Þjóðviljinn - 24.12.1972, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 24.12.1972, Blaðsíða 7
1>JÓÐVH,JINN — aukablaö _ SÍÐA 7 SJÓNVARP Borgarstjórn tímdi ekki að setja útvörp í götusópana Háskalegt líferni franskra karlmanna Þaö var fellt meö 9 at- kvæöum gegn 5 i borgar- stjórn á fimmtudaginn að leyfa að hafa útvörp i götu- sópum borgarinnar. Þetta mál haföi komið fyrir borgarráö er stjórnendur götusópanna óskuöu eftir aö fá að hafa útvarpstæki i götusópunum. Stjórn Vélamiðstöðvar borgar- innar var á móti eingöngu af þeirri ástæðu að það væri allt of dýrt. Upplýst var á fundinum að hvert útvarpstæki kosti 8 þús. kr., en alls myndi kosta 1 milj. kr. að setja útvarpstæki i götusópana. Það var Sigurjón Pétursson sem haði forgöngu fyrir þeim borgar- fulltrúum er vildu gefa stjórnend- um götusópanna kost á útvarps- tækjum. Benti Sigurjón á að störf þess- ara manna væru þreytandi og oft leiðirileg og þvi ekki til mikils mælst að þeim væri veitt umrædd þjónusta. — En þaö var ekki gert, og borgarstjórn felldi málaleitan um útvarpstæki. PARIS. Franskir karlmenn deyja að meðaltali niu árum fyrr en eiginkonur þeirra, vegna þess að þeir drekka of mikið, reykja of mikið og eru of miklir glannar við akstur. Kemur þetta fram i skýrslu sem heilbrigðsmálaráðuneytið franska hefur látið gera. Meðal- aldur karla i Frakklandi er nú 67,6 ár, en kvenna 75,5 ár. Þar i landi eru helmingi fleiri konur 75 ára en karlar, og fimm sinnum fleiri konur ná niræðisaldri. Siðan 1949 hefur dauðsföllum af völdum drykkjuskapar fjölgað um 80% hjá körlum en aðeins 32% hjá konum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.