Þjóðviljinn - 08.03.1973, Qupperneq 11
Fimmtudagur 8. marz 1973 1»JÓÐV1LJ1NN — SÍÐA 11
Þetta hlýtur að koma
Það verður að gera eitthvað.
Svona strákar, þarna er glufan
Hvað er þetta eiginlega
ætli þetta sé vonlaust?
það hafðist
Þjáningar þjálfarans
Menn halda ef til vill að það sé
tekið út með sitjandi sældinni að
vera þjálfari knattleiksliös.
Þeir sem taka starf sitt alvar-
lega og hafa einhvern metnað
eiga sannarlega ekki sjö dagana
sæla. Við birtum hér mynda-
syrpu af einum kunnasta hand-
knattleiks þjálfara landsins,
Karli Benediktssyni, þjálfara
Fram, liauka og landsliösins,
og sýnir hún glöggt að Karli
liöur ekki beint vel þegar lið
hans er i hættu. Myndirnar tök
Gunnar Steinn, þegar verst
gekk hjá Fram á möti Ármanni
Umsjón: Sigurdór Sigurdórsson
Vönim tryggði Yal sigur
( gærkvöldi björguðu
Valsmenn Islandsmótinu í
handknattleik, er þeir sigr-
uðu FH-inga með 16 mörk-
um gegn 13, í hörkuspenn-
andi leik. Ef FH hefði unn-
ið leikinn hefði liðið verið
komið með svo mikla for-
ustu, að sigurinn hefði þar
með verið kominn til Hafn-
arf jarðar.
Leikurinn í gær var var-
lega leikinn af beggja
hálfu, enda þýðingarmikill
fyrir bæði félögin. Nokkur
harka var á köflum, en þó
ekki svo að til lýta væri.
Sigur Valsmanna í leikn-
um var mjög verðskuldað-
ur, þótt framan af væri
leikurinn jafn, en í hálfleik
var staðan 7 mörk gegn 7.
Sigurinn grundval laðist
fyrst og fremst á sterkri
vörn Valsmanna og frá-
bærri markvözlu Ólafs
Benediktssonar.
Dómarar i leiknum voru
Hannes Þ. Sigurðsson og
Jón Friðsteinsson.
Markhæstu menn Vals
voru Jón Karlsson, Bergur
Guðnason og Gísli Blöndal
með 4 mörk hver.
Hjá FH voru markhæstir
Viðar Símonarson með 5
mörk og Geir Hallsteinsson
með 3.
Til marksum áhuga þann
sem ríkti á þessum leik, má
nefna að fyrstu áhorfendur
höfðu komið sér fyrir á
áhorfendastæðum kl. 18 í
gærkvöldi. og þegar leið að
leiknum ,,sprakk" húsið
vegna aðsóknar.
Bikarkeppni SSÍ fer
fram um aðra helgi
Um aðra helgi, dagana 16., 17.
og 18. marz, fer bikarkeppni
Sundsambands tslands fram i
Sundhöllinni i Reykjavik. Dag-
skrá keppninnar verður sem hér
segir.
FÖSTUDAGUR 16. MARZ:
400 m bringusund kvenna
400 m bringusund karla
Svig-
keppni
SR í dag
Fyrsta svigmót unglinga i
bikarkeppni Skiðafélags
Reykjavikur hefst á fimmtu-
daginn 8. marz 1973, með nafna-
kalli kl. 6, við Skiðaskálann I
Hveradölum. Keppnin hefst kl.
7, i upplýstu brekkunni við
Sklðaskálann.
Keppt verður um 18 bikara
sem Verzlunin Sportval, Lauga-
vegi 116, Rvk., hefur gefið i
þessu sambandi.
Það eru sérstök tilmæli frá
Stjórn S.R., að allir keppendur
og aðstandendur séu komnir
uppeftir fyrir kl. 6, þennan dag.
Flokkaskipting verður eins og i
fyrra, i þessum þremur mótum.
Allar upplýsingar eru veittar
hjá gjaldkera S.R., Ellen Sig-
hvatsson, i sima 19931.
bátttökutilkynning á að vera
komin fyrir kl. 5 miðvikudaginn
7. marz 1973 á sama stað.
Mótsstjórar á þessum þremur
mótum verða þeir Jónas As-
geirsson á fyrsta móti, Harald-
ur Pálsson á öðru móti og
Skarphéðinn Guðmundsson á
þriðja móti.
Skiðafæri er eins og stendur
mjög gott og lyftan i gangi alla
daga. Verðlaunabikararnir
verða til sýnir i Skiðaskálanum
á meðan mótið stendur.
800 m skriösund kvenna
800 m skriðsund karla
LAUGARDAGUR 17. MARZ:
400 m fjórsund kvenna
200 m flugsund karla
100 m skriðsund kvenna
100 m baksund karla
200 m bringusund kvenna
100 m bringusund karla
100 m flugsund kvenna
200 m skriðsund karla
200 m baksund kvenna
Hlé i 10 minútur.
4x100 m fjórsund karla
4x100 m skriösund kvenna
SUNNUDAGUR 18. MARZ:
400 m fjórsund karla
200 m flugsund kvenna
100 m skriðsund karla
100 m baksund kvenna
200 m bringusund karla
100 m bringusund kvenna
100 m flugsund karla
200 m skriösund kvenna
200 m baksund karla
Hié I 10 minútur.
4x100 m fjórsund kvenna
4x100 m skriðsund karla
Mótið er stigakeppni milii
félaga og hljóta 8 fyrstu i hverri
grein stig, sigurvegarinn 9 stig
og siðan 7-6-5-4-3-2-1, hið sama
gildir einnig fyrir boðsund.
Þátttaka til stiga er bundin v.
mest 2 þátttakendur I hverri
sundgrein frá hverju félagi og
eina sveit I hverju boðsundi.
Einstaklingi er óheimilt að
taka þátt i fleiri en 4 sundgrein-
um auk boðsunda.
bátttaka án stiga: Heimilt er
að senda óákveðinn fjölda þátt-
takenda i hverja grein án stiga
ef eftirtöldum lágmörkum er
náð:
100 m skriðsund
200 m skriösund
800 m skriösund
100 m bringus
200 m bringu
100 m baksund
200 m baksund
100 m flugsund
200 m flugsund
400 m fjórsund
Karlar Konur:
1:02,0 1:11,0
2:22,0 2:44,0
10:37,0 11:25,0
1:16,0 1:29,0
2:44,0 3:13,0
1:13,0 1:23,0
2:44,0 2:58,0
1:11,0 1:29,0
2:48,0 3:25,0
5:39,0 6:33,0
Lágmörkin þurfa að hafa
náðst á löglegu sundmóti i
minnst 25 m. laug og ekki fyrr
en 1. október 1972.
Aöeins verða veitttvenn verö-
laun fyrir bezta afrek konu og
fyrir bezta afrek karls, sam-
kvæmt gildandi stigatöflu.
Stigahæzta félagiö hlýtur titil-
inn Bikarmeistarar f sundi 1973.
Þátttökutilkynningar þurfa aö
vera skriflegar á timavarða-
kortum og þurfa að berast
stjórnS.S.l. fyrir föstudaginn 9.
marz. A timavarðakortum sé
getið siðasta löglegs tima i
ekki styttri en 25 m laug. Niöur-
rööun I riöla fer fram á skrif-
stofu S.S.I., Iþróttamiðstöðinni,
Laugardal, laugardaginn 10.
marz kl. 3 e.h. og er óskað eftir
að fulltrúar félaganna verði við-
staddir.
Timavarðakortin fást hjá rit-
ara S.S.I.
Ekki veröa teknar til greina
breytingar eftir aö þátttöku-
frestur er útrunninn nema I
veikindatilfellum,en breytingar
vegna veikinda tilkynnist leik-
stjóra eigi siöar en 1/2 tima
fyrir keppni hvern mótsdag.
Allar frekari upplýsingar um
mótið gefur Torfi Tómasson i
sima 42313.
r
Armann
sigraði
UBK 15:8
Armann sigraði Breiðablik
15:8 i 1. deild kvenna um siðustu
helgi, en leikurinn fór fram i
Hafnarfirði.
Þá sigraði Þróttur Stjörnuna i
2. deild karla 29:14 og FH
sigraði IBK 16:9 i 2. deild
kvenna ög IR Hauka 8:3. 1 1. fl.
kvenna sigraði Valur FH 10:4 og
Fram sigraði Armann 9:8.
Ægir Rvíkurmeist-
ari í sundknattleik
Þóttenn sé eitt Ieikkvöld eftir
i Reykjavikurmeistaramótinu I
sundknattleik er A-lið Ægis
þegar orðið Reykjavikurmeist-
ari. Það eru liðin 25 ár slðan
Ægir varð siðast Reykjavikur-
meistari í þessari iþróttagrein
og það sem meira er, Halldór B.
Hafliðason, sem enn leikur með
liðinu, var einnig I þvl liði sem
varð meistari 1948. Að öllum
likindum er það einsdæmi I
heiminum að sami maður veröi
meistari með liði með 25 ára
millibili.
A síðasta leikkvöldi mótsins
fóru leikar þannig:
Ægir-a — Ægir-b 11:6
Armann —KR 4:3
KR —Ægir-b 13:5
Ægir-a — Armann 11:10
Þar með var Ægir-a orðinn
Reykjavlkurmeistari en á þó
einn leik eftir sem fram fer á
þriðjudaginn kemur i Sund-
höllinni.