Þjóðviljinn - 08.03.1973, Page 1

Þjóðviljinn - 08.03.1973, Page 1
Leiga fyrir Statesman: 12 miljónir hvern mánuð Átta að gœta eins togaral Þegar varðskipið Ægir ætlaði að skera á togvira brezka togarans Antic Vandale H 344 hinn 5 marz siðastliðinn bakkaði togarinn i átt að varðskipinu, og töldu skipverjar varðskipsins að viraskurður hefði ekki heppnazt. Þvi hefur verið haldið fram af Bretum, að Ægi hafi tekizt að skera á togvira togarans. Hefur þá verið skorið á togvira 25 brezkra togara og 3 vesturþýzkra eða alls 28 togara siðan frá þvi fiskveiðilögsagan var færð út i 50 milur 1. september siðastliðinn. Kom þetta fram hjá Hafsteini Hafsteinssyni, blaðafulltrúa Landhelgisgæzlunnar i gærkvöld. Um kl. 16.50 i gær skar varð- skipið Ægir á báða togvira brezka togarans Spurs GY 67, sem var að veiðum 14,2 sjómilur norður af Hraunhafnartanga. Rétt út af 12 milunum á þessum slóðum er einn brezkur togari að veiðum,og gæta hans sjö brezkir togarar og einnig eftirlitsskipið Miranda, sagði Hafsteinn. Siðdegis i dag var einn brezkur togari að veiðum út af Hvalbak og gætti annar brezkur togari hans með þvi að sigla i kjölfar hans. Á þessum slóðum var dráttar- báturinn Englishman og að- stoðarskipið Othello. Frá þvi á mánudag hefur verið skorið aftan úr 10 brezkum togur- um. — g.m. Brezka blaðið New Statesman er ekki beinlinis hrifið af því að dráttarskip sem ber svipað nafn, Statesman, var sent á íslandsmið til að striða við Islenzk varöskip. Blaðið segir, að skip þetta muni ekkert gott gera, hvorki islenzk- • • Osku- dagur um né brezkum sjómönnum, og sé för þess hin versta. Hins vegar muni hlutafélagið United Towling heldur betur mata krókinn. Hafi það fengið fyrir 30 daga leigu á þessu skipi, sem siglir undir Liberiufána greiðslu sem nemur um 12 miljónum islenzkra króna. Það var mikið um að vera hjá börnunum i gær i tilefni öskudags- ins. Þau höfðu varla við að hengja pokana sina aftan i vegfarendur og hér á myndinni, sem var tekin niður i Austurstræti i gær eru þrjár litlar hnátur að hengja pka aftan I Karl Kristjánsson fyrrum aiþings- mann, meðan hann beið eftir að komast yfir götuna. (Ljósm. S.dór.) Hraunið að hafnar- garðinum Gosið var með svipuðu móti og sfðasta sólarhring, jókst litið eitt siðari hluta nætur, en dró svo aftur úr þvi á 10. tim- anum. Hraunrennsli var mest SA-af Yztakletti, þar sem hraunið hefur gengið fram c.a. 40 metra. Kl. 1800 fór hraunið á skrið á 40 metra belti A- við hafnargarðinn og skreið þar fram um 3—5 metra á klst., fram til kl. 0100, en þá stöðvaðist það. Hafði það fyllt upp bilið á milli hafnargarðs- ins og eldra hraunsins, nema 30 metra löng vik er enn inn meö garðinum. Smávægilegar hreyfingar urðu á nokkrum stöðum á hraunjaðrinum A- bæjarins. Gjóskufall var i bænum frá kl. 0900—1800 I gær og er nú unnið að mælingum á þvi. Flakkarinn skreið um 20 metra fram i sömu stefnu og undanfarið, á siöasta sólar- hring. Skipuðu út loðnumjöli í Eyjum Brætt hefur verið dag og nótt i Fiskimjölsverksmiðj- unni i Vestmannaeyjum siðan á laugardag. Hafa þeir brætt núna um 2 þúsund tonn af loðnu, sagði Viktor Helgason verkstjóri þar i gær. í dag höfum við unnið að útskipun á 500 tonnum af loðnumjöli i Selá. Atti skipið að fara frá Eyjum i gærkvöld. Núna eru um 2 þúsund tonn af loðnu i þróm verksmiðj- unnar. Eru væntanlegir loðnu- bátar með afla i nótt, Um 45 menn vinna i loðnu- bræðslunni i Eyjum og ganga á vaktir. Vantar heldur menn og urðu verksmiðjumenn að vinna að útskipun loðnumjöls- ins i dag i aukavinnu. — g.m. Rœtt um endurskipulagningu lyfsölumála á alþingi Lyfjastofnun ríkisins fái einkarétt Jóhann og EUert mótmœla þjóðnýtingu fyrir hönd heildsalanna Frumvarp ríkisstjórnar- innar um Lyfjastofnun ríkisins og einkaleyfi henni til handa vartil 1. umræðu á alþingi í gær. Einnig fléttaðist frumvarpið um lyfjaframleiðslu, er liggur fyrir alþingi, inn í um- ræðurnar. Magnús Kjartansson, heilbrigðis- og trygginga- ráðherra fylgdi frum- varpinu úrhlaði og gat þess að þessi tvö frumvörp um endurskipulagningu lyfja- verzlunarinnar væru flutt i samræmi við það ákvæði stjórnarsáttmálans — að tengja lyfjaverzl- unina við heilbrigðisþjón- ustuna og setja hana undir félagslega stjórn. Magnús gat þess, að nú væru 12 fyrirtæki, sem fengjust við innflutning á sérlyfjum til sölu innan- lands, en frumvarpið gerir ráð fyrir að Lyfjastofnun Magnús Kjartansson ríkisins fái einkarétt til að selja sérlyf, bóluefni og ónæmisefni og önnur lyf en sérlyf. Jóhann Hafstein og Ellert Schram báru fram harðorð mótmæli af hálfu Félags íslenzkra stórkaup- manna, en Jóhanni hafði borizt sérstök álitsgerð heildsalanna. Ellert taldi, að hér væri á ferðinni þjóð- nýting á mikilvægri atvinnugrein að kröfu Aiþýðubandalagsins og slíkt gæti hann ekki sam- þykkt af „princip"-ástæð- um. Stefán Gunnlaugsson lýsti stuðningi Alþýðu- fíokksins við meginstefnu frumvarpsins. Hér fer á eftir endursögn af fyrri hluta ræðu Magnúsar Kjartanssonar, en lokakaf la hennar birtum við í heild á morgun. í framsöguræðu sinni gat Magnús Kjartansson þess, að frumvörpin væru undirbúin af lyfjamálanefnd, er hann skipaði fyrir rúmu ári, en i henni áttu sæti: Almar Grimsson deildar- stjóri, Árni Einarsson, fram- kvæmdastjóri á Reykjalundi, Einar Benediktsson lyfjafræö- ingur, dr. Kjartan Jóhannsson Framhald á bls. 15. Færeyingar ræða við Breta o.fl. Atli Dam lögmaður I Færeyjum greindi frá því á fundi I lögþinginu i gær, að færeyska landsstjórnin hefði i hyggju að leita fyrir sér um samkomulag við Breta, Vestur-Þjóðverja og Belga um veiðar við Færeyjar. Hafnaði lögmaðurinn leið stjórnarand- stöðunnar, sem gerir ráð fyrir einhliða útfærslu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.