Þjóðviljinn - 13.04.1973, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 13.04.1973, Blaðsíða 5
Fösiudagur 13. aprll. 1973. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 5 Þröstur Olafsson, hagfrœðingur: Gj aldeyriskreppan Þaö alþjóðlega gjaldeyriskerfi, sem Bandarikin og bandamenn þeirra komu á fót árið 1944 byggð- ist á notkun gulls eða pappirsdoll- ara jafngildra gulli, sem alþjóð- legum gjaldeyrisvarasjóði, þ.e. sú eining, sem notuð var við end- anleg uppgjör viðskiptajafnaða og alþjóðlegra f jármagnstil- færslna. Þetta kerfi gekk vel fram undir 1960, en þá fóru pen- ingajöfrar og seðlabankastj. Evrópu að taka eftir þvi, að efna- hagsl. styrkleiki Bandarikjavar ekki svo mikill sem skyldi og 35 bandarikjadollarar jafngiltu i reynd ekki einni únsu gulls, sem var opinbert gengi hans. Siðan hefur bandariska heimsveldinu sifellt hrakað. Reynt hefur verið að tjasla þetta gjaldeyriskerfi — sem byggir á heimsveldisstöðu Bandarikjanna — með alls konar uppálöppunum s.s. hinum sér- stöku dráttarréttindum Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins, en án árang- urs. Nú er i tvigang búið að fella gengi dollarans, og þegar þetta er skrifað jafngilda 42,22 dollarar einni únsu gulls. Orsakir krepp- unnar eru þvi fyrst og fremst hnignun bandariska heimsveldis- ins samfara taumlausum fjár- austri bandariska rikisins til striðsrekstrar i Vietnam ásamt miklu mútufé til leppstjórna viðs- vegar um heim, sem ýtti undir verðbólgu i öllum vestrænum löndum. En hún á einnig rætur sinar að rekja til hins félagslega valds, sem peningar hafa, sem þeir fá vegna þess aö þeir grund- vallast á mannlegri vinnu. Innan marka sjálfstæðra rikja er það hinn opinberi gjaldmiðill, sem hefur þessa eiginleika (blætiseðli), en á heimsmarkaðn- um — sem hefur enga sjálfstæða heimsstjórn — er það aðeins efnisleg vara sem er afurð mann- legrar vinnu, sem getur uppfyllt hlutverk peninganna. Sérhvert þjóðriki getur neitað móttöku gjaldmiðils annarrar þjóðar, og ef hún tekur við honum getur hann fallið i gildi i verðbólgu. I hinum rikislausa kapitaliska heimsmarkaði er ekkert, sem getur komið i staðinn fyrir gull, nema einhver þjóðlegur gjald- miðill, sem allir viðurkenna jafn- gildan gulli. Slikur gjaldmiðill er ekki til nú sem stendur. Heims- veldishroki Bandarikjanna, um- söðlun valdsins og alþjóðleg verð- bólga sáu fyrir þvi. Alþjóðlegir striðsgróðamenn, braskarar og bandariskir auð- hringar höfðu náð undir sig miklu magni af eyðsludollurum. Talið var að nokkur hundruð miljóna dala væru þannig á flækingi milli fjármálastofnana EvróDU i.leit að betra æti, en mögrum vöxtum. Safnhús Skagfirðinga á Sauðárkróki. Bókasafnið er á 2. hæð. 256 almenningsbóka- söfn eru á landinu Að þvi er segir i Bókasafnstið- indum, sem gefin eru út af bóka- fulltrúa ríkisins, eru nú starfandi 256 almenningsbókasöfn i land- inu. Skiptast þau þannig að 31 er bæjar- og héraðsbókasöfn, 45 eru sjúkrahúsa-, hæla og skóiabóka- söfn og um 180 sveitabókasöfn og lestrarfölög. Otlán úr almenningsbókasöfn- um hafa stórum aukizt á siðustu árum eða allt til ársins 1972. Hef- ur mest aukning útlána orðið i Reykjavik, og munar þar mestu um fjölgun útibúa frá Borgar- bókasafninu og bókabilanna. Sama er uppi á teningnum með útlánaaukningu á þeim stöðum sem útlánaaðstaðan hefur verið bætt, eða ný safnhús tekin i notk- un. Otlánuð á árinu 1970 voru um ein og hálf miljón bindi, en bóka- eign allra almenningsbókasafn- anna mun vera um 900.000 bindi. —úþ Tamningastöð rekin á Fljótsdalshéraði Hestamannafélagiö Freyfaxi á Fljótsdalshéraði rekur i vetur tamningastöð. Tamningunum er skipt niður i tvö sjö vikna timabil og eru 25 hross i hvoru. Tamn- ingamaður er Ragnar Hinriksson úr Reykjavík og honum til aðstoð- ar Sævar Pálsson frá Möðrudal. Ragnar hefur fengizt við tamn- ingu hrossa viða um land og einn- ig i Danmörku, þar sem hann tamdi islenzk hross hjá dönskum hrossakaupmanni. Freyfaxamenn hafa unnið að miklum endurbótum á mótssvæð- inu við Iðavelli, m.a. sáð i um 10 ha. lands og eru að byggja þar hús, 9x12 m. Félagsmenn leggja fram alla vinnu án endurgjalds. Fjórðungsmótið, 27.-29. júli, verður það fjórða i röðinni, sem haldið er á Iðavöllum og hafa öll verið haldin i umsjá Freyfaxa. A siðasta móti voru sett tvö ís- landsmet, i 800 m stökki Þytur Sveins K. Sveinssonar Reykjavik og i 800 metra brokki Þytur Þor- kels St. Ellertssonar Eiðum. Siðastliðið haust var starfræktur reiðskóli á vegum félagsins og sóttu hann um 50 manns, mest unglingar. Stjórn Freyfaxa skipa: Ingi- mar Sveinsson, formaður, Gunn- ar Egilsson, Guðmundur Þor- leifsson, Jón Bergsson og Þorkell St. Ellertsson. —S.A. Bandariskir auðhringar tóku siö- an af skarið, eftir að samkeppnis- aðstaða þeirra hafði versnað og felldu gengi dollarans án þess að tapa sjálfir, og stórbættu með þvi alþjóðlega samkeppnisaðstöðu sina á kostnað þjóðbanka Evrópu. En litum i eigin barm. Hvernig stóð á þvi, að þetta gjaldeyrishaf- rót barst svo fljótt að ströndum Islands? í siðasta striði lentum við á áhrifasvæði Bandarikjanna, og viðskipti okkar við þau marg- földuðust á skömmum tima. Arið 1950 fer 13,2% heildarútflutn- ings landsins til Bandarikjanna. Tiu árum seinna er hlutfallið enn svipað, en 1971 fara 36,7% heild- arútflutningsins til Bandarikj- anna. Innkaup okkar frá Banda- rikjunum eru mun minni og lækk- uðu hlutfallslega á sama timabili. Með þvi að selja i siauknum mæli til Bandarikjanna en kaupa inn i Evrópu, græddum við á rangskráningu dollarans og eig- um þvi hluta af velferð okkar að þakka heimsveldisstöðu Banda- rikjanna. Vegna þessara nánu viðskipta- tenglsa hafa Islendingar hagnazt á arðráni Bandarikjanna i þróun- ariöndunum svokölluðu. Við höf- um lifað eins og snikjudýr á r.án- dýri og unað hlut okkar bærilega. Það er fyrst nú, að við finnum af- leiðingar þessarar magaástar okkar til Bandarikjanna. Eins og að framan getur jókst útflutningur okkar til Bandarikj- anna mjög verulega á viðreisnar- árunum eða úr 14,1% heildarút- flutning 1960 i 36,7% 1971. A sama tima drógst hlutfallslega saman útflutningur okkar til annarra viðskiptalanda. Gengishækkun gjaldmiðla Evrópu samfara gengislækkun dollarans þýöir, að við þurfum alltaf fleiri og fleiri dollara til að geta keypt sama vörumagn og áður, m.ö.o. við- skiptakjör okkar versna að öðru óbreyttu. Það er þvi ekkert undarlegt þótt vörur frá Evrópu hækki stórlega i verði i kjölfar gjaldeyriskreppunnar. Við flytj- um inn hluta verðbólgunnar. Gengisfellingarnar tvær, sem gerðar voru i kjölfar þessara sviptibylja hins alþjóðlega fjár- magns, höfðu þann tilgang að vega upp á móti versnandi við- skiptakjörum landsins, þ.e. að tryggja útflytjendum sama krónufjölda fyrir kilóið af fiskin- um eftir gengisfellingu dollarans eins og áður, þvi það er krónu- fjöldinn, sem skiptir þá máli — ekki dollarar. Hefði gengi islenzku krónunn- ar verið óbreytt, fengi islenzkur seljandi færri krónur fyrir út- flutning sinn en áður, ef verðið er- lendis er óbreytt. Hækki hins veg- ar verðið erlendis til jafns við gengisfellinguna, má láta gengi krónunnar vera óbreytt. Islenzku fiskurinn á Banda- rikjamarkaði mun hins vegar hafa hækkað um ca 10% fljótlega eftir gengisfellingu dollarans, þannig að samkvæmt þvi hefði ekki þurft að láta krónuna fylgja dollaranum. Ef kilóið af fiski selst nú þar ytra fyrir einn dollar gefur það islenzka útflytjandanum lið- lega 97 krónur. Fyrir gengisfell- ingu dollarans seldist það á 90 sent sem samsvaraði um 87 krón- um. Hefði gengi islenzku krónunnar hins vegar verið óbreytt, fengi is- lenzki útflytjandinn einn dollara fyrir fiskkilóiö sem jafngilti ekki nema 87 krónum.Ef nú aflahorfur og verðlagsþróun innanlands væru hagstæð, hefði engin þörf verið á þvi að láta krónuna fylgja dollaranum, það heföi bara þýtt aukinn gróða fyrir útgeröina. Þar sem hins vegar bæði 1. marz og 1. júni voru bersýnilegar miklar kauphækkanir, og þar með veru- leg hækkun á framleiðslukostn- aði, var gengislækkun islenzku krónunnar réttlætt með þvi. Stöð- ugt verðlag innanlands er þannig ein af forsendum fyrir stööugu gengi, þótt það sé engin trygging fyrir þvi. Hver framtiðarþróun þessara mála verður er erfitt að spá. Þróunin virðist þó vera sú að það myndist nokkur afmörkuð gjaldeyrissvæði i auðvaldslönd- unum, þar sem reynt verður að stjórna gjaldeyrismálum sam- eiginlega, en stjórnleysi þeirra mála er einn veikasti hlekkurinn i hinu kapitaliska efnahagskerfi, vegna skorts á alþjóölegum gjaldmiðli. Verði þróunin á þann veg, að Bandarikin gripi til æ meiri verndunarráðstafana þá eru það fyrst og fremst smælingjarnir meðal þjóðanna, sem fá aö kenna á þvi. Gengisfelling doliarans hefur átakanleg áhrif á útflutning þriðja heimsins til Bandarikj- anna og þeim mun meiri sem út- flutningur er stærri hluti af þjóð- artekjum eins lands. Bandarisk- Þröstur ólafsson. SEINNI HLUTI an almenning skiptir þetta ekki meginmáli þvi útflutningur nam aðeins 4% af þjóðartekjum þeirra 1971, meðan sama hlutfall nam 41% i Belgiu og um 50% hér. Út- flutningur er þvi forsenda vel- megunar litilla þjóða með litla heimamarkaði, en er nánast aukaatriði fyrir stærri þjóðir með stóra heimamarkaði. Þröstur Óiafsson ALLT TIL FERMINGARGJAFA ★ Kastle-skíöi ★ Dachstein-skíðaskór ★ Marker-öryggisbindingar ★ Skíðastafir ★ Skíðaúlpur ★ Svefnpokar, bakpokar, vindsængur og tjöld ★ V-þýzk fjölskylduhjól með gírum ★ Veiðistangir, veiðihjól Páskaegg í úrvali. Munið viðskiptakortin í matvörudeild. SKEIFUNNl 15 OPIÐ TIL KL. 10 í KVÖLD Imnkiim er tmkhjarl BÚNAÐARBANKINN

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.