Þjóðviljinn - 13.12.1972, Side 1
Háskóli SÞ
á íslandi?
Viö umræður á Allsherjar-
þingi Sameinuöu þjóöanna i
gær um stofnun háskóla Sam-
einuöu þjóðanna gerði fulltrúi
islands grein fyrir þvi, að
rikisstjórn islands hefði áhuga
á að bjóða háskólanum að-
stöðu á islandi fyrir visinda-
og rannsóknarstofnun skóians
i haf- og fiskifræðum.
Kinstakar deildir háskólans
munu verða i ýmsum löndum
en gert er ráö fyrir þvi, að
skólinn veröi eingöngu rann-
sóknarstofnun á ýmsum svið-
um.
Fé til reksturs skólans verð-
ur fengið með frjálsum fram-
lögum sérstofnana Sameinuðu
þjóðanna og úr ýmsum alþjóð-
legum mcnningarsjóðum.
island var eitt þeirra rikja
sem fluttu tillöguna um stofn-
un háskólans. Við endanlega
afgreiöslu málsins voru 110
riki fylgjandi stofnun hans, en
S Austur-Evrópuriki á móti.
Senn
hefjast
jólaleyfi
barnanna
Áður en langt líður fara
börnin í jólaleyfi og síðustu
kennsludagana er farið að
undirbúa ,,litlu jólin" í
skólunum. Þessi mynd er
tekin í barnamúsíkskól-
anum í gær, eri þar hefst
jólaleyfið þessa dagana.
— Mynd AK.
Islendingum
landhelg-
Bandarískir fiskimenn:
Óskuðu
sigurs í
isdeilunni
Forystumenn samtaka
sjómanna og útgerðar-
manna í Nýja-Englands
fylkjum Bandaríkjanna
lýstu yfir stuðningi við l's-
land í landhelgismálinu á
fundi sem haldinn var í út-
gerðarfiskibænum Point
Judith í Rhode Island
sunnudaginn 10. desember
s.l. að fulltrúum islands á
þingi Sameinuðu þjóðanna
viðstöddum. Einnig fögn-
uðu þeir tillögu þeirri, sem
ísland á frumkvæði að og
flutt hefir verið á Allsherj-
arþingi Sameinuðu þjóð-
anna um rétt rikja til nátt-
úruauðæfa innan landa-
mæra sinna og einkanlega
um rétt strandríkja til auð-
æfa í landgrunnshafinu.
Fundurinn var haldinn að til-
hlutan samtaka sjómanna og út-
gerðarmanna á austurströnd
Bandarikjanna, en hann sátu
einnig fulltrúar frá fiskirann-
sóknastofnun Rhode Island hásk-
ólans. Sam vinnufélagi fiski-
manna og Félagi fiskkaupmanna,
segir i frétt frá utanrikisráðu-
neytinu.,
Fulltruar sendinefndar tslands
voru þeir Ellert Schram, Hannes
Pálsson, Jónas Arnason og Sig-
urður E. Guðmundsson, Gunnar
G. Schram og tvar Guðmundsson.
Gunnar Schram flutti framsögu-
ræðu á fundinum og fjallaði um
landhelgismálið og skýrði alls-
herjarþingstillöguna og tilgang
hennar og afleiðíngar, verði hún
samþykkt. Jónas Arnason talaði
einnig um landhelgismálið
almennt. Allir nefndarmenn
svöruðu fyrirspurnum, sem voru
Frh. á bls. 15
Skýrsla embœttismanna
gerð opinber
Samkvæmt fyrirmælum Ólat's
Jóhannessonar, forsætisráðhcrra
hefur blöðunum nú verið send
skýrsla Efnahagsmálanefndar til
rikisstjórnarinnar þar sem fjall-
að er um horfur, markmið og
lciðir i efnahagsmáium. Plaggið
er i tveim heftum, samtals upp á
111 blaðsiður. Eins og fram hefur
koinið fékk rikisstjórnin nefndar-
álitið i hendur fyrir fáum dögum,
en hingaö til hefur verið litið á
það sem trúnaöarmál, unz nú að
það cr sent fjölmiðlum.
tryggja atvinnuöryggi og kaup-
mátt launa”, eins og segir i skip-
unarbréfi.
bessir áttu sæti i nefndinni: Jón
Sigurðsson, hagrannsóknastjóri,
formaður, Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, Jóhannes
Eliasson, bankastjóri, Ólafur
Björnsson, prófessor, Guðlaugur
borvaldsson, prófessor, Halldór
S. Magnússon, viðskiptafræðing-
ur og bröstur Ólafsson, hagfræð-
ingur.
Ekki er hægt að tala um, að
skýrsla nefndarinnar feli i sér
beinar tillögur, en bent er á þrjá
megin-möguleika, sem allir eru
taldir geta tryggt þau markmið,
sem rikisstjórnin setti nefndinni
að miða við og getið var um hér
að framan. Við þessar þrjár leiðir
er siðan gerð grein fyrir 5 af-
bri|ðum, við hvora um sig, eöa 15
tilvikum i allt.
Leiðirnar þrjár, sem skýrslan
nefnir eru nefndar uppfærsla
(gengislækkun), millifærsla og
niðurfærsla (lækkun kaupgjalds
og verölags).
Embættismennirnir gera i
Frh. á bls. 15
Viðtalstími borgarfulltrúa
Viötals'timi borgarfulltrúa Alþýðubandalagsins er i dag, miðvikudag,
svo sem verið hefur að undanförnu. Borgarfulltrúi er til viðtals frá kl.
17 til kl. 19 á skrifstofu Alþýðubandalagsins að Grettisgötu 3. Siminn er
1 98 35.
ég
er svo
dösuð
bað var Jóna Guðjónsdóttir,
Sandfelli Stokkseyri, sem á
mánudaginn varð óvænt fjór-
um miljónum króna rikari?
hún hlaut vinninga á sama
númer á tveimur miðum i
Happdrætti Háskólans. Jóna
er tæplega sextug að aldri.
Blaðamaður bjóðviljans
hringdi til Jónu i gærdag. Hún
kvaðst hafa fengið fréttina um
vinninginn frá skrifstofu
happdrættisins i fyrrakvöld
um sexleytið.
— Jú, þetta kom mér
sannarlega á óvart.
— Hefur þú fengið vinning
áður?
— Já. Ég fékk einu sinni
2000 krónur á hinn miðann
minn, en ég á tvo miða i happ-
drættinu.
— bér hefur þá liklega fundizt
þúsund sinnum meira til um
fjórar miljónirnar.
— Já, ég átti sannarlega
ekki von á þessu.
— Hefur þú átt miðana
lengi, — árum saman?
— Annan miðann hef ég átt
nokkuð lengi, ég man ekki ná-
kvæmlega hve lengi. Hinn
miðann — þann sem færði mér
vinninginn — hef ég ekki átt
eins lengi, liklega um eitt ár
eða svo.
— Veiztu til hvers þú ætlar
að nota alla þessa peninga?
— Nei, það hef ég satt að
segja ekki hugmynd um — hef
eiginlega ekkert spekúlerað i
þvi. Annars á maður nú
krakka sem eru að koma sér
af stað, og það væri gaman að
geta rétt þeim hjálparhönd.
— Ætlarðu að ferðast fyrir
peningana?
— Ég veit ekkertum það.Æ,
ég er svo dösuð og hálfsljó
eftir þetta.
— Hvenær verður borgað
út?
— Ég bara veit það ekki.
— Gaztu sofið i nótt eftir að
þú fréttir af vinningnum?
— Já, já. Ég hélt fyrst að ég
myndi eiga erfitt með að
sofna, en svo sofnaðist mér
bara vel.
— Hafa blaðamenn mikið
truflað þig i morgun?
— Nei, sem betur fer.
Við óskum Jónu Guðjóns-
dóttur til hamingju með stóra
vinninginn.
Embættismannanefndin hefur
með skýrslugerð þessari sett
dæmið upp, en það er siðan að
sjálfsögðu rikisstjórnarinnar að
taka stjórnmálalegar ákvarðanir
og móta tillögur, er lagðar verða
fyrir alþingi. Hefur rikisstjórnin
haldið marga fundi undanfarna
daga, og er unnið að endanlegri
tillögugerð.
Nefndin var skipuð þann 19. júli
s.l. — „til þess að gera tillögur um
leiðir og valkosti i efnahagsmál-
um með það fyrir augum að halda
verðbólgu i svipuðum skorðum og
i nágrannalöndunum, treysta
grundvöll atvinnuveganna og
Utanríkisráðherra í útvarpsviðtali:
Luns hefur aldrei boðið „málamiðlim”
Utvarpið átti í gærkvöldi
viðtal við Einar Ágústsson
utanrikisráðherra, en hann
er nýlega kominn heim af
uta nrikisráðherra fundi
NATO.
Fyrst var ráðherrann spurður
hvað væri að frétta af tilboði Luns
framkvæmdastjóra NATO um
málamiðlun i landhelgismálinu.
Einar Agústsson sagði að ekk-
ert slikt tilboð hefði komið fram
til Islendinga, en Luns hefði sagt
á blaðamannafundi, að hann væri
tilbúinn ef til hans væri leitað. Og
við höfum ekki óskað eftir þvi að
landhelgismálið yrði tekið upp á
vegum NATO, sagði Einar
Agústsson.
bá sagði utanrikisráðherra að-
spurður, að Bandarikjamenn
hefðu ekki látið neitt koma fram
sem benti til þess að þeir vildu
skipta sér af landhelgismálinu.
Ráðherrann sagði að undirbún-
ingsviðræður við Bandarikja-
menn myndu fara fram i janúar.
bað hefi ég sagt hér heima áður,
en það er eins og stundum fyrr, að
mál þykja fyrst fréttnæm, ef sagt
er frá þeim erlendis.
Loks skýrði utanrikisráð-
herrann frá þvi að hann hefði
engan „spurningarlista” lagt
fyrir Walter Scheel, utanrikisráð-
herra Vestur-bjóðverja eins og
komið hefur fram i fréttum.
Sagðist utanrikisráðherra hafa
rætt við Scheel og Alec Douglas-
Home, en ekki gæfu þær viðræður
ástæðu til bjartsýni.