hafa
verið um ábyrgðarlaust tal að
ræða og án nokkurra raka. Við
leituðum til Tómasar Tómas-
sonar hjá ölgerðinni Egill
Skallagrimsson, og sagði hann
að verið væri að gera tilraunir
með þetta sjálfeyðandi plast
úti i heimi, en það væri þó ekki
lengra komið en það, að plast-
iö eyddist á 150 til 200 dögum.
En um notkun þess, og raunar
alls plasts i ölumbúðir, væri
enn allt á tilraunastigi, og
hefðu plastumbúðir fyrir öl
gefizt illa til þessa. Hinsvegar
gengi betur að nota þær fyrir
gosdrykki.
En sem sagL notkun sjálf-
eyðandi plasts i umbúðir fyrir
öl, gosdrykki og annan vökva
á enn langt i land.
— S.dór.
sýningarhúsum i miðborginni, en
auk þess á 3 stórum sérsýningum
á tæknisvæðinu. —■ Vefnaðar-
vörur og fatnaður er sýndur frá 27
löndum. — Frá 37 löndum eru
sýnendur á gler- og postulins-
vörum, kemiskum vörum bús-
áhöldum og heimilistæjum og
matvörum. — Mjög stórt alþjóð-
legt framboð er á bókasýningunni
sem er haldin i tákni alþjóðlega
bóka-ársins 1972 sem UNESCO
gengst fyrir.
A tæknisvæðinu má sjá hina
miklu samsýningu Expovita á
iþrótta- og tómstundavörum .
önnur stór samsýning er þar á
húsgögnum og öllum búnaði
ibúða, og loks er á tæknisvæðinu
mjög fjölbreytilegt framboð á
kennslutækjum og skólabúnaði
öllum. Nefnist sú sýning Inter-
scola.
Samtals sýna 13 sósialistariki á
229 þúsund fermetrum að með-
töldu Þýzka alþýöulýðveldinu. —
Stærsti sýningaraðilinn eru
Sovétrikin með sýningardeildir
fra 600 útflutningsfyrirtækjum.
Þátttaka þróunarlandanna
hefur aukizt mikið, og er stærsta
Framhald á 11. siðu.
}0-
FÖSTUDAGA KL- \\<*-
u islenzku hádegis gS |já tízKu-
jar gestir eiga ÞjTmHi8l8náÖurÍ Módel-
íem ‘slenzKur J^ ^tudaga,
,g RamntagerWn h . og nýiustu
5 Kynna sérstæöa ^ uHar-
aðar, sem unnmn er ur \
og sKlnnavórum-