Þjóðviljinn - 11.08.1972, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 11.08.1972, Blaðsíða 9
Föstudagur 11. ágúst 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9. Breiðablik í hóp topp- liðanna Eftir verðskuldaðan 1:0 sigur yfir IA Breiðablik er nú komið i hóp toppliðanna eftir sigurinn yfir Skagamönnum og má nú segja, að einungis 4 lið eigi möguleika á sigri i deiidinni.Það eru Fram, ÍA, ÍBKog Breiðablik. Þvilikt hrun verð- ur að eiga sér stað hjá þessum liðum, ef önnur lið eiga að blanda sér i toppbaráttuna, að ekki er hægt að taka slikt með i reikninginn, þótt segja megi að það sé ekki útilokað. Sigur Blikanna yfir ÍA var verðskuldaður.enda er nú svo komið að Skagamenn geta ekki teflt fram nema B-liði vegna meiðsla. Þegar 5 af fastamönnum og það beztu mönnum liðsins vantar, þá fer maður að tala um B-lið. Hins vegar er frammistaða Breiðabliks undanfarið mjög athyglisverð og sýnir hvað kraftur og sigurvilji geta orkað mikiu, sé þetta tvennt fyrir hendi. Knattspyrnulega séð var þessi leikur i algeru lágmarki hjá báð- um liðum og hygg ég að þetta sé lakasti leikurinn i 1. deild sem ég hef séð i sumar. En þetta vill verða svo þegar lið sem jafnan leika á grasi þurfa að fara á malarvöll fyrirvaralaust. Það er þvi útlit fyrir að malarvöllurinn ætliað koma Breiðabliksmönnum að sizt minna gagni i ár en i fyrra. 1 fyrri hálfleik gerðist fátt markvert. Eiginlega voru mark- tækifærin þá ekki nema tvö. Það fyrra átti Heiðar Breiðfjörð á 17. minútu er hann stóð fyrir opnu marki og markvörður viðs fjarri, en skot hans fór framhjá. Hitt tækifærið áttu Skagamenn er Teitur Þórðarson var i mjög góðu færi en Gissur Guðmundsson, góður markvörður Breiðabliks varði snilldarlega. Hins vegar voru Skagamenn heppnir á 41. min. er Hörður Helgason markvörður þeirra varði lausan bolta en missti hann frá sér i stöngina og út. Fyrri hálfleikurinn var þvi marklaus. Breiðabliksmenn komu mun ákveðnari til leiks i siðari hálfleik og áttu hann algerlega eins og sagt er á knattspyrnumáli. Þó voru það Skagamenn sem áttu fyrsta marktækifærið er Hörður Jóhannsson skaut föstu skoti af stuttu færi, en Gissur bjargaði enn af snilld. Eitt af fáum marktækifærum Skagamanna i leiknum;en bjargað var á siöustu stundu. En svo á 54. minútu notfærðu Breiðabliksmenn sér mjög vel veiluna hægra megin i vörn 1A. Bakvörður 1A þeim megin var vægt sagt afar slakur. Hann var alrangt staðsettur i einni sóknar- lotu Blikanna og skildi Þór Hreiðarsson einan eftir fyrir utan vitateigshorn. Þangað var boltinn sendur ög Þór skoraði eitt glæsi- legasta mark sumarsins með þrumuskoti og boltinn hafnaði efst i markhorninu. Jafnvel Banks hefði ekki átt minnstu möguleika á að verja þetta skot. Skagamenn tóku sig heldur á eftir markið en aldrei var nein veruleg ógnun i sókn þeirra. Hins vegar átti Haraldur Erlendsson skot i þverslá lA-marksins á 75. minútu. Og nokkur sæmileg marktækifæri til viðbótar áttu Framhald á 11. siðu. Næstu leikir í 1. deild Þvi miður verðum við enn að una við það að deildarkeppnin sé tætt i sundur. Næstu leikir i 1. deild fara fram á laugardaginn. Það er leikur 1A og Fram uppi á Akranesi, sein segja má að sé óformlegur úrslitaleikur deildar- Þegar Bandarikin voru ennþá brezk nýlenda voru flestir skól- ar og menntastofnanir reknar af kirkjunni, og litið var á iþróttir og likamsrækt sem óæskilegan hlut I „réttu” uppeldi. i dag eru Bandarikin aftur á móti land liinna ótakmörkuöu möguleika, a.m.k. hvað iþróttir sncrtir. Bandariskar iþróttir skiptast i þrjár höfuðgreinar, boltaiþrótt- ir (karfa.rugby og beisball), frjálsiþróttir og sund. Tvær siöarnefndu greinarnar eru inikilvægastar á Ólympiuleikj- unum, og þvi beinist athygli almennings i Bandarikjununt Willie Davenport, sem vann gull i 110 m grindarhlaupi á siöustu OL. Bob Seagren er gott dæmi um baráttuþrek og sigurvilja hins bandariska iþróttamanns. Hann hefur mikla ánægju af að æfa stangarstökk, en sú iþróttagrein krefst hraöa. lipurðar, inikillar samsvörunar eða samstillingar, og krafta i uppstökkinu. „Það á cftir að bæta mctið i stangar- stökki”, scgir Bob, ,,ég rcikna með að stökkva 5.79 m.” Þeir ágætu menn i brezka héraöinu Lancashire, sem fyrstir reyndu stangarstökk nú að stjörnum þessara iþrótta- greina. En afrek þessa fólks vilja fljótt gleymast, öfugt við ýmsar boltahetjur. Það eru lika boltaleikir sem draga til sin mesta áhorfendaskarann (frjálsar og sund draga til sin aöeins 25% áhorfcnda), enda þótt Bandarikin státi af ótal mörgum toppmönnum i sundi og frjálsum iþróttum. A úrtökumótinu fyrir OL i Eugene féllu svo ntargir frá- bærir iþróttamenn út, að i dag eiga Bandaríkin ekki nema þrjá þátttakendur sent telja má nokkurn veginn örugga meö að vinna gull — þá Bob Seagren, hcimsnieistara i stangarstökki, og hlauparana Lec Evans og sem iþróttagrein, myndu vart trúa sinunt eigin eyrum ef þeir hlýddu á slikt tal. A þeirra dögum var 3 metra stökk algjört hámark bjartsýni, en þá var Iteldur ekki búið að finna upp tref japlastið. — Ef dagurinn er heitur, vilj- inn einbeittur og löglegur vind- ur i bakið, þá er mögulegt að ná 6 metra stökki segir Bob. Stang- arstökkvari vill helzt aldrei hlaupa gegn golu, ef hægt er aö komast hjá þvi. Þess vegna biður hann oft lengi eftir þvi að golu lægi eða átt breytist. Bob Seagren átti við meiðsli aö stríða árið 1970 og 1971. Hann byrjaði að æfa fyrir OL i lok keppnistimabilsins i fyrra, en varð þá fyrir þvi óhappi að detta af hestbaki og meiða sig svo il!a i hné, að hann þurfti á skurðarborðið. Hann byrjaði of snemma að æfa á ný, meiðslin i hnénu uröu hálfu verri, og lækn- arnir sögðu, að hann yrði aldrei jafngóður aftur og þyrfti ekki að hugsa til neinna afreka á iþróttasviðinu framvegis. Bob Seagren gafst samt ckki upp. Ilanii hættiaðæfa um mán- aöartima, en byrjaði svo aftur hægt og bitandi. Á fyrsta iþróttamótinu, sem hann tók þátt i eftir meiðslin, stökk hann 5.05 metra og var að sjálfsögðu hreykinn, cnda þótt margir skytu lionum ref fyrir rass. Og Framhald á bls. 11. Hann stekkur eftir gullinu Þú verður aldrei jafngóður aftur, sögðu læknamir, en Bob Seagren setti samt heimsmet í stangarstökki. Bob telur 6 metra i stangarstökki ekki fjarlægan draum ef keppt er við beztu hugsanlegu aðstæöur. innar, og leikur IBV og IBK i Vestmannaeyjum, og vinni ÍBK þann leik glæðist von liðsins aftur um að verja titilinn. Svo er enginn leikur á sunnu- dag!! En á mánudag leika KR og Breiðablik á Laugardalsvellinum og á þriðjudag leika Valur og Vikingur á sama stað. Finnst mönnum niðurröðunin ekki til fyrirmyndar? —S.dór. /#v staðan Staðan i 1. deild eftir sigur Breiðabliks yfir ÍA 1:0 er nú þessi: Fram 8-5-3-0-19:10-13 Akranes 9-6-0-3-18:11-12 Keflavik 9-3-4-2-16:13-10 Breiðablik 9-4-2-3-9:13-10 KIl 8-3-1-3-13:13-7 ÍBV 7-2-2-3-15:16-6 Valur 7-1-3-3-11:12-5 Vikingur 9-1-1-7-2:15-3 Markahæstu menn: Eyleifur Hafsteinsson ÍA 9 Atli Þór Héðinsson KR 7 Steinar Jóhannsson ÍBK 7 Ingi Björn Albertsson Val 6 Kristinn Jörundsson Fram 5 Teitur Þórðarson í A 5 Tómas Pálsson ÍBV 5 V-þýzkir tollverðir hafa undirbúið sig sérstaklega vel fyrir OL-leikina, og er þá ekki átt við líkamsþjálf- un, heldur eiturlyfjaleit. Þeir hafa s.l. 6 vikur fundið um 300 pund af hassi, sem átti að koma á markað í Munchen í tilefni OL-leikj- anna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.