Þjóðviljinn - 13.12.1972, Síða 13
Miftvikudagur 13. desember 1972 þjóÐVILJINN — SIDAl 1(3.
53]
Alistair Mair:
Það
var sumar í
— O, þú þarft ekki að hafa
neinar áhyggjur. Ég hrekk ekki
upp af þótt ég þrauki eina nóttina
enn. Ef þú hefur hlustað á hann,
þá heldurðu það ef til vill. En það
er misskilningur. Ég er i þann
mund að byrja að lifa —
— Ég vopa það, sagði Barrie
stjllilega.
— Og það er rétt. Við Elisabet
bæði. Þess' vegna ertu hingað
kominn. Af þeirri ástæðu einni.
Þú ert hingað kominn tilþessað-
við getum bæði byrjað að lifa
meðan við erum ekki enn orðin of
gömul til að njóta þess. En þú ert
ekki kominn hingað til að sletta
þér fram i hlutina. Þú átt ekki að
segja mér fyrir verkum. Og ég
get minnt þig á að þú ert alls ekki
ráðinn hingað fyrr en í fyrra-
málið.
— Mér er það ljóst, sagði
Barrie. — Og ég biðst afsökunar.
— Og hvers vegna biðstu afsök-
unar? Elisabet kipptist við þegar
hún heyrði hve rödd hans var
hrjúf og hranaleg. — Vegna þess
að samningurinn er ekki undirrit-
aður og þú ert hræddur um að
tapa starfinu, eða vegna þess að
þer er alvara?
— Ö Peter —
Hún andmælti, en Barrie sýnd-
ist ekki móðgaður.
— Það er eitt sem mig langar
til að hafa á hreinu, sagði hann
rólega. — Fyrst þú hefur verið
svona hreinskilinn við mig, þá
ætla ég lika að vera opinskár við
þig. Ég vil gjarnan starfa hér i
Pitford. En ef það er ekki hægt,
þá er það svo sem ekkert reiðar-
slag. Það er læknaskortur um
allan heim. Það er staðreynd, að
ég gæti fengið starf næstum hvar
sem ég vildi. Og ég hef þvi ekkert
aö óttast, þótt ég tapi af þessu
starfi. Og ég baðst afsökunar. Ég
geri það af heilum hug. En ekki
fyrir afskiptasemi. Ég vona að ég
hafi alltaf hugrekki til að gefa
læknisráö þegar mér finnst það
eiga við, hvort sem það er vel
þegið eða ekki. Ég var að biðjast
afsökunar á þvi, að hafa komið
þessum deilum á stað fyrir fram-
an konuna þina. Og það þykir mér
leitt.
Peter hallaði sér aftur á bak i
sætið með hægð.
— Allt i lagi, sagði hann. — Ég
tek afsökunarbeiðnina til greina.
En ég þigg ekki ráðleggingar
þinar.
Barrie brosti við.
— Það er þitt mál.
— Og satt að segja finnst mér
það fjandans ósvifni af þér að
ráðleggja mér.
En honum gekk gott eitt til,
sagði Elísabet vansæl. — Hann
var að reyna að hjálpa.
— Þarna kemur meginregla
til, sagði Peter. — Sú meginregla
að þú þraukir meðan þú þarft
þess með. Hann hefur aldrei þurft
þess með. Og i Pitford kemur
hann ekki til með að þurfa þess.
— Hvers vegna ekki? sagði
Barrie. — Þegar þú ert i frii, þá
stend ég einn eftir.
— 1 hálfan mánuð, sagði Peter.
— Þrjár vikur i mesta lagi. Það er
ekki neitt. Þú þarft ekki að standa
einn viku eftir viku, mánuð eftir
mánuð, ár eftir ár. Heill vinnu-
dagur fyrir þig er eins og hálfur
dagur fyrir mig. Þú færð helgar-
leyfi, hálfa fridaga, næturfri. —
Barrie hló.
— Þú talar um þetta eins og eitt
samfellt fri.
Peter kinkaði kolli.
— Já, sagði hann. — 1 saman-
burði við liðnu árin, þá vantar
ekki mikið á að svo sé.
Og um tima virtist það einmitt
þannig. Þeir skiptu jafnt með sér
verkum, og þá dagana sem Peter
Ashe var ekki á vakt og var þvi
ekki á lækningastofunni siðdegis,
var hann frir og frjáls um miðjan
daginn. í fyrstu kunni hann varla
að notfæra sér þessar tómstundir.
Hann ráfaði um húsið, tók upp
dagblaðið og lagði það frá sér
aftur, hagræddi bókum upp aftur
og aftur, horfði á sjónvarpsdag-
skrár sem hann hafði þótzt fyrir-
lita fram að þessu og gat ekki
slakað á fremur en hann hafði
gertá erfiðu dögunum. Heila viku
var hann að dunda við það i fri-
stundum að endurskipuleggja
spjaldskrána og aðra viku var
hann að flokka gömul bréf, raða
þeim eftir efni og timaröð.
En smám saman fór eitt af lög-
málum Parkinsons aðsegjatilsin.
Störf hans fóru smám saman að
fylla út i tima hans. Eftir það leið
honum betur. Hann gat verið
nákvæmur og samvizkusamur,
vegna þess að hann þurfti ekki að
flýta sér. Hann gat gert miklar
kröfur eins og honum hafði verið
kennt, kröfur sem hann hafði
orðið að slaka á vegna einskærra
anna. Og allt þetta gat hann
gert án spennu, án ofreynslu, án
þess að eftirrekstur utanfrá kæmi
til. Þá fyrst gat hann farið að
njóta til fulls frjálsu stundanna
sem eftir voru.
Elisabet þóttist taka eftir
breytingunni kvöld eitt i byrjun
desember i kvöldverðarboði hjá
Pearsonhjónunum. Eftir máltið
hallaði Peter sér aftur á bak i
armstól fyrir framan arininn og
teygði fæturna makindalega frá
sér.
— Vindil, Peter? sagði Jim
Pearson.
— Þakka þér fyrir.
— Og hvað um konjaksdreitil?
—■ Já, sagði Peter. — Þvi ekki
það?
Þegar komin var glóð i vind-
ilinn og kúpan á konjaksglasinu
var að vermast i lófa hans, leit
hann upp og horfði framaní skæl-
borsandi andlitið á Bill Lambton.
— Nú? spurði hann. — Hvað er
svona fyndið?
— Ekki neitt, sagði Lambton.
— Ég var bara að dást að nýju
manngerðinni.
— Splunkunýju manngerðinni,
sagði Peter. — Ég er varla búinn
að venjast henni sjálfur. Það er
kvöld i miðri viku og hér er ég,
mettur af gómsætum mat frá
Júliu og vini Jims, að sötra
konjak, rétt eins og ég hefði ekki
áhyggjur af nokkrum sköpuðum
hlut.
— Og það er ekki vonum fyrr,
sagði Pearson. — Þú hefur lagt
fram þinn skerf.
— Meira en sinn skerf, sagði
Bill. — Og Elisabet lika.
— Það sem þið ættuð að gera,
sagði Pearson, — er að taka
ykkur vikuleyfi og fara upp i
sveitahúsið okkar. Verið góð við
ykkur sjálf. Farið á skiði, ef
ykkur lystir, sofið eins og ykkur
lystir og gerið yfirleitt það sem
ykkur langar til. Og Barrie getur
staðið i stykkinu á meðan.
— Þetta hef ég einmitt verið að
segja við Elisabetu, hrópaði
Áttþúhlutí
banka?
Samvinnubankinn hefur ákveðið
hlutafjáraukningu í allt að
100 rnilljónir króna.
öllum samvinnumönnum er boðið
að eignast hlut.
Vilt þú vera með?
SAMVINNUBANKINN
m TILBOÐ
óskast í landgræðsluflugvélina TFKAZ Piper Super Cub
árg. 1959.
Upplýsingar gefur Stefán Sigfússon,simi 25444.
Tilboðum sé skilað til skrifstofu vorrar fyrir 19. des. n.k.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGAHTÖNl 7 SÍMl 26844
Miðvikudaqur 13. desember
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15
(og forustugr. dagbl.), 9.00
og 10.00. Morgunbæn kl.
7.45. Morgunleikfimi kl.
7.50. Morgunstund barn-
anna kl. 8.45: Svanhildur
Kaaber endar lestur
sögunnar um ..Tritil trölla-
barn" eftir Robert Fisker
(3). Tilkynningar kl. 9.30.
Þingfréttir kl. 9.45. Létt lög
ámilliliða. Ritningarlestur
kl. 10.25: Séra Kristján
Róbertsson les úr bréfum
Páls postula (8). Sáimaiög
kl. 10.40: Don-kósakka-
kórinn syngur. Fréttir kl.
11.00. Morguntónleikar:
Requdiem eftir Jean
Rogister. Flytjendur: Ysel
Poliart og Léopold Matreau
ásamt kór og hljómsveit
tónlistarskólans i Liége:
René Defosses stj. Guð-
mundur Jónsson pianó-
leikari flytur formálsorð.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar
13.00 Við vinnuna: Tónleikar
14.15 I.jáðu mér eyra. Séra
Lárus llalldórsson svarar
spurningum hlustenda
• 14.30 Siðdegissagan „Gömul
kynni” eftir lngunni Jóns-
dóttur. Jónas R. Jónsson á
Melum les (15)
15.00 Miðdegistónleikar:
islenzk tónlist a. „Rórill”,
kvartett fyrir llautu, óbó,
klarinettu og bassa-
klarinettur eftir Jón Nordal.
Jón H. Sigurbjörnsson,
Kristján Þ. Stephensen,
Gunnar Egilsson og Vil-
hjálmur Guðjónsson leika.
b. „Úr söngbók Garðars
Hólms”, lagaflokkur fyrir
tvo einsöngvara og pianó
eftir Gunnar Reyni Sveins-
son. Asta Thorstensen og
Halldór Vilhelmsson
syngja. Guðrún Kristins-
dóttir leikur á pianó. c_. .
Þriþætt hljómkviða op. 1,
eftir Jón Leifs. Sinfóniu- .
hljómsveit Islands leikur:
• Bohdan Widiczko stj.
16.00 Fréttir.
16.15 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
16.25 Popphornið. Jón Þór
Hannesson kynnir
17.10 Tónlistarsaga. Atli
Heimir Sveinsson sér um
þáttinn.
17.40 Litli barnatiminn.Þórdis
Ásgeirsdóttir og Gróa Jóns-
dóttir sjá um timann. -
18.00 Létt lög. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Bein lina til Birgis
Isleifs Gunnarssonar
borgarstjóra. Frétta-
mennirnir Einar Karl
Haraldsson og Árni
Gunnarsson stjórna
þættinum
20.00 Kvöldvakaa. Einsöngur
Guðmundur Guðjónsson
syngur lög eftir Sigurð
Þórðarson. Skúli Halldórs-
son leikur á pianó. b. A
hestum norður Sprengi-
sand, suður Kjöl. Árni
Þórðarson fyrrverandi
skólastjóri talar. c. Til
sjávar og lands. Valdimar
Lárusson ílytur nokkur
kvæði eftir Gunnlaug F.
Gunnlaugsson fyrrverandi
sjómann. d. Þú sem bitur
bóndans fé. Þorsteinn frá
Hamri tckur saman þáttinn
og l'lytur ásamt Guðrúnu
Svovu Svavarsdóttur. e. Um
islenzka þjóðhætti. Árni
Björnsson cand. mag. flytur
þáttinn, f. Kórsöngur
Kammerkórinn syngur
nokkur lög. Ruth L.
Magnússon stj.
21.30 Að tafli . Ingvar
Asmundsson flytur skákþátt
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. útvarps-
sagan: „Strandið” eftir
llannes Sigfússon. Erlingur
E. Halldórsson les (69).
22.45 Djassþáttur i umsjá
Jóns Múla Árnasonar
23.30 Fréttir i stutttu máli.
Dagskrárlok.
o a
Miðvikudagur 13. desember 1972
18.00 Tciknimyndir
18.15 Chaplin
18.35 Börnin og sveitin. Stutt
kvikmynd um börn og bú.
Aður á dagskrá 10. október
1971.
18.55 lllé
20.00 Fréttir
20.25 Vcður og auglýsingar
20.35 Bókakynning. Eirikur
Hreinn Finnbogason, borg-
arbókavörður, getur nokk-
urra nýrra bóka.
20.45 Flýttu þér kona Brezkt
sjónvarpsleikrit úr flokki
gamanleikja eftir Ray
Galton og Alan Simpson.
Aðalhlutverk Jimmy Ed-
wards og Pat Coombs. Þýð-
andi Óskar Ingimarsson.
Croucher-hjónin hafa lifað i
hamingjusömu hjónabandi i
nær aldarfjórðung og allan
þann tima hafa þau búið i
sama húsinu. Þau ákveða
þó loks að festa kaup á öðru
og betra. Ung hjón kaupa
gamla húsið og flutningun-
um er hraðað sem mest má
verða. En þegar að þvi
kemur, að frú Croucher á að
segja skilið viðsittgamla og
góða heimili, er henni allri
lokið.
21.15 Unglingurinn. Mynd frá
Sameinuðu þjóðunum um
vandamál ungs fólks og við-
horl unglinga til þeirra, sem
eldri eru. Þýðandi Sigriður
Ragnarsdóttir.
21.40 Kloss höfuðmaður.
Póslkur njósnamyndaflokk-
ur. Café Rose. Þýðandi
Þrándur Thoroddsen.
22.50 Dagskrárlok
HEFI TIL SÖLU
18 gerðir transistorsviðtækja þ.á.m. 8- og
11 bylgju tækin frá KOYO. Stereo-
samstæður af mörgum gerðum á hag-
stæðu verði. Viðtæki og stereotæki i bila,
loftnet, hátalarar ofl. Kasettusegulbands-
tæki m.a. með innbyggðu útvarpi.
Áspilaðar stereokasettur 2 og 8 rása i úr-
vali. ódýrir gitarar, melodikur, gitar-
strengir, heyrnartæki, upptökusnúrur,
loftnetskapall o.m.fl. Póstsendum.
l'. Iljörnsson, Bergþórugötu 2 simi 23889
opið eltir liádegi, laugardaga einnig fyrir
liádegi.