Þjóðviljinn - 11.08.1972, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 11.08.1972, Qupperneq 5
Föstudagur 11. ágúst 1972 þjóDVILJINN — StÐA .5. Ég er vakin kl. fimm að morgni föstudagsins 14. júli. Mariano frá kúbönsku vináttufélagasam- tökunum ICAP er kominn að sækja mig á litlum langferðabil og við ökum sem leið liggur að leita að vietnömskum stúdentum sem ætla að verða okkur sam- ferða. Stúdentarnir búa i háhýsi i hverfinu Vedado. Þeir koma uppi bilinn og heilsa mér með handa- bandi, brosandi breitt. Eftir nokkrar umræður hafa þeir komizt að raun um hvaða munur er á tslandi og Irlandi og við erum orðin ágætir vinir. Það birtir skyndilega, hitabeltissólin er að koma upp. Viö ökum eftir breið- um vegi framhjá blómlegum bú- görðum, kúahjörðum, hænsna- hópum, pálmum, hrisökrum, sykurreyrsökrum og kálgörðum. Landið er svo til flatt og algrænt. Búgarðurinn heitir hvorki meira né minna en Júlia. Þar nemum við staðar og stigum útúr bilnum. I nokkurra metra fjar- lægð standa raðir af ljóshærðum, sólbrenndum Norðurlandabúum báðum megin vegarins. Þeir hefja söng og slagorðahróp um leið og við birtumst og ég sé strax Anne Lise frá Kaupmannahöfn og Susanne frá Stokkhólmi i kaffitima 1 1 fí . jr ** i I £ nasjónalinn og allir taka undir, textinn er sunginn á a.m.k. sjö tungumálum. Fidel syngur með. Hitabeltisregnið dynur yfir okkur en við hreyfum okkur ekki fyrren Fidel sezt inni jeppann og ekur af stað. Þegar hann er horfinn úr augsýn hlaupa flestir i skjól en þeir allra kátustu taka sig til og dansa hringdans i rigningunni. Það verður ekki af meiri vinnu i dag, brátt koma vörubilarnir að sækja okkur. Um kvöldið er Vietnam-fundur. Fyrst eru sýndar tvær kvik- myndir, önnur um loftárásirnar á Haiphong i april s.l., hin er frá 1968 og fjallar um sigurgöngu Þjóðfrelsishersins i Vietnam. Þetta eru áhrifamiklar kvik- myndir, og að sýningu lokinni rikir djúp þögn þar til einhver hrópar: „Cuba, Vietnam, unidos vencerán!" (Kúba og Vietnam munu sigra i sameiningu). Allur skarinn tekur undir, skand- inavisk geðshræring fær útrás i þessu kúbanska slagorði. Tveir starfsmenn frá sendiráði bráðabirgðastjórnar Þjóðfrelsis hersins i S-Vietnam eru mættir til að segja frá ástandinu i heima- BRIGADA NORDICA Ingibjörg Haraldsdóttir skrifar frá Kúbu á öllu að það er ekki verið að taka á móti mér, heldur litlu bros- mildu samferðarmönnunum min- um. Samt geng ég bisperrt við hlið þeirra eftir miðjum veginum. Undarlegt að horfa á svona mörg norræn andlit samankomin á ein- um stað. 344 sænsk, dönsk;norsk og finnsk andlit. Ekkert islenzkt, nema ég liti i spegil. Þetta er norræni vinnuhópurinn — Brigada Nordica, hinn þriðji sem heimsækir Kúbu og sá lang- fjölmennasti. Tilgangurinn með ferðinni er fyrst og fremst póli- tiskur: að sýna samhug með kúbönsku byltingunni i verki með þvi að vinna hér i landbúnaði og við húsbyggingar i 2 vikur. Eftir það verður ferðazt um landið i aðrar tvær vikur. Þátttakendur eru flestir meðlimir i vináttu- félögum við Kúbu á Norðurlönd- um, ungt fólk er i miklum meiri- hluta, námsmenn, menntamenn og verkamenn. Mér er boðið uppi vörubil með hópi af Dönum. Stúlka frá Vietnam slæst i för með okkur, ásamt nokkrum Kúbumönnum. Vörubillinn fer með okkur i upp- risandi smábæ sem heitir Los Naranjos (Appelsinutrén). Þessi litli bær, sem enn á sér engan fastan ibúa, hefur komið talsvert við sögu i kúbönskum dagblöðum undanfarið: vinnuhópur frá Heimssambandi lýðræðis- sinnaðrar æsku reisti hér 28 ibúðir fyrir skömmu, auk glæsi- legrar skólabyggingar. Þessi hópur hefur nýlokið 6 mánaða starfi sinu hér. Nú er norræni vinnuhópurinn tekinn við i Los Naranjos. Veggir risa með ævin- týralegum hraða, notaðar eru þægilegar og fljótvirkar aðferðiii húsin að mestu leyti hlaðin úr verksmiðjusteyptum hellum. Það er einfaldara að byggja hús hér en i köldum löndum; hér þurfa þau aðeins að vera vatnsheld, um aðra einangrun varla að ræða. Tveir vöðvastæltir Danir standa uppi á vinnupalli og taka á móti hellum, sem við kvenfólkið lyftum upp til þeirra. Við teljum uppað þremur á vietnömsku: mor, æ, ba; þá gengur þetta betur. Ég reyni að hrista mesta rykið af skóladönskunni minni. Furðulegt að fólk skuli skilja mig. Lisbet á föðursystur, sem er gift íslendingi og býr i Hvassaleiti. Anne Lise er leikkona og vill fá að vita allt um kúbönsk leikhús, við eigum sameiginlega kunningja i Kaupmannahöfn. José, farar- stjóri danska hópsins, er frá Perú en hefur búið i Danmörku i 20 ár Húfan hans Fidels og talar dönsku vel. Ég spyr hann um kostnaðinn við ferðina. Danirnir þurfa að borga 2700 d.kr. hver, þaraf eru 100 kr. i tryggingagjald og 300 kr. fyrir gjöf til Kúbu (ennþá er ekki ákveðið hver gjöfin verður), af- gangurinn er fargjald. Danski hópurinn kom i leiguflugvél frá flugfélaginu Air IVIartin. Sviarnir komu i annarri leiguvél. Danir og Sviar eru i yfirgnæfandi meiri- hluta i hópnum, Finnarnir eru um tuttugu og Norðmennirnir aðeins tveir. Fyrren varir er kominn matar- timi, við klifrum uppá vörubil og ökum til vinnubúðanna. Þar eru nokkrir langir skálar, i flestum þeirra eru kojur með mýflugna- netum strengdum yfir, i einum skálanum er eldhús og matsalur, sjúkrahús i öðrum, fundarsalur i enn öðrum. Auk þess er hér póstur og simi og fleiri þjónustu- fyrirtæki. Samtals dveljast hér um 500 manns eða rúmlega það. Eftir matinn fáum við að hvila okkur til hálfþrjú, þá skal aftur ekið til vinnu. Ég nota timann til að kynnast fleira fólki. Kvik- myndastúdentar frá Kaup- mannahöfn koma aðvifandi og bombardera mig með spurning- um um kúbanskar kvikmyndir. Þegar ég hef svarað flestum spurningunum samvizkusamlega uppgötva ég að hér hafa orðið hlutverkaskipti, það var ég sem átti að spyrja þau. Svona er ég litill blaðamaður. Hellurnar eru þyngri og vinnu- pallurinn hærri eftir hádegi en um morguninn. Eða er ég oröin þreytt? Þegar við höfum puðað dágóða stund við að hlaða milli- veggi, sjáum við að fólkið, sem er að grafa skurð rétt hjá húsinu okkar, fleygir frá sér skóflum og hökum og hleypur af stað niður á veginn. Eitthvað er á seyði. Við hlaupum lika af staö. Þegar ég kem fyrir horn á hálfbyggðu húsi og vegurinn blasir við, sé ég tvo jeppa og grænklæddan mann, sem stendur á aurbrettinu á öðr- um þeirra og talar við Skandinavana, sem hafa hópazt að honum. F'idel er kominn i heimsókn! Ég treð mér eins ná- lægt honum og ég kemst og bölva sjálfri mér fyrir að hafa gleymt myndavélinni heima. Fidel spyr hvernig vinnan gangi og fær upp- lýsingar um það. Hann talar um þróunaraðstoð og viðskipti Norðurlanda við Kúbu, Sviar hafa veitt Kúbu hagstæð lán til kaupa á læknisáhöldum og vélum. Danir ' eru lika að koma á samskiptum vi'ft-Jítfbu: „Þið ættuð að keppa við Sviana”, segir Fidel. Svo spyr hann hvort við fáum nóga mjólk að drekka i vinnubúðunum. Mjólkurduft, stundum, er svarið . Það finnst forsætisráðherranum furðulegt: mjólkurduftið er inn- flutt, en hérna á næsta bæ er framleidd ágætis mjólk, af hverju fáið þið hana ekki? Einhver segir: Við þurfum enga mjólk, við fáum hana bara þegar við kom- um heim. „Nei, það á ekki að svindla á ykkur”, segir Fidel, og daginn eftir fáum við nýmjólk mað matnum! Þung ský hafa hrannazt saman yfir höfðum okkar, þrumur og eldingar i aðsigi og brátt falla fyrstu droparnir. Strákur frá Vietnam lánar Fidel stráhattinn sinn. Fidel gefur honum húfuna sina i staðinn. Hann segist þurfa að flýta sér, þvi að hann eigi að mæta á miðstjórnarfundi að gefa skýrslu um ferðalagið mikla, sem hann er nýkominn úr. Ein af vistnömsku stúlkunum er að tala við Fidel. Ég heyri ekki hvað þau segja, en andliti stúlkunnar gleymi ég seint: tárin runnu i striðum straumum niður vanga hennar en augun ljómuðu af ein- hverju ólýsanlegu — kannski var hún að segja honum af fjölskylda hennar hefði farizt i loftárásunum en samt muni Vietnam sigra? Einhver byrjar að syngja Inter- landi sinu. Annar þeirra flytur ávarp þar sem hann gefur yfirlit yfir þróun styrjaldarinnar siðustu mánuðina. Hann ráðleggur mönnum að lesa gaumgæfilega leyniskýrslur Pentagons, þvi þar komi greinilega i ljós aö Vietnamsstriðið sé og hafi aldrei verið annað en glæpsamleg árás rikustu þjóðar heims á eina af þeim fátækustu. Að ávarpinu loknu er fundarmönnum gefinn kostur á að bera fram spurningar. Svli einn spyr hvert álit Vietnamar hafi á vietnampólitik sænsku stjórnar- innar, en hún byggist annarsveg- ar á stuðningi við málstað vietnömsku þjóðarinnar og hins- vegar á eðlilegum samskiptum við Bandarikin. Þessu er svarað á þá leið að vietnamska þjóðin sé þakklát Svium og öllum öðrum þjóðum fyrir stuðning og samhug. Hvað snerti samskipti Svia við Bandarikin, væru það eðlileg samskipti milli landa og kæmu Vietnam ekki við. Spurt er um pólitiskt ástand i borgum S- Vietnams. Svar: Það er i sam- ræmi við hernaðarlegt ástand. Bandarikjamenn hafa fært okkur dauða og ólýsanlegar hörmungar og fólkið i Vietnam hatar þá. Ástandið hefur breytzt mjögsiðan 1967. Áður voru bandarisku her- mennirnir almáttugir yfir- boöarar. Friðsamur borgari, sem fór út að labba með konuna sina, gat átt á hættu að hún væri tekin af honum með ofbeldi. Ef hann kvartaði var honum stungið i steininn. En nú þora her- mennirnir ekki lengur að ganga um göturnar nema i hópum og geta hvergi sofið rólega nema i rammbyggðum neðanjarðar- byrgjum, og stundum þurfa þeir að fara til Hong Kong til að geta sofið! Við, sem áður þurftum að sofa i neðanjarðarbyrgjum, get- um nú sofið rólega ofanjarðar. Svona hefur þetta breytzt. Margar fleiri spurningar eru bornar fram og svarað. 1 lok fundarins er lesin upp yfirlýsing norræna vinnuhópsins, þar sem lýst er algjörri samstöðu með málstað vietnömsku þjóðarinnar og framferði Bandarikjanna for- dæmt; einnig er þess krafizt að gengið verði að skilmálum þeim i 7 liðum sem N-Vietnam og Þjóð- frelsisherinn hafa sett fram. Hin- ir vietnömsku gestir eru leystir út með gjöfum og kvaddir með söng og lófataki. Það er orðið dimmt og kominn timi til að skriða undir mýflugna- Framhald á bls. 11.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.