Þjóðviljinn - 11.04.1973, Qupperneq 10
10 SÍÐA — 1>.I«I)VII-.JINN Miövikudagur 11. april 1973.
l.deild FH — Haukar 22:17
andsmót
Rvíkur-
mótið
hefst á
föstudag
Við sögðum frá þvi á dögun-
uni að Rey kjavikurmótiö i
knattspyrnu hæfist á laugar-
daginn kemur. Það er ekki rétt.
Mótið hefst á föstudagskvöldið
með leik milli Fram og Þróttar.
i kvöid heldur 1. deildar-
keppnin áfram. og leika þá
Valur og Armann og Fram og
ÍR. Sennilega spá flestir Vals-
mönnum sigri gegn Armanni,
en þess verður að gæta, að þeir
ieika undir þeirri pressu að
verða að vinna til að eiga inögu-
leika á sigri i mótinu og slikt
breytir alltaf miklu. Sennilegt
verður þó að telja að Valur vinni
leikinn. Siðasti leikur Vals
verður svo á sunnudaginn kem-
ur, en þá mætir liðið erkifjend-
um sinum á handknattleiks-
sviöinu, ÍR-ingum, sem ár eftir
ár liafa verið Valsmönnum
erfiðastir allra liða. Má i þvi
sambandi rifja upp þegar ÍR
sigraði með yfirburðum 1971, cn
þá þurfti Valur aðeins aö vinna
ÍR til að hreppa islands-
meistaratitilinn. Þá má einnig
minna á það aö 2 af þeim 4 stig-
um sem Valur hefur tapað i
vetur fóru til 1R sem vann stór-
sigur yfir Val l fyrri um-
ferðinni.
Hinn leikurinn.milli Fram og
1R, skiptirFrammiklu máli, þvi
að þótt liðið eigi varla nokkra
von um sigur i mótinu hreppir
það silfurverðlaunin ef það
vinnur bæði 1R og FH, en gegn
FH á Fram að leika á sunnu-
daginn kemur. Það má þvi fast-
lega búast við skemmtilegum
leik. Einnig eygir 1R von um 3.
sætið i deildinni ef það vinnur
bæði Fram og Val.
Þetta er sem sagt næstsiðasta
leikkvöldið i 1. deild i vetur
nema að komi til úrslitaleiks en
það gæti gerzt með þvi að Valur
vinni Armann en geri jafntefli
við IR, og FH vinni Fram á
sunnudaginn. Heldur er ótrúlegt
að þetta gerist, en þó fjarri þvi
að útilokáð sé.
En hvað sem maður veltir
þessu mikið fyrir sér er ljóst að
leikirnir i Laugardalshöllinni i
kvöld eru afar þýðingarmiklir
fyrir úrslit mótsins, og það
verður án efa ekkert gefið eftir
hjá þeim liðum sem þar eiga
hagsmuna að gæta.
FH tekur
aftur
forustuna
Með þvi að sigra Ilauka 22:17 á mánudags-
kvöldið hefur FH aftur tekið forustuna i 1. deild,
hefur hlotið 21 stig, en Valur er með 20 stig og
hefur leikið einum leik færra þar til i kvöld að
Valur og Ármann mætast. Hessi sigur FH sem
var fyllilega sanngjarn varð til þess að liðið á enn
möguleika á sigri i deildinni: hefði FH tapað
hefði Valur aðeins þurft að sigra Ármann i kvöld
og titillinn var þess. Nú á FH aðeins einn leik
eftir, gegn Fram á sunnudaginn kemur, og það
sama kvöld leikur Valur gegn ÍR. Vinni Valur
bæði Ármann og ÍR er hann meistari, en tapi
hann öðrum leiknum en FH vinni Fram, er FH
meistari. Svona glöggt stendur þetta mót.
Leikur FH og Hauka var mjög
harður á köflum eins og raunar
flestir leikir þessara liða, enda
litill vinskapur milli þeirra. FH
byrjaði leikinn mjög vel, og i
byrjun leit út fyrir stór sigur
FH. Á markatöflunni sást 7:2,
9:5og 10:6 i leikhléi, svo það leit
ekki út fyrir að Haukarnir
myndu veita FH mikla keppni.
Þeir Viðar og Hörður Sig-
marsson voru mest áberandi
menn FH i fyrri hálfleik, sem og
raunar allan leikinn, ásamt
Hjalta Einarssyni i markinu
sem varði af snilld.
Auöunn Oskarsson meiddist
allmikið i leiknum, og varð að
flytja hann á slysavarðstofuna
og við það að hann fór útaf
veiktist vörn FH verulega. Eftir
aðeins 5 minútur af siðari hálf-
leik var staðan orðin jöfn 11:11,
nokkuð sem enginn átti von á,
en þennan kafla léku Haukarnir
afar vel, og var það einkum hinn
efnilegi leikmaður Hauka, Þórir
Úlfarsson, sem lét að sér kveða
á þessum tima.
Þegar hér var komið var eins
og FH-ingar áttuðu sig og sáu að
við svo búið mátti ekki standa ef
þeir áttu ekki að tapa leiknum
og þá um leið möguleikanum á
sigri i deildinni. Og á næstu 8
minútum breytti FH stöðunni úr
11:11 í 16:11, 13 minútur liðnar
og útgert um leikinn. Aðeins
spurning hvestór sigur FH yrði.
Siðan sást á markatöflunni
17:12, 19:12, 19:13, 20:15 og loka-
tölurnar 22:17.
Eins og áður segir átti Viðar
beztan leik i liði FH og hefur
vart leikið betur i vetur. Þá átti
Hörður snilldarleik, og er þar
"■ff
mikið efni á ferð. Ekki má
gleyma Hjaita sem varði m.a. 4
vitaköst i leiknum og stóð sig af-
bragðs vei að öðru leyti. Geir
Hallsteinsson lé' sinn lakasta
leik i vetur og skoraði aðeins 3
mörk, en i fyrri hálfleik átti
hann til að mynda 13 skot sem
voru varin eða fóru framhjá.
Það var ekki fyrr en undir lokin
að hann skoraði þessi 3 mörk
sin.
Hjá Haukum voru það þeir
Þórir Úlfarsson, Stefán Jónsson
og Guðmundur Haraldsson sem
áttu beztan leik. Markahæstur
hjá FH var Viðar með 9 mörk og
Hörður skoraði 5, en hjá Hauk-
um var Þórir markahæstur með
7 mörk en Stefán Jónsson var
með 3.
Sturla Haraldsson er hér sloppinn framhjá fyrrum félaga slnum I Haukum, Viöari Slmonarsyni,
Haukum. (Ljósm. Gunnar Steinn)
Endurheimtir Valur
forustuna í kvöld
r
En þá mætast Yalur og Ármann og Fram og IR
Deildar-
skipting í
frjáls-
íþróttum
Á siðasta ársþingi FRI var
ákveðið að taka upp deilda-
skiptingu i frjálsiþróttum i
bikarkeppni FRI og var um leið
ákveðið að 1. deild myndi þau 5
félög sem tóku þátt i keppninni i
fyrra og svo það lið sem sigrar i
2. deildarkeppninni i ár, en
keppni i 2. deild skal vera lokið
fyrir 1. ágúst i ár.
Karlar.
lOOm 400m 1500m 5000m hlaup
lOOOm boðhiaup langstökk
hástökk þristökk kúluvarp
kringlukast spjótkast.
Konur.
lOOm 800m hlaup 4xl00m boð-
hlaup, langstökk, hástökk, kúlu-
varp, kringlukast, spjótkast.
Þátttökutilkynningar þurfa að
hafa borizt til skrifstofu F.R.l.
eða i pósthólf 1099 fyrir 1. mai
n.k.