Þjóðviljinn - 13.04.1973, Side 3
LOKSINS
Loksins er nú hafizt handa um að koma upp umferðarljósum á horni
Hringbrautar og Njarðargötu, en af fróðum mönnum er talið að sllkt
myndi draga það mikið úr hraðanum á Hringbrautinni að slysum á
svæðinu vestan gamla Kennaraskólans myndi fækka stórlega.
40 þúsund hafa séð
Kjarvalssýninguna
Fjörutiu þúsund manns hafa nú
séð hina miklu Kjarvalssýningu i
nýja myndlistarhúsinu á Mikia-
túni. Sýningunni lýkur á sunnu-
dag og verður hún ekki fram-
lengd. 1 dag verður sýningin opin
frá 4 til 10 en á morgun og á
sunnudag frá kl. 2 tii 10. Aðgang-
ur er ókeypis.
Eins og lesendur blaða sjá dag-
lega er mikill ruglingur á nafni
hússins, og finnst flestum sjálf-
sagt að kenna hið nýja og glæsi-
lega hús við Kjarval, kalla það
Kjarvalsstaði, Kjarvalssafnið
eða Kjarvalshús. Enda þótt eitt-
hvert annað hús hafi og sé nefnt
eftir listamanninum, þá vill al-
menningur áreiðanlega að þetta
veglega myndlistarhús verði
tengt nafni Kjarvals og það verð-
ur það reyndar hér eftir i munni
almennings. sj
Tónkórmn 1 söng
för til Akureyrar
Tónkórinn sem er blandaður
kór á Fljótsdalshéraði hyggst
fara I söngför til Akureyrar á
pálmasunnudag næstkomandi.
Sungið verður i Akureyrarkirkju
kiukkan 17. A efnisskránni eru is-
lenzk og erlend þjóðlög og fleira.
Einsöng syngur frú Anna Kára-
dóttir.
Tónkórinn var stofnaður haust-
ið 1971 og hóf þá æfingar. Sina
fyrstu söngskemmtun hélt hann
seinnihluta aprilmánaðar 1972 i
félagsheimilinu Valaskjálf á
Egilsstoðum en söng auk þess á
Fáskrúðsfirði og Borgarfirði
eystra þá um vorið.
1 haust hóf kórinn æfingar i
október og söng á kabarett sem
Tónlistarfélag Fljótsdalshéraðs
efndi til á annan jóladag. Frá
áramótum hefur verið unnið að
þeirri efnisskrá, sem kórinn er nú
með. Ætlunin er að syngja i Vala-
skjálf á annan páskadag og þá
fljótlega eins viða á Austurlandi
og ástæður leyfa. Stjórnandi Tón-
kórsins er Magnús Magnússon.
Kórfélagar eru 42.
Mikið um að vera hjá dýravinum
DAGUR DÝRANNA
Á SUNNUDAGINN
Dýraverndunarsam-
bandið gengst fyrir því að
halda svonefndan Dag dýr-
anna n.k. sunnudag, en það
er i fyrsta sinn sem slikt er
gert hérlendis.
Mikið verður um að vera
hjá dýravinum: dýrasýn-
ing yfir daginn og hátiðar-
og skemmtidagskrá um
kvöldið.
Dýrasýningin hefst klukkan 2
eftir hádegi við Fáksheimilið.
Sýndar verða geitur, kiðlingar,
kaninur og dverghænsni meðal
annars. Fáksfélagar bjóða þeim
börnum sem þess óska að
skreppa á hestbak, og geta þeir
sem vilja jafnframt fengið að
láta smella af sér ljósmynd i
vigalegum stellingum á hestbaki.
1 Félagsheimili Fáks, selja Fáks-
konur kaffi og kökur meðan dýra-
sýningin stendur.
Um kvöldið verður svo hátið
eða skemmtun i Austurbæjarbiói,
og hefst hún klukkan 9. Heiðurs-
gestir verða forsetahjónin.
1 Austurbæjarbiói koma fram
þau Guðrún A. Simonar og
Föstudagur 13. áprll. 1973.Í ÞJ6ÐVILJINN —■ StÐA 3
Þjóðviljinn birtir áskorun og mótmœli 18 islenzkra
skipstjóra vegna yfirgangs Breta og V-Þjóðverja á
miðunum við Island -
Stílað til rikisstjórnar Islands:
Gæzlan láti meira
að sér kveða
„Til rikisstjórnar Islands.
Við undirritaðir togaraskip-
stjórar, staddir á miðunum út
af Sv-landi, viljum lýsa yfir
megnustu óánægju okkar yfir
þvi, hvernig á málum er hald-
ið, hvað áhrærir vörzlu hinnar
nýju fiskveiðilögsögu. Vildum
við skora á rikisstjórnina að
hún hlutist til um að land-
helgin verði varin af meiri
hörku en gert hefur verið hing-
að til. Það er kunnara en frá
þurfi að segja að brezkir og
þýzkir togarar hafa stundað
veiðar sinar innan hinnar nýju
fiskveiðimarka á hverjum
tima, eins og þeim hefur bezt
þótt henta hverju sinni og hag-
að veiðiskap sinum eins og 50
milna útfærslan hafi aldrei átt
sér stað.
Þvi er ekki til að dreifa að
brezkir og þýzkir togarar hafi
haldið sig eingöngu i hópum
innan hinnar nýju fiskveiði-
lögsögu. Þeir hafa sézt til og
frá, eitt og eitt skip i leit að
fiski og að veiðum, eins og þeir
gerðu áður en útfærslan átti
sér stað. Brezk og þýzk eftir-
litsskip ásamt togurunum
hafa þverbrotið alþjóða sigl-
ingareglur, gerðar hafa veriö
tilraunir til ásiglinga og alls-
konar dólgshætti haldið uppi
af þeirra hálfu, svo sem þegar
dráttarbáturinn Statesman
hélt uppi gróflegum tilburðum
við b/v Þorkel Mána á sunnu-
daginn var.
Við þetta verður ekki unað og
kallar þetta á öruggari gæzlu
varðskipa. Að okkar dómi er
það ekki nóg að varðskipin
renni yfir fiskislóðina, þar
sem brezkir og þýzkir togarar
eru að hrella islenzk veiðiskip;
klippa aftan úr einu eða fleiri
skipum og stima siðan i burtu.
Þvi þegar varðskipin eru far-
in, þá hefst eftirleikurinn. Það
er vitað mál að gagnslaust er
að klippa á vira veiðiþjófanna
i eitt einasta skipti, þar sem sá
sem klipptur hefur verið þarf
aðeins að liggja nokkrar
klukkustundir meðan verið er
að slá undir nýju veiðarfæri,
og getur svo hafið veiðarnar á
ný óáreittur á sömu slóðum
svo sem dæmi eru fyrir. Ensk-
ur togari,sem klippt var aftan
úr i Grindavikurdýpi s.l.
sunnudag, lá aðeins i nokkrar
klukkustundir við að slá undir
nýjum veiðarfærum, siðan
hefur hann stundað veiðar
óáreittur með flotanum. Okk-
ur hefur skilizt á varðskips-
mönnum að þeir hafi tak-
markað vald til að beita sér
gagnvart veiðiþjófunum. Telj-
um við að það vald þyrfti að
auka, þó fyrr hefði verið, og
hvetjum til róttækari aðgerða.
Einnig vildum við benda á að
tiltækir væru menn I landi til
að leysa varðskipsmenn af
hólmi i frium þeirra, svo skip-
in þurfi ekki að tefjast i höfn
af þeim sökum, þar sem yfir-
drifin verkefni eru fyrir hendi
á miðunum, ef vel á að vera að
staðið.
Nú i dag hafa brezkir og
þýzkir togarar streymt á
veiðisvæðin við Suðvestur-
land. Oskum við eindregið
eftir þvi að þessum skipum
verði stuggað út fyrir fisk-
veiðilögsöguna og öllum til-
tækum ráðum beitt i þeim efn-
um. Svo islenzk skip geti
stundað veiðar sinar óáreitt.
Okkur stendur ógn af þvi
þegar vorgangan kemur út aT
Vestfjörðum; þar hafa á annað^
hundrað brezkir og þýzkir tog-
arar stundað veiðar sinar
undanfarin ár, svo og við
Norður- og Austurland, og
gera það að sjálfsögðu á kom-
andi voru, ef sama linkind
verður á höfð og hingað til hef-
ur verið sýnd i vörzlu hinnar
nýju fiskvéiðilögsögu.
Það kom berlega i ljós á
dögunum hversu gjörsamlega
þeir hunza viðleitni okkar til
að verja landhelgina þegar
floti þýzkra og brezkra togara
fór inn i hólfið á Selvogs-
banka, þar sem öll veiði er
bönnuð,og mokfiskuðu þar. Að
okkar dómi er vart hægt að
sýna íslendingum meiri
ruddaskap og litilsvirðingu. Af
marggefnu tilefni viljum við
alvarlega itreka það að gæzl-
an láti meira að sér kveða en
hingað tii hefur verið og öllum
veiðiþjófum stuggað með rót-
tækum aðgerðum út úr hinni
nýju fiskveiðilögsögu Isiend-
inga.
Skipstjóri á b/v Hólmatindi.
Skipstjóri á b/v Mai.
Skipstjóri á b/v Vestmanney.
Skipstjóri á b/v Oranusi.
Skipstjóri á b/v Freyju.
Skipstjóri á b/v Harðbak.
Skipstjóri á b/v Víking.
Skipstjóri á b/v Karlsefni.
Skipstjóri á b/v ögra.
Skipstjóri á b/v Dagný.
Skipstjóriá b/v Þorkeii Mána.
Skipstjóri á b/v Júliusi Geir-
mundssyni.
Skipstjóri á b/v Guðbjarti.
Skipstjóri á b/v Kofra.
Skipstjóri á b/v Svalbaki.
Skipstjóri á b/v Hjörleifi.
Skipstjóri á b/v Sólbaki.
Skipstjóri á b/v Narfa.
Guörún A. Simonar
Halldór Laxness
Halldór Laxness, og auk þeirra
trióið Litið eitt og Einsöngvara-
kórinn. Litkvikmynd verður sýnd
og fjallar hún um samskipti
manna og dýra. Kynnir verður
Pétur Pétursson útvarpsþulur.
Þá um kvöldið gerir Dýra-
verndunarsambandið einnig
brezka dýravininn Mark Watson
að heiðursfélaga en það er fyrsta
heiðursfélagagjörning þess fé-
lagsskapar. Mark Watson hefur
nýverið gefið Dýraverndunar-
sambandinu dýrasjúkrahús, sem
kemur til landsins innan tiðar, en
fjármálaráöuneytið hefur nýver-
ið tilkynnt að rikissjóður muni
gefa eftir tolla og aðflutnings-
gjöld þessarar einstæðu gjafar
Watsons.
Aðgangseyrir er enginn að
dýrasýningunni við Fáksheimilið,
úþ