Þjóðviljinn - 24.10.1972, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 24 október 1972.
liilmrlivpimm í hörjuknattlrik
KR-ingar bikarmeistarar
SiÉruðii llt-iiigá Í55-80 í æsis|H*nnaiidi l«‘ik. <‘ins iilllaf þegar |u*ssi IiA ma*tasl
KR varö bikarmeistari í
körfuknattleik á sunnu-
dagskvöldiö meö þvi aö
sigra ÍR 85:80 í úrslita-
leiknum. Eins og alltaf
þegarþessi liö mætast var
leikurinn hnifjafn og
spennandi allt fram á sið-
ustu sekúndu. Húsfyllir
var í iþróttahúsinu á
Seltjarnarnesi og
stemmningin mikil. Leik-
urinn í heild var nokkuð
vel leikinn, en KR-ingar
voru heppnir aö þvi leyti,
aö nokkra góða leikmenn
vantaöi hjá ÍR eins og til
aö mynda Anton Bjarna-
son, sem leika mun með
liöinu í vetur. Þá er Birgir
Jakobsson nýbyrjaður að
æfa og mátti sin ekki mik-
ils. En sigur KR var fylli-
lega verðskuldaður miðaö
viö gang leiksins.
t fyrri háífleik hafði tR lengst
af frumkvæðið og komst yfir ailt
að lSstig. En KR-ingar sigu á,
og rétt fyrir leikhlé hafði þeim
tekizt að jafna og komust fram
úr á siðustu minútunum, og i
leikhlöi var staðan 42:28 KR i
vil.
KR-ingar gáfu aldrei eftir i
siðari hálfleik og héldu forskot-
inu, þó oft munaði litlu að tR-
ingum tækist að ná frumkvæð-
inu. Þó komust KR-ingar eitt
stig yfir sem nam 15 stigum, en
tR vann þaö upp, og undir lokin
munaði ekki nema 2 stigum,
82:80. ÍR-ingar reyndust svo
sterkari á lokasprettinum og
lokatölurnar urðu 85:80 KR i vii.
Það sem gerði útslagið með
leikinn var, að hittni KR-inga
var mun betri allan timann og
eins það að þeir Gunnar
Gunnarsson og Kolbeinn Páls-
son sýndu báðir stjörnuleik. Það
er mikill akkur i þvi fyrir KR að
hafa fengið Gunnar til sin aftur:
hann á áreiðanlega eftir að gera
stóra hluti fyrir KR i vetur.
Þá niunaði miklu um fyrir tR
að hafa Anton ekki með og Birgi
Jakobsson nær æfingalaúsan.
Þegar þessir tveir eru komnir
með af fullum krafti, verður tR-
liðið mjög sterkt.
Stigahæstur KR-inga var Kol-
beinn Pálsson með 31 stig,
Kristinn Stefánsson var næstur
með 11. Hjá tR bar Kristinn Jör-
undsson af, og var hann stiga-
hæstur i ÍR-liðinu með 29 stig,
en næstur var Kolbeinn Krist-
insson með 16 stig.
Itikarmoislarar KR i körfuknattleik.
U-landsleikurinn: Lúxenibíirw — ísland
*
Mikil óheppni var að
tapa þessum leik 1:2
íslenzka liðið sótti nær Látlaust allan leikinn og á stundum of ákaft
og því fór sem fór
Oft hefur verið reynt að
afsaka tap islenzkra liöa
meö oröinu óheppni, og á
stundum hefur það
kannski ekki átt við. En
með leik íslenzka u-lands-
liösins gegn liöi Lúxem-
búrgar á ekki annað orö
viö en óheppni. islenzka
liðið haföi yfirburði allan
leikinn og sótti nær lát-
laust, og einmitt þessi lát-
lausa sókn varö liðinu aö
falli. Þaö lá allt svo fram-
arlega aö i eitt sinn er
Lúxembúrgarar hreins-
uöu fram, komst sóknar-
maðurþeirraeinn innfyrir
islenzku vörnina og skor-
aöi fyrra markiö. Og svo
elti óheppnin íslenzku
sóknarmennina, sem ekki
náöu aö nýta ágæt mark-
tækifæri. Sigur Lúxem-
búrgar 2:1 er að visu ekki
stór, og ætti islenzka liöiö
aö vinna þennan marka-
mun auðveldlega upp i
siðari leiknum sem fram
fer hér heima i vor.
Þessi leikur, sem er liður i
Evrópukeppni u-landsliða, var
forleikur að leik Lúxemburgar
og Tyrklands i undankeppni
HM. Þann leik unnu Lúxem-
búrgarar einnig. Þetta var þvi
mjkill sigurdagur fyrir LÚxem-
búrg.
En þótt sigurinn yfir tslandi
væri sætur, var hann ekki verð-
skuldaður. Fyrra markið skor-
uðu Lúxembúrgarar á þann hátt
sem hér að framan er lýst, og
var það mikill klaufaskapur af
tslands hálfu að gleyma vörn-
inni vegna stöðugrar sóknar.
Staðan i leikhléi var 1:0.
Luxembúrgarar komust i 2:0
og var þar aftur um slysamark
að ræða. Mark tslands skoraði
svo Ásgeir Sigurvinsson seint i
siðari hálfleik.
Síðari leikurinn fer svo fram
hér á landi i vor, og það má mik-
Valur
sigraði
KR og
Fram
Víking
ið vera ef islenzka liðinu tekst
ekki að vinna þann leik, og þarf
ekki nema 1:0 til að tsland kom-
ist áfram, vegna skoraðs marks
á útivelli.
Tveir leikir fóru fram i
Reykjavikurmótinu i mfl.
kvenna á sunnudaginn, og i
fyrri leiknum sigraði Fram
Viking 6:2 eftir að hafa haft
yfir i leikhléi 5:0. Mörk Fram
skoruðu Arnþrúður 4 og Oddný
2, en mörk Vikings þær Guð-
rún og Þórunn sitt markið
livor.
Siðari leikurinn var á milli
Vals og KR og unnu Vals-
stulkurnar yfirburðasigur 9:2,
eftir að hafa haft yfir i leikhléi
11:1. Mörk Vals skoruðu Björg
G. 3, Svala, Elin 2 mörk hvor,
Jóna Dóra og Björg J. 1 mark
livor. Mörk KR skoruðu þær
Hjördis og Guðrún sitt markið
livor. — S.dór.