Þjóðviljinn - 08.03.1973, Side 16
vomiuiNi
Fimmtudagur 8. marz 1973
Almennar upplýsingar um
læknaþjónustu borgarinnar
eru gefnar i simsvara Lækna-
félags Reykjavikur, simi
18888.
Nætur- kvöld- og helgarþjón-
usta lyfjabúðanna i Reykja-
vik vikuna, 2. — 8. marz
veröur i Apóteki Austur-
bæjar og Háaleitisapóteki.
Slysavarðstofa Borgarspital-
ans er opin allan sólarhring-
inn.
Kvöld-, nætur og helgidaga-
vakt á heilsuverndarstöðinni.
Simi 21230.
Gaullistar fá stuðning
miðflokkanna
í síðari umferð
frönsku
kosninganna
PARlS 7/3 — Allt skal
til vinna til að stemma
stigu við sókn vinstri
manna i Frakklandi:
Saman hefur nú dregið
með stjórnarflokkunum
— gaullistum — og mið-
flokkunum — „umbóta-
hreyfingunni” — og
munu þeir yfirleitt ekki
bjóða fram gegn hver
öðrum ' í seinni lotu
kosninganna á sunnu-
daginn kemur, heldur
styðja sameiginlega
einn frambjóðanda i
vafakjördæmunum.
De Gaulle heykist niður í
gaullismans i Frakklandi?
hamar og sigö — verða þetta örlög
Dulið viðskiptastríð milli EBE og USA
Fjármálaráðherrar
leita lausnarinnar
BROSSEL 7/3 — Fjár-
málaráðherrar EBE-iand-
anna hittast í aðalstöðvum
Efnahagsbandalagsins í
Briissel á morgun, fimmtu-
dag, til þess að reyna að
finna lausn á gjaldeyris-
vandræðunum.
A föstudag fara ráöherrarnir til
Parisar, þar sem þeir munu ræða
viö starfsbræður sina fra Banda-
rikjunum, Japan, Sviþjóð,
Styrktarbingó
Ki wanis-klúbburinn Esja
heldur bingó i Glæsibæ i dag og
hefst það kl. 21. Þetta er styrktar-
bingó og á ágóðinn aö renna til
Hilmars Sigurbjörnssonar, er
missti hönd og fót i slysi i grjót-
námi Reykjavikur fyrir nokkru.
Þessi ungi maður er trúlofaöur og
á eitt barn og fær aðeins um 7000
kr. á mánuði út úr tryggingum.
Vinningar á þessu styrktar-
bingói verða mjög glæsilegir,
Kanarieyjaferð, málverk og hús
gögn, samtals að verðmæti 120
þúsund kr.
Kanada og Sviss. Búizt er við, að
verulegur skriður á ákvarðanir I
málinu komi ekki fyrr en á sunnu-
dag.
Kunnugir telja að liklega verði
allur gjaldmiðlar EBE-rikjanna i
„samfloti” gagnvart dollar, en
aörir eru vantrúaðir á að sam-
komulag náist um þetta.
„Samflotið” þýddi það aö
ákveöið væri fast gengi á EBE-
gjaldmiðlunum innbyrðis, einnig
á enskt pund og Italska liru sem
nú eru „fljótandi”. Bdezka
stjórnin mun vera mjög dýrseld á
þessa lausn jafnvel þótt hún sé sú
Atkvæðagreiðsla
á Norður-Irlandi
BELFAST 7/3 — A morgun,
fimmtudag, verður gengiö til
þjóðaratkvæðagreiðslu á Noröur-
Irlandi um þaö, hvort ibúar
landsins vilja vera áfram i þeim
tengslum við Stóra-Bretland sem
veriö hefur siðustu hálfa öld.
Mjög spennt ástand er i landinu
i dag, en bæði kaþólskir menn og
mótmælendur hafa vopnaðar
leynisveitir, IRA og UDR.
eina sem geti tryggt þaö að ráða-
gerðirnar um efnahags- og mynt-
samband rfkjanna fari ekki út um
þúfur.
En um leið má lausnin á gjald-
eyriskreppunni ekki koma EBE i
allt of vonda samkeppnisaðstöðu
gagnvart Bandarikjunum. Ýmsir
óttast nefnilega að gengislækkun
dollarans létti um of útflutning
ameriskra vara til Evrópu. Þá er
EBE-pólitikusunum umhugað um
það að gjaldeyriskreppan komi
sameiginlegri stefnu þeirra i
landbúnaðarmálum ekki á kaidan
klaka.
Samkomulag gaullista og mið-
flokkanna hljóðar upp á það, að i
þeim kjördæmum þar sem mögu-
leiki er talinn vera á kjöri
kommúnista eöa sósialista skuli
sá gaullisti eða miðflokkamaður
draga sig i hlé sem minna fylgi
hafði I fyrri umferð kosninganna.
Sums staðar hefur ekki tekizt
að fá frambjóðendur til að draga
sig i hlé, og er t.d. þannig ástatt i
Nancy þar sem gaullisti neitaöi
að vikja fyrir hinum þekkta mið-
flokksmanni J.J. Servan-
Schreiber.
í fyrri umferð kosninganna
voru 3.020 frambjóðendur, en i
þeirri siðari eru 944 i 432 kjör-
dæmum. Allt eru það einmenn-
ingskjördæmi, en 58 þingmenn
tókst að kjósa meirihluta-
kosningu I fyrri umferðinni.
Samkomulagið milli hægri og
miðflokka, sem tilkynnt var i
morgun, gerir það að verkum, að
I 350 kjördæmum stendur
baráttan milli frambjóðanda á
þeirra vegum og vinstri manns,
en vinstri flokkarnir hafa aðeins
einn frambjóðanda i hverju kjör-
dæmi, þann sem flest atkvæði
hlaut i fyrri umferð.
Reiknað hefur verið út, að
afstaða miðflokkamanna gæti
ráðið úrslitum um það, hvort
hægri maður eða vinstri settist
inn I þingið úr 130 kjördæmum.
Fyrir fram var talið liklegt að
| miðflokkarnir krefðust þess af
I gaullistum aö þeir sæju þeim
fyrir allt að 30 þingsætum.
1 fyrri umferð kosninganna
fengu vinstri flokkarnir 46%
atkvæða, gaullistar 38% og mið-
flokkar 12%. Afstaða miðflokk-
anna færir gaullista nálægt
sigrinum, en úrslitin verða alla
vega naum.
Birtar athuganir
um Þjórsárver
Prófessor George van Dyne,
gistiprófessor I vistfræði viö
verkfræði og raunvisindadeild
Háskóla tslands, á vegum
UNESCO, hefur i þessari viku
stjórnað tveim vinnuhópum sem
fjallað hafa um nýtingu lands til
beitar og um Þjórsárver.
i dag, 8. marz, kl. 11 til 13,
munu prófessorinn og báðir
vinnuhóparnir gefa skýrslu um
athuganirnar á þessum viðfangs-
efnum I 9. kennslustofu
Háskólans. Er öllum heimill
aðgangur.
ALÞYÐU BAN DALAGIÐ
Að gera sér grein fyrir
Sovétríkjunum
I kvöld er röðin komin aö Arna Bergmann,
blaöamanni, að hefja umræður á umræðufundi
Alþýðubandalagsins I Reykjavik. Arni kallar
umræöuefnið: „Að gera sér grein fyrir Sovét-
rikjunum”.
Fundurinn hefst kl. 20,30 að Grettisgötu 3.
Suðurlandskjördæmi.
Alþýðubandalagið i Arnessýslu heldur fund i Selfossbiói föstudaginn
9. marz 1973 kl. 20.30.
Einar Olgeirsson ræðir um þróun og stöðu verkalýðsflokka á íslandi.
Garðar Sigurðsson alþingismaður mætir á funinum.
Fjölmennið stundvislega. — Stjórnin..
F angaskipti
hefjast á ný
mikil þörf á lyfjum og öðrum út-
búnaði til lækninga.
Neyðarástand í húsnœðismálum í N-Víetnam
SAIGON 7/3 — Skipti á
striðsföngum milli
Saigon-stjórnarinnar og
Þjóðfrelsisfylkingar-
innar hefjast aftur á
morgun, fimmtudag,
eftir 10 daga töf. Hefur
náðst samkomulag um
tölu fanga frá hvorum
aðila.
Karl
Guðjónsson
látinn
Karl Guðjónsson, fyrrver-
andi alþingismaöur, lézt i
fyrrinótt, en hann hafði átt viö
vanheilsu aö striöa um nokk-
urt skeið.
Hans var minnzt við upphaf
fundar i Sameinuðu alþingi i
gær.
Karl var 55 ára gamall er
hann andaðist. Hann átti sæti
á alþingi fyrir Sósialistaflokk-
inn og siðar Alþýöubandalagið
1953—1963 og aftur 1967—1971.
Karl var fæddur og uppalinn I
Vestmannaeyjum, og þar
stundaði hann kennslustörf frá
1938—1963, en siðar var hann
kennari i Reykjavik og
fræðslufulltrúi og fræðslu-
stjóri I Kópavogi frá 1966.
Karl gegndi auk þing-
mennsku fjölmörgum trún-
aðarstörfum fyrir stjórnmála-
hreyfingu islenzkra sósíalista
um langt árabil, átti m.a. sæti
I bæjarstjórn Vestmannaeyja
og var formaöur fjárveitinga-
nefndar alþingis um skeið.
Þjóðviljinn vottar fjölskyldu
Karls og öörum aðstandend-
um innilega samúö við andlát
hans.
„Vantraust”
— heimsfrétt!
^Hin öfluga verðbólguþróun á ts-
landi hefur smám saman orðið
mikil ógnun við atvinnulif iands-
ins. Efnahagsástandið hefur ekki
batnað eftir þær þrjár gengisfell-
ingar Islenzku krónunnar, sem
komið hafa til framkvæmda i
valdatið núverandi rikisstjórnar,
segir stjórnarandstaðan”.
Þessi tilvitnun hér að ofan er
ekki úr Morgunblaðinu I gær,
heldur úr fréttaskeyti frá norsku
fréttastofunni NTB. Þess ber að
geta að fréttamaður þeirrar
stofnunar á tslandi er Sverrir
Þórðarson — blaðamaöur
Morgunblaðsins. Ef aðrir frétta-
menn þessarar stofnunar eru
jafnáreiðanlegir og heimildar-
maður hennar á tslandi, er ekki
von á miklu góðu. — En tilefni
„fréttar” hans er tillaga stjórn-
arandstöðunnar um vantraust á
rikisstjórnina. — sjá 6. siðu.
Sænski rauðakross-fulltrúinn
Olof Stroh er nýkominn úr heim-
sókn til Hanoi, og sagði hann i
Genf I dag, að það sem Noröur-
Vletnamar þörfnuðust fyrst og
fremst væri húsnæði. Kringum
ein miljón manna væri heimilis-
laus i landinu eftir loftárásir
Bandarikjamanna. Einnig væri
A járnbraut á
móti íhaldinu
LONDON 7/3. — Verkfallsað-
gerðir lömuöu I dag járnbraut-
arsamgöngur I Suður-Eng-
landi, en hvergi i heiminum er
eins mikið álag á járnbrautum
og þar. Þetta kom á óvart þvi
verkfall hafði ekki veriö boðaö
fyrr en aðfararnótt fimmtu-
dags, en járnbrautarstarfs-
menn höfðu ákveðið að fara
sér hægt.
Verkfall eimreiöastjóra á
morgun er annað verkfall
þeirra á einni viku. — Mat-
reiðslufólk, þvottamenn og
hreingerningakonur héldu
áfram verkfalli sinu i brezk-
um sjúkrahúsum I dag.
Barnakennarar eru I tak-
mörkuöum verkföllum i Lond-
on.
Allt stafar þetta af óánægju
verkfólks meö launamála-
pólitik ihaldsstjórnarinnar
brezku.