Þjóðviljinn - 08.03.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 08.03.1973, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 8. marz 1973 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Dregur til verkfalla í Finnlandi / góðsemi vegur þar hver annan Borgþór Kjærnested sendir okkur fréttabréf frá Finnlandi sem hér fer á eftir. I framhjáhlaupi segir Borgþór okkur# að eldgosið í Vestmannaeyjum sé nú mjög á dagskrá í Finn- landi/ fjöldi funda og „Is- landskvölda" haldin og efnt til fjársafnana. Hjá Hufvudstads-blaðinu einu hafa komið inn um 150 þús- und mörk eða andvirði 2ja húsa. Sjálfur kvaðst Borg- þór hafa verið beðinn um að halda ræðu yfir ungum ihaldsmönnum í Tammer- fors22. f.m., og gerði hann það. Finnar sýna Islend- ingum mikla hjálpfýsi, t.d. hefur sænski lýðháskólinn í Borgá boðið Vestmannaey- ingi vetursetu að ári, ókeypis nám og uppihald. Að öðru leyti segir Borg- þór þetta frétta: Ástandið i finnskum verkalýðs- málum er þannig nú, að ekki er annað sýnna en til verkfalla muni draga. Þeir, sem gefa yfir- lýsingar fyrir hönd finnska alþýðusambandsins, láta i ljös mikla svartsýni um það, að alls- herjarsamningar muni takast um þær kröfur til hækkunar kaupgjalds sem á döfinni eru. Siðustu mánuðina hefur verð- lag stöðugt farið hækkandi. Hefur þvi jafnvel verið haldiö fram, að verðhækkanir frá þvi skömmu fyrir jól hafi nú numið yfir tiu af hundraði. Þeir allsherjarsamningar sem gerðir voru við verkalýðssamtök- in i fyrra áttu að tryggja 7% raun- hæfa kauphækkun. Atvinnu- rekendur halda þvi fram, að við þetta hafi verið staöið, og affara- sælast sé aö i ár veröi kaupiö bundiö við það sem þegar er orð- ið. Borgþór S. Kjærnested En hjá verkalýössamtökunum er annað hljóö i strokknum. Einn af varaformönnum Alþýðusam- bandsins finnska, kommúnisti, hefur krafizt þess aö kaupgjald verðihækkaðum 10% nú þegar og áður en samningaviðræöur hefj- ast. Þvi aöeins sé gengið til samn- ingaumleitana á raunhæfum grunni, að sá þjófnaöur sem nú hefur verið framinn á launafólki verði bættur. Margir eru þeirrar skoðunar að á bak við þessa togstreitu sjáist glytta i samninga Finna við Efna- hagsbandalag Evrópu. Sterk and- staða er gegn samningnum, hann hefur þegar orðið einni rikisstjórn að falli, og enn hefur hann ekki verið lagður fyrir rikisþingið til samþykktar eöa synjunar. Kommúnistar halda þvi fram^ að EBE-samningurinn — veröi hann staðfestur — muni lama ákveðnar iðngreinar I landinu. Einnig sé hann I andstöðu við hlutleysisstefnu landsins. Finn- land hefur skuldbundið sig til að taka engan þátt I pólitiskum eöa hernaöarlegum bandalögum sem beint er gegn Sovétrikjunum, en það sé lýðum ljóst, að EBE er óaðskiljanlegur hluti Atlanzhafs- bandalagsins. Þvi sé til EBE stofnaö gegn Sovétrlkjunum. Augljóst er að atvinnurekendur eru ófúsir til að semja viö verka- lýðshreyfinguna meðan óvissa rlkir um afdrif samningagerðar- innar vöið EBE. Stærstu verka- lýðfsélög landsins hafa lýst sig andvig samningum eins og hann nú liggur fyrir. Það má þvi búast við höröum átökum i finnskum innanlandsmálum undir vorið. Þá veröur 1. mai rauður. Borgþór S. Kjærnested 210 þúsund tonn af ioðnu á laugardagskvöld 63 bátar með 1000 tonn og meira Samkvæmt skýrslum Fiski- Eldborg GK 8426 Hafnarfjörður 12415 Gissur hviti SF 1273 Loftur Baldvinsson EA 6351 féiags tsiands var vitað um 86 Loftur Baldvinsson EA 6337 Reykjavik 16716 Gjafar VE 1374 Magnús NK 3409 skip, er fengið höfðu einhvern Gisli Arni RE 5635 Akranes 14793 Grimseyingur GK 1845 Náttfari ÞH 2788 afla s.l. laugardagskvöld, og nam Grindvikingur GK 5577 Bolungarvlk 1451 Grindvikingur GK 5577 Ólafur Magnússon EA 1240 vikuafiinn 56.973 lestum, sem er Loðnu hefur veriö landað á Listi yfir skip, er fengiö hafa Guðmundur RE 9028 ölafur Sigurðsson AK 2497 bezti vikuafli á þessari vertiö. eftirtöldum stöðum: lestir 1000 lestir eða meira: lestir Gullver VE 1028 Óskar Halldórsson RE 3742 Frá þvi aö veiðar hófust og til Krossanes 420 AlDert liK 3165 Halkion 1705 Óskar Magnússon AK 5014 miðnættis s.l. laugardagskvöld Raufarhöfn 4782 Alftafell SU 3150 Harpa RE 2773 Pétur Jónsson KÓ 4933 höfðu borizt á land samtals Vopnafjörður 2924 Arinbjörn RE 1282 Héöinn ÞH 4573 Rauösey AK 4074 219.603 lestir. A sama tima I Seyðisfjörður 25146 Arni Magnússon SU 2709 HeimirSU 5200 Reykjaborg RE 3849 fyrra höfðu borizt á land samtals Neskaupstaður 22976 Arsæll Sigurösson GK 1424 Helga RE 49 2330 Seley SU 2492 216.184 lestir. Eskifjörður 19312 Asberg RE 4654 Helga II RE 2948 Skinney SF 3118 Rétt er að geta þess aö i vikunni Reyðarfjörður 11033 Ásgeir RE 4402 Helga Guðmundsdóttir BA 4585 Skirnir AK 4693 landaði togarinn Úranus RE Fáskrúðsfjörður 9853 Ásver VE 1514 HilmirKE 1519 Súlan EA 5228 samtals 135 lestum af loðnu, er Stöðvarfjörður 9922 Bjarni ölafsson AK 3275 Hilmir SU 4207 Sveinn Sveinbjarnarson NK 3006 skipið fékk I flotvörpu. Er þetta I Breiðdalsvik 4627 Börkur NK 1864 Hrafn Sveinbjarnarson GK 3277 Sæberg SU 3097 fyrsta sinn aö togari er gerður út Djúpivogur 7985 Bergur VE 1575 Höfrungur III AK 3606 Viöir AK 1797 til loðnuveiða. Hornaf jörður 11645 Dagfari ÞH 3474 Isleifur VE 2174 Vonin KE 1129 Nú munu 9 skip vera búin að fá Vestmannaeyjar 3886 Eldborg GK 8426 Jón Finnsson GK 4226 Vörður ÞH 3033 fimm þúsund lestir eða meira og Þorlákshöfn 10649 EsjarRE 2570 Jón Garöar GK 4080 Þórður Jónasson EA 3712 er mb. Guömundur RE 29 afla- Grindavik 12725 FaxiGK 1454 Keflvlkingur KE 2334 Þórkatla II GK 1364 hæstur með 9.028 lestir. Skipstjóri Sandgerði 5629 Fifill GK 5226 Kristbjörg II VE 1096 Þorsteinn RE 4546 er Hrólfur Gunnarsson. Keflavik 10716 Gisli Árni RE 5635 Ljósfari ÞH 2251 örn SK 3430 Svavar Heimdallur — Æskulýðsráð Alþýðubandalagsins KAPPRÆÐUFUNDUR UM STEFNU RÍKISSTJÓRNARINNAR verður haldinn mánudaginn 12. marz og hefst kl. 8.30 Ræðumenn Æskulýðsráðs Alþýðubandalagsins: Óttar Proppe kennari, Sigurður Magnússon rafvélavirki, Svavar Gestsson ritstjóri, Ræðumenn Heimdallar: Davíð Oddsson laganemi, Friðrik Sóphusson framkv. Jón Magnússon laganemi, Fundarstjórar: Jónas Sigurðsson og Skúli Sigurðsson HÚSIÐ OPNAÐ KLUKKAN 8.00 Jón

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.