Þjóðviljinn - 08.03.1973, Síða 6
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. marz 1973
MÁLGAGN SÓSIALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS
þJÚÐVIlllNN
(Jtgefandi: Otgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan Óiafsson
Svavar Gestsson (áb.)
Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson
Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar:
Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur).
Askriftarverö kr. 300.00 á mánuöi.
Lausasöluverö kr. 18.00.
Prentun: Blaöaprent h.f.
FLETT OFAN AF ÓHEILINDUM
Enginn ræðumaður stjórnarflokkanna
við útvarpsumræðurnar i fyrrakvöld
hefur fengið yfir sig aðrar eins gusur sefa-
sjúkra ofstækismanna stjórnarandstöð-
unnar eins og Magnús Kjartansson ráð-
herra. Ástæðan til biturrar reiði Morgun-
blaðsmanna er að sjálfsögðu sú, að
Magnús sagði þeim og þeirra nótum til
syndanna á rækilegan hátt. Benti Magnús
á hvernig annarleg sjónarmið hefðu náð
tökum á forustumönnum Sjálfstæðis-
flokksins, hvernig þeir hefðu ákveðið að
nota sér náttúruhamfarirnar i Eyjum til
þess að koma pólitisku höggi á rikisstjórn-
ina. Svo lágkúruleg er stjórnmálaafstaða
þeirra manna sem móta stefnu Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokksins, að
þeir hlífast ekki við að nota hina ægileg-
ustu atburði sér til framdráttar enda þótt
aldrei hafi verið nauðsynlegra en einmitt
nú að þjóðin standi saman. Og það hefur
hún gert og gerir i stórmálum — eins og
birzt hefur i landhelgismálinu og i við-
brögðum fólks við náttúruhamförunum i
Eyjum. En innan veggja þinghússins við
Austurvöll sitja menn — örfáir — sem
greina ekki bergmálið frá röddum
fjöldans. Menn sem ekki skilja, eða vilja
ekki skilja, að pólitiskt ofstæki af þvi tagi,
sem forustumenn stjórnarandstöðunnar
hafa gert sig seka um að undanförnu, er
fordæmt meðal mikils þorra landsmanna
— ekki bara i stjórnarflokkunum, heldur
lika og ekki siður i stjórnarandstöðuflokk-
unum sjálfum.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn voru saman i rikisstjórn gekk
ekki hnifurinn á milli þessara flokka og
forustumanna þeirra. Jóhann og Gylfi
voru einskonar pólitiskt skóladæmi um
ástir samlyndra hjóna. Eftir að núverandi
rikisstjórn tók við völdum hefur ekkert
breytzt i fari þessara þokkahjúa. Þar
gengur ekki hnifurinn á milli frekar en
HAFSTEIN OG LAING
Jónas Árnason sagði i þingræðu á
þriðjudaginn, að Austin Laing væri spá-
maður Morgunblaðsins i landhelgismál-
inu. Byggði Jónas staðæfingu sina einkum
á því, að Morgunblaðið hampar helzt á
forsiðum ummælum sem eru óhagstæð
okkur i landhelgismálinu og þau eru
gjarnan höfð eftir Austin Laing. Og
sannanir láta ekki á sér standa. Austin
Laing og ummæli hans tróna i aðal-frétt á
forsiðu Morgunblaðsins i gær, þar sem
hann heldur fram málstað Breta og segir
meðal annars: „island gæti hafa unnið
mikið við að leggja mál sitt fyrir Alþjóða-
fyrri daginn — jafnvel má segja að enn
hafi forustumenn þessara flokka faðmazt
innilegar en nokkru sinni fyrr. Það kom til
dæmis fram i ummælum þessara manna
um landhelgismálið i útvarpsum-
ræðunum. Við brögð Morgunblaðsins við
ræðu Magnúsar Kjartanssonar við
útvarpsumræðurnar eru til marks um að
ráðherrann hefur komið við kaunin og
flett ofan af óheilindaafstöðu stjórnarand-
stöðunnar i sannkölluðum örlagamálum
þessarar þjóðar. Sú frammistaða
stjórnarandstöðunnar þarf að verða öllum
landslýð ljós og i minni sem lengst.
dómstólinn i Haag”. Þegar Jóhann
Hafstein, biðformaður Sjálfstæðisflokks-
ins, hélt fram sömu skoðun og Laing i
þinginu á mánudagskvöldið fékk hann
ekki jafngeysilegan uppslátt á forsiðu
Morgunblaðsins og Laing. 1 ræðu sinni á
alþingi i fyrrakvöld sagði Jóhann samt:
„Engri islenzkri rikisstjórn verður fyrir-
gefið það að láta málstað íslands e.t.v.
verða fyrir borð borinn fyrir Alþjóðadðm-
stóli vegna þess að rödd íslands fær ekki
að heyrast þar ...’’Ekki má nú á milli sjá
hvor þeirra er okkur vinveittari i land-
helgismálinu Hafstein eða Laing — þó
Morgunblaðið gefi Laing hærri einkunn.
Stjórnvöld veiti upplýsingar
um málefni hins opinbera
Ólafur Jóhannesson
forsætisráðherra mælti i
gær fyrir stjórnarfrum-
varpi í neðri deild al-
Útvarpsráð sam-
þykkir vítur á
Gunnar Bjarnason
Útvarpsráft gerfti samhljóba
ályktun um vitur á Gunnar
Bjarnasun fyrir ummæli hans i
útvarpinu.
Samþykkt útvarpsrábs er svo-
hljóðandi:
„Útvarpsráð harmar órök-
studdar árásir á Rikisútvarpið,
einstaka deildir þess og starfs-
menn I erindi Gunnars Bjarna-
sonar um daginn og veginn 26.
febrúar si.
Af þessu tilefni leggur útvarps-
ráð áherzlu á, að þótt öll málefna-
leg viðhorf fái að koma fram I
þættinum um daginn og veginn,
skuli þátturinn ekki notaður til að
nfða stofnanir eða einstaklinga”.
Alyktunin var samþykkt sam-
hljóða.
Aukasýning
Vegna mikillar aðsóknar verð-
ur höfð aukasýning á Sjálfstæöu
fólki i Þjóðleikhúsinu og verður
hún i kvöld fimmtudaginn 8.
marz. Þaö verður 60. sýningin á
leiknum, og hafa aðeins fimm
leikrit náð þeim sýningafjölda i
einni lotu i Þjóðleikhúsinu en þau
eru: Islandsklukkan, Tópaz,
Kardemommubærinn, May Fair
Lady og Fiölarinn á þakinu. Um
27 þúsund leikhúsgestir hafa séö
sýningar á Sjálfstæöu fólki i Þjóð-
leikhúsinu.
þingis, um upplýsinga-
skyldu stjórnvalda.
í frumvarpinu er kveðiö á um,
að hver maöur eigi rétt á að
kynna sér skjöl i máli, sem er eða
hefur verið til meðferðar hjá
stjórnvaldi. A þessu eru þó gerðar
allmargar undantekningar, sem
taldar eru upp 1 frumvarpinu
Forsætisráöherra gat þess, aö
frumvarpiö væri flutt i framhaldi
af samþykkt þingsályktunartil-
lögu um þetta efni, er samþykkt
var einróma á alþingi i fyrra.
Taldi hann aö öll leynd dragi úr
þvi aðhaldi er þegnarnir geta
veitt stjórnvöldum, og væri það
lýðræðisleg nauösyn, að menn
ættu þess kost að kynna sér gerðir
stjórnvalda og forsendur þeirra.
Oll meginákvæði þessa frum-
varps eru miðuð við slik lög i
Danmörku og Noregi, en þar
hefur mikil fræðileg umræða
staðið um þessi efni um áratuga
skeið, og lög verið sett fyrir
nokkrum árum.
Vantranstið fellt 31:28
Þrátt fyrir furðufréttir i
islenzka rikisútvarpinu i gær-
morgun skeði ekkert óvænt við
atkvæöagreiöslu á alþingi i gær,
um tillögu þingmanna Sjálf-
stæöisflokksins um vantraust á
rikisstjórnina.
Tillagan var felld með 31 at-
kvæöi stuöningsmanna stjórnar-
flokkanna þriggja gegn 28 at-
kvæðum stuðningsmanna
stjórnarandstöðuflokkanna.
Nafnakall var viöhaft.
Bjarni Guðnason sat hjá við at-
kvæðagreiðsluna eins og hann
hafði boðað i útvarpsumræð-
unum.
Verðlagsstjóri
segir 6.00 “
bílstjórar
mótmæla
í fréttatilkynningu frá verð-
lagsstjóra sem birt var i blöð-
unum nýlega segir, að gjald-
mælir leigubifreiöa eigi að
sýna kr. 6.00 þegar ekið er af
stað i leigubílum. Bandalag
leigubifreiðastjórans i gær,og
segja þeir, að mæli eigi að
setja af stað um leið og
bifreið tekur að biða eftir
farþega.
Þá mótmæla leigubilstjórar
einnig fyrirmælum verðlags-
stjóra um eftirvinnutaxta og
segja það utan verkahrings
verðlagsnefndar að ákveða
vinnutima starfshópa.
Krefjast bilstjórar þess, að
verðlagsstjóri leiðrétti yfir-
lýsingar sinar um að gjald-
mælirinn eigi að segja sex við
upphaf aksturs.
FRA
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
TILKYNNING TIL
VESTMANNAEYINGA
Umboðsmaður ykkar hefur aðsetur í aðalumboðinu Tjarnargötu 4.
Sími 25665, frd kl. 9 til 18 daglega.
SVEIIMBJÖRIM HJÁLMARSSOIM Umboðsmaður Happdrættis Hdskóla
Islands. Heimasími 53469.