Þjóðviljinn - 22.08.1972, Side 6
6. SIÐA — ÞJÖÐVILJINNS Þriðjudagur 22. ágúst 1972
Þriðjudagur 22. ágúst 1972 ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 7.
„Hingað út Teitur”
Kallaði Eyleifur og skoraði siðan eitt glæsilegasta mark sem sézt hefur á
Laugardalsvellunum og jafnaði þar með fyrir IA 2:2 ——————
IBA er
aðeins
feti frá
1. deild
,Hingað út Teitur"
kaliaði Eyleifur Haf-
steinsson á 75. mínútu
leiksValsog IAerstaðan
var 2:1 Val í vil. Teitur
gengdi þessu kalli félaga
síns og sendi boltann á
Eyleif sem stóð 4-5
metrum fyrir utan víta-
teig. Eyleifur var ekki
neitt aö tvinóna við hlut-
ina, heldur tók boltann
viðstöðulaust og skot hans
small i þverslá og þaðan
niður á línuna og aftur
uppí þaknetið. Þar með
hafi hann jafnað fyrir IA
2:2 meö einu glæsilegasta
marki sem sézt hefur á
Laugardalsvellinum.
Þetta urðu úrslit leiksins
og verða þau að teljast
nokkuð sanngjörn.
Eftir að leikurinn loks gat
hafizt 15 mindtum of seint,
miðaö við auglýstan tima,
vegna þess að dómarinn mætti
ekki, tóku Valsmenn leikinn
fljótlega i sinar hendur og réðu
lögum og lofum allan fyrri hálf-
leik. Eitthvert alsherjar slen
var yfir fA-liðinu þennan fyrri
háifleik og réðu þeir ekki neitt
við neitt og voru heppnir að fá
ekki á sig nema 2 mörk.
Tækifæri Valsmanna voru
mörg á fyrstu minútunum,
Ingvar Eliasson, sem kom inná
fyrir Inga Björn, sem tók út 3
bókanir (leikbann) i þessum
leik, átti skot úr góðu færi strax
á 3. minútu en hitti ekki i mark-
ið. Alexander Jóhannesson var i
enn betra færi á 5. minútu en
Hörður Helgason markvörður
IA varði meistaralega i horn.
Uppúr hornspyrnunni björguðu
Skagamenn á linu.
Markið lá i loftinu og það kom
lika á 10. minútu. Eftir mikla
hrið að marki ÍA, þar sem m.a.
var bjargað á linu, hrökk bolt-
inn til Þóris Jónssonar og hann
sendi boltann i markið 1:0.
Alexander átti aftur gott færi
á 17. minútu en lét verja hjá sér.
Á 21. minútu varði Sigurður
Dagsson mjög vel skot frá Heröi
Jóhannssyni. Og á 34. minútu
áttu Skagamenn sitt bezta tæki-
færi i fyrri hálfleik til þessa, er
þeir Eyleifur og Hörður léku
laglega i gegnum Valsvörnina
en skot Eyleifs hafnaði i hliðar-
netinu.
En aðeins minútu siðar kom
bezta marktækifærið og það var
ekki misnotað. Eyleifur lék upp
aö endamörkum og gaf á Teit ó-
valdaðan og hann skaut i stöng
og i netið, 1:1.
En áfram sóttu Valsmenn og
Hörður bjargaði vel i ÍA-mark-
inu á 40. minútu, en á 43. minútu
fékk hann á sig hálfgert klaufa-
mark. Jóhannes Eðvaldsson
skaut á markiö af löngu færi og
beint á Hörð, en hann hélt ekki
boitanum er hrökk til Alexand-
ers sem renndi honum yfir
marklinuna 2:1 og þannig var
staöan i leikhléi.
Skagamenn komu mjög á-
kveðnir til leiks i siðari hálf-
leiknum og sóttu þá mun meira
og voru sannarlega óheppnir að
skora ekki nema þetta eina
mark. Til aö mynda átti Eyleif-
ur skalla i þverslá á 65. minútu
og þaðan hrökk boltinn til Karls
Þórðarsonar, sem skaut af 2ja
m. færi i Sigurð Dagsson liggj-
andi á marklinunni.
En svo á 75. minútu kom jöfn-
unarmarkið sem áður er lýst,
eitt glæsilegasta mark sem
maður hefur séð á Laugardals-
vellinum.
Sennilega er jafnteflið réttlát-
ustu úrslitin miðað við gang
leiksins. Valsliðið með Þóri
Jónsson og Róbert Eyjólfsson
sem beztu menn ásamt Sigurði
Dagssyni átti nú einn af sinum
betri leikjum i sumar. Það er al-
veg greinilegt að sú stöðubreyt-
ing að láta Róbert i miðvarðar-
stöðuna er mjög til bóta fyrir
liðið og áreiöanlega er Róbert
framtiöarlandsliðsmaður i
þessari stöðu.
Skagamenn áttu ekki einn af
sinum góðu dögum og með
þessu jafntefii hafa þeir senni-
lega misst siðasta vonarneist-
ann til að hreppa tslandsmeist-
aratitilinn i ár. Eyleifur var
sem fyrr aöal burðarás liðsins
en hann hefur oft leikið miklu
betur i sumar. Teitur átti einnig
góðan leik sem og þeir Þröstur,
Jón Alfreðsson og Hörður mark-
vörður, ef siðara markið sem
hann fékk á sig er undanskilið.
Dómari var Halldór B. Haf-
liðason, og hljóp hann i skarðið
á siðustu stundu fyrir þann sem
ekki mætti til starfa. Slapp Hall-
dór allvel frá leiknum.
— S.dór.
Sigurður Dagsson grfpur hér vel inni eins og hann geröi oft i leiknum. Aö honum sækja Jón Alfreðsson og
Teitur Þóröarson en Jóhannes Eövaldsson er tilbúinn aö aöstoöa Sigurö.
■B I■■H■■■■■■■ ■■■■■■■■■■■■■
Eftir 3:1 sigur Akureyringa
yfir liaukum um siðustu helgi
er ÍBA liðið nú aðeins feti frá
1. deild. Þaö má segja aö ekk-
ert geti komið I veg fyrir aö
það leiki þar aftur næsta
sumar. Þetta er nákvæmlega
það sem menn bjuggust við.
Undanfarin ár hefur það oftast
verið svo aö liðið sem feilur
niöur kemur upp aftur strax
næsta ár, slikur er munurinn á
1. og 2. deildar liðunum okkar.
Þá fór annar leikur fram um
helgina en þá sigraöi Armann
V’ölsunga frá Húsavlk 3:1,
Kom sá sigur nokkuð á óvart.
Hefur frammistaða Völsunga I
deildinni verið lakari en menn
bjuggust viö fyrirfram.
-S.dór.
Finni
setti
Evrópu-
met í
800m
hlaupi
Landskeppni í frjálsí-
þróttum milli Finna og
Svía fór fram um síðustu
helgi. Svíar fengu þar
slæma útreið og töpuðu
með 173,5 stigum gegn
236,5 i karlagreinum. Og
i kvennagreinum unnu
Finnar einnig,
73:60. Það bar til tíð-
inda að óþekktur finnsk
ur hlaupari, Pekka Va
salas, setti nýtt Evrópu
met í 800 m hlaupi, hljóp
á 1:44,3 mín. sem er 6/10
betra en eldra metið og
aðeins 2/10 úr sek. frá
heimsmeti. Hann á
sjálfsagt eftir að láta að
sér kveða á ÓL þessi
ungi piltur.
•» j
• •- • ’
■: ’ l
tslandsmeistarar Vals I kvennahandknattleik ásamt þjálfara slnum Stefáni Sandholt. Þetta er 110. sinn I röö aö Valur veröur Islandsmeistari I
útihandknattleik I mfl. kvenna.
Valur varð Islandsmeistari
í mfL kvenna í útihandknattleik
Valur varð íslandsmeist-
ari í útihandknattleik
kvenna i mf I. í 10. sinn í röð
s.l. sunnudag en þau lauk
íslandsmótinu sem staðið
hafði frá s.l. miðvikudegi.
Til úrslita léku Valur og
Fram, sigurvegarar úr a og
b riðli, og hreinlega léku
Vals-stúlkurnar sér að
Fram-liðinu eins og köttur
að mús og sigruðu 18:7.
Hinn raunverulegi úr-
slitaleikur í mótinu var á
milli Vals og Ármanns i
riðlinum, því að þessi lið
voru í sérflokki og hvort
Kastmót
Kastmót var haldið á Laugar-
dalstúninu fimmtudaginn 10.
ágúst. Keppt var i flugulengdar-
köstum.
Úrsiit:
Kastgrein nr. 3: Flugulengdar-
köst, einhendis.
Meðaltal.
1. Bjarni Karlss. 47.70m.
2. Ástvaldur Jónss. 46.78m.
3. Baldvin Harldss. 44.10m
Kastgrein nr. 4: Flugulengdar-
köst tvihendis.
þeirra sem hefði unnið
þann leik hefði unnið hið
slaka Fram-liðí úrslitunum
En Valur sigraði Ármann
10:7. Valur vann einnig FH
19:4, ÍBK 19:5 og Grindavík
16:2 og má á þessum úrslit-
um sjá hina gífurlegu yfir-
burði Vals-liðsins.
Vals-liðið hefur verið i al-
gerum sérflokki í kvenna-
handknattleik í um 11 árog
hefur á þessum tíma unnið
innimótið 9 sinnum alls og
útimótið 10 sinnum og það í
röð. Liðið fer því að nálgast
hiðeinstæða afrek FH, sem
vann útimót karla 14 sinn-
um í röð.
Eins og áður segir lék
Valur við Fram í úrslitum
en í 3ja sæti i mótinu varð
Ármann og er Ármanns-lið-
ið ungt og efnilegt og eina
liðið í augsýn sem getur
komið til með að storka
Vals-liðinu næsta vetur.
— S.dór
Meðaltal.
1. Ástvaldur Jónss
2. Baldvin Haraldss.
3. Bjarni Karlss
■ ■■■■■
70.61m
57.22m
55.72m
■ ■
Enn er smá von
fyrir Víkinga
Um að halda sér uppi i 1. deild eftir
sigurinn yfir Breiðabliki 2:1
Vonir Vikinga um að halda sér uppi i 1. deild glæddust
að nýju eftir sigurinn yfir Breiðabliki á laugardaginn.
Sigur Víkings varð ekki nema 2:1 en enginn hefði getað
talið það minnstu heppni þótt hann hefði verið uppá 6-7
mörk, slíkir voru yfirburðir þeirra. Og þegar maður ber
saman þessi tvö lið, þá getur maður vart skilið hvernig
Blikarnir hafa náð í 11 stig, meðan Vikingur hefur aðeins
5.
I fyrri hálfleik léku Breiða-
bliksmenn undan allsterkum
vindi, en þrátt fyrir það áttu
Vikingar mun meira i leiknum
og nokkur slik marktækifæri að
manni er það hulin ráðgáta
hvernig hægt var að komast hjá
þvi að skora úr þeim. En
Breiðabliksliðið átti ekki eitt
umtalsvert marktækifæri. Það
var ekki einu sinni marktæki-
færi sem þeir skoruðu úr. Það
mark var eins ólöglegt og mark
getur verið. Þór Hreiðarsson
stóð einn svona 4-5 metra fyrir
innan Vikingsvörnina þegar
hann fékk boltann. Hann hikaði
við og allir aðrir hættu en linu-
vörðurinn, sem hlýtur aö hafa
verið með hugann við eitthvað
annað en leikinn, gerði enga at-
hugasemd. Þór hélt þvi áfram
einn og óhindraður og skoraði.
Og slikan aragrúa af mark-
tækifærum sem ekki nýttust
áttu Vikingarnir aö menn voru
búnir að gefa upp alla von um að
þeir myndu skora mark. Það
yrði of langt mál aö telja upp öll
þau marktækifæri sem Vikingar
áttu, en það má nefna að þriveg-
is stóðu þeir einir innan mark-
teigs og enginn i markinu, en
alltaf gerðist eitthvað sem kom i
Framhald á 11. siöu.
Slakur leikur
hjá ÍBV og
KR í Eyjum
Heldur þótti mönnum
lægra risið á ÍBV—liðinu
á sunnudaginn er það
mætti KR en helgina áð-
ur er það sigraði sjálfa
íslandsmeistarana 6:1.
Sannast sagna mátti
iBV þakka fyrir sigurinn
yfir KR 2:1. En með
þessum sigri klifraði
iBV-liðið enn upp stiga-
töfluna og er nú komið
með 10 stig og er eina
liðið ásamt í A sem enn á
smá von um að hljóta is-
landsmeistaratitilinn,
þótt sú von sé nánast töl-
fræðileg.
Völlurinn i Eyjum var mjög
slæmur meðan á leiknum stóð,
bæði blautur og háll og ef til vill
hefur hann átt mestan þátt i þvi
hve slakur leikurinn var. Fyrri
hálfleikur var mjög jafn og áttu
bæði liðin tækifæri sem ekki
nýttust.
En svo var það á 23. minútu að
KR-ingar voru i sókn en allt i
einu barst boltinn fram völlinn
til Asgeirs Sigurvinssonar, sem
lék upp að endamörkum og gaf
þaöan fyrir markið til Tómasar
Pálssonar sem skoraði 1:0.
Enn var sótt og varizt eftir
þetta mark. KR-ingar gerðu
harða hrið að marki ÍBV á 34.
min. og sú sóknarlota endaöi
með þvi að Gunnar Gunnarsson
komst inn að endamörkum og
gaf á Atla Héðinsson og hann
jafnaði fyrir KR 1:1. Þannig var
svo staðan i leikhléi.
Þótt fyrri hálfleikur væri
daufur, dofnaði enn yfir leikn-
um i siðari hálfleik. KR-ingarn-
ir voru þó heldur skárri og áttu
skilið að vinna þennan leik. En
þeim gekk ekki að skora og
lengi vel leit út fyrir að leiknum
myndi ljúka með jafntefli.
En á markaminútunni, 87.
minútu, skoraði Tómas Pálsson
sitt annáð mark. örn óskars
son hafði brotizt upp allan völl-
inn og þvælzt i gegnum KR-
vörnina á nær óskiljanlegan
hátt og allt i einu gaf hann bolt-
ann til Tómasar og hann skoraöi
sigurmarkið.
Tómas Pálsson var bezti leik-!
maður Eyjamanna en auk hans
áttu þeir Asgeir Sigurvinsson og
Hörður Hallgrimsson góðan
leik.
Hjá KR bar Atli Héðinsson af:
en einnig áttu þeir Þórður Jóns-
son og Magnús markvörður
góðan leik. Dómari var Hinrik
Lárusson.
Loks kom nýtt met
Loks kom að því að Er-
lendur Valdemarsson
bætti metið í kringlu-
kasti, en það gerðist é
laugardaginn er hann
kastaði 60,82 m en eldra
metið var 60,06 m. Hann
átti einnig annað kast
lengra en gamla metið,
eða 60,40 m.
Þetta gerðist á innan-
félagsmóti ÍR á Mela-
vellinum. Að vísu var
veður mjög hagstætt til
keppni i kringlukasti,
þar eð allhvasst var og
hægt að beita kringlunni
uppí vindinn. En eigi að
síðurer hér um mjög eft-
irtektarvert afrek að
ræða og glæðir veikar
vonir um að ef til vill
geri Erlendur eitthvað
óvænt á ÖL i Múnchen í
næstu viku.
— S.dór.
Erlendur Valdemarsson.
Guðgeir til Eyja?
Um það eru nú háværar
raddirað Eyjamenn sæki stlft
á Guðgeir Leifsson að flytjast
til Vestmannaeyja og leika
mcð ÍBV-liöinu næsta sumar.
Munu Guögeiri standa ýmsir
möguleikar opnir i Eyjum.
Ekki mun neitt vera ákveðiö
i þessu enn, enda mótiö ekki
búið. Hins vegar væri ekki
ótrúlegt þótt af þessu yrði ef
Vikingur fellur niður i 2. deild.
Ef Vikingum tekst aö halda
sér uppi verður aö teljast
mjög ótrúlegt aö Guögeir
skipti um félag.
— S.dór
■■■■■■■■■■■■!