Þjóðviljinn - 21.09.1972, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 21.09.1972, Blaðsíða 7
6. SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Kimmtudagur 21. september 1972 1 UM FÓLK OG FLEIRA Það þykir ekki lengur tíð- indum sæta þótt landinn bregði sér til Mallorka til hvíldar og hressingar. Beint flug með þotu tekur ekki nema um fjórar klukkustundir. Margt blíölegt má segja um þessa fallegu eyju, bað- strendur og hótel, en slíkt tal erorðið næsta venjulegt i fjölmiðlum. Þess í stað langar mig að bregða upp myndum af götulífi og um- hverfisvandamálum á Mallorka. sj FYRRI HLUTI Hér á síðunni eru svip- myndir frá Palma, teknar á sunnudegi, en þá flykkj- ast Palmabúar á torgin í hjarta borgarinnar og ber þá meir á þeim en ferða- mönnunum, sem eru í meirihluta þá daga sem verzlanir eru opnar. Mallorkabúar eru flestir lágvaxnir, bjóða af sér góðan þokka og eru svip- hreinir. Yfirleitt þykja þeir stálheiðarlegir i viðskipt- um við túrista, og svo mikið er vist að aldrei tinnur imaður til nokkurs uggs í inávist þeirra, eða á göngu í borginni, hvort sem er á nóttu eða degi. Eftir að hafa lesið í hálfsmánaðar- tíma Mallorka Daily Bull- etin, sem er gefið út á ensku í Palma, er ekki að sjá að nein spellvirki, rán eða líkamsmeiðingar eigi sér stað i þessari borg. Kannski er ekki skýrt frá slíku í því blaði, eða öðrum blöðum á spánskri tungu. Á slikri túristaferð kynn- ist maður helzt búðarfólki, bilstjórum og þjónum. Þrátt fyrir endalausan straum túrista til landsins virðast fáir í framan- töldum stéttum kunna nema lítið eitt i ensku og sýnir það að menntun almennings hlýtur að vera bágborin, — a.m.k. ef tillit er tekið til þess að túrism- inn er aðalatvinnuveg- urinn. Einkum kom á óvart hve móttökustjórar á hóteli Fimmtudagur 21. september 1972 Þ.TóÐVILJINN — SIÐA 7 okkar virtust illa að sér i er- lendum málum, og að mörgu leyti litlir fagmenn þótt kurteisir væru. Þetta kann að stafa af óðaverð- bólgu í hótelbyggingum og túrisma, sem gleypir mik- inn starfskraft, svo mikinn, að hjálparmenn þarf frá Spáni í allmiklum mæli. Aftur á móti var ágætt fyrirkomulag á allri matarafgreiðslu í því hóteli sem ég dvaldi á, og gætu ís- lenzkir þjónar lært margt af starfsbræðrum sínum á Mallorka. Eflaust er það ekki hug- sjón ungra manna á Mall- orka að verða þjónar ann- arra i stórum stíl. Snagg- aralegur og síkátur kunn- ingi okkar á hótelinu, er barfram drykki frá morgni til kvölds, sagðist ekki vilja yerða barþjónn lengur en hann þyrfti — hann ætlaði séraðgiftast elskunni sinni í bænum Inka, og eftir hjónabandið vildi hann heldur vinna í verksmiðju 8 tíma á dag, en sveiflast meðdrykkina langt fram á nótt, þótt eitthvað meir af peningum kynni að vera í boði. Og talandi um fólk á Mallorka þá langar mig að minnast á hina ágætu tón- listarmenn los Paraguayos sem eitt sinn komu hingað. Þeir skemmta nú á nætur- klúbb í Palma, spila ennþá vel og syngja, en einhverra hluta vegna telja þessir ágætu listamenn að þeir þurfi einnig að vera með fíflalæti á sviðinu til að haida athygli fólksins, þ.e. túristanna. Slíkt rennur manni til rifja. Þá er ekki úr vegi að minnast á íslendinga á Mallorka. Landanum virð- ist yfirleitt lika vel á þess- ari eyju, og er það að vonum — loftslag við okkar hæfi (ef ekki rignir mikið að segja!) Þegar full þota af islendingum er á leið í frí er ekki nema von að nokkur uggur sé í þeim sem hafa áhuga á að landinn hegði sér eins og siðsamt fólk. Allt sem ég sá og heyrði til landans í þessari ferð fannst mér til sóma og eini vel hífaði ferðamað- urinn sem ég sá allan tím- ann var Belgiumaður, sem alsgáður. virtist ákaflega einrænn og lokaður. Eitt ræddu farþegar (sem voru á vegum ferðaskrifstof- unnar Úrval) alloft og það er lengd ferðatímans. Flestum þótti hálfsmán- aðardvöl of stutt vegna þess að margir fá kveisu fyrstu dagana, eða þurfa alllangan aðlögunartíma í sólinni. Þyrfti því að vera völ á hálfsmánaðar og þriggja vikna ferðum til skiptanna. o Systkini á einu torgi borgarinnar. Fg ætlabi aft gefa stúlkunni sem horfir framan i niyndavélina 5 peseta. en hún hristi höfuðiil og ég gekk sköm mustulegur burt. © Gamall maður les i blaði sem hann fann i einni ruslafötunni. © Untferð er mikil i Palina og eins gott að vera ekki viðutan. Götu- lögregluþjónn gefur stranga við- vörun. o Faðir kaupir blöðru handa dóttur sinni. © Innfæddir á sunnudagsgöngu, túristar i baksýn. © Iládegisblundur i fjöru strand- bæjarins Soller. Sollerbúar rækta gómsætar appelsinur sem þcir selja einkum til Frakklands. Norrœnir kennaranemar: Lýsa stuðningi yið 50 mílna landhelgina Námskeið fyrir norræna kennaranema, svo kallað Nordisk Seminar, var haldið á Laugarvatni dagana 1. til 6. september sl. . Þátttakendur á nám- skeiöinu lýstu yfir stuðningi sinum við út- færslu islenzku land- helginnar og sendu áskorun um stuðning við íslendinga til rikisstjórna allra Norðurlandanna. Námskeið þessi eru haldin ár- lega á vegum N.S.L. —■ Nordisk Samarbeidsrad for Lærerstuderende — en Samtök islenzkra kennaranema eru aðili að N.S.L. Að þessu sinni var nám- skeiðið haldið að Laugarvatni og var fjallað um jarðfræði tslands og samspil jarðfræði og sögu. Þátttakendur voru 38 kennara- nemar: 11 Sviar, 7 Norðmenn, 4 Danir og 16 tslendingar. Þátttakendur fóru viða um Arnessýslu m.a. til Þingvalla, og frá Lögbergi lýsti Norðmaðurinn Tor Andreas Gitlesen samþykkt kennaranemanna. En i henni segir: ,,Sú útfærsla islenzku land- helginnar úr 12 sjómilum i 50, sem nú hefur átt sér stað frá hendi islenzkra stjórnvalda, hefur fullan stuðning kennaranemanna. Við skorum þvi á rikisstjórnir hinna Norður- landanna að styðja islenzku rikisstjórnina i þessu máli.” Samþykktin var gerð einróma. Næsta námskeið verður i Dan- mörku að ári. „María Stúart” Schillers sýnd í Þjóð- leikhúsinu Maria Stúart eftir Schiller verður sýnd á næstu jóium i bjóð- leikhúsinu. Leikstjóri verður Ulrich Erfurth frá Þýzkalandi, og er hann einn af þekktustu leik- stjórum i heimalandi sinu. Hann var i mörg ár leikhússtjóri við aðalleikhúsið i Franfurt am Main.en er nú framkvæmdastjóri listahátiðarinnar i Hersfeld. Maria Stúart er sem kunnugt er eitt af þekktustu verkum Friedrichs von Schiller og hefur leikurinn aldrei verið sýndur á islenzku leiksviði áður. Þýðing leiksins er gerð af Alexander Jóhannessyni prófessor. Fjölkvæni lögreglu- þjóna Fjölmörgum lögregluþjónum i Malasiu hefur verið hótað upp- sögn vegna þess að þeir séu i hjú- skap með of mörgum konum. Lögregluþjónar, sem eiga þrjár eða fjórar konur, hafa verið lakari i starfi en þeir sem eiga færri, segir i opinberri skýrslu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.