Þjóðviljinn - 27.01.1973, Síða 15
Laugardagur 27. janúar 1973 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Hjörtur
Framhald af bls. 4.
kaupfélagiö sé aö sjálfsögðu ekki
allt i öllu, sem betur fer, þaö væri
varla hollt ástand. Eigi að siöur á
Dalvik viö sin vandkvæöi aö
striöa, sum hver alveg sama eðlis
og ásækir aðra sambærilega staði
á tslandi, einkum á Norðurlandi.
Atvinnulifið er ekki nógu fjöl-
breytt, atvinna ekki nógu stöðug
og örugg. Annað vil ég nefna, sem
á vissan hátt er þessu tengt. Það
er burtstreymi menntaða hluta
unga fólksins. Þar á Dalvik um
sárt að binda ekki siður en önnur
sjávarþorp svo ekki sé minnzt á
sveitirnar. Þar er með réttu hægt
að tala um arðrán og blóðtöku. En
það er ekki Akureyri, „höfuð-
staður Norðurlands”, sem rænir
arðinum eða sýgur blóðið. Þvi
miður, liggur mér við að segja.
Það væri til muna léttara að sætta
sig við stöðugt burtstreymi
menntaða og oftast um leið hæfi-.
leikamesta hluta æskunnar, ef
straumurinn stöðvaðist hérna inn
viö fjarðarbotninn. En það vita
allri, að þar setjast ekki ungu
mennirnir okkar að, ekki einu
sinni hjá KEA, þótt afl þess sé
mikið. Það er sárgrætilegt fyrir
stað eins og Dalvik sem sannar-
lega þarf á aö halda öllum hæfi-
leikum barna sinna, hugkvæmni
og framtaki, að verða jafnt og
þétt á bak að sjá þvi unga fólki,
sem hlotið hefur mesta hæfileik-
ana til að láta til sin taka og
a.m.k. mesta menntunina hvað
sem hæfileikunum liður. Það,
sem stað eins og Dalvik skiptir
svo feykimiklu máli, er einmitt
þetta: ungt vel menntað fólk meö
hugkvæmnitil að sjá nýja mögu-
leika bæði á sviði menningar- og
atvinnumála og framtak til að
gera hugmyndir að veruleika.
Það er alveg vist, að fátt eða
ekkert gæti gerzt heillavænlegra
fyrir stað eins og Dalvik heldur en
það, að sá skilningur gæti fest
rætur i hugum þess unga fólks,
sem getur og vill afla sér góðrar
menntunar, að markmið þeirrar
menntunar eigi ekki sizt að vera
það, að gera það siðar meir
færara um að efla heilbrigt
menningar- og athafnalif i sinni
heimabyggð.
Guðlaugur Arason er einn
hinna fjölmörgu, sem lagt hafa á
menntabraut á undanförnum ár-
um. Hann er ennþá ungur og
óskrifað blað i þeim skilningi, að
enginn veit með neinni vissu,
hvað i honum kann að búa eða aö
hvaða gagni hann kann að verða
sinni heimabyggð. En þeir, sem
þekkja fólk hans hér, hljóta að
ætlast til mikils góðs af honum.
En það ætla ég að vona, að
þegar bæði hann og aðrir ungir
Dalvikingar koma aftur heim
með menntun sina og löngun til
dáða, að þá láti þeir sér detta eitt-
hvaðannað fyrr i hug til hagsbóta
fyrir sitt heimafólk heldur en að
ná undir sig hinum traustu þjóð-
þrifafyrirtækjum kaupfélagsins,
sem starfað hafa við góðan orðs-
Hr áratugum saman.
Ég held ég hljóti að geta talað
fyrir munn allra Dalvikinga og
annarra Svarfdæla, þegar ég
segi, að við vonumst eftir að sem
flestar komi heim, sem hafa aflað
sér góðrar og hagnýtrar mennt-
unar á einhverju sviði, og þegar
þeir koma heim, að þeir snúi sér
að þvi að efla menningarlif og at-
vinnulif á Dalvik með þvi að
hjálpa til við að koma upp nýjum
atvinnugreinum, nýjum heil-
brigðum fyrirtækjum við hliöina
á gömlum heilbrigðum
stofnunum Kaupfélags Eyfirð-
inga og annarra.
Með þökk fyrir birtingu,
Hjörtur E. Þórarinsson
Skinner
Framhald af bls. 7.
EN AÐ OÐRU LEYTI er
óbragð af kenningum Skinn-
ers, sem leiðir hugann að
hamingjupillum þeim, sem
persónur visindaskáldsagna
voru látnar éta þegar fyrir
fjörutiu árum. Þetta sýnist
einkennilega vélræn skyn-
semdarhyggja sem er blind á
litauðgi mannlifsins, dásam-
legan fjölbreytileika þess.
Svipuð árátta þjakar til dæmis
þá menn, sem halda að mann-
kynið verði mun sælla ef smá-
þjóðir kasti fyrir róöa tungum
sinum. Og eins og oft er um
altækar kenningar, þá bilar
Skinner á háa C. Hann er
spurður að þvi, hver eigi að
ákveða hvað er gott og hvað
vont i fyrirmyndarsamfélagi
hans. Hann svarar: Það verða
visindamennirnir að gera.
Það litur kannski ekki illa
út við fyrstu sýn að taka
völdin frá stórframleiðendum
og um leið stórauglýsendum,
sem ákveða öðrum fremur
hvað fólki finnst eftirsóknar-
vert og hvað ekki. Eða þá frá
flokksstjórn sem baðar sig i
eftirlitslausu sjálfshóli. En
fyrri villur eru ekki til þess
framdar að visa mönnum á
nýjar. Nú á dögum, þegar
visindamenn hafa búið til
atómbombuna, bensínhlaupið,
plastflisasprengjurnar og eru
farnir að fikta við erfðastofn-
ana er visindamaðurinn sem
valdhafi ekki siður hrollvekj-
andi en allir Stórubræður
staðleysuskáldsagnanna.
Árni Bergmann.
Horn í síðu
Framhald af 2- siðu.
gert af herliðsins hálfu, enda var
það ekki það sem þeir voru aö
skrifa á móti, og ekki þess vegna
sem þeir fölsuðu tilvitnunina; það
var hugmyndin um að flytja Kan-
ana burt úr byggðinni sem lagðist
svo þungt á sálina. Þess vegna er
nið þeirra einnig ætlað Kefl-
vikingum, og það veit ég að þeir
muna þeim.
En vel á minnzt. Hver verða
viðbrögð huldudrengja og aur-
ausara við þeirri hugmynd, sem
stöðugt vex fylgi dag frá degi og
verða kann að þjóðarvakningu,
að fyrst Bandarikjamenn vilji
veita okkur hjálp, þvi skyldu þeir
þá ekki veita okkur þá hjálp i
þessari neyð, sem mest væri um
vert: AÐ YFIRGEFA
HERSTÖÐINA OG EFTIRLATA
ÞORPIÐ I HEIÐINNI VEG-
LAUSUM EYJAMÖNNUM.
Úr Miðnesheiöinni er stutt til
allra helztu verstöðva á Reykja-
nesi, til Hafnarfjarðar og til
Reykjavikur, og i Heiöinni er 5000
manna þorp meö allri þjónustu
sem til þarf til mannabyggðar,
skólum, sjúkrahúsum, verzlunum
og að sjálfsögðu ibúðarhúsum.
Yfirgefin herstöð væri vissulega
bezta framlag Bandarikjamanna
að dómi undirritaðs. En hver
skyldi vera dómur hallarmann-
anna við Aðalstræti þar um* er
kannski einhvers misst, huldu-
drengir?
—ú.b.
Flotbryggja
Framhald af bls. 3.
Hafnarstjóri kvað vera til
áætlun um uppbyggingu fiski-
hafnarinnar hér i Reykjavik.
Mætti hraða framkvæmdum, ef
hér verður örtröð báta i höfninni.
Þjóðviljinn vill benda á, að
brýn nauðsyn er að koma upp aö-
stöðu fyrir Eyjasjómenn úti á
Granda, — til dæmis útvega þeim
skemmur fyrir veiðarfæri bát-
anna. — g.m.
Opna
Framhald af bls. 9.
með framleiðslu- og atvinnufyrir-
tækjum, brunaliðið, Hjálparsveit
skáta, Björgunarfélagið, lögregl-
an og lið almannavarna, bæjar-
stjórnin og starfsmenn hennar,
visindamenn og nauðsynlegt
þjónustulið. Hef ég látið skrá mig
til aðstoðarstarfa undir siðast
nefnda liðnum, á að hjálpa kokk-
inum við aö þvo upp.
Gosið hefur verið álika mikið i
nótt og morgun og það var i gær-
kvöldi, og talsvert vikurregn öðru
hvoru. Tveir nýir gigir hafa
myndazt, annar sunnan við aðal-
giginn nú rétt fyrir hádegið og svo
annar kl. 12,45 norðan hans, svo
að opið á sprungunni hefur lengzt
talsvert aftur, eins og Þorleifur
Einarsson, jarðfræðingur lýsti
þvi.
Hraunið rennur enn eftir sama
farvegi til sjávar, þó rennur
einnig smá straumur til vesturs
út frá aðalstraumnum.
Með hjálma á höfði
Enginn gigur hefur opnazt á
túninu hjá Búastöðum eins og
menn óttuðust i gær, en þar tók aö
rjúka, — en þar mun hafa verið
um brennisteinsútfellingar og gas
að ræða, að sögn jarðfræðinga.
Samkvæmt tilmælum almanna-
varnaráðs er nú engum heimilt að
fara austur fyrir Helgafellsbraut
eða Heimagötu án þess að hafa
hjálma á höfði.
Höfnin og vatnsleiðslan eru
ennþá i lagi, en nokkuð af vikri
hefur lagzt á vatnsleiðsluna, en
vikurinn er sem kunnugt er svo
léttur, að það kemur ekki að sök.
Skipin Hofsjökull og trafoss,
sem hér hafa lestað fisk, eru nú
bæði farin. Tók Hofsjökull allan
frystan fisk, sem hér var I hús-
unum og var þaö fullfermi, en
trafoss tók allan fullverkaöan
saltfisk.
600 bílar komnir
um borð í skip
Vilborg Harðard sagði okkur
helztu tíöindi af flutningum milli
lands og Eyja I gærkvöld:
Dettifoss, sem er hér i höfninni,
fer um miðnættið með um 200 bila
og nokkuö af húsgögnum sem
flutt verða i gámum. Reiknað er
með að þá sé búið að flytja um 600
bila til lands. A morgun kemur
Laxfoss og mun hann flytja hús-
gögn i gámum.
Vörubilar og jeppar hafa veriö
kyrrsettir til björgunarstarfa.
Mjög strangt eftirlit er meö þvi
hverjir koma hér i land, en erfitt
er að hafa eftirlit með þeim sem
koma með bátum, þannig að ekki
er fullkomið yfirlit yfir hvaö
hefur verið sótt af bilum, hús-
gögnum og sliku, en þó er hægt að
fara nokkuð nærri um það.
11 bandarískir
jarðfræðingar á
leið til Eyja?
Frétzt hefur að 11 bandarlskir
jarðfræöingar séu á leið hingað i
óleyfi meö bát, en þeim heföi ver-
ið neitað um landvistarleyfi af
yfirvöldum.
Búiö er að flytja mikið af
veiöarfærum, en ekki er vitað ná-
kvæmlega hvað mikið þar sem
nokkrir bátar hafa tekið veiðar-
færi án þess að tilkynna það.
Guömundur Karlsson hjá
Vinnslustöðinni sagði að nú væru
eftir 40—60 tonn af saltfiski, hálf-
blautum, sem var i þurrkhúsi
austanvert á eyjunni. Þessar
birgðir verða fluttar i Vinnslu-
stöðina sem stendur við höfnina
vegna hættu á skemmdum.
t dag voru fluttar héðan 115
kindur i fjórum ferðum meö flug-
vélum frá hernum. Attu vélarnar
að lenda á Hellu, en gátu það ekki
og lentu á Keflavikurflugvelli i
staðinn. Þaðan verða kindurnar
fluttar að Ketilshúsahaga á
Rangárvöllum. I Eyjum eru sam-
tals 480 kindur og verður flutning-
um haldið áfram á morgun. Þá er
verið að undirbúa flutning á
hænsnum er munu fara með
næstu ferð Heklu, ýmist lifandi
eða aflifuö.
Sísendir
Framhald af bls. 16.
heildarkerfi Landsimans ef
byggðin i Eyjum færi undir
hraun? Hefði það veruleg
áhrif á simakerfið i landi?
— Það heföi þá helzt áhrif á
strandstöðvarnar, en ekki
kannski á almenna kerfið,
nema þá að hraun færi yfir allt
og þá einnig strenginn við út-
lönd. Það yröi að sjálfsögðu
reynt að bjarga sæsimanum ef
i þá veruna stefndi að allt færi
á kaf, en eins og ég sagði áðan
þá er ekkert ákveöið i þeim
efnum, og heldur ekki hvert
við færum með strengina. -úþ
Fjárframlög
Framhald af bls. 1
fram á aö þau skipi hvert um sig
einn mann i nefndina.
2) Bæjarsjóður leggur fram 200
þúsund krónur i söfnunina. Auk
þess skal hann greiða þann kostn-
að, sem af söfnuninni leiðir, svo
sem prentun og auglýsingar ef til
kemur, en þess er vænzt að söfn-
unarstarfið verði unnið af sjálf-
boðaliðum.
3) Bæjarstjórn væntir þess að
fiskkaupendur og vinnuveitendur
i bænum greiði svo sem framast
er unnt fyrir fisklöndunum Vest-
mannaeyjabáta sem hingað
kunna að leita, og gefi Vest-
mannaeyingum kost á vinnu eftir
þvi sem framast er unnt.
4) Bæjarstjórn væntir þess
einnig, að þeir húseigendur sem
aðstöðu hafa til, láti Vestmanna-
eyingum sem hingað kunna að
koma húsnæði i té.
5) Loks mælist bæjarstjórnin til
þess að bæjarbúar leggi fram til
styrktar Vestmannaeyingum ein
daglaun hið minnsta.
Þessir liðir allir voru sam-
þykktir samhljóða. —úþ
Loðnuafli
glœðist
Um 20 loðnubátar eru komnir á
loðnumiðin út af Austfjöröum, en
loðnugöngur eru nú komnar suður
undan Hvalbak eða Glettingi.
í gær landaði Ásgeir 300 tonn-
um á Seyðisfirði og þá lönduðu
átta bátar loðnu á Neskaupstað —
samtals 1650 tonnum.
Þökkum af heilum hug samúð og vináttu við andlát og
útför konu minnar, móöur, tengdamóður og ömmu
SIGURBORGAR ÁGUSTSDÓTTUR
Höfn, Hornafirði.
Guð blessi ykkur öll.
Runólfur Bjarnason
börn, tengdabörn og barnabörn.
Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaöir og afi,
SKÚLIÞORSTEINSSON
fyrrverandi námsstjóri Austurlands,
andaðist aö heimili sínu Hjarðarhaga 26 fimmtudaginn 25.
janúar 1973.
Anna Sigurðardóttir
Þorsteinn Skúlason
Asdis Skúladóttir Sigurður Lúövigsson
Anna Skúladóttir Sigurður Jónsson
Móeiður Anna Sigurðardóttir
FJÓRÐUNGSSJÚRKRAHÚSIÐ
NESKAUPSTAÐ
Hjúkrunarkonu
vantar að Fjórðungssjúkrahúsinu Nes-
kaupstað.
Húsnæði fyrirliggjandi.
Barnaheimili rekið á vegum sjúkrahúss-
ins. Nánari upplýsingar hjá yfirhjúkr-
unarkonu simi: 7493.
ATYINNA
Járniðnaðarmenn og laghentir aðstoðar-
menn óskast nú þegar.
Upplýsingar hjá yfirverkstjóra.
= HÉÐINN =
Simi 24260.
MARIA LLERENA
sænsk-kúbönsk söngkona, syngur afrlksk-kúbanska þjóö-
söngva I fundarsal Norræna hússins kl. 16. 00 laugar-
daginn 27. janúar. Sem bakgrunnur við söngvana veröa
sýndar skuggamyndir af myndum, sem hún hefur sjálf
málað. Kynnir verður mannfræðingurinn Tore Hakansson
frá Sviþjóð.
TORE HAKÁNSSON
heldur fyrirlestur meö tóndæmum I samvinnu viö Þjóð-
félagsfræðideild háskólans I fundarsal Norræna hússins,
mánudaginn 30. janúar kl. 15.00. Fyrirlesturinn verður
haldinn á ensku og fjallar um það. á hvern hátt hinir
svörtu þrælar hafa haft áhrif á þróun tónlistar og dansa í
Norður- og Suður-Ameriku. Honum til aðstoðar verður
Maria Lerena.
NORRÆNA
HÚSIO