Þjóðviljinn - 24.10.1972, Page 11
Þriðjudagur 24 október 1972. ÞJÓÐVILJINX — SIÐA 11
Gróf mistök
Valsmanna
fœrðu Víkingi
jafntefli upp
í hendur
Þegar aðeins voru eftir tvær minútur af leik Vals
og Vikings i Reykjavikurmótinu i handknattleik var
staðan 13:11 Val i vil og liðið með boltann. Þá voru
dæmd skref á Ólaf H. Jónsson hinn leikreynda
landsliðsmann Vals, og gerði hann sig þá sekan um
að reyna að tefja leikinn, og fyrir vikið var honum
visað af leikveiii. Þessi mistök hans urðu til þess, að
Vikingarnir náðu að jafna 13:13 á þeim tima sem
eftir var, þar eð Vaismennirnir léku aðeins 6 það
sem eftir var. Þetta voru gróf mistök af jafn leik-
reyndum manni og Ólafur er, og má fullyrða að
sigurinn hefði fallið Vai i skaut.ef ólafur hefði ekki
verið rekinn af leikvelli þær tvær minútur sem eftir
lifðu leiksins.
Þorbjörn Guðmundsson hinn stór efnilegi leikinaður Vals skorar af línunni.
Annars var þessi leikur mjög
jafn og skemmtilegur lengst af og
hiklaust bezt leikni leikurinn i
mótinu til þessa.
Rétt í byrjun náðu Valsmenn
afgerandi forystu , komust i 3:1 .
En Vikingar náðu að jafna 3:3.
Siðan var jafnt 4:4, 5:5 6:6, og i
leikhléi var enn jafnt 7:7. Það var
þvi enginn hægðarleikur að spá
neinu fyrir i leikhléi.
I byrjun siðari hálfleiks náðu
Valsmenn nokkuð öruggu forskoti
strax i byrjun, komust i 9:7 .
Tveggja marka forskot Vals hélzt
svo allt þar til á siðustu 2
minútunum, að atvikið gerðist
sem að framan er lýst. Meira að
segja náði Valur 3ja marka for-
skoti 12:9 og 13:10 þegar eftir
voru 3 minútur.
Leikur Vals var nú allt annar og
betri en i leiknum á móti KR á
dögunum. Það fór ekkert á milli
mála að Valsliðið var betri að-
ilinn i þessum leik og átti sigurinn
skilið, en mistök á borð við þau er
áttu sér stað á lokaminútunum
geta alltaf komið fyrir og eru
raunar bara mannleg og erfitt að
ásaka menn fyrir þau þótt leik-
reyndir séu. Ólafur H. Jónsson
átti nú einn sinn bezta leik i haust,
og sama má segja um þá Stefán
Gunnarsson og Gunnstein Skúla-
son. Þá áttu þeir Bergur Guðna-
son og Þorbjörn Guðmundsson
báðir stórgóðan leik.
Þeir Einar Magnússon og Guð-
jón Magnússon báru af i Vikings-
liðinu eins og vant er i sókninni og
sá siðarnefndi er einn ágætur
varnarmaður. Þá átti Sigfús Guð-
mundsson sinn bezta leik i haust;
einkum var hann drjúgur i vörn-
inni.
Mörk Vals: Ólafur 3, Þorbjörn
3, Gunnsteinn 3, Bergur 2, Stefán
og Jón K. 1 mark hvor.
Mörk Vikings: Einar 3, Guðjón
5, Magnús 2, Sigfús 2 Ólafur 1
Enn tapar IR-liðið
r r
Armaim sýndi athyglisverðan leik og sigraði IR 11:10
Mörk ÍR: Agúst 3, Brynjólfur 3,
Vilhjálmur , Þórarinn, Bjarni og
Jóhannes 1 mark hver.
S.dór.
Létt
hjáKR
KR-ingar áttu ekki i neinum
erfiðleikum með að sigra Fylki i
Keykjavikurmótinu i fyrrakvöld.
I.okalölurnar urðu 16:8 sigur KR.
i leikhléi, þegar staðan var aðeins
6:4 KR i vil, átti maður von á að
Fylki tækist að halda eitthvað i
við KR-ingana, þannig, að um
stórsigur KR yrði ckki að ræða.
En i siðari hálfleik virtist úthald
Fylkisleikmannanna þrotið og
KR-ingar áttu auðvelda leið að
marki Fylkis.
Fylkir komst yfir i byrjun i 2:1,
en siðan varð jafnt 2:2 og 3:3 , en
eftir það sigu KR-ingarnir framúr
hægt og rólega , en höfðu þó ekki
nema 2 mörk yfir i leikhléi 6:4.
Siðari hálfleikurinn var ein-
stefna, og lokatölurnar urðu 16:8
sigur fyrir KR.
Þeir Björn Pétursson og
Haukur Ottesen báru af i KR-lið-
inu eins og oftast, en Bogi og Atli
komu vel frá leiknum , svo og
Ivar Gissurarson i markinu.
Hjá Fylki vantaði nokkra af
fastamönnum liðsins, en sá sem
mest bar á var Einar Agústsson,
stór-efnilegur leikmaöur.
Mörk KR: Haukur 4, Björn P. 2,
Þorvarður 2, Atli 2 Björn Bl.,
Bogi, Steinar, Jakob, Ævar og
Bjarni 1 mark hver.
Mörk Fylkis: Einar Ág. 5 Guð-
mundur Sigurðsson 3.
s.dór.
Iförður Kristinsson skorar hér fyrir Ármann, með uppslökki fyrir
utan ÍR-vörnina.
1 byrjun var leikurinn mjög
jafn. Á markatöflunni sást 1:1,
2:2, 3:3,4:4, og 5:5, og var þá fyrri
hálfleikur rúmlega háfnaður, en
uppúr þvi sigu IR-ingar framur
og maður átti satt að segja von á
nokkuðstórum sigri 1R. 1R komst
i 8:5, og i leikhléi var staðan 8:6
ÍR i vil.
i R ætlar sannarlega ekki
að standa við þær vonir
sem við það voru bundnar.
Enn varð það að þola
tap i Reykjarvíkurmótinu
sl. sunnudag og þá gegn
Ármanni. Hins vegar er
Ármanns-liðið afar at-
hyglisvert og manni býður í
grun að það eigi eftir að
láta meira að sér kveða i
vetur en margan grunaði
og vanalegt er um nýliða.
Það sýndi mjög athyglis-
verðan leik gegn IR, eink-
um eftirað IR hafði náð 3ja
marka forskoti 8:5. Oft
brotna lið niður við slíkt
mótlæti, en það gerði Ár-
manns-liðið ekki, heldur
tviefldist og náði að vinna
þetta forskot upp og
komast yfir og sigra.
En í stað þess að gefa eftir við
mótlætið tviefldust Ármenningar,
og það voru ekki liðnar nema 5
minútur af siðari hálfleik þegar
þeim hafði tekizt að jafna 9:9, og
siðan náðu þeir forskoti sem um
munaði, komust i 11:9. Siðasta
markið skoruðu svo lR-ingar rétt
á lokasekúndunum.
Það er höfuðstyrkleiki
Ármanns-liðsins hve jafnir leik-
mennirnir eru. Hinir yngri leik-
menn sem komið hafa inni liðið i
fyrra og nú i haust eru mjög
vaxandi, og það myndast engin
skörð i liðið þótt þeir séu settir
inná eins og oft vill verða þegar
nýliðar koma inná. En það eru
einkum þeir Björn Jóhannsson,
Vilberg Sigtryggsson og Hörður
Kristinsson, sem bera liðið uppi.
ÍR-liðið með alla sina ágætu
einslaklinga ætlar ekki að ná
saman nú frekar en áður. Þeir
einu sem eitthvað kvað að voru
þeir Brynjólfur Markússon og
Ágúst Svavarsson. Aðrir voru
heldur atkvæðalitlir i þessum
ieik.
Mörk Ármanns: Björn 5, Vil-
berg 3, Hörður, Ragnar og Bjarni
1 mark hver.
FÉLAG mim HLJÓMLISTARMAIA
#útvegar ybur hljóðfaraleikara
og hljómsveitir við hverskonar tœkifœri
Vinsamlngast hringið í 20255 milli kl. 11-17