Þjóðviljinn - 11.04.1973, Side 3
Miövikudagur 11. april 1973. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Skólinn er fyrst og
fremst barnageymsla
— segir norski félagsfrœðingurinn, próf. Nils Christie
Skólinn er fyrst og
fremst notaður sem
geymsla fyrir börnin
vegna þess að ekki er
eins og áður hægt að
nota þau til einfaldra
verka í því vélræna þjóð-
félagi, sem við búum
við. Sama gildir um
gamla fólkið, það höfum
við heldur ekki neina
þörf fyrir og geymum
því á elliheimilum.
Það er norski prófessorinn
Nils Christie, sem þannig
talar og segir, að uppbygging
grunnskólans hafi aðallega
orðið varðandi tima, skóla-
timinn hafi lenzt og skóla-
skyldan hafi lengzt, en skólinn
nái alls ekki þeim mark-
miðum, sem honum séu sett i
lögum og námsskrá. Skóla-
timinn hafi lengzt ekki bara af
þvi að börn nú á timum þurfi
að læra meira, heldur lika
vegna þess, að þau séu þjóðfé-
laginu svo ónytsöm. Aður
þurfti samfélagið á börnunum
að halda — rétt einsog gamla
fólkinu — en fyrrverandi störf
þessara hópa séu nú horfin,
einföldu verkin, eins og að
höggva við i eldinn, hella oliu
á lampana osfrv.,séu ekki
lengur fyrir hendi i okkar
tæknivædda samfélagi.
Við vitum eiginlega ekki
hvað við eigum að gera við
þetta fólk, og þessvegna
setjum við það i skólann og þvi
lit ég skólann tortryggnis- eða
amk. spurnaraugum, sagði
Nils Christie á fundi með
blaðamönnum i fyrradag, en
hann er hingað kominn i boði
Norræna hússins, lagadeildar
og námsbrautar i almennum
þjóðfélagsfræðum við Háskól-
ann og Félagsvisindafélags
íslands og mun flytja fyrir-
lestra fyrir almenning i
Norræna húsinu og i Háskól-
anum.
Nils Christie er félagsfræð-
ingur og prófessor i afbrota-
fræði við óslóarháskóla og
hefur skrifað fjölda bóka um
afbrigðilegt atferli og við-
brögð þjóðfélagsins við þeim
hópum, sem ástunda slikt at-
ferli. Ofdrykkjuvandamál og
mismunandi vel heppnaðar
tilraunir samfélagsins til að
leysa þau hafa sérstaklega
verið viðfangsefni Cristies.
Að undanförnu hefur Nils
Christie unnið talsvert á sviði
félagsfræði skóla og
menntunarmála og ma.
komizt að ofangreindum
niðurstöðum um skólann sem
geymslu i bók sinni, „Hvis
skolen ikke fantes”. Reyndar
sagðist hann sjálfur aðeins
vera áhugamaður um skóla-
sálfræði, en ekki sérfræð-
ingur, en ef maður skildi
skólakerfið, skildi maður meir
ieigin samfélagi, sagði hann,
og framkvæmd skólastarfsins
væri enda nátengd hinum
margumtöluðu unglinga-
vandamálum — þeir væru
óánægðir með lifið og fyndist
þeir ekki vera að gera neitt
sem máli skipti.
Nils Christie segir, að inni-
hald skólastarfsins sé það sem
máli skiptir, félagslegt og
persónuþroskandi hlutverk
skólans verði að ganga fyrir
öðru og ákvæði námsskrár um
samstarf og samábyrgð verði
daglega að koma fram i verki.
Niðurstöður Christies hafa
vakið mikla athygli, ekki
aðeins i Noregi, heldur einnig
á öðrum Norðurlöndum. Og
vissulega eiga sjónarmið hans
erindi til Islendinga einmitt nú
þegar umræður standa hæst
bæði um framtið fræðslumála
og fangelsismála.
Um fangelsismál og með-
ferð afbrotamanna hefur
Christie þær skoðanir, að
orsakanna sé fyrst og fremst
að leita i þjóðfélagsbygging-
unni og samlifsháttum og þá
Hjónin Vigdis og Nils Christie á tröppum Norræna hússins
ekki sizt þeirri firringu og
fjarlægð manna á milli, sem
þróast i iðnvæddu þjóðfélagi. I
Noregi sé þessi fjarlægð td. að
verða visst vandamál, sagði
hann, fólk hittist varla orðið
nema i ákveðnum hlut-
verkum, i vinnunni, i áhuga-
hópun osfrv., og kynnist ekki
náið sem manneskjur með
kostum og göllum. Lausnin sé
ekki i þvi fólgin að breyta af-
brotamönnunum, heldur i
breytingu samfélagsuppbygg-
ingarinnar.
I fyrirlestrum sinum hér á
landi mun hann f jalla bæði um
afbrotamál og skólamál og
verður sá fyrsti i dag kl. 17 i I.
kennslustofu Háskólans. Hann
nefnist: „Samfunnsstruktur
og kriminalitetskontroll.” Um
skólamálin talar hann i kvöld i
Norræna húsinu kl. 20.30. Sá
fyrirlestur nefnist: „Hvis
skolen ikke fantes”. Og á
laugardaginn flytur hann svo
fyrirlesturinn „Samfunns-
form og lovbrudd” i Norræna
húsinukl.16. vh
Nýtt happdrættisár hjá DAS:
Hæsti vinningur-
inn er 6 miljón
króna einbýlishús
Aðalfundur Samvinnubankans:
Aukning á allri starfsemi
bankans á s.l. ári
Aðalfundur Samvinnubanka
tslands hf. var haldinn laugar-
daginn 7. aprfl s.I. að Hótel Sögu.
Fundarstjóri var kjörinn Asgeir
Magndsson, framkv.stj. , en
fundarritari Pétur Erlendsson,
skrifstofustjóri.
Formaður bankaráðs, Er-
lendur Einarsson, forstjóri, flutti
skýrslu um starfsemi bankans,
hag hans og afkomu á árinu 1972,
og minntist þess að það hefði
verið 10. starfsár bankans. Hann
bauð nýja hluthafa velkomna i
hóp eigenda bankans, en hlut-
höfum hefur fjölgað mjög eftir að
bankinn var opnaður með
almennu hlutafjárútboði i
nóvember s.l.
t skýrslu hans kom fram, að
mikill vöxtur er i allri starfsemi
bankans. Innstæðuaukning árið
1972 varð meiri en nokkurt annað
ár, afkoma bankans batnaði
verulega og hlutafé bankans var
aukið til mikilla muna. A árinu
yfirtók bankinn innistæður
þriggja innlánsdeilda kaupfé-
laga. Sett var á fót sjálfstætt úti-
bú á Vopnafirði og umboðsskrif-
stofa opnuð i Króksfjarðarnesi.
Þá tók Stofnlánadeild samvinnu-
félaga til starfa við bankannn.
Kristleifur Jónsson, banka-
stjóri, lagði fram endurskoðaða
reikninga bankans og skýrði þá.
Heildarinnlán i Samvinnubank-
anum námu i árslok 1972 1.455
milj. kr. og höfðu aukizt um 415
milj kr. á árinu eða tæp 40%.
Spariinnlán jukust um 293 m.kr.
eða 34%, en veltiinnlán um 122
m.kr. eða 71%. Hlutur útibúanna i
innlánsaukningunni nam 199
m.kr.
Heildarútlán bankans hækkuðu
um 365 milj. kr. á árinu og námu
1.191 milj. kr. i árslok.
Staðan gagnvart Seðlabank-
anum hélzt góð allt árið og námu
innstæður við hann 301 milj. kr.
um áramótin, þar af 268 milj. kr.
á bundnum reikningi.
Heildarvelta, þ.e. fjármagns-
streymi gegnum bankann, nam
23.8 miljörðum kr. og jókst um
24%. Viðskiptareikningum fjölg-
aði um 3800 og voru 35.000 i árs-
lokin.
Hlutafé bankans ásamt hluta-
fjárloforðum jókst um 64,5 milj.
kr., eða úr 15,9 milj. i ársbyrjun i
80,4 milj. i árslok. Þar af nam
Nýtt happdrættisár er nú að
hefjast hjá DAS og verða
vinningar nú 400 á mánuði eða
4800 vinningar á árinu, að verð-
mæti 72 miljónir króna. Hæsti
vinningurinn verður einbýlishús
að Espilundi 3 i Garðahreppi og
er verðmæti þess 6 miljónir kr.
Þá veröa dregnir út hjá DAS 100
bifreiðar, þar á meöal Mercedes
innborgað hlutafé 66,8 milj. kr.
Stefnt er að þvi að auka hlutafé
bankans i 100 milj. kr. og nam
sala þess 93 milj. hinn 31. marz
s.l.
Rekstursafkoma bankans batn-
aði verulega á árinu 1972. Tekju-
afgangur til ráðstöfunar varð 13,7
milj. kr. á móti 3,7 milj. árið 1971.
Til afskrifta urðu 2,3 milj. en i
sjóði voru lagðar 11,4 milj. kr.
Aðalfundurinn samþykkti að
greiða hluthöfum 7% arð fyrir
árið 1972.
Endurkjörnir voru i bankaráð
þeir Erlendur Einarsson, for-
stjóri, formaður, Hjörtur
Hjartar, framkv.stjóri, varafor-
maður, og Vilhjálmur Jónsson,
framkvæmdastj., og til vara
Asgeir Magnússon, fra-mkv.stj.,
Hjalti Pálsson, framkv.stj., og
Ingólfur Olafsson, kaupf.stj.
Endurskoðendur voru kjörnir
þeir Óskar Jónatansson, aðal-
bókari.og Magnús Kristjánsson,
fyrrv. kaupfélstj.
Benz 280 S sem dreginn verður út
i 1. fl. Þá verður Opel Manta bif-
reið dregin út i ágúst og Wagoner
bifreiö i október. Allt eru þetta
mjög dýrar og vandaðar bif-
reiðar. Aðrir bilar sem dregnir
verða út hjá DAS eru að verðmæti
þetta 250 til 400 þúsund kr.
Húsið að Espilundi 3 er teiknað
af Kjartani Sveinssyni arkitekt og
stendur það á mjög fallegum stað
i Garðahreppi. Það er 195 fer-
metrar að grunnfleti og þvi fylgir
tvöfaldur bilskúr. Byggjendur
hússins eru Arnar Sigurðsson og
Konráð Guðmundsson. I húsinu
eru skáli, sólverönd» setustofa
borðstofa, eldhús,þvottahús, tvö
barnaherbergi, bað, húsbónda-
herbergi, hjónaherbergi,
geymsla og WC skáli.
Þá eru i vinninga hjá DAS
ibúðarvinningar mánaðarlega
fyrir 750 þúsund kr. en i 1. fl. er
ibúðarvinningur fyrir 1 milj. kr.
En mestan svip á happdrættið
setja húsbúnaðarvinningarnir
sem eru alls 4664 á árinu og eru
þeir uppá 5,10,15 og 25 þúsund kr.
mánaðarlega.
Sem fyrr rennur ágóðinn af
DAS happdrættinu til byggingar
Dvalarheimilis aldraðra sjó-
manna og er sem stendur unnið af
kappi við eitt slikt i Hafnarfirði.
Skemmtifundur
Félags ein-
stæðra foreldra
Félag einstæðra foreldra
heldur skemmtifund að Hall-
veigarstöðum nk. föstudags-
kvöld, 13. april kl. 9. Formaður
FEF flytur ávarp, efnt verður til
spurningakeppni og leikkonurnar
Rósa Ingólfsdóttir og Geirlaug
Þorvaldsdóttir skemmta.
Grand- Prix
LUXEMBURG . — Dægurlag
frá Lúxembúrg, „Þú munt
kannast við þig aftur”, sigraði i
dagurlagakeppni 17 Evrópuþjóöa
um helgina. Spænskt lag var i
öðru sæti en brezkt i þriðja.