Þjóðviljinn - 22.08.1972, Síða 5
Þriðjudagur 22. ágúst 1972 ÞJOOVILJINN — SIÐA 5.
Nú hefur endanlega
veriö ákveðiö að sölu-
turninn við Arnarhól
verði að vikja fyrir
skipulaginu og verður
hann fluttur innað Árbæ.
Uppástungu okkar hér á
Þjóðviljanum, um að
gera hann að blaðsölu-
turni á Lækjartorgi, var
ekki vel tekið af ráða-
mönnum og þvi verður
þessi fallegi og gamli
turn að víkja eins og
þróunin virðist ætla að
vera með allt sem er
gamalt í miðbæ Reykja-
víkur.
Sölutiiminn viö Amarhól:
HANNÁ
AÐ
HVERFA
Þessi turn var byggður af
Einari Gunnarssyni árið 1904
og var þá þegar ætlaður sem
I sölubúð. Þá stóð hann á
Lækjartorgi. Hann mun hafa
■ staðið þar á tveim stöðum áð-
I ur en hann var fluttur yfir að
■ brunninum scm var við Arnar
* hól, en þangað var hann flutt-
I ur i kringum 1911, þegar lækn-
■ um eftir I.ækjargötunni var
lokað. i upphafi var honum
1 ætlað að standa til bráða-
birgða við Arnarhólinn, og til
bráðabirgöa hefur hann staðið
þar siðan.
Eins og áður segir var hann
byggður i upphafi sem sölu-
búð. Þá voru aðgöngumiðar að
I skemmtunum einnig seldir i
• honum og svo blöðin, viku-
| blöðin fyrst en siðan dagblöðin
• eftir að þau fóru að koma út.
I Þá má einnig geta þess, að
■ eitt sinn var i honum miðstöð
■ sendisveina, sem fóru með
I pakka og bréf fyrir fólk um
* bæinn fyrir 5 og 10 aura. Þá
I mun um eitt skcið hafa verið i
honum aðsetur Icigubifrciða-
I stjóra, en þetta var allt saman
meðan hann stóð á Lækjar-
torgi. Þegar hann var fluttur
af torginu að Arnarhóli keypti
Sveinn á Mælifellsá turninn og
I________________________________
hefur hann verið i eign ætt-
menna hans siðan og núver-
andi eigandi turnsins er Ólaf-
ur sonur Sveins á Mælifellsá.
Aður en Sveinn eignaðist hann
mun Einar Þorsteinsson hafa
átt hann um stuttan tima.
Þess má og geta að Einar
Gunnarsson, sá er lét byggja
turninn, var um tima ritstjóri
dagblaðsins Visis.
Að sjálfsögðu hefur turninn
nokkuð breytt um svip á þess-
um langa tima. Mesta
brcytingin sem á honum hefur
verið gerð er vafalaust þegar
gluggunum á honum var
breytt. Þeir voru i upphafi og
lengi framanaf margir mjög
litlir gluggar, en Ólafur, nú-
vcrandi eigandi hans, lét taka
þá úr og sctja stórar rúður i
hann i staðinn. Eins var lengi
vcl hurð þar sem söluopið er
núna en þá fór öll verzlun
fram innan dyra i turninum.
Þessum dyrum var svo lokað
þegar banað var að hafa hinar
svo köliuðu sjoppur opnar á
kvöldin.
En sumsé, nú a. þessi
fallegi turn að hverfa úr
miðbænum og flytjast innað
Árbæ.
—S. dór
Arið 1918 var turninn færður að Arnarhóli, en hér er mynd frá árinu 1930.
I S|
Þessi mynd er frá afhjúpun styttu Jóns Sigurðssonar fyrir framan stjórnarráðshúsið og þar sjáum
við turninn á Lækjartorgi.
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
J
Arkítektar Islands uin þjóðarbókhlöðu:
:•:•:
'•ý'’
Yarar við frumhlaupi
byggmgarncfndar
í tilefni af fréttaviðtali
ÁAorgunblaðsins við arki-
tekta Þjóðarbókhlöðunnar
vill A.l. taka eftirfarandi
fram:
í ofannefndu viðtali er haft eftir
arkitektum Þjóðarbókhlöðunnar,
,,að verkið væri á byrjunarstigi.
Þeir heföu verið að vinna með
bókasafnsmönnum að nánari
gagnasöfnun og úrvinnslu á
þessum gögnum til að ganga frá
endanlegri forsögn sem siðan er
hægt að byggja tillöguteikningar
og áframhaldandi vinnu á.” Enn-
fremur segir: ”Ekki er búið að
ákveða, hve margar hæöir hún
verður. Aðstaða á lóðinni og út-
færsla hússins yfirleitt kemur til
með að ráða þar miklu. Til dæmis
er ekki vitað hvenær iþrótta-
völlurinn vikur af Melunum eða
hver áhrif stækkun Sögu kann að
hafa á staðsetninguna.”
Ekki er aðra ályktun hægt að
draga af fréttaviðtalinu, en að
byggingarnefnd Þjóðarbókhlöð-
unnar hafi nú loksins viðurkennt
þá skoðun meirihluta félaga A.I.
og ýmissa annarra áhuga- og fag-
manna, sem fjölmenntu á fundi i
Norræna húsinu út af málinu, að
forvinna öll, svo sem gagna-
söfnun og forsögn („programm-
ering”), séennekki á þvi stigi, að
raunhæft hafi verið að tala um að
hefja teiknivinnu af fullum krafti,
i þeim tilgangi að reisa bygging-
una fyrir þjóðhátiðarárið 1974.
Af framanskráðu er augljóst,
að full ástæða var fyrir stjórn A.t.
að vara byggingarnefnd Þjóðar-
bókhlöðunnar við hvers konar
frumhlaupi i þessu máli, og
fagnar stjórnin þvi, að fundurinn i
Norræna húsinu og aðrar að-
gerðir, hafa þó leitt til þess, að
byggingarnefndin hefur séð að
sér varðandi undirbúning, og að
viss von er fyrir hendi um fag-
legan framgang málsins og
vinnubrögð . Aö minnast ellefu
hundruð ára byggðarsögu þjóðar-
innar með nýrri Þjóðarbókhlöðu,
er mjög þakkarverð hugmynd, ef
vel er að málum staðið, hins
vegar virðist stjórn A.l. heldur
litill hátiðarbragur hafa verið á
framkomu og gerðum byggingar-
nefndar umræddrar byggingar,
viðvikjandi undirbúning allan og
ráðstöfun verkefnisins.
—-t;r fréttatilkynningu A.I.